Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984.
27
Messur
Guðsþjónustur j Reykjavíkurprófastdæmi
sunnudaginn 23. desember, Þorláksmcssu
1984.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna- og fjöl-
skylduguösþjónusta i Safnaöarheimili
Árbæjarsóknar kl. 11.00 árd. Skólakór Ár-
bæjarskóla syngur jólasöngva undir stjórn
Áslaugar Bergsteinsdóttur. Tekið á móti
framlögum til Hjáiparstofnunar kirkjunnar í
Safnaöarheimilinu frá kl. 1—4 e.h. Sr. GuiV
mundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnamessa kl. 11.00. Börnin
syngja jólasöngva og leika á hljóöfæri. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barnaguðs-
þjónusta í Breiðholtsskóla kl. 11.00. Sr. Lárus
Halldórsson.
BÓSTAÐ AKIRKJA: Jólasöngvar
f jölskyldunnar kl. 2.00. Barnakór — helgileik-
ur. Lúsíur koma í heimsókn og hljóðfæraleik-
arar spila jólalög. Almennur söngur. Organ-
leikari Guðni Þ. Guömundsson. Sr. Ölafur
Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma
í Safnaðarheimilinu viö Bjarnhólastíg kl.
11.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Böm úr Kirkjuskóla Dómkirkjunnar sýna
helgileik undir stjórn sr. Agnesar Sigurðar-
dóttur. Lúðrasveit Laugarnesskóla leikur
undir stjórn Stefáns Þ. Stephensen. Sr. Agnes
M. Sigurðardóttir og sr. Hjalti Guðmundsson.
FRIKIRKJAN í REYKJAVÍK: Ögurstund á
aðventu kl. 17.00. Safnaðarprestur og organ-
isti leika saman á cello og orgel í stundar-
fjórðung á undan. Söngur, ritningarlestur og
bæn. Sr. Gunnar Björnsson.
GRENSÁSKIRKJA: Jólabarnasamkoma kl.
11.00. Jólasöngvar — helgileikur — jólasveinn
— o.fl. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasamkoma og
messa kl. 11.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Þorláksmessa — kirkju-
dagur: Kl. 11.00. Fjölskylduguðsþjónusta.
Börn úr Æ.K.H.I. syngja og leika á blásturs-
hljóðfæri undir stjórn Soffíu Vagnsdóttur og
Jóns G. Þórarinssonar. Börn úr Hlíðaskóla
flytja helgileik. Kl. 22.00. Jólasöngvar við
kertaljós. Dr. Einar Sigurbjörnsson prófessor
flytur ræðu. Kirkjukór Háteigskirkju syngur
aðventu- og jólasálma. Dr. Orthulf Prunner
stjórnar og leikur á orgel. Almennur söngur.
Prestarnir.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.00. Sr.
Frank M. Halldórsson. Orgelleikur og
ritningarlestur i kirkjunni kl. 14—15. Sr.
Guðmundur Oskar Olafsson.
SELJASOKN: Barnaguðsþjónusta í öldusels-
skóla kl. 10.30. Barnaguðsþjónusta í íþrótta-
húsi Seljaskólans kl. 10.30. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÖKN: Jólasamkoma
barnanna i sal Tónskólans kl. 11.00. Sr. Guó-
mundur Oskar Olafsson.
Jolaguðsþjónustur í Rcykjavikurprófasdæmi
1984.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Aðfangadagur:
Aftansöngur i Safnaðarheimili Árbæjarsókn-
arkl. 18.00.
Jóladagur: Hátíðaguðsþjónusta í Safnaðar-
heimilinu kl. 14.00. Margrét Matthiasdóttir
syngur einsöng í guðsþjónustunni.
2. jóladagur: Fjölskylduguðsþjónusta kl.
14.00. Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Aðfangadagur:
Aftansöngur í Askirkju kl. 18.00. Elín Sigur-
vinsdóttir syngur einsöng. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Hrafnista: Aftansöngur aðfangadag kl. 16.00.
Sr. Grimur Grimsson prédikar.
KLEPPSSPÍTALI: Aftansöngur á
aðfangadag kl. 16.00. Jóladagur:
Hátiðaguðsþjónusta í Áskirkju kl. 14.00. Sr.
Arni Bergur Sigurbjörnsson.
DALBRAUTARHEIMILI: Hátíðaguðsþjón-
usta kl, 15.30.
2. jóladagur: Hátíðaguðsþjónusta í Askirkju
kl. 14.00. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Aðfangadag-
ur: Aftansögnur í Breiðholtsskóla kl. 18.00.
Jóldagur: Hátíðamessa i Breiðholtsskóla kl.
14.00. Organleikari Daníel Jónasson. Sr.
Lárus Halldórsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Aðfangadagur:
Aftansöngur kl. 18.00. Kirkjukórinn, lögreglu-
kórinn og hljóðfæraleikarar flytja jólalög frá
kl. 17.30.
Jóladagur: Hátíðaguösþjónusta kl. 14.00.
Ingibjörg Marteinsdóttir, Ingibjörg Lárus-
dóttir og Lárus Sveinsson flytja jólalög frá kl.
