Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1984, Blaðsíða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTOBER1984. ;v Kristján Thorlacius, formaður BSRB, þungt hugsi yfir siðasta tilboði fjármálaráðherra og er greinilegt á svipnum að honum finnst það lólegt. Nú er svo komið að fjármálaráðherrann hefur gert BSRB svo mörg vond tilboð, að mati formannsins, að formaðurinn og ráðherrann geta nánast ekki verið í sama herbergi vegna deilna. „Ríkisstjórnin er hrunin," segir á forsiðu BSRB-tíðinda sem Albert Guðmundsson fjármálaráðherra er að lesa. Einar ,,ríki" Ólafsson er greinilega að rœða þetta mál við fjármálaráðherrann sem virðist taka þessum tiðindum lótt. Á milli þeirra er Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri sem sœti á i samninganefnd ríkisins. DV-myndir GVA. Menn gripa i ýmislegt til að drepa timann á meðan beðið er eftir tilboð- um eða gagntilboðum. Hér hefur Baldur Möller, ráðuneytisstjóri i dómsmálaráðuneytinu, lagt kapal til að hafa ofan af fyrir sór og Sig- urður Helgason, deildarstjóri i menntamálaráðuneytinu, fylgist spenntur með. Svip- mvndir ír samninga- viðræðum É i ií. Það er þungt yfir þeim formanni og varaformanni Verkamanna- sambandsins, Guðmundi J. Guð- mundssyni og Karli Steinari Guðnasyni, er þeir skoða fyrsta tilboð Vinnuveitendasambands- ins. Hins vegar er ekki laust við að þeir framkvœmdastjórnarmenn, Davíð Scheving Thorsteinsson og Viglundur Þorsteinsson, brosi út i annað munnvikið. Því miður sóst ekki svipurinn á Þórarni V. Þórar- ■ inssyni, aðstoðarframkvœmda- stjóra VSÍ. Tekniránær- buxumá innbrotsstað Tveir ungir menn utan af landi voru handteknir í versluninnl Faco í Reykjavík í fyrrinótt. Munu þeir hafa veriö eitthvað óhressir meö sinn eigin fatnað hér í höfuöborg- inni og ókveðiö aö ná sér í nýjan og betri galla. Eitthvað mun hafa verið lítiö i buddunni, og var þó brugðiö á þaö ráð aö fara inn í Faco um nótt. Voru þeir réttbúnir að koma sér í nýjar nærbuxur, sokka og annað smáræði þegar lögreglan kom á staðinn og fór með þá — i gömlu fötunum — beint í fangageymsl- una. -klp- Toppverð fékkst fyrir aflaíHull Frá Emil Thorarensen Eskifirði: Hólmanes SU-1 seldi i Hull á mánudag 129 tonn af fiski fyrir 4,5 milljónir króna. Meöalverð fyrir aflann var 35,27 krónur kílóið sem er toppverð. Aðailega var þetta þorskur sem Hólmanes fékk á miðunum út af Austf jörðum. -EH MálPólverjans: Svariðá ieiðinni Pólverjinn, sem varö eftir hér á landi i sambandi viö komu póiska knattspyrnuliösins sem keppti hér á dögunum, er enn staddur hér. Hann býður eftir svari frá kanadískum stjórnvöldum um landvistarleyfi þar. Samkvæmt upplýsingum fró Útlendingaeftir- litinu er gert ráð fyrir að þetta svar berist nú á næstunni. Pólverjinn á bróður í Kanada og til hans hyggst hann fara. APH I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Fjármálaráðuneytið í Garðastrætinu Fjármólaráðherra spurði um dag- inn, hvort búið væri að setja upp ann- að fjármálaráðuneyti vestur í Garðastræti. Það er von að maður- inn spyrjl. t húsakynnum Vinnuveit- endasambandsins bafa menn verið að dunda við það í allt haust að semja um skattalækkanir. Rétt eins og það sé