Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 3
DV. MÁNUDAGUR14. JANÚAR1985. 1 Sjómaður féll niður ílest Rúmlega tvítugur sjómaður féll niður í lest loðnuskipsins Víkings AK- 100 í Akraneshöfn í fyrrinótt. Þrátt fyrir fimm til sex metra fall slapp sjó- maður óbrotinn. Hann skarst þó á hægri augabrún. Ohappið varð um klukkan þrjú um nóttina. Veriö var að landa úr skipinu þegar piltinum varð fótaskortur með fyrrgreindum afleiðingum. Gert var að meiðslum hans á Sjúkrahúsi Akraness. -KMU. Sækið um hús- næðislán fyrir fyrsta febrúar Húsnæðisstjóm ríkisins hefur vakið athygli á því að þeir einir koma til greina viö veitingu byggingarlána á þessu ári sem senda stofnuninni láns- umsóknir sínar fyrir eindagann, sem er 1. febrúar næstkomandi. Þessu er beint 'til einstaklinga, sveitarstjórna, framkvæmdaaðila í byggingariðnaði og annarra. Lán þau sem hér um ræðir eru til kaupa á íbúðum eða byggingar nýrra, til byggingar íbúða eða heimila fyrir aldraða eða dagvistarstofnana, til nýbygginga í stað heilsuspillandi hús- næðis, til framkvæmdaaðila í bygg- ingariðnaði og til tækninýjunga í bygg- ingariönaði. Húsnæðisstofnun fer fram á að umsækjendur tilgreini í lánsumsókn- um sínum hvenær reiknað er með því að gera byggingamar f okheldar. -JH Sjómenn ganga eftirsvörum ríkisstjómarinnar: Biðja Stein- grímum leiðréttingar „Viðræðumar snúast um mál sem við höfum óskað leiðréttinga á af hálfu ríkisstjórnarinnar. Einnig erum við að kynna forsætisráðherra stöðuna í okkar málum. Við stöndum frammi fyrir harðri kjarabaráttu,” sagði Oskar Vigfússon, formaður Sjómanna- sambandsins, í samtali við DV. Hann og fleiri fulltrúar sjómanna ræddu við Steingrím Hermannsson forsætisráð- herraímorgun. „Það eru þrjár leiðréttingar aðal- lega sem við förum fram á: að skerðing á skiptahlut, sem ákveðin var með bráðabirgðalögum 1983, verði afnumin; að lífeyrisréttindi sjómanna veröi bætt; að staðið verði við rétta greiðslu á hlut áhafnardeildar Afla- tryggingasjóðs í fæðiskostnaði,” sagöi formaður Sjómannasambandsins. HERB Árekstur í Árbæ Japanskur fólksbíll og litill sendiferðabill rákust harkalega saman á Suðurlandsvegi efst í Árbæjarhverfi um klukkan 13 í gær. Eldri kona, ökumaöur fólksbílsins, var flutt á slysadeild. Hún meiddist þó ekki alvar- lega. Farþegi hennar slapp ómeiddur, sömuleiðis tveir menn í hinum bílnum. Bílarnir óku i gagnstæöa átt. Orsök slysins virðist vera sú að annar bíllinn sveigði inn á öfugan vegarhelming. Hálka var á veginum. -KMU. AÐ ÖLLU LEYTI NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN BÍLL EN BYGGÐURÁ LANGRI REYNSLU. IMý vél með reimdrifnum, yfirliggjandi knastásum, sparneytnari, þýðari og kraftmeiri en gamla vélin. Nú fimm gíra í stað fjögurra áður og auðvitað með háu og lágu drifi að auki. Eiginlega er SUBARU með tíu gíra áfram og tvo gíra afturábak. Slaglöng, sjálfstæð gormafjöðrun að aftan I stað flexitora áður. Endurbætt fjöðrun að framan. Stærri og ytra og innra máli en áður, óneitanlega fallegri. Nýtt og fjölbreytt litaúrval. Hlaðinn alls konar þægindaaukum; svo sem aflstýri, „central" hurðalæsingar, skuthurð og bensínlok eru opnanleg innanfrá, hæðarstilling á bílstjórasæti, stilling á stuðningi við bakið á bílstjórasæti, rafknúin fjarstýring útispegla, stillanleg stýrishæð, snúningshraðamælir, tölvuklukka og margt fleira. 20.000 kr. staðgreiðsluafsláttur sé bíllinn greiddur upp innan mánaðar. Tökum flesta notaða bíla upp! nýja. Munið bílasýningar okkar allar helgar kl. 14—17. AKIÐ EKKI ÚT í ÓVISSUNA - AKIÐ Á SUBARU. INGVAR HELGASOIM HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.