13.30. Fermd verður Guðný Alda Snorradóttir
frá Georgíu, pt. Asgarði 8, Reykjavik.
2. jóladagur: Hátíðaguðsþjónusta kl. 14.00.
Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir prédikar.
Eiríkur Hreinn Helgason og Hrönn Geirlaugs-
dottir flytja jólalög frá kl. 13.30. Skírnar-
messa kl. 15.30. Organleikari Guðni Þ.
Guðmundsson. Sr. Olafur Skúlason.
Þjóðleikhúsið:
KARDEMOMMUBÆRINN
Eina leikritiö, sem frumsýnt
veröur hér á landi um þessi jól, er hiö
vinsæla barnaleikrit Thorbjörns
Egner, Kardemommubærinn.
Frumsýningin veröur annan dag
jóla, kl. 17, en þá eru rétt tuttugu og
átta ár síðan verkið var frumsýnt í
Noregi. Það var einmitt annan í
jólum árið 1956 að leikritið var frum-
sýnt samtímis í þremur norskum
leikhúsum — i norska þjóðleikhúsinu
í Osló, í Björgvin og í Þrándheimi —
og síðan hefur það verið sýnt aftur og
aftur í flestum löndum heims.
Þúsundþjalasmiðurinn Thorbjöm
Egner semur einnig söngtextana og
tónlistina við verkið og teiknaði leik-
mynd og búninga. Þau Hulda Valtýs-
dóttir og Kristján frá Djúpalæk
þýddu leikinn, leikstjóri er Klemeni
Jónsson, höfundur dansa er Erik
Bidsted sem er nú kominn til lands-
ins á ný eftir tæplega tíu ára fjar-
veru. Hljómsveitarstjóri er Agnes
Löve en lýsinguna annast Kristinn
Daníelsson.
Um efni leiksins er óþarft að fjöl-
yrða því margar persónurnar hafa
verið einkavinir íslenskra bama í
nálægt 25 ár. Þarna eru til dæmis
ræningjamir þrír, Kasper, Jesper og
Jónatan, sem þeir Pálmi Gestsson,
Randver Þorláksson og örn Árnason
leika; og þarna er hún Soffía frænka,
skörungurinn sá, og er leikin af Lilju
Guðrúnu Þorvaldsdóttur; og
auðvitað Bastian bæjarfógeti sem
— f rumsýndur annan í jólum
leikinn er af Róbert Arnfinnssyni en
Róbert lék þetta hlutverk í fyrstu
uppfærslunni á verkinu hér árið
1960; Tobías gamli er á sínum stað í
tuminum að gá til veðurs og Baldvin
Halldórsson leikur hann.
önnur sýning á leikritinu verður
fimmtudaginn 27. des. og sú þriðja
laugardaginn 29. desember.
Jóhann G. f ram-
lengir sýningu sína
Jóhann G. Jóhannsson framlengir
sýningu sína, Litróf, í sýningarsal
Listamiðstöðvarinnar, Lækjartorgi
(nýja húsinu Lækjartorgi, 2. hæö) til
laugardagskvölds 22. desember og
verður sýningin opin til kl. 23 það
kvöld. Aðra daga verður sýningin
opin samkvæmt verslunartima.
Á sýningunni, sem er sölusýning,
eru 68 vatnslitamyndir. I innri
sýningarsal Listamiðstöðvarinnar
eru einnig til sýnis og sölu nokkur af
verkum Jóhanns G. Jóhannssonar og
Hauks Haildórssonar sem þeir unnu í
sameiningu og sýndu í desember í
fyrra á sama stað undir heitinu
Deser ’83.
I sama sal er einnig til sýnis, sölu
og leigu fjöldi verka, grafíkmyndir,
teikningar, málverk, vatnslita-
myndir og fleira eftir fjölda
innlendra og erlendra listamanna,
þar á meðal margra nafnkunna lista-
menn.
Fra friöargöngunni i fyrra en hún var fjölmenn eins og sjá má.
FRIÐUR
Á JÓLUM
Friöarganga niöur Laugaveg
a laugardaginn
A morgun, laugardaginn 22. des-
ember, efna 11 friðarhreyfingar til
blysgöngu undir kjörorðinu Island
gegn kjarnorkuvá.
Safnast verður saman á Hlemm-
torgi klukkan 17.00 þar sem seld
verða blys. Gengið verður niður
Laugaveg undir söng Hamrahlíðar-
kórsins og Háskólakórsins og endað
á Austurvelli með fjöldasöng.
Þær friðarhreyfingar sem standa
að þessari göngu, en slík ganga var
einnig farin fyrir jól í fyrra, eru
þessar: Friðarhópur einstæðra for-
eldra, Friðarhópur fóstra, Friðar-
hópur kirkjunnar, Friðarhreyfing
islenskra kvenna, Friöarsamtök
listamanna, Hin óháðu friðarsamtök
framhaldsskólanema, Menningar-
og friðarsamtök íslenskra kvenna,
Samtök herstöðvarandstæðinga,
Samtök íslenskra eðlisfræðinga gegn
kjarnorkuvá, Samtök lækna gegn
kjamorkuvá og Samtök um friöar-
uppeldi.