orðið verkefni vinnuveit- enda og verkamannasambandslns að ákveða fyrir hönd ríkissjóðs hvað landslýður á að greiða i skatta. Alls kyns útreikningar hafa átt sér stað, og meira að segja hefur verlð sam- inn ítarlegur niðurskurðarpakki á fjárlögum til að mæta tekjutapl rík- issjóðs, þegar skattalækkanlrnar verða að veruleika. . Nú hefur það jafnan verið svo, að vinnuveitendur hafa þurft að semja við launþega um kaup og kjör á hin- um almenna vinnumarkaði, sam- kvæmt því lögmáll, að þeir sem brús- ann eiga að borga, segi til um það, hvað þeir treysta sér til að greiða fyrir framlagða vinnu. Þannig er það einnig um opinbera starfsmenn, að þelr snúa sér að fjármálaráðherra þegar þelr setja fram kaupkröfur, enda fá þeir sin laun greidd úr ríkis- sjóði. En af ástæðum, sem ekki eru kunnar fjármálaráöherra að minnsta kosti, bregður svo vlð í þeim samningaviðræðum, sem staðið hafa yfir, að dæmið hefur snúist við. Hið opinbera fjármálaráðuneytl má þvarga og þjarka um beinar Iauna- hækkanir, meðan vlnnuveitendur hafa tekið að sér að semja um tekju- skattslækkanir. Það verður að segjast eins og er, að það hlýtur að vera notaleg að- staða, sem vinnuveitendur hafa skapað sér, þegar þeir geta gert kjarasamninga við viðsemjendur sína og ávísað þeim upp i ráðuneyll Á sama tima gerist það, að f jármála- ráðherra getur sig hvergi hrært fyrlr launakröfum úr ríkissjóði. Lái ráðherranum hver sem vill, þótt honum finnlst sú staða nokkuð flókin og illviðráðanleg að fallast á kauphækkanir til starfsmanna rikis- ins, meðan hann velt ekkl hvað vinnuveitendur hyggjast minnka tekjur rikisins mikið með samning- um um tekjuskattslækkanir. Venjulega hefur það verið svo í tíð fyrri fjármálaráðherra, þegar þeir hafa þurft að semja um auknar út- borganir úr ríkissjóði, að þá hafa þeir getað seilst dýpra í vasa skatt- borgaranna. Nú er sem sagt ætlast tll þess, að Albert borgi meiri laun og lækki skatta um leið. Þótt Berti sé klár, er hann ekki galdrakarl, og þarf víst enginn að undrast þótt aumingja maðurinn bregðist reiður við. Sér í lagl, þegar fyrir liggur, að hann fær engu ráðið um lækkun skattanna fyr- ir sjálfskipuðum fjármálaráðherr- um vestur í Garðastræti. Sagt er að Magnús Gunnarsson sé góður vinur Þorsteins Pálssonar, en er það ekki fulllangt genglð ef sá kunningsskapur verður til þess, að nýtt fjármálaráðuneyti er sett upp á kontórnum hans í Garðastræti? Það er af okkur skattþegnunum að segja, að vlð höfum nú í nokkrar vik- ur fylgst af athygli með rausnarleg- um hugmyndum um niðurskurð tekjuskatts. Vlð heyrum það í frétt- um á degi hverjum að vinnuveltend- ur og verkamannasambandið séu á góöri leið með að ná samningum um tekjuskattslækkun. Þetta eru góðar fréttlr fyrir alla nema þá sem svikja undan og svo auðvitað þann fjár- málaráðherra sem ber ábyrgð á rik- iskassanum. En þá spyr maður líka: Tll hvers þarf að hafa fjármálaráð- herra í ríkisstjórninni, þegar marglr slikir finnast vestur í Garðastræti sem geta gert kjarasamninga sem ekkl kosta neitt? Það er kominn timl til að Albert verðl lóðsað vestur í Garðastræti, þar sem alvöruráðu- neytið er. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.