Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Síða 28
36
wm
Sanyo er með á nótunum.
Snjáðar buxur og slitnir skór
BREflK MflCHINE-BREAK DflWCE PflRTY: |
Skrykkveisla
Þaö er eiginlega ekki hægt að tala
um neina tónlist sem heitir skrykkur
(breik). Skrykkurinn, sem þróaður var
í New York, var dansaður undir diskó-
tónlist til að byrja með, þar sem hið
síöur en svo aölaöandi klór lék stórt
hlutverk.
Það sero nú kallast breikdanstónlist
er því ekki annað en angi út frá diskó-
inu, og diskómaöur hef ég aldrei verið
nema síður sé. Því finnst mér þessi
plata hin leiðinlegasta. og nýt hennar
alls ekki og hún mun í framtíöinni fá aö
rykfalla innan um plötur frá árunum
1977—81 sem eru að mínum dómi
verstu ár almúgatónlistar.
Lagiö Street Dance er þó engan veg-
in ómerkileg smíð, fyrir lag af sinni
tegund að vera, en ekki myndi það
bjarga heilli plötu. En þessi plata er
sjálfsagt yfir meðallagi miöað við það
semgeristíþessaritónlist. SigA.
BRÆÐURNIR SEX
Ómótstæðileg
Eg man ekki eftir þvi aö hafa nokkru
sinni heyrt fyrstu plötu HLH-flokksins
sem ég held að hafi borið og beri nafnið
1 góöu lagi. Eitthvað heyrði maöur nú
af henni í útvarpinu og Riddari götunn-
ar heyrðist svo mikið aö maöur hefur
ekki enn gleymt þvi lagi. Gaman var
h'kaaðheyraþaðá útlensku.
Það eru 15 lög á þessari nýju plötu
HLH-flokksins, frá 55 sekúndum og
upp í 3,58 í spilatíma. Þegar maður
tekur nærhaldið úr umslaginu blasir
við auglýsing frá ávaxtasafafyrirtæki.
Ekki byrjar það vel, skítugar nærbux-
ur. Svo fer platan á fóninn. Það fyrsta
sem heyrist er ódýr eftirlíking af Wolf-
man Jack sem þama heitir Minkurinn.
Ekki batnar það. Þaö er kannski til of
mikil ætlast af þessum mönnum að
halda að eitthvað frumlegt sé á þessari
plötu, en fyrr má nú aldeilis (fyrr)
vera.
Svo rúlla lögin eitt af öðru, ýmist
erlend, ókunn eða eftir B. Halldórsson
eða Þ. Sigurðsson. Textar eftir HLH. I
laginu Einmana kemur eftirfarandi
fram í texta: „Máttvana, án þín er ég
máttvana”. Orðið er máttvana, án
hvers skal ekki sagt því HLH eru bakk-
! aðir upp af úrvalsliði. M.a. eru Ásgeir
(Oskars, Tómas Tómasson, Hjörtur
Howser og fleiri góðir hljóöfæraleikar-
ar þama. Á bak við upptökuboröið eru
Gunnar Smári, Hjörtur, Sigurður
Bjóla, Pétur Hjaltested og Baldur Már
Amgrímsson. En samt er orðið mátt-
vana. Textar eru flestir í anda rokks-
ins, um ást á sextán ára stúlkum.
„Mér er sama þótt möskvastæröin sé
fullsmá”.
SigA
1 HLH-FLOKKURINN
Leyfist mér að taka undir orð
gagnrýnanda frá Bretlandi sem
skrifaði eitthvað á þessa leið: Þaö
fálæti sem almenningur sýnir Elvis
Costello ber vott um ákveðna tegund
heyrnarleysis í óeiginlegri merkingu.
Þetta eru orð að sönnu. Um árabil
hefur þorri rokkunnenda daufheyrst
við tónlist hans, skellt skolleyrum viö
nánast hverju því sem hann hefur
boðiö upp á og ég ætla mér ekki þá dul
aö snupra fólk fyrir þetta óskiljanlega
fálæti. En ég segi: Þið hafiö farið
mikilsámis!
