Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984. 11 slíka. Eg hef lengi haft áhuga á að vita eitthvað um tölvur og hvemig þær vinna. Þaö hefur veriö á dagskránni hjá mér nokkuö lengi að nota tölvu í sambandi viö þjálfunina en ég verö aö viðurkenna aö ég hef ekki komið því í verk ennþá. Eg vona aö það veröi fljót- lega. Ég er aö byggja hér í Mosfellssveit- inni og ég held aö það væri hræsni aö segja að byggingin væri eitt af áhuga- málunum. Eftir aö viö fluttum inn hef ég verið latur en þaö lagast vonandi.” „Draumurinn að horfa á HM" — Nú hefur þú staðið lengi í eldlín- unni og einhvem tíma hlýtur aö koma aö því að þú hættir að leika og jafnvel aö þjálfa, þó ég þykist vita að margir íþróttaáhugamenn óski þess aö þú verðir viðloðandi sportið um ókomin ár. En hvaö langar þig mest til aö gera eftir aö þú hættir í íþróttunum? ,,Þaö er eitt sem mig hefur lengi dreymt um að gera eftir að maður hættir í sportinu og þaö er aö fara utan og horfa á stærstu keppnirnar í knatt- spyrnunni. Mig langar til dæmis til að fylgjast meö heimsmeistarakeppninni einhvern timann á næstu árum og stefni aö þvi að láta þann draum ræt- ast. Þá verður þaö örugglega framtíðarverkefni fyrir mig aö klára húsiö en auðvitað stefni ég að þvi aö klára þaö sem fyrst. ” „Hætti ef liðið tekur ekki framförum" — NúhefurþúþjálfaöÞróttínokkur ár. Hyggst þú hætta með liðið eftir yfir- standandi keppnistímabil eöa ætlar þú aðhalda baráttunni áfram? „Þaö er voðalega erfitt að svara þessari spumingu. Þaö er rétt að ég er búinn að þjálfa Þrótt í nokkum tíma og eins og liðið leikur nú get ég ekki verið ánægður. Ef leikur liösins fer ekki aö lagast og það tekur ekki framförum sé ég ekki annað en ég hætti sem þjálf- ari,” sagði ÁsgeirElíasson. -SK. „Get ekki án Ásgeirs verið” — segir eiginkona hans, Soffía Guðmundsdóttir „Mér finnst Ásgeir alveg yndislegur maður og ég get ekki án hans verið,” sagði eiginkona Ásgeirs Elíassonar, Soffía Guðmundsdóttir, í samtali við DV. „Við kynntumst á ferðalagi með unglingalandsliðum í handknattleik í Kaupmannahöfn. Þegar leikjunum var lokiö var farið aö skemmta sér og um leiö og tónlistin byrjaði kom Ásgeir, bauö mér upp og það má segja aö þá hafi ég fyrst fallið fyrir honum. Eftir að heim var komið hittumst við oft í Glaumbæ sáluga og smátt og smátt þróaðist þetta í hjónaband. ” Er Ásgeir duglegur við heimills- störfin? „Eg myndi segja að hann væri með afbrigðum duglegur. Hann setur þvott í þvottavél, vaskar upp og hugsar um börnin til fjögur á daginn. Hann er mjög laginn viö að umgangast böm og ferst það vel úr hendi. Ég get varla hugsaö mér duglegri húsbónda,” sagði Soffía Guðmundsdóttir. -sk. Ásgeir fékk að sjálfsögðu tækifæri til að spyrja einnar spumingar og hún er þannig: Er raunhæft að blanda steinoh'u saman viö fúavamarefni og fær