Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985. EKKERT GERVIHNATTA- SJÓNVARP k NÆSTUNNI Engin leyfi veröa veitt til aö taka á móti sjónvarpssendingum frá gervi- hnöttum nema viðkomandi hafi jafn- framt leyfi frá Ríkisútvarpinu til aö starfrækja sjónvarpsstöö eöa kapal- kerfi. Þetta er innihald svarbréfs Pósts og síma til fyrirtækisins Litsýnar, sem nýveriö sótti um aö taka viö — beðið verður eftir nýjum utvarpslögum sjónvarpssendingum frá gervi- hnettinum ECS 2. Ætlunin var aö dreifa efninu um kapalkerfi í Hafnarfirði. Jón Skúlason, póst- og símamála- stjóri, sagöi í samtaii viö DV aö ef umsækjandi hefði bæöi leyfi frá Rikisútvarpinu og sendanda sjón- varpsefnisins myndi ekki standa á því aö Póstur og sími veitti rekstrarleyfi. Væntanlega mun send- andi sjónvarpsefnisins hafa áhuga á að selja það. Markús örn Antonsson útvarpsstjóri hefur hins vegar lýst yfir aö hann muni ekki veita undan- þágur til reksturs kapalkerfa þar sem stutt sé í aö útvarpslögunum veröi breytt. Þaö mun því veröa nokkur bið á aö Litsýn geti fariö aö taka viö sjónvarpsefni um gervi- hnött. Aö sögn Jóns Skúlasonar hefur sú stefna verið mótuð í samráöi við samgönguráðherra aö móttöku- búnaðurinn yröi ekki í eigu Pósts og síma, heldur í eigu þess aðila sem nýta vildi sjónvarpssendingamar. Eigandinn myndi þá bera ábyrgö á búnaðinum aö öllu leyti nema að því er varðar leyfisveitingu og eftirlits- skyldu Pósts og síma. -ÖEF. Nýstúdentarvið Hamrahlíðarskóla: Konurnar í meirihluta Frá Menntaskólanum viö Hamrahlíð brautskráöust um helgina 74 stúdent- ar, þar af 17 úr öldungadeild. 1 hópi nýstúdenta eru 46 konur og 28 karlar. Flestir útskrifuöust af félagsfræöa- braut eöa 26; 14 af nýmálabraut; 21 af náttúrufræðabraut; 7 af eölis- fræöibraut og einn af tónlistarbraut. Auk þess luku 5 stúdentar prófi af fleiri en einni braut. Viö brautskráninguna vom afhentar viöurkenningar fyrir bestan náms- árangur á einstökum brautum. Kór skólans söng undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur. Rektor skólans, ömólfur Thorlacius, minntist tveggja nemenda sem létust á haustönninni, þeirra Grétars Kristjánssonar og Þórs Sandholt. Á haustönn vora innritaðir í skólann um 850 nemendur í dagskóla og um 700 í öldungadeild Famirtil Singapore Fimmtán manna hópur á vegum Iön- tæknistofnunar Islands er nú á f erö um Singapore og Japan til aö kynnast aöferðum þessara Asiuríkja viö aö byggja upp háþróaöan iönaö á skömmum tíma. Þátttakendur í feröinni eru fulltrúar frá verkalýös- samtökum, atvinnurekendum, sam- vinnufélögum, stofnunum og skólum. Stóraukinn viðskiptahalli Fyrstu tíu mánuði síöasta árs var vömskiptajöfnuður landsmanna óhag- stæöur um 2,5 milljaröa. Það er nærri miUjaröi meira en á sama tíma áriö 1983. Að hluta stafar þetta af hærra gengi erlends gjaldeyris en aö öðm leyti hélt áfram aö síga á ógæfuhliðina í vöm- skiptunum viö útlönd. Ratsjárstöðin mun væntanlega risa á Stigahliðarfjalli, nálægt þeim stað þar sem krossinn er. Myndin er tekin til norðvesturs yfir Bolungarvík. Bolungarvík: ^.