Þaö er vont aö skrifa um uppáhaldiö
sitt en í tónlfst Costellos finn ég allt
sem ég leita að í rokktónlist: liprar
laglínur, greindarlega texta, útsetn-
ingar við hæfi, góðan hljóðfæraleik og
það sem kannski er mest um vert:
augnablik þar sem þetta allt mætist í
einum punkti og hlustandinn veröur al-
tekinn hrifningu. Eg viðurkenni aö tón-
list Costello er ekkert fljóttekin, sjálfur
var ég í þann veginn aö kasta þessari
nýju plötu frá mér eftir að hafa hlustað
á hana í tvígang; nú er honum aö förl-
ast! — en svo er eins og skýjaþykknið
sópist burt og sólin hellist yfir mann.
Má vera að sumum þyki Costello helst
til svartsýnn og víst er að lögin hans
eru ekkert til þess að raula með í sam-
kvæmum, en rokkið á líka sína metn-
aðarfullu listamenn sem láta slíkt
hjóm sem vind um eyru þjóta. Elvis
Costello er einn þeirra.
Costello hefur veriö afkastamikill á
síðustu árum, gefiö út plötu á hverju
ári og fékk dálítinn smell í fyrra með
laginu Everyday I Write The Book af
plötunni Punch The Clock. Hún þykir
aðgengilegust af síðari tíma plötum
Elvis og sannast sagna lakasta platan
frá hans hendi um langt skeiö. Enn er
platan frá 1982 í heiðurssæti í mínu
plötusafni: Imperial Bedroom og nýja
platan, Goodbye Cruel World, kemur
henni næst. Besta lagið á nýju plötunni
er að mínum dómi: Peace In our Time,
yndislega einfalt og áhrifaríkt og til-
vitnun í ein mestu öfugmæli sögunnar
þegar Chamberlain forsætisráðherra
Breta sagöi eftir fundinn við Hitler aö
friöur væri tryggður í Evrópu. Upp-
hafslagið, The Only Flame In Town,
þar sem Daryl Hall syngur dúett meö
Elvis er líka forkunnargott, svo og
Worthless Thing og eina aðfengna
lagiö: I Wanna Be Loved. Annars er
fyrri hliðin á þessari plötu ósvikið stór-
virki og hvergi snöggan blett að finna.
Síöari hliðin er misjafnari en dettur þó
aldrei oní þá lágkúru sem við þekkjum
svo vel af flestum breiðskífum. Og
niðurstaðan: ómótstæðileg plata.
-Gsal
HLH-Í ROKKBUXUM OG STRIGASKÓM:
| ELVIS COSTELLO-GOODBYE CRUEL WORLD: |
GXT-200
CMrúIeg tóngæði og fallegt útlit fyrit breakara
á öllum aldri.
Magnari 2X10 sín. wött.
Útvarp með FM sterió (ras 2) MW-LW.
Plötuspilari, hálfsjálfvirkur með moving
magnet, pick-up og demantsnáf.
Segulband með DOLBY Nr og METAL
stillingu.
50 watta hátalarar og stórglæsilegur viðar-
skápur með reyklitðum glerhurðum og loki.
VERÐ AÐEINS |i
KR. 18.876,00 stgr. I
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 Smi 9135200
Þaö hefðu víst flestir haldið, eftir
hinar ótrúlegu vinsældir Thriller, að
Michael Jackson myndi ekki halda
áfram samstarfi við bræður sína. En
svo er ekki. Þótt hann sé búinn að
stinga þá af hvað vinsældir snertir, þá
er hann trúr f jölskyldu sinni og hefur
verið í samstarfi með bræðrum sínum í
sumar. Hafa þeir verið á hljómleika-
ferðalagi um Bandaríkin í sumar og
hafa þessir hljómleikar verið þeir
viðamestu sem sögur fara af.
Til að fylgja ferðalaginu eftir sendu
bræðurnir sex nýlega frá sér plötu er
ber heitið Victory og inniheldur átta
lög sem eru samin af þeim. Hlutur
Michæls er ekki miklu stærri en ann-
arra. Áð vísu ber nokkuð meira á hon-
| um en öðrum. Aðallega vegna þess aö í
fyrstu er maður nokkuð að hlusta eftir
honum. 1 heild aftur á móti samlagast
hann hinum, kannski ekki alveg eins
hæfileikamiklum bræðrum sínum, í
nokkuð keimlikum lögum þar sem ekk-
ert skarar fram úr en eru samt ágæt
skemmtun þeim sem á annað borð
líkar við þá tónlist sem borin er á borð.
