Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 8
DV. MÁNUDAGUR14. JANÚAR1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Neyðarástand á Nýju Kaledóníu: Herlögreglan skaut kanaka til dauða Frá Friörlki Rafnssyni, fréttaritara DVíParís: Fimm hundruö fallhlífarhermenn voru í gær sendir áleiðis til Nýju Kaledóníu. Þaö er í fyrsta skipti frá því átökin hófust sem yfirvöld grípa til hersins. Þaö sýnir glöggt hversu alvar- legt máliö er oröið. Mikil spenna ríkti á eyjunni dagana eftir yfirlýsingu Edgard Pisani síðasta mánudag. Þó hélst þar friöur allt fram á föstudag. Þá fréttist af því að ungur kaldochi, innflytjandi af evrópskum uppruna, heföi falliö fyrir kúlum kanaka, innfædds Kaledóníumanns, á sveitabæ skammt frá höfuðborginni Númea. Strax og fréttin spuröist út söfnuðust nokkur hundruð kaldochar saman í Númeu. Þeir gengu berserks- gang í borginni, kveiktu í húsum, veltu bifreiöum og gerðu aösúg að herlög- reglunni. Hún svaraði fyrir sig með táragassprengjum. Þannig gekk það fram undir morgun laugardagsins. Þá fréttist af því að Eloi Machoro, einn af frammámönnum flokks sjálf- stæðismanna, hefði verið skotinn til bana af herlögreglunni. Nú er risinn upp ágreiningur um hvernig dauða hans bar að. Opinberlega er því haldiö fram að hann hafi búið um sig á- samt 50 öðrum kanökum á yfirgefnum sveitabæ. Þaðan hafi þeir ætlað að herja á kaldocha í grenndinni. Því hafi flokkur herlögreglumanna verið sendur á staðinn. Komið hafi til skotbardaga með þessum afleiðingum. Kanakar halda því hinsvegar fram að félagi þeirra hafi hreint og beint verið myrtur af herlögreglunni. í framhaldi af þessum atburðum greip Edgard Pisani til þess ráðs að lýsa yfir neyðarástandi á eyjunni um óákveöinn tíma. Auk þess setti hann útgöngubann sem felur í sér að bannað er að vera á ferli á almannafæri frá klukkan sjö aö kveldi til sex að morgni. Samkomur fleiri en fimm manna og mótmæli eru algeriega óheimil. Sömuleiðis er allur vopnaburður bannaður. Þessar aðgerðir miöa vita- skuld fyrst og fremst að því aö sneiða hjá frekari blóðsúthellingum á eyjunni. I gær virtist allt vera meö kyrrum kjörum í Nýju Kaledóníu. Þessir síðustu atburðir gera það að verkum að margfalt erfiðara verður fyrir Pisani að sætta stríðandi aðila en enn sem komið er hefur hvorugur þeirra útilokað frekari samningavið- ræður. Kanakar syrgja látinn sjálfstæðis- baráttumann. Umsjón: Guðmundur Pétursson og Þórir Guðmundsson Fótbolti tilfalls Knattspymuáhuginn varð stroku- fanga að falli í Vestur-Þýskalandi. Maðurinn tók þátt í fótboltaleik héraðsliða nálægt Bonn. Það var óeinkennisklæddur lögreglumaöur sem kom auga á hann frá áhorfenda- stæðum. Lögreglumaðurinn hringdi umsvifa- laust á starfsbræður sína. Síðan fór hann út á vöil og elti uppi hinn 20 ára gamia strokufanga. Þegar eltingarleikn- um var giftusamlega iokið beið svarta- maría eftir manninum sem fór aftur í steininn til að afþlána tvö ár fyrir þjófnað. Rukka ekki fyrir síma- Mormónabiskup njósnaforingi k“m Fyrrverandi starfsmaður banda- rísku Alríkislögreglunnar, FBI, hefur neitað ásökunum um njósnir. Hann segist hafa komist í KGB, sovésku leyniþjónustuna, til að njósna fyrir Bandaríkin. Richard Miller var handtekinn í október, ásakaður um að hafa stundaö njósnir ásamt sovésku hjónunum Nikolay og Svetlönu Ogorodnikov. Hann er fyrsti FBI-maðurinn sem sakaður er um slíkt. Lögfræðingar Millers sögðu í rétti í Los Angeles, að yfirmaður