^^1. Deilur um ratsjárstöð „Þaö er enginn vafi á aö ratsjár- stööin getur komið að notum viö aö stjóma flugumferð. Spurningin er einungis um hvernig mannahaldi og samskiptum veröur háttaö.” Þannig metur Olafur Frostason, Flugmaöur hjá Flugleiðum, umdeUda > kosti væntanlegrar ratsjárstöövar á Stigahlíöarf jaUi viö Bolungarvík. Mikiö er nú rætt um ratsjárstöðina í byggðunum á norðanveröum Vest- fjöröum og sýnist sitt hverjum. Skömmu efth- áramótin hélt svoköUuð ratsjárnefnd fund í Bolungarvík tU aö skýra hlutverk og hugsanlega kosti stöövarinnar. Fundur nefndarinnar hleypti greinilega nýju h'fi í umræður ummáhö. Andstaöa við byggingu stöövar- innar er töluverö, þótt fylgjendur málsins séu trúlega fjölmennari. And- stæöingamir telja skýringar yfirvalda á hlutverki stöövarinnar ófuU- nægjandi. Þá telja þeir kosti stöövar- innar fyrir umferö í lofti og á sjó óveru- lega. Fylgjendur þess að stöðin veröi reist em aftur á móti á einu máli um að skýringar yfirvalda séu fullnægjandi. G.K. Fiskur upp úr sjó fyrir 8,5 milljaiha Þriðja mesta aflaáríð í þjóðar- sögunni: Aö áliti starfsmanna Fiskifélags- ins var síöasta ár þriöja mesta afla- áriö í þjóðarsögunni. Einnig þriöja mesta loðnuaflaárið. Verömæti afla upp úr sjó hækkaði um minnst 37% frá árinu áöur og varð um 8,5 mUljarðar króna. HeUdaraflinn varö nálægt 1.537.000 tonnum, þar af 865.000 tonn af loðnu. Mesta aflaár til þessa var 1979, þá fengust 1.648.600 tonn. 1978 varaflinn 1.566.200 tonn. Næst í röðinni kemur svo síðasta ár. Fjóröa áriö var 1980 meö 1.514.200 tonn. 1978 og 1979 voru einnig mestu loönuaflaárin meö 966.700 og 963.600 tonn. Botnfiskafl- inn varð 562.173 tonn í fyrra, aö mati fiskifélagsmanna. Það er sjötti mesti botnfiskaíli á síðustu 20 ámm. Mestur varöhann 1981,696.300tonn. Botnfiskaflinn minnkaði um rúm 40.000 tonn frá 1983. AfU togaranna minnkaði þó aðeins um nokkur þúsund tonn. Bátaaflinn minnkaði hins vegar hressilega. Af botnfiskaflanum var þorskur því sem næst helmmgur, 281.059, sam- kvæmt áætlun starfsmanna Fiskifé- lagsins. Þorskaflinn var því 12.831 tonni minni en áriö 1983. Annar botn- fiskur varö 281.114 tonn. 52.316 tonn veiddust af sUd, 867.000 tonn af loðnu, sem fyrr segir, 23.295 tonn af rækju, sem var rúmum 10 þúsund tonnum • meira en 1983, 2.460 tonn veiddust af humri, 15.014 tonn af hörpudiski og 14.390 tonn af öðmm fiski. Mest landað í Eyjum Langmestum afla var landað í Vestmannaeyjum, 174.907 tonnum, þar af 12.717 tonnum af þorski. A Seyðisfirði var landaö 108.340 tonn- um, 95.890 tonnum í Reykjavík, 95.425 tonnum á Siglufiröi, 94.270 tonnum á Eskifiröi og 68.913 tonnum í Neskaupstaö. Mestur þorskafli barst á land í Grindavík, 14.262 tonn. 14.245 tonnum var landaö á Isafirði, 13.531 í Olafsvík, 12.717 í Eyjum, erlendis var landað 11.750 tonnum, á Akureyri 11.711, í Þorlákshöfn 11.670, í Sandgerði 11.362 tonnum, í Keflavík 11.243 og í Reykjavík 9.821 tonni af þorski. Aðrar þjóðir veiddu rúm 9.800 tonn af botnfiski innan fiskveiöilögsögu Islendinga. Færeyingar veiddu 8.541 tonn, þar af 2.041 af þorski. Belgar fengu 782 tonn, þar af 118 af þorski. Loks fengu Norðmenn 459 tonn, þar af 47tonnafþorski. HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.