Ef aftur á móti er miöað við Thriller
Michaels, þá er Victory mun síöri. Það
stafar meðal annars af því að Thriller
var undir stjóm Quincy Jones. En á
Victory eru það bræðumir hver í sínu
lagi sem sitja við stjórnvölinn.
Það er erfitt að gera upp á milli
bræðranna á þessari plötu. Þeir
hneigjast allir að soul-tónlist, þannig
að þótt einn semji eitt lag og stjómi
upptöku á því fellur það vel að lögum
annarra. Það er helst að fyrsta lag
plötunnar, State Of Shock, skeri sig úr,
aðallega vegna þess að þar syngja þeir
dúett Michael Jackson og Mick
Jagger.
Victory er ekki slæm plata, hún er
ágæt afþreying. Lögin hefðu í heild
mátt vera meira grípandi og kæmi mér
þaö ekki á óvart þótt þetta væri síöasta
plata þeirra bræðra saman. Þaö er
ekki aðeins að Michael Jackson hafi
skapað sér nafn einn sér. Einn
bróöirinn, Jermaine, hefur einnig átt
nokkrum vinsældum að fagna einn sér
þótt þær séu ekki neitt í líkingu við vin-
sældir Michaels sem hiklaust má telja
meðal allra stærstu stjamanna í
dægurtónlistinni í dag.
HK.
DV. FÖSTUDAGUR 24. ÁGUST1984.
Sælnú!... Aðdáendur
Frankie Goes to Hollywood
munu þurfa að sýna bíölund
fram í nóvember eftir fyrstu
breiðskífunni: Welcome to
Pleasure Zone. Á plötunni
verða frumsamin lög utan
eitt: Born To Run eftir Bruce
smáskífu sem kemur út um
svipað leyti veröur ekki á
breiðskífunni. Lagið heitir:
Power Of Love. Frankie hef-
ur nú verið þrettán vikur árs-
ins á toppi breska listans og
gæti bætt um betur en breska
metið á Frankie Laine og það
er frá árinu 1953; hann var þá
27 vikur ársins á toppi breska
listans. .. Van Morrison
stendur í ströngu þessa dag-
ana. Heimildarit um ferU
hans er nýkomið út í Belfast,
heimaborg hans, og eitthvað
þykir Morrison, höf. bók-
arinnar, fara frjálslega raeð.
staðreyndir. „Þetta er skáld-
saga” segir Morrison ösku
þreifandi iUur. Irski tónlist-
armaðurinn var líka í hópi
þrjátíu listamanna á samn-
ingi hjá Warner Bros. sem
þeir spörkuðu nýlega.
Bræöurnir voru að stokka
upp spUin og létu marga fá
reisupassann, þar á meðal
Morrison, Bonnie Ratt, Arlo
Guthrie, Miahael Sembello,
Leo Sayer, lOcc og BeUamy
Brothers. .. Látinervesturí
Bandaríkjunum söngkonan
Esther PhUUps; hún var
hvað frægust fyrir diskóút-
setningu á laginu What A
Difference A Day Makes hér
á norðurslóð en þótti ein
besta ryþm&blús söngkona
vestra á sinni tíð... Það eru
líka til vinsældalistar yfir
klassískar plötur. Á toppi
breiðskífulistans þessa vik-
una eru: Trompet Concertos
eftir Haydn / Hummel / Moz-
art í flutningi Marsalis Nat-
ional Philharmonic Orch...
Nýja smáskífan frá Bowie
sem kemur i næsta mánuði
heitir: Blue Jean og lagið á
A-hliðinni þykir rokkaðra lag
en fyrirf annst á síðustu breið-
skífu... NæstaplatafráCul-
ture Club mun heita: The
House Is On Fire og smáskíf-
an: Pass It On, Afriea. Út-
gáfudagar enn á huldu...
Þessa vikuna hefur Mezzo-
forte verið aö troða upp á
hverju kvöldi í virtasta djass-
klúbbi Lundúna: Ronnie
Scott... Nýja lagiö frá
Everly Brothers er samið af
Paul McCartney o'g heitir On
the Wing Of A Nightin-
gala ... Átjánda platan frá
Herb Albert er komin út og
heitir: Bullish ... Búið í bili
Gsal