maöur út úr því betra efni eða jafngott? Og til að svara þessari spumingu haföi DV samband við Jóhann Hákonarson sem starfar hjá Kristjáni 0. Skagfjörð, en það fyrirtæki flytur inn hiö þekkta efni solignum og fer svar Jóhanns hér á eftir: ,,Eg hef heyrt að þetta hafi verið gert en get ekki mælt með því. Sérstak- lega ekki að verið sé að blanda stein- olíu saman við solignum því sá mjöður er nægilega góður einn sér. Framleið- andi fúavarnarefnis, hvaða efni sem um er að ræða, mælir alltaf meö því að viðkomandi efni sé notað óblandað.” Kristján Jónsson i Þróttí. Leikmaður framtíðarinnar iknatt- spymu að matí Ásgeirs. FULLT NAFN: Ásgeir Elíasson. HÆÐ OG ÞYNGD: 180 cm og 77 kg. BIFREIÐ: Daihatsu Charmant. GÆLUNAFN: Geiri. UPPÁHALDSFÉLAG, ISLENSKT: Fram. UPPÁHALDSFÉLAG, ERLENT: Liverpool. UPPÁHALDSlÞRÓTTAMAÐUR, tSLENSKUR: Guðjón Jónsson, Fram. UPPÁHALDSlÞRÖTTAMAÐUR, ERLENDUR: Pelé. MESTU VONBRIGÐI I IÞRÖTTUM: Þegar lið mitt leikur undir getu og tapar. MESTA GLEÐISTUND . I tÞRÖTTUM: Þegar lið mitt ieikur vel og vinnur leiki. ÖNNUR UPPÁHALDSIÞRÖTT: Handknattleikur. UPPÁHALDSMATUR: Get ekki gert upp á milli lambalæris og lamba- hryggjar. UPPÁHALDSDRYKKUR: Kaffi. UPPÁHALDSSJÓNVARPSÞÁTT- UR: Iþróttir. UPPÁHALDSLEIKARI, ISLENSK- UR: Gísli Halldórsson. UPPÁHALDSLEIKARI ERLEND- UR: Charlie Chaplin. UPPÁHALDSHLJÖMSVEIT: Bítl- arair. MINNISSTÆÐASTI LEIKUR: Fram-lBV í Eyjum 1968. Við unnum 4—2 og ég skoraði tvö mörk. HVAÐ FER MEST I TAUGARNAR Á ÞÉR I SAMBANDI VIÐ IÞRÖTT- IR: Aðtapa. ERFIÐASTI ANDSTÆÐINGUR: Slgurður Indriðason. HELSTA METNAÐARMÁL I LlFINU: Að sjá mér og mínum sæmilega vel farborða. HVAÐA PERSÖNU LANGAR ÞIG MEST TIL AÐ HITTA: Enga sér- staka. RÁÐ TIL UNGRÁ KNATTSPYRNU- MANNA: Stunda æfingar af kappi þvi æfingin skapar meistarann. HELSTI KOSTUR: Rólyndi. Hefur komið sér vel í starfi og hér heima. HELSTI VEIKLEIKI: Að geta ekki hættað reykja. LEQCMAÐUR FRAMTtt)ARINNAR I KNATTSPYRNU: Kristján Jóns- son, Þrótti. BESTIÞJÁLFARISEM ÞU HEFUR HAFT: Guðmundur Jónsson. HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA VERK YRÐIR ÞÚ HELSTI RÁÐA- MAÐUR ÞJÖÐARINNAR Á MORGUN? Gera meira fyrir íþrótt- irnar. ANNAÐ VERK: Að ieyfa bjórinn. Chaplin er i miklu uppáhaldi hjá Ásgeiri. POMRFAB Í2S WT Vasaútgáfa af skurðgröfu ódýr í innkaupi, fljót að vinna sig upp, lítill viðhaldskostnaður, auðveld í meðförum. A — 3’11" ” (1.2m) ' D - 6 11 (2.10m) E — 5’10" (1.77m) Std.Dipper B — 8'7V," - (2.46m) “ V /' V - 5’6" —^(1.670m) - j (1.7 5 8 2m) G - (2. 7 6 28m) j Ext.Oippei Ext.Dipper belco sf Grafan sem kemst þar sem aðrar verða frá að hverfa vegna stærðar sinnar og/eða þyngdar. Fáanleg með bensín- eða dísilvél. Til sýnis að Ármúla 36 í dag milli kl. 10.00 og 16.00. ÁRMÚLA 36 - REYKJAVÍK, SÍMI 84363.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.