Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 6
6 DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Skíðaútbúnaður: Það ódýrasta ekki það besta Bindingar og skíðaskór eru mjög mikilvægir Mutir í sambandi við skíðaíþróttina. Vert er að hafa í huga að það er ekki nóg að vera með fyrsta flokks bindingar og ætla svo að nota gamia og slitna skíðaskó. Þegar þannig er farið aö er hætt við aö hinar fullkomnu bindingar virki ekki sem skyldi. Það er því mikilvægt að bæði skór og bindingar uppfylli allar öryggiskröfur. Mælt er með að nota ekki skíðaskó úr termoplasti. Skór úr polyu(PU) eru betri og endingarmeirl Skór gerðir úr termoplasti eru ódýrari, en slitna og eyðileggjast fyrr en aðrir skór. Þeir geta veriö ágætir þegar kalt er í veðri. En þegar heitt er getur verið hætt viö að bindingamar opnist ekki. Þessi skótegund er að hverfa. Þó er nokkuð um að bamaskór séu gerðir úr þessu efni. Góðar bindingar fyrir óreynda Það er yfirleitt álit. sérfróöra manna að flestir kaupi sér skíðaútbúnað í öfugri röð. Mesta áherslan er lögö á að fá sér sem fallegust og gæöamest skíði. Þar dugir ekkert minna en það besta svo jafnvel Ingemar Stenmark fer hjá sér. Svo er farið að huga að skónum og síðast aö bindingum. Þetta er ekki alveg eins og það ætti aö vera. Ráðlegt er að hyggja fyrst að góðum skóm. Svo að bindingum og síðast að skíðunum sjálfum. Skíöin sjálf skipta litlu máli fyrir þá sem eru nýbyrjaðir. Dæmi í þessu sambandi gæti verið þetta. — Ég fer svo sjaldan á skíði. Þess vegna er ekkert vit í því að vera aö kaupa dýrar bindingar. Eg læt mér því nægja þær ódýrastu. — Eg renni mér svo hægt og varlega að ég get látið mér nægja ódýrustu bindingarnar. Þetta er bara bull. Það era einmitt þeir óvönu sem detta oftast og þess vegna verða þeir að vera með góðan útbúnað. Það era einnig oft konur sem veigra sér við aö kaupa góðan útbúnað. En það er ekki eins og það ætti að vera. Þeim hættir fremur en körlum til að togna og ættu því að einbeita sér að því að kaupa góða skó og bindingar. Reglan ætti að vera sú að þeir óvönu ættu ekki að kaupa ódýrasta útbúnað- inn. Reglan er yfirleittt sú að því dýrari bindingar því betri er útbúnaðurinn sem losar skíöamanninn úr þeim við fall. Barnabindingar Fyrir nokkrum árum voru um 25 framleiöendur skiöabindinga á markaöinum. Nú eru aðeins 7. Þetta hefur það í för með sér að mjög slæmar bindingar eru horfnar af markaðinum. I könnun sem gerð var í Noregi á bamabindingum fékk Marker 5 bestu einkunn og Salomon 127 næstbestu. Bindingar af gerðinni Look 07 fyrir börn vora ekki viðurkenndar í þessari könnun. Þá er einnig vert að vara sig á pakkatilboðum. Oft eru bindingar sem fylgja ekki nægilega góðar og notaðar ódýrar bindingar tii að gera veröið sem mest aðlaðandi. Yfirfarið útbúnaðinn á hverju ári Það er mikilvægt að hugsa vel um skíðin og sérstaklega bindingamar. Þegar skipt er um skó er vissara að láta viðgerðarmenn athuga hvort ekki þurfi að stilla bindingarnar aftur. Það er mikilvægt að sem flestir séu meðvitaðir um hversu nauösynlegt það er að hafa rétt stilltar bindingar. Til þess aö svo geti oröið þarfnast þær umhyggju eigendanna. Einn framleiðandi skíðabindinga kannaöi í fyrra ástand 4000 bindinga hjá skíðafólki. I ljós kom að aöeins f jórði hluti þeirra var rétt stilltur. Þýtt Umsjón: Anna Bjamason og Jóhanna Ingvarsdóttir Þafi œtti enginn að efast um afi gófiar skíðabindingar Jli mikilvæg- Fyrst skal setja bindingamar eftir bindinguna á í samanburði við þyngd þyngd notandans. Tafla þessi gefur manns eða konu. upp þau DIN sem stilla þarf Þyngd karlmanna Þyngd kvenmanna DIN-stilling 0-10 kg 0-10 kg Upp að 1 10-15 kg 10-15 kg 1 20-25 kg 15-20 kg 1,5 25-30 kg 20-25 kg 2 35-40 kr 25-30 kg 2,5 40—50 kg 30-35 kg 3 50-55 kg 35-45 kg 3,5 55-60 kg 45—55 kg 4 60-70 kg 55-60 kg 4,5 70-75 kg 60-70 kg 5 75-80 kg 70-80 kg 5,5 80-85 kg 80ogyfir 6 85-95 kg 6,5 85-95 kg 7 95 og yfir 7,5 8 8,5 I öðru lagi skal stilla bindingarnar eftir hæfni skíöamannsins. Aldur Byrjandi Meðalgóöur Mjög góður Upp að 16 0 0 +0,5 17-50 -1 0 +1 51ogyfir -2 -1 0 Ef litið er á dæmiö í heild sinni, litur það út þannig fyrir karlmann sem er 70—75 kiló að þyngd. Skrefl Skref 2(+-) Skref3(+-) = Karlmaður 32 ára Skósóli Rétt DIN 70—75 kiló Meöalgóður 36 cm stilling 6,5 DIN 0 -0,5 6,0 HVERNIG ÁAÐ STILLA BIND- INGAR? I þriðja og síðasta lagi skal stilla bindingarnar eftir lengd skíðaskó- sólans. DIN-stilling Upp aö 1 1.5 2 2.5 3 3.5 4 4.5 5 5.5 6 6.5 7 7.5 8 Skósólalengd í cm 20-30 22-26 24- 28 25- 29 26- 30 27- 31 28- 32 29- 33 29- 33 30- 34 31- 35 31- 35 32- 36 32-36 32-36 8,5 33-37 9 og 9,5 33-37 34-38 Gott ráð til prófunar ó bindingunum er afi sparka létt mefi lausa fætinum ð fótinn á bindingunum þar sem örin sýnir og ó þá fóturinn afi losna úr bindingunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.