Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1984, Qupperneq 1
nv MÁNTTDAGUR13. ÁGtJST 1984.
Alltaf nýjustu fréttir frá Los Angeles
Fjórða
gullið
Carl Lewis sést hér fagna sín-
um fjórðu gullverðlaunum.
Það eru félagar hans í 4 x 100 m
boðhlaupsveitinni, sem setti
heimsmet, sem bera hann á
gullstól.
DV-símamynd:
Anacleto Rapping.
Næsta takmark er nýtt
heimsmet í langstökki
— sagði Carl Lewis eftir að hafa unnið fjórðu gullverðlaun sín og leikið sama bragð og Jesse Owens
„Jesse Owens er enn sami maður
fyrir mér. Hann er helgisaga, ég er
bara persóna sem lék eftir eitt mesta
afrek í frjálsum íþróttum. Það er mér
mikill heiður,” sagði Carl Lewis eftir
að hann hafði unnið sin f jórðu gullverð-
laun á ólympíuleikunum í Los Angeles,
leikið eftir bragð Jesse Owens frá leik-
unum í Berlín 1936. Báðir sigurvegarar
í 100 og 200 m, langstökki og 4X100 m
boðhlaupi. Sagan mun lengi geyma
nöfn þeirra.
,AUir sögöu að ekki væri hægt að
leika þetta eftir, meira að segja sagði
ég fyrir ári að ég byggist ekki við að
geta leikiö þetta eftir Owens. En það
tókst og mér h'ður ákaflega vel vegna
þess að ég lagði hart að mér til að ná
þessum árangri,” sagði Lewis.
Sigurður
fjórði marka-
hæsti á OL
Frá Páli Júlíussyni, fréttamanni DV í
Los Angeles:
Sigurður Gunnarsson varð fjórði
markahæsti leikmaður handknatt-
leikskeppninnar á OL þegar upp var
staðið. Tíu markahæstu leikmennimir
voru:
Björn Jilsen, Svíþj. 50/20
Vasile Stinga, Rúmeníu 47/16
Mile Isakowic, Júgósl. 39/15
Sigurður Gunnarsson 34/8
Jae-WongKang,S-Kóreu 33/10
Tea-Koo Kang, S-Kóreu 32/9
M. Demitrev, Rúmeníu 30/0
Veselin Vujovic, Júgósl. 29/9
Cesilio Alonso, Spáni 27/3
Peter Waller Lash, USA 26/10
Aðrir Islendingar, sem skoruðu,
voru: 21. Atli (20 mörk), 22. Kristján
(20/9), 51. Alfreð (12/1), 62. Guðmundur
(10) og Þorgils Ottar (10), 68. Jakob
(9), 82. Þorbjörn (7), 106. Bjarni (3) og
127. Þorbergur (1). Steinar og Sigurður
Sveinsson skoruðu ekki mark.-PJ/-SOS
Gylfi og Magnús
eru báðir hættir
drógu sig báðir út úr landsliðinu í golfi í gærkvöldi vegna óánægju
með val kylfinga á World Cup
„Það er auðvitað ekkert gaman-
mál að þurfa að draga sig út úr
landsliði en svona gengur þetta ekki
lengur. Við i Golfklúbbl Suðurnesja
erum einfaldlega búnir að fá nóg,”
sagði Gylfi Krlstinsson, kylfingur úr
GS, en hann ákvað í gærkvöldi,
ásamt Magnúsi Jónssyni, GS, að
gefa ekki kost á sér i landsliðið i golfi
sem tekur þátt í Norðurlandamótinu
um aðra helgi.
Að sögn Gylfa hefur það verið föst
venja að velja tvo efstu menn á ls-
landsmótinu til aö leika fyrir lslands
hönd á World Cup golfmótinu í Ir-
landi ár hvert en út af venjunni var
brugöið að þessu sinni.
„Ég átti von á því að verða valinn
til að taka þátt í þessu móti og ég er
ekki einn um að hafa orðið hissa
þegar ég frétti að Ragnar Olafsson,
GR, heföi verið valinn. Það er mikill
óþefur af þessu vali. Magnús Jóns- _
son hefur komið einna sterkastur út |
úr fjölmörgum mótum í sumar og ■
varð fjórði stigahæstur í sumar. I
Engu að síður rétt skreið hann inn i ■
landsliðið nú sem níundi maður. Það ■
er greinilegt að það er ekki sama |
hvort maður er f GR eða GS. Við ■
erum orðnir þreyttir á þessum I
vinnubrögðum og mælirinn fylltist I
alveg í gær,” sagði Gylfi Kristinsson. j
Hann hefur einstæða hæfileika sem
íþróttamaöur, náttúrubam í þess orðs
fyllstu merkinu og hefur sameinaö það
góöum gáfum og þjálf un.
