Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 13
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984. Rósa við rallbilinn sinn sem er af gerðinni VW Golf. „Ég byrjaði í fyrra að taka þátt í rallakstri og nú finnst mér þetta það skemmtilegasta sem ég geri,” sagði Rósa Guðmundsson, 19 ára stúlka, sem búsett hefur verið i Lúxem- borg síðastliðin 10 ár, í viðtali við Breiðsíðuna. Rósa hefur tekið þátt í fjölmörgum rall- keppnum og hefur velgengni hennar verið með ólíkindum og hefur hún aldrei hafnað neðar en i 4. sæti. Nú sem stendur er hún stigahæst i kvennaflokki í röð keppna sem fara fram i Lúxemborg. Rósa sagðist þurfa að flýta sér út aftur til að halda áfram í þessari keppni. Hún skrapp hingað til landsins til að taka próf á mótorhjól. Nú sem stendur ekur Rósa VW Golf sem er 1600 cc. Einu sinni hefur hún velt bilnum en sem betur fer varð henni ekki meint af þvi og lét það lítið á sig fá. Hún hefur þrisvar verið í fyrsta sæti og mörgum sinnum i öðru sæti. Þegar hefur hún eignast 10 bikara og ótal aðr- ar viðurkenningar í keppnum sinum. Yfirleitt er það þannig að konur keppa sér og karlar sér i ralli. Rósa hefur þó tekið þátt i keppni í karlaflokki. í fyrsta skipti sem hún gerði það varð hún í 2. sæti. Það varð mikil barátta milli 13 hennar og bílsins sem hafnaði að lokum í fyrsta sæti. Það var enginn sem vissi að það var kvenmaður sem var undir stýri á bílnum sem lenti í öðru sæti. Sigurvegarinn varð heldur en ekki hissa þegar kvenmaður steig út úr bilnum. Rósa tók einnig þátt í að reynsluaka Fiat Uno og varð þar i öðru sæti. Þess má geta að Rósa á bróður sem heitir Öskar. En Óskar hefur þegar getið sér góðan orðstir i Lúxemborg fyrir hæfni sína í körfu- bolta þó að hann sé aðeins 12 ára. Hann er fyr- irliði í ABC Contern og eru þeir nú Lúxmeist- arar í unglingaflokki. Draumur Óskars er að verða minnst 2 metrar á hæð og komast til Bandaríkjanna i gott körf uboltaliö. Við óskum þeim systkinum svo góðs gengis i iþróttmn sinum og vonum að þau verði sigur- sæl áfram. Rósa starfar hjá bílaleigu i Lúxemborg og býr hjá foreldrum sínum þar. Hór er Rósa á fuiiri ferð i keppni. Aftari bíiiinn er hennar. SVÍNKA BIÐUR AÐ HEILSA Það er oröiö nokkuð langt síöan við höfum heyrt og séö frá fröken Svínku. Hvað sem því líður er hún enn í fullu f jöri og lendir í hverju ástarævintýrinu áfæturöðru. En það er ekki allt sem sýnist hjá Prúðu leikurunum. Hver og einn af þeim er til í mismunandi stærðum allt eftir því í hvaða tilefni þeir eiga að koma fram í þáttunum. Stundum eru Prúðu leikaramir á stærð við mann- eskju og er þá yfirleitt lifandi maður inni í þeim. Yfirleitt fáum við þó að sjá handstýrðar dúkkur á skjánum. Sjálft sviðið sem við s jáum oftast er ekki nema hálfur metri á stærð og gólf- iö opið þannig að dúkkurnar geta hreyft sig fram og aftur. Undir sviðinu er síöan fólk sem stjómar öllum hreyf- ingum. Svínka biður að heilsa og vonast eft- ir því að fá tækifæri til að sýna sig á Is- landiaftur. FRELSUN í SJÓNVARPI í Noregi er frjáls útvarpsrekstur kominn langt á veg og virðist vera mikill áhugi fyrir sliku þar i landi og ekki sist meðal kristilegra samtaka. Fram að þessu hafa kristileg samtök staðið á bak við nokkrar útvarpsstöðvar. Þessi útvarps- rekstur þeirra hefur fallið í mismunandi jarðveg hjá Norðmönnum. Stundum hef- ur gengið svo langt að reynt hefur verið að lækna fólk í gegnum útvarp með guðs- orði einu. Nú stendur til að gefa leyfi fyrir fleiri stöðvum og meðal annars leyfi fyrir fleiri sjónvarpsstöðvum. Kristnir þar i landi hyggjast sækja um Ieyfi fyrir sjónvarps- rekstri. Bíða menn nú spenntir eftir því hvemig læknað verður og frelsað i gegn- um sjónvarpið. Talið er að áhrifin séu mun sterkari i gegnum sjónvarp en útvarp hvað lækningamátt og frelsanir snertir. ORMAVERKFALL Verkfalli hjá ormatínurum i bænum Main i Bandarikjunum lauk nýlega. Það stóð yfir í sjö vikur og kröfðust þeir einu centi meira fyrir maðkinn (29 aurar). Þeir fengu kröfum sínum framgengt og hafa nú um 60 maðkatín- arar hafið störf sin að nýju. Og fá þeir nú 4 cent fyrir hvern orm sem þeir selja sportveiðimönnum. AFMÆUSBARNIÐ! Afmælisbamið okkar þessa viku I er Guðmundur Kjæmested. Hann I er fæddur í Hafnarfirði 29. júní I 1923. Hann tók skipstjórapróf á I varðskipum hjá ríkinu árið 1953. I Hann hefur síðan verið skipherra á I varöskipunum og varla til það j mannsbam sem ekki kannast við j þessa hetju sem hefur háð ófáa i hildina við erkifjendur okkar, | Breta, á meðan á þorskastríðunum j stóð. j j En hvað segir afmælisdagabók- j in um þennan íslenska „hershöfð- j inga”. Jú, það virðist kœna heim og j saman en þar stendur: Þú hefur | drottnandi persónuleika. Þú ert j ásækinn, óttalaus og alltaf bjart- j sýnn. Þú ert skarpgáfaður, oft j þrjóskur í störfum þínum og mjög j tilfinninganæmur. Gættu þess að j missa ekki stjórn á skapi þínu. I Vertu opinskárri við vini þína. HRAÐI er svarið s I nútíma þjóðfélagi getur rökrétt hugsun og snör handtök skipt öllu máli. Með auknum veltuhraða og lœgri tilkostnaði, nýtir þú fjármagn þitt hetur og stendur því betur að vígi í sífellt harðnandi samkeppni. Kynntu þér ferðatíðnina, sérfarmgjöldin og þjónustu okkar strax, því þinn hagur er okkar fag. FLUGLEIDIR FLUGFRAKT simi: 27800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.