Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1984, Page 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTOBER1984.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Er dýrt að deyja?
Eflaust komast flestir í þá aöstööu á
lífsleiðinni aö þurfa aö sjá um jarðar-
för. Viö andlát er margt sem þarf að
huga aö og margt aö borga, t.d. jarðar-
fararkostnaöur, skattar hins látna og
fleira.
Þjónusta
Tvö líkkistuverkstæði eru starfandi í
Reykjavík. Jaröarfararþjónusta
Kirkjugaröa Reykjavíkurprófasts-
dæmis er meö starfsemi sína í Foss-
vogskirkju og Líkkistuvinnustofa Ey-
vindar Árnasonar er aö Laufásvegi 52.
Bæöi verkstæðin hafa alhliða jaröar-
fararþjónustu þar sem líkkistur eru
smíðaðar, hægt er aö fá allan kistu-
búnað svo sem líkklæði, sængurfatnaö
og tilheyrandi. Einnig sjá verkstæðin
um líkflutninga og blómaskreytingar.
Einar Jónsson hjá Jaröarfararþjón-
ustu Reykjavíkurprófastsdæmis sagði
aö kostnaður viö jaröarför væri frá
23.000 til 26.000 krónur og er þá allt
nefnt og jafnframt því prestur og söng-
fólk.
Á hverju á ég að byrja? Spurning
þessi leitar eflaust á flesta þá sem
komast í aöstöðu sem þessa. Fyrst er
aö fá dánarvottorð hjá lækni þeim sem
stundaö hefur sjúklinginn ef hann
hefur látist á sjúkrahúsi. Hins vegar,
ef hinn látni hefur andast á heimili eöa
annars staöar, þarf aö kalla til lækni
eöa lögreglu. Þarf þá aö fara fram
réttarkrufning. I Reykjavík fer hún
fram á Rannsóknarstofu Háskólans
viö Barónsstíg og gefur borgarlæknir
síöan út dánarvottorö. Tilkynna þarf
andlát hjá fógeta og afhenda síöan
presti dánarvottoröiö með kvittun frá
fógeta.
Líkbrennsluathafnir fara fram í
Fossvogskirkju á sama hátt nema
hvaö kistunni er ekið til brennsluofns í
staö grafar aö lokinni kirkjuathöfn.
Askan er síðan látin í sérstakt duftker
sem má grafa í hvaða vígöan reit sem
er. Einar sagöi aö líkbrennsla væri um
lOtil 12prósent.
Davíö Osvaldsson á Líkkistuvinnustofu
Eyvindar Arnasonar sagði aö kostnaö-
ur viö jarðarför hjá þeim væri frá
26.000 til 28.000 og blómaskreytingar
væru um 3.000 krónur aukalega. Davíö
sagði aö Líkkistuvinnustofan væri meö
elstu fyrirtækjum í einkaeign á landinu
— stofnaö áriö 1900 af Eyvindi Árna-
syni, afa Davíðs. Eyvindur fékk fyrsta
líkvagninn, sem var hestvagn, áriö
1915 og síðan kom fyrsti líkbíllinn til
landsins 1930. Bar hann sama númerið
þá og er enn í notkun, R—14.
Skattar
Menn fá skattaálagningu fram til
dánardægurs og er dánarbúið
skattlagt. Ef skipti dánarbús
dragast fram yfir áramót leggst
eignarskattur á nettó-eignina eöa
dánarbúiö en hjá einstaklingum eru
fyrstu 780.000 krónurnar af nettó-eign
eignarskattsla usar.
Gestur Steinþórsson, skattstjóri
Reykjavíkur, sagöi aö fullur skattur
skyldi greiöast af tekjum látinna nema
ef sýnt væri fram á ákvæði 66. greinar
laga um tekju- og eignarskatt. I grein-
inni eru heimildir skattstjóra til aö
lækka álagningu ef sýnt er fram á aö
elli, hrörleiki, veikindi, slys eða
mannslát hafi skert gjaldþol manns
verulega.
Lrfeyrissjóðir og
eignarskattur
Pétur Blöndal, formaöur stjómar
Landssambands lífeyrissjóöa, sagði að
tryggingamar borguðu makalífeyri til
eftirlifandi maka svo lengi sem hann
er einhleypur og eins er greiddur
bamalífeyrir fyrir börn yngri en 18
ára. En lífeyrissjóðir greiða ekki
skatta látinna, sagði Pétur. Ef maki
fellur frá og eignir em undir skatt-
leysismörkunum, sem eru 780.000
krónur eins og áöur sagði, þá er hinn
eftirlifandi maki orðinn eignamaöur
og þarf þá aö borga tekjuskatt hins
látna og eignarskatt því nú tvöfaldast
eignir hins eftirlifandi.
Pétur sagði aö ekki væri hægt að láta
lífeyrissjóöi greiöa skatta hins látna
því það yrði mjög flókiö kerfi. „Fólk
stendur svo misjafnlega aö vígi gagn-
vart sköttunum. Eölilegast væri aö
breyta skattakerfinu því þar liggur
vandamálið. Taka þarf upp staö-
greiðslukerfi svo aö þetta leysist.” -JI
A likkistuvinnustofu Eyvindar Arnasonar.
R—14, líkhill Líkkistuvinnustofu Eyvindar Árnasonar fyrir utan Dóm-
kirkjuna iReykjavik. DV-myndir GVA.
iMIM
Það eru engin aldurstakmörk á Kanarí enda væri innfæddum ekki
stætt á því til lengdar. Það hefur nefnilega spurst út aö á Kanarí sé
eitthvað fyrir alla og þeir sem kunna gott að meta eru ekkert á því að
láta stoppa sig.
T.d. tennis, asnalegir reiðtúrar, sundlaugar, veitingahús, keiluspil,
mini- og alvörugolf, skemmtistaðir, verslanir með fríhafnarverði,
sportbátar, go-kart bílar, kynnisferðir, kúrekabær, kabarettar,
hestaleigur, fuglagarður, hákarlaveiðar, spilavíti, borðtennis og
seglbretti. Það er eitthvað fyrir alla og svo margt sem er hægt að gera
að þið verðið að passa ykkur að gleyma ekki að fara í sólbað!
Verð frá: Leiguflug 3 vikur kr. 25.747,-
Brottfarir: Leiguflug: 19. des., 9. jan., 30.
jan., 20. febr., 13. mars og
3. apríl.
Áætlunarflug: alla miðviku-
daga frá og með 31. október.
Innifalið: flug, gisting í 2ja manna
stúdíóíbúð, akstur til og frá
flugvelli á Kanarí og íslensk
fararstjórn.
URVAL ÚTSÝN Samvinnuferdir-Landsýn FLUGLEIÐIR