„Þetta er svo sérstakt og ég hef svo
mörgum að þakka árangur minn. Þeir
eru of margir til aö hægt sé að nefna þá
með nöfnum. Það eru gerðar miklar
kröfur til mín — allir Uta upp til mín —
og ég mun reyna af fremsta megni að
standa undir því. Eg held áfram í
íþróttunum af fullum krafti en mun nú
leggja langmesta áherslu á langstökk-
ið. Næsta takmark er að slá heimsmet
Bob Beamon í langstökkinu, 8,90
metra. Það á að takast,” sagði hinn
geðþekki bandariski blökkumaður.
sem hefur unnið hug og hjarta millj-
arðaumaiianheim. hsim.
• Gísli Halldórsson.
„Einn af
stærstu dög-
um lífs míns”
— sagðií Gísli Halldórsson, forseti OL-nefndar
íslands, sem varð 70 ára í gær
Frá Þóri Guðmundssyni, fréttamanni
DVíLos Angeles:
Gísli Halldórsson, forseti Ólympíu-
nefndar tslands, hélt upp á 70 ára
afmælið sitt hér í Los Angeles í gær
þegar lokahátíðln fór fram. — Þetta er
einn af stærstu dögum í lífi mínu og
stór sigurhátíð, sagði Gísli í stuttu
spjalli við DV.
— Þetta hefur verið hreint stórkost-
legt. Ég er mjög ánægður með árangur
handknattleiks- og júdómanna okkar.
Þeir hafa staðiö sig vel. Nú vona ég að
þjóðin styðji við bakið á íslenskum
íþróttamönnum. Við höfum rækilega
afsannað að lslendingar eigi ekki
erindi á OL. Það er mín besta afmælis-
gjöf, sagðiGísii.
Gísli sagði að skipulag OL hefði ver-
iö mjög gott og okkur hefði tekist að
fylgjast mjög vel með öllum íslensku
keppendunum þótt hópurinn nú væri sá
stærsti sem ísland hefði sent á OL.
— Ég spái siglingamönnum okkar
mikilli og góðri framtíð. Okkur
dreymdi um að Island næði sjötta sæti
hér en þorðum ekki aö gera mikiö úr
því áður en haldið var til Los Angeles.
Þrátt fyrir að A-Evrópuþjóðirnar hafi
ekki verið með hér þá erum við án efa
með eitt af 6—10 bestu handknattleiks-
landsliöum heims, sagði Gísli.
Gísli sagði að að sjálfsögðu hefði
frammistaða Bjarna Ág. Friðriks-
sonar veriö toppurinn hjá Islandi á OL.
Hann vann þar frækilegt afrek í erfiðri
keppni. Þá var það einnig ánægjulegt
að Einar Vilhjálmsson skyldi ná sjötta
sæti i spjótkastinu.
— Það er nú ljóst að við verðum að
styðja afreksmenn okkar og aðra
íþróttamenn vel í framtíðinni, sagði
Gísli sem sagði að sér hefði fundist
mjög ánægjulegt að hafa fengið tæki-
færi til að vera með eins góðum og
samstilltum hópi frá Islandi og keppti
fyrir hönd þjóöarinnar á OL.
DV vill nota tækifærið hér og óska
Gísla Halldórssyni til hamingju með
afmælið.
-ÞÓ.G/-SOS
Sigurður
og Ragnar
keppa á
World Cup
islandsmeistarinn í golfi, Sigurður
Pétursson, GR, og Ragnar Ölafsson, GR,
hafa verið valdir til að keppa fyrir ís-
lands hönd á World Cup golfmótinu sem
fram fer í Suður-irlandi, á Watervill leik-
vanginum, í septcmber. Þetta er mikið
mót og verður fróðlegt að fylgjast með
árangri þeirra Sigurðar og Ragnars.
Ekki eru menn á eitt sáttir um val þeirra
félaga eins og fram kemur annars staðar
ásíðunni. -SK-
V