Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1984, Blaðsíða 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTOBER1984.
25
Krístín Halldórsdóttir tekur nú við
formennsku i þingfiokki Kvenna-
iistans.
Á þingi:
Nýrflohks-
formaður
Kristín Halldórsdóttir þingmaöur
hefur tekiö við starfi þingflokksfor-
manns Kvennalistans af Guörúnu
Agnarsdóttur sem gegndi því embætti
á síðasta þingi. Sem kunnugt er eiga
Samtök um kvennalista þrjá þingmenn
á þingi sem eru Kristín Halldórsdóttir,
Guðrún Agnarsdóttir og Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir. Níu konur eiga nú
sæti á þingi.
I síöustu viku var Gunnar G.
Schram kosinn formaður allsherjar-
nefndar neðri deildar og varaformaður
Olafur Þórðarson. Fundarritari var
kjörinn Guðrún Helgadóttir.
Hjörleifur Guttormsson, fimmti
þingmaöur Austurlands (Alþýöu-
bandalag), hverfur af þingi um
þriggja vikna skeið og mun sitja alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna. Sæti
hans á þingi tekur Sveinn Jónsson
verkfræðingur frá Egilsstöðum.
Tíu þingmenn úr Alþýðubandalagi
hafa lagt fram tillögu til ályktunar um
kosningu sjö manna þingnefndar
vegna rekstrarvanda í íslenskum
sjávarútvegi. Fyrsta umræða um til-
löguna hefur farið fram og hana hóf
fyrsti flutningsmaður, Steingrímur J.
Sigfússon.
Vegna fyrirspurnar frá fyrrverandi
iðnaðarráöherra á þingi um endur-
skoðun ársreikninga Isal 1983 upplýsti
Sverrir Hermannsson, ráðherra
iðnaðarmála, að Isal hefði vanreiknað
tekjur sínar fyrir árið 1983 um 9,6
milljónir dollara. En vegna taps
félagsins á síðasta ári, sem nam 11,5
milljónum dollara, hefði vanreiknuðu
tekjumar ekki haft áhrif á skattskyldu
félagsins. Einnig kom fram í máli ráð-
herrans að hráefniskostnaður félags-
ins hefði verið of hár, söluverð áls
óeðlilega hátt og afskriftir of hóar.
-ÞG
Álfélagið
andmælir
Isal hefur tekið saman ítarlega
greinargerð þar sem andmælt er
athugasemdum endurskoðunarfyrir-
tækisins Coopers & Lybrand um árs-
reikninga fyrirtækisins fyrir árið 1983.
Vegna umræðu á Alþingi að undan-
fömu um athugasemdir Coopers &
Lybrand við reikningana vill Islenska
álfélagið taka þetta fram. Og jafn-
framt að ekki sé tímabært að birta
greinargeröina fyrr en iðnaðarráö-
herra hefur gefið Alþingi skýrslu um
samkomulag ríkisstjórnarinnar og
Alusuisse sem undirritaö veröur 5.
nóvember nk. -ÞG
Myndbanda-
leígaíbfl?
Tveir aðilar sóttu nýlega um leyfi til
borgarráös til að starfrækja mynd-
bandaleigu í bíl. Engin ákvörðun var
þar tekin um málið heldur því vísað til
umferðardeildar Reykjavíkurborgar
og lögreglustjóraembættisins til frek-
ari umfjöllunar. Ekki mun vera neitt í
vegi fyrir leyfisveitingu en athuga á
nánar ýmis atriði varðandi fram-
kvæmd þessa fyrirtækis. -ÞJV
SSSL Sárir yfir lokun
Æ I Fréttaútvarpsins
Frá Róbert Jörgensen í Stykkls-
hólmi:
Mikiö er um að vera í Stykkishólmi
þrátt fyrir verkfall, en það hefur ekki
áhrif á neinar framkvæmdir nema á
sýsluskrifstofu og í skólum.
Framkvæmdir á vegum hreppsins
eru í f ullum gangi. Nú er t.d. verið að
skipta um undirlag á veginum að
Stykkishólmi. Almennt af vegum á
Snæfellsnesi má segja að Skógar-
strönd er sæmileg, en vegurinn út
Nes er mjög erfiður vegna vega-
framkvæmda.
Skelveiöi er nú í fullum gangi og
skortur er á fólki til fiskvinnslu. Búið
er að slátra u.þ.b 12.700 dilkum en
stórgripaslátrun er eftir.
Reisugilli var haldið í heilsu-
gæslustöðinni nú í september og eru
þá fjögur ár síðan Friðjón Þórðarson
alþingismaður tók fyrstu skóflu-
stunguna aö húsinu. Alltaf er verið
að vinna í flugstöðinni og er nú verið
að mála hana að innan.
Eldri menn í Stykkishólmi eru
þeirrar trúar aö veturinn verði
harður og hafa það til marks að mik-
ið komi af rjúpu í bæinn og músa-
gangur sé óvenjumikill í byggð.
Þeir sem náðu útvarpi DV-manna
voru mjög ánægðir með það og þótti
ekki verra en sjálf rás 2 og voru
margir mjög sárir yfir að stöðinni
skyldi lokað.
-EH.
BEIFIKOSTUR
Reglulegur samanburður er gerður á kjörum Hávaxtareiknings og verðtryggðra
reikninga hjá bankanum. Og er það stefna Samvinnubankans að Hávaxtakjör
verði alltaf betri kostur en verðtryggð kjör hjá bankanum.
Hækkand í vextí r
Hávaxtareikningur ber stighækkandi
vexti, 1797o í fyrstu sem strax eftir
2 mánuði hækka um 1,5% á mánuði
uns 24,5% er náð. Eftir samanlagðan
12 mánaða sparnað hækka vextirnir
síðan um 1% til viðbótar og eru 25,5%
upp frá því.
Ársávöxtun
Vextir leggjast við höfuðstól 30. júní og
31. desember ár hvert og fer því
ársávöxtun aldrei niður fyrir 27,12% en
getur náð 27,58% sem ræðst af því
hvenær ársins lagt er inn.
Vextír frá stofndegí
Allar vaxtahækkanir Hávaxtareiknings
reiknast frá stofndegi og falla aldrei
niður á sparnaðartímanum. Þannig
tryggir afturvirk prósentuhækkun bestu
kjörin.
Nýstárlegt fyrírkomulag
Stofnskírteini er gefið út fyrir hverri
innborgun og er hvert stofnskírteini til
útborgunar í einu lagi. Því er sjálfsagt að
deila innborgun á fleiri skírteini sem gerir
úttekt á hluta fjárins mögulega, án þess
að vaxtakjör eftirstöðva rýrni.
Óbundinn
Hvert skírteini er laust til útborgunar
fyrirvaralaust.
Betri kjör bjóðast varla.
\uglysmgas