Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Blaðsíða 37
Mfif mm. .£S HUOACIHAOTTA. T VH
ap
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984.
37
Saga skipanna í Hafnarfirði:
Gullskip,
silfurskip
og saltskip
Um þessar mundir stendur yfir
sýningin Saga skipanna í Galierí Há-
Tidlti i Hafnarfirði. Á sýningunni
kennir ýmissa grasa. Þar eru skips-
líkön, skipamyndir, í andyri er tundur-
dufl (óvirkt) og einnig gefur þama að
líta leynivopniö úr þorskastríðinu,
vírklippumar sem Landhelgisgæslan
notaöi til þess að klippa vörpumar frá
breskum togurum sem ekki virtu land-
helgi okkar.
Á sýningunni er meöal annars líkan
af skuttogara frá því í árslok 1945, eftir
Andrés Gunnarsson, fyrrverandi vél-
stjóra, og mun það vera fyrsta hug-
myndin sem kom fram að skuttogara.
Þá er þama til dæmis Gullfoss, líkan af
Gullskipinu, saltskip, sem er gert
þannig að seglgarnsþræðir eru
strengdir á grind og henni komið fyrir í
saltnámum á Spáni. Þar kristallast
saltið á þræðina og líkanið verður til.
„Þannig skapa náttúra og maðurinn
listaverk saman,” segir í sýningar-
skrá. Þaö þarf engum að koma á óvart
að verkið er í eigu Saltsölunnar hf.
SGV
Uarna er líkan af Gullskipinu, Het Wapen Van Amsterdam. Það verður lik-
lega ekki svona útiitandi efþað finnst i sandi.
Saltskip. Seglgarnsþræðir strengdir á grind og komið fyrir i saltnámum á
Spáni. Þar kristallast saltið á þræðina.
Þetta er Júlía II, smiðuð af Ragnari Imsland, Höfn í Hornafirði. Allir hlutír líkansins eru handsmíðaðir og
það tók Ragnar allar fristundir í fjögur ár að fullgera skipið. Það er hægt að knýja vindur, skrúfu og radar-
loftnet með rafmagni.