Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1984, Blaðsíða 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTOBER1984. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Þessa leið kæri minn... Þeir eru margir sem ákaft hafa stefnt 6 þing en reynt að það er þrautin þyngri að fá þar gott sæti. Og jafnvel þótt vel líti út um sinn þá er ágætustu liðsmönnum vísað frá að lokum. Bkki vitum við hvort hann kisi átti heldur erindi við þingmenn eða ríkisstjórn þegar þing var sett en á hitt má minna að það þarf ekki alltaf að vera tH tjóns þó að köttur komist i bjarnarbói. DV-mynd S. Heimsmet í Gyruss Sigmar Guðmundsson, fimmtán ára Garöbæingur, setti í síðustu viku heimsmet í tölvuspilinu Gyruss eftir sautján tíma baráttu. Sigmar settist við kassann kl. 2 e.h. á þriðjudaginn og barðist sleitulaust viö eldflaugar óþekkts óvinar til kl. 7 á miðvikudags- morguninn. Langvinn eldflaugastríð reyna á taugamar og úthaldið, jafnvel þótt þau fari fram viö spilakassa, enda kvaðst Sigmar vera „sæmilega þreytt- ur” að leikslokum. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem Sigmar reynir sig við Gyruss þvi nú er liðið rúmt ár síðan hann kynntist spilinu fyrst. Nýja heimsmetiö sem hljóðar upp á 16,5 milljónir i 12, sem áður hafði verið best, var sett í Zaxon í Iönbúð 8 í Garðabæ. DV-mynd Kristján Ari. KA ETO HBESStT XLAEHJÐI IHOPPEEÐ HL L0ND0N (í^ír) OGCAEDIPF stjóri-. sldssoa Brottför: 11. nóv. kl. 17.00 Komntími: Heathrow flugvelli kl. 19.45 Heimferð: 16. nóv. kl. 13.15 Xomutími: Keflavíkurflugvelli kl. 16.10 Gist verður í London á Hótel Royal National; fyrsta flokks hótel í miðborg London. Innifalið: Flug, gisting í tveggja m. herb. m/baði í 5 nætur, morgun- verður og söluskattur. Ferðir til og frá flugvelh á Hótel Royal National. Ferðir til og frá hóteli á aðafleikvanginn í Cardiff 14. nóv. Jzl k, 10.995- og 250.- kr. flugvallarskattur til viðbótar. Staðfestingargjald er kr. 2.000.- „Óendurkræft". Látið skráykkur strax í ferðina hjá Plugleiðum eða ferðaskrifstofunum. FLUGLEIDIR Nýr ferða- mála- stjóri Nú fyrir skömmu var nýr f eröamála- stjóri ráðinn til starfa hjá Ferðamála- ráði. Birgir Þorgilsson heitir hann, maður á sextugsaldri og gamalreynd- ur í ferðamálunum. Áður vann hann fyrir Flugfélag ísiands og síðar Flug- leiðir, við sölu og markaðsmál í ríflega 30 ár. M.a. var hann við skrifstofur félagsins í Danmörku og Þýskalandi í 10 ár. Fyrir rúmum þremur árum réöst hann síðan sem markaösstjóri til Ferðamálaráðs. Þótt flestir starfsdagar Birgis hafi tengst flugi og ferðamálum þá ætlaði hann sem ungur maöur að feta í fót- spor föður síns og gerast íþróttakenn- ari. Hélt hann því til Danmerkur og lauk þar kennaraprófi í þeirri grein. En þegar heim kom heillaði flugið meir en kennslan, enda mál manna á árunum eftir stríð að flugið væri grein framtíðarinnar á Islandi. Það hefur h'ka reynst svo. Þegar Birgir leit fyrst inn um dyr hjá Flugfélaginu þótti 4—5 þúsund erlendum ferðamönnum taka því að litast um hér á landi. Nú er hægt að tala um ferðamannastraum þegar ekki færri en 80 þúsund manns heim- sækja landið ár hvert. „Þetta er ger- bylting,” segir Birgir. Starf feröamálastjóra er erilsamt en gefur þó tíma fyrir nokkrar tómstundir og þær hafa íþróttirnar fengiö hjá Birgi. Einkum eru það útiíþróttir sem eiga vel við hann: veiðimennska, hest- arog golf. Eiginkona Birgis er Ragnheiður Gröndal og eiga þau eitt barn. Nú þegar birgðir tóbaks i iandinu eru á þrotum blasa einungis tveir kostir við hinum nikótínsjúku: Að leggja þessa nautn af eða að hefja gamla og góða brúksiði tH vegs og nýrrar virðingar. Eitthvað mun enn vera tH af vel skornu tóbakiinös og vör.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.