FBI í Los Angeles, Richard Bretzing, væri biskup í mormónakirkjunni og hann hefði notaö trúarvald sitt yfir Miller sem hefði verið rekinn úr kirkjunni. Lögfræðingamir halda því fram að valdamikil mormónaklíka hafi fyrst haldið hlífiskyldi yfir Miller og síðan handtekið hann til að bæla niður á- sakanir um klíkuskap mormóna í al- ríkislögreglunni í Los Angeles. Ungbarni smyglað úr landi BELGIUMENN A MÓTIELDFLAUGUM Lögmaður í Bretlandi segir að ung- baminu sem barnlaust par borgaöi konu fyrir aö eiga hefði verið smyglaö út úr Bretlandi. „Hún er fyrir utan Bretland, ein- hvers staðar annars staðar í heimin- um. Eg get ekki sagt hvar,” sagði lög- fræöingurinn Derek Kirby-Johnson. Framtíð hinnar 10 daga gömiu stúlku hefur verið mikið hitamál. Bamlausa pariö hafði borgað móðurinni 6.500 pund, eöa um 300.000 krónur, fyrir að eiga barnið og leyfa þeim síðan að ættleiða það. Margir töldu þetta vera barnasölu. Lögfræðingurinn sagöist sjálfur hafa náð barninu út úr spítala í London. Með hjálp konu sinnar. Dagblaðið Daily Mail sagöi í dag aö stúlkan væri nú erlendis á nýju heimili með bamlausa parinu sem borgaði fyrir hana. Dómari átti í dag að ákveða um framtíð stúlkunnar. Saksóknarinn í Frankfurt í Vestur- Þýskalandi neitar að sækja til saka menn sem ekki borga símaklámsreikn- inga sína. Saksóknarinn segir að síma- klámsfyrirtæki séu að selja siðlausa vöru. „Við erum ekki rukkarar fyrir klámfyrirtæki,” segir hann. Vestur-Þjóöverjar hafa tekið upp á símaklámi samkvæmt bandarískri fyrirmynd. Fólk sem vill nota sér þjón- ustuna hringir í símanúmer. Það talar. við „kvenlegan kynferðisráðgjafa” sem tekur niður símanúmer þess og hringir til baka. Þetta er gert til aö ganga úr skugga um aö notendur gefi upp rétt símanúmer. Fyrir samtalið eru borguð um 80 þýsk mörk, eða um 1.000 krónur. Venjulega svíkjast um 10 prósent við- skiptavinanna um að borga. Mikill meirihluti Belgíumanna er andvígur uppsetningu bandarískra Froskar mega kvakka Froskar mega kvakka eins og þá lystir, segir dómari i Hesse, Vestur-Þýskalandi. Dómarinn neitaði að taka til greina kvörtun frá manni sem sagði að froskamir í garði nágranna sinna yllu of miklum hávaða. Nágranninn er búinn að búa til 26 fermetra tjörn sem froskarnir í nágrenninu hafa mikið dálæti á. Þar liggja þeir og kvakka af bestu lyst, nágrannanum til mikilsama. stýriflauga þar í landi í mars. Þessi útkoma skoðanakönnunar dagblaðsins La Libre var birt nú um helgina. I dag hittir Wilfred Martens, forsætisráð- herra Belgíu, Ronald Reagan, forseta Bandaríkjanna, aðmáli í Washington. Samkvæmt könnuninni vildu 45 prósent aðspurðra að algerlega verði hætt við uppsetningu flauganna. Um þriðjungur, eða 30 prósent, vildu að uppsetningunni yröi frestað í þrjá mánuöi eða ár. Aðeins 18 prósent vildu að flaugarnar yrðu settar upp í mars, eins og áætlað er. Meirihluti manna, eða 54 prósent, sagði að það hvernig stjórnin tæki á þessu máli myndi hafa áhrif á hvernig þeir kysu í þingkosningunum síöar á þessu ári. Búist er við að Reagan muni leggja mjög að Martens að halda fast við uppsetningu flauganna. Martens viöurkenndi aö ráðuneyti sitt væri ekki á einu máli um hvaö gera skyldi. Um 800 bandarískir sérfræöingar eru nú að undirbúa svæðið á Florennes velli fyrir komu stýriflauganna. Þær eiga aö verða samtals 48. Belgíumenn hafa engan áhuga á að fá þessar stýriflaugar til sin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.