Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Side 4
4
DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985.
Heitur
lækur í
Laugardal?
Verður búinn til heitur lækur við
sundlaugina í Laugardal?
„Eg hef kynnt þessa hugmynd
lítilsháttar fyrir starfsmönnum
byggingardeildar borgarinnar,”
sagöi Júlíus Hafstein, formaður
íþróttaráðs Reykjavíkur. Hann sagði
að hugmyndin hefði komið upp
vegna áhuga stórs hóps fólks á heita
læknum við Nauthólsvík.
„Þaö er ekki veriö að tala um 40
metra langan læk, heldur yrði þetta
frekar í ætt viö hringlaga tjörn þar
sem vatnið félli í stöllum. Fólk gæö
setið og legið og látið vatnið flæða um
sig. Þama yrðu litlir fossar, á stærð
við þá sem eru í Nauthólsvík,” sagöi
Júlíus.
Samkvæmt núgildandi áætlun er
gert ráð fyrir að fjórir til sex nýir
pottar af hefðbundinni gerð verði
byggðir við Laugardalslaug sam-
hliða því sem lokið verður við ný-
bygginguna á næsta ári. Júlíus sagði
að hugmyndin gerði ráð fyrir að
hætt yrði við einhverja af þessum
pottum en í staðinn kæmi lækur.
.JCostnaður ætti ekki að verða
mikill, ein og hálf til tvær milljónir
króna,” sagði Júlíus. A móti
spöruðust fjármunir sem hefðu farið
í aö búa til fleiri potta.
-KMU.
Lœkurinn i Nauthólsvik hefur
verið vinsœll til baða i áratug.
Lögreglan ger-
ir myndbönd
upptæk
Lögreglan fór inn á tvær mynd-
bandaleigur fyrir helgina, aðra í
Reykjavík, hina í Hafnarfirði, og lagði
hald á nokkur ólögleg myndbönd.
Lögreglan gerði þetta eftir beiðni
rétthafa myndbanda sem höfðu lagt
margar kærur fram á hendur eig-
endum þessara myndbandaleiga,
Vídeóheims og Vídeólasers.
„Við höfum veriö að undirbúa þetta
undanfarna daga,” sagði Arnar
Guðmundsson hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins í samtali við DV. „Viö
höfðum fengið nokkrar kærur á hendur
eigendum Vídeóheims og því var það
aö við lögðum hald á nokkur mynd-
bönd sem viökomandi hafði ekki rétt á
aödreifa.”
— Nú hefur verið fariö alloft inn á
þá my ndbandaleigu og myndbönd gerö
upptæk. Endar það meö því að henni
verðurlokað?
„Það er ekki okkar að dæma um þaö
heldur dómstóla en eins og staðan er í
dag þarf ekki leyfi til að reka slíkar
leigur,” sagði Amar Guðmundsson.
-KÞ
Bílasalinn á Akureyri:
Gunni sót selur
Kennedy-bræðrum
Höldur sf. á Akureyri keypti í þangað. Fyrir jólin fór lika þangað
fýrradag Bílasalann sf. við Tryggva- Verslunin Skemman, sem er rekin af
braut, sem er ein stærsta bílasalan í fjölskyldu Gunnars. Hún verður
bænum. Höldur er í eigu manna sem starfrækt áfram.
eru kunnir undir nafninu Kennedy-
bræður en BUasalinn var í eigu Höldur tekur við bílasölunni 1.
þekkts bíiakóngs, Gunnars Haralds- febrúar. Hún verður rekin í óbreyttri
sonar, eða Gunna sót, og Haralds, mynd auk þess sem nýir bUar verða
sonar hans. Gunnar hefur stundað þartUsölu. Aðspurður játaöiGunnar
bUasölu á Akureyri í 16 ár. þvi að í kaupsamningi fælist að hann
„Ég var orðinn þreyttur á þessum setti ekki upp bUasölu næstu fimm
bransa,” sagði Gunnar í samtaU viö árin. , Annars er ekki hætta á að ég
DV. setji upp bUasölu, það eru hreinar
I maí ■ fyrra keypti hann stórhýsi línur. Eg hefði þá haldið áfram,”
af Byggingarvöruverslun Tómasar sagðiGunnar.
Bjömssonar og fluttist bílasaian -JBH,Akureyit
Byssubófar
rændu Fær-
eyjabanka
Fyrsta vopnaða
ránið í Færeyjum
Frá Eðvarð T. Jónssyni, fréttarit-
ara DV i Færeyjum:
Vopnað rán var framiö í Færeyjum
síðastliðinn fimmtudag. Það er i fyrsta
sinn sem slíkur atburður gerist í
Færeyjum. Tveir grímuklæddir menn,
vopnaðir haglabyssum, komu á stoln-
um bU í útibú Færeyjabankans í KoUa-
firði á Straumey rétt fyrir lokun.
Annar þeirra lét greipar sópa um
gjaldkeraskúffurnar meðan hinn hélt
afgreiðslufólkinu í skefjum uppi við
vegg með haglabyssunni. Engu skoti
var þó hleypt af.
Ræningjarnir höfðu um 300.000
krónur íslenskar upp úr krafsinu. Þeir
flúðu síðan á bU. 25 manna lögregluUö
fór síðar af stað að leita að þeim og
fann brátt bíUnn og grímurnar í
grenndinni. Ránsmennimir voru
horfnir.
Lögregian leitar nú dyrum og
dyngjum að bankaræningjunum um
aUar eyjar og hefur sett vörð um flug-
völUnníVogum.
