Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 31. ÁGUST1984. 5 Strandamenn eins og negrar í framan Frá Reginu Thorarensen, fréttaritara DV á Gjögri, Strandasýslu: Strandamenn eru sérlega ánægöir með sumarið. Hér hefur verið slík veðurblíða að menn segja þetta besta sumariö í tuttugu ár. Heyskapur hefur lika verið eftir því. Hann er allt annar og betri en undan- farið. Það hefur nefnilega verið árvisst að bændur hér hafi orðiö að kaupa sér hey á sín litlu bú. Litlu bú.segi ég því að Strandamenn ná ekki aö búa á vísitölu- búum. Kartöfluuppskera hefur verið hér meö albesta móti, ágætisuppskera. Hún Pálína Guðjónsdóttir í Munaðar- nesi vitjaði um kartöflur í garðinum sínum um síðustu helgi og var upp- skeran stórkostleg. Hún og maðurinn hennar, Guðmund- ur Jón Jensson, hafa aldrei séð aðra eins uppskeru svo snemma. Þegar þetta er skrifað er höfuðdag- ur. Hef ég þá trú að með honum komi sól á Suðurlandi og mun hún vara fram yfiráramót. Vona ég að Strandamenn njóti henn- ar líka þótt þeir séu allir orðnir eins og negrar. -JGH. Ársól gróf fyrir grunni Frá Gunnari Hjaltasyni fréttaritara DV á Reyðarfirði. Slysavarnadeildin Ársól og björg- unarsveit grófu fyrir grunni að björgunarstöö í síðustu viku. Er það mjög aökallandi að bygging hússins gangi sem best þar sem sjúkrabifreið deildarinnar er geymd úti. Fyrirhugað er að húsið verði fokhelt eigi síðar en í október. Ákveöið hefur verið að vigja hiö nýja hús 25. febrúar nk. Er þaö stálgrindarhús klætt með einingum frá Berki hf. í Hafnarfiröi, 156 fermetrar að stærð. Aætlaður kostnaður við byggingu hússinseruml,5miiijónirkróna. JGH. Leiðrétting vegna „nauðungar- uppboðs” I viðtali sem haft var við Kristjönu Guömundsdóttur hér í blaðinu fyrir skömmu, þar sem sagt var frá félags- stofnun þeirra sem telja sig eiga í stríði við íslenskt réttarkerfi, gætti misskilnings þar sem sagt var að hús hennar og eiginmanns hefði verið selt á nauðungaruppboði Hið rétta er að húsið var aldrei selt á nauðungarupp- boði heldur selt í neyð tii að forðast uppboð. Þetta leiðréttist hér með. VinnumálasambandÉð gef ur aðildarfélögunum lausan tauminn: Vinnumálasamband samvinnu- f élaganna hef ur veitt aðildarfélögum sinum rétt til að ákveða sjálf hvort þau greiði 3% launahækkun um næstu mánaðamót til félaga þeirra verkalýðsfélaga sem sagt hafa upp launaliðumkjarasamninga sinna. HEFUR ENGIN ÁHRIF Á VSÍ ESSO, KEA og SlS eru meðal þeirra sextíu atvinnurekenda sem eiga aðild að Vinnumálasamband- inu. DV hafði samband við forsvars- menn þessara þriggja fyrirtækja í gær og fékk þær upplýsingar að enn hefði ekki verið ákveðið hvort um- rædd 3% yrðu greidd 1. september. — Vilhjálmur Jónsson, forstjóri ESSO, reiknaði samt með að allir starfsmenn fyrirtækisins fengju 3% hækkun hvort sem þeir hefðu sagt upp samningum eða ekki. Sem kunnugt er hefur Vinnu- veitendasamband Islands ákveðið að greiða ekki 3% launahækkun 1. september til þeirra sem sagt hafa upp samningum. Magnús Gunnars- son, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins, sagði í sam- tali við DV að þessi afstaða Vinnu- málasambandsins hefði engin áhrif á ákvörðun VSI. Hann bætti því þó við að enn væri ekki komið að mánaða- mótum og að allt gæti gerst” fyrir þanntíma. EA. stílabok r HVAÐA MÁLMSUÐUAÐFERÐIR ERU HAGKVÆMASTAR, HVAR OG HVERS VEGNA? Fyrirlestur Alberts Söndergaart, efnaverkfræðings ESAB, vík. Skýringarmyndir og umræður á eftir. Allir málm- og Erik Henriksen, sölustjóra ESAB, þetta efni verður í iðnaðarmenn, tæknifræðingar og verkfræðingar eru hvattir kvöld kl. 8 e.h. í samkomusal Héðins, Seljavegi 2 Reykja- til að mæta. Mðlmsuðufélag íslands, Héðinn hf. 1 J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.