Fjórtán f und-
ir kvenna
Kvennalistinn heldur á næstunni
fjórtán fundi til kynningar á starfsemi
sinni. Fundimir hefjast kl. 20.30 á
mánudögum, þriðjudögum, fimmtu-
dögum og kl. 14 á laugardögum á tíma-
biUnu 14. janúar til 9. febrúar.
Fundað verður á eftirtöldum
stöðum: Vogar, Grindavík, Innri-
Njarðvík, Garður, Hafnir, Keflavík,
Seltjarnames, Kjalames, Kjós, Mos-
feUssveit, Alftanes, Garðabær,
Hafnarfjörður og Kópavogur. Fundar-
tímar verða auglýstir nánar bæði í f jöl-
miðlum og með götuauglýsingum.
KvennaUstakonur stefna að því aö
fundirnir verði með svipuðu sniði og
Kvennarútufundirnir vom í sumar.
í dag mælir Dagfari
’ í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
NT gengur í Óháða söfnuðinn
Kannski er það ekki gustuk að
vera að velta sér upp úr óförum og
armæðu NT þessa dagana. Nóg virð-
ist innanhússböUö samt. Fram-
kvæmdastjóri blaðsins hefur sagt
upp störfum og sömuleiðis fjármála-
stjóri með þeim orðum að „þeir
hiutir, sem við réðum okkur upp á,
stóðust hreinlega ekki”. Þarf víst
ekki að fara i grafgötur um að
„hlutirnir” sem þessir starfsmenn
eiga vlð eru peningarnir til að reka
blaðið. Það er nefnilega þannig um
dagblöð og aðra útgáfustarfsemi að
þau þurfa að seljast til að standa
undir sér. öðruvísi verða peningam-
lr ekkl tii enda vaxa þeir ekki á
trjám frekar en atkvæðin.
Nú er það að visu svo að hvorki
gamU Tíminn né nýi hafa verið hátt
skrifaðir á blaðamarkaðinum en i
gamla daga meðan Tímlnn var mál-
gagn Framsóknarfiokkslns og
Sambandsins án þess að fara í felur
með það gat hann treyst þvi aUa
jafna að peningamir spryttu fram úr
sjóðum SÍS tU að standa undir
rekstri biaðsins. Það hefur Sam-
bandið meðal annars gert með því að
kaupa kaffibaunir á 25% Iægra verði
en geflð er upp i innflutningsskýrsl-
um og leggja mismuninn á reikning
Timans. Þannig hafa kaffidrykkju-
menn dmkkið Tímann inn á Fram-
sóknarheimUin með Braga-kaffinu,
brenndu og möluðu.
— Þessi fjármálapólitík þóttl góð
og gUd meðan Tíma-Tóti skrlfaði
auglýsingaleiöara um klósettpappír
frá StS og iofgrelnar um formenn
Framsóknarflokkslns.
En nú er öldin önnur og þess
vegna sltur NT uppi án fram-
kvæmdastjóra og fjármálastjóra og
lifir á loftinu. Er reyndar ekkl vlð
öðru að búast þegar blaðið hamast
vlð að bera af sér þann ófögnuð að
vera „málgagn forsætisráðherra”
og Steingrímur sver af sér aUa
ábyrgð á leiðaraskrifum blaðsins og
segir þau vitleysu eina.
Nú síðast á þriðjudaginn má lesa
eftirfarandl í NT: „Þeir sem vit hafa
á og áhuga vlta ósköp vel að frétta-
deUd NT er á engan hátt höU undir
Framsóknarflokkinn.”
Þegar það kemur sem sagt í ljós
að blaðið birtir vitlausa leiðara að
mati formanns Framsóknarflokks-
ins og fréttadeUdin er upp á kant við
flokkinn sem gefur blaðið út er
auðvitað skUjanlegt að flokkurinn
og StS hafi takmarkaðan áhuga á að
dæla penlngum i blað sem enginn
nennlr hvort sem er að lesa.
Almenningl kemur sosum lítið við
hvaða fólk það er sem nú starfar við
þetta fyrrverandi Framsóknarmál-
gagn eða þá í hvers þágu það er
skrifað. Kemur sjálfsagt fljótt að þvi
að fleiri fylgja í fótspor fram-
kvæmdastjórans og segja upp störf-
um þegar fjármálastjórinn er ekki
lengur tU staðar að greiða þeim laun-
ln.
Hins vegar má þó geta þess í
framhjáhiaupi að meðal blaða-
manna má finna nýskipaðan prest i
Óháða söfnuðlnum, Baldur nokkurn
Kristjánsson. Prestur þessi gægist
undan hempunnl á þriðju-
daginn var og f jallar um SjáUstæðis-
flokkinn með eftirfarandi hætti:
„... væri óskandi heUsu manna
vegna að þetta flokksskrímsli fari að
kubbast upp því ekkert fer eins illa
með sálarlif manna og langvarandi
innanflokksátök”.
Þessi kæriclksriku orð eru eflaust
jnælt í anda þeirrar kristUegu
skoðunar i Óháða söfnuöinum að
SjáUstæðisskrimslið sé tU trafala
fyrir sálarlU þeirra sem skUja vUja á
mUli flokka og blaða, eins og þelr á
fréttadeUd NT hafa tekið að sér.
Næsta skrefið hjá þeim á NT er
sennUega að ganga oplnberlega úr
Framsóknarflokknum og í Óháða
söfnuðinn, enda presturinn sjáUur tU
staðar. Það verður þá a.m.k. ekki
sagt um söfnuðinn á NT að hann sé
ekki óháður! Dagfari.