Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 9
DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985. Útlönd 9 Utlönd Útlönd Útlönd Gromyko aðvarar Bandaríkjamenn Sovétmenn sögðu í gær að ef Bandaríkjastjóm neitaði aö semja um bann við geimvopnum myndi það stefna vopnatakmörkunarviöræðum stórveldanna í hættu. Bandaríkjamenn sögðu að þessi yfirlýsing þýddi ekki að vonlaust væri að árangur næöist í viðræöunum. Utanríkisráðherra Sovétríkjanna, Andrei Gromyko, varaði einnig við að áframhaldandi uppsetningar á meðal- drægum eldflaugum í Evrópu gætu h'ka stefnt viðræðunum í hættu. Hann sat fyrir svörum í sovéska sjónvarpinu í tæpa tvo tíma og lýsti viðræðum sínum við Shultz, utanríkisráöherra Bandaríkjanna. I Washington sagði Shultz af og frá að Bandaríkjamenn hættu við uppsetningar á stýriflaugum og Pershing-2 eldflaugum í Evrópu. Stjórnmálaflokk ar bannaöir í kosningunum í Pakistan Bjóða Freddie Laker 50 milljón dollara í málaferlunum British Airways og ellefu önnur fyrirtæki hafa boðið sir Freddie Laker 40 milljónir dollara til sáttar í máh sem flugfélag sir Freddie höfðaöi gegn þeim í Bandaríkjunum. Viðræður til að sætta málið utan réttar hafa staðið yfir að undanförnu, en lauk núna um helgina án þess að Laker tæki eða hafnaði tilboðinu. Laker Airways varð gjaldþrota fyrir þrem árum og lánardrottnar félagsins hófu milljarða dollara skaðabótamál á hendur BA og fleirum. Því var haldið fram, að þessi félög hefðu gert samsæri um að drepa niður samkeppnina af lággjaldaflugi Lakers með því að undirbjóða hann um hríö. Um er að ræða Pan Am, TWA, Luft- hansa og fleiri. Uppgjör þrotabúsins hefur dregist á meðan mál þetta er óútkljáð, en sátta- tilboðiö, sem til umræðu hefur verið að undanfömu, felur í sér 40—50 milljón dollara skaðabætur til þrotabúsms og 2—4 milljónir dollara til sir Freddie Laker sjálfs. — Skuldir flugfélagsins munu hafa numið um 250 milljónum sterhngspunda. Ein ástæðan fyrir því að skriður hefur komist á málið er sú að breska ríkið hyggst selja síðar á þessu ári British Airways til einkareksturs en þörf þykir á því að útkljá þetta mál fyrst. Sætið þitt í veislufagnaði á fyrsta farrými —^ m 'J'J’JXTJWJWJ1 Nú komast allir auðveldlega FERÐATILHÖGUN TIL TENERIFE Pér njótid frúbœrrnr þjónustu i áœtlunarflugi FLUGLEIÐA í stuttu morgunflugi til Glasgow þar sem rétt gefst tími tit þess ad Ijúka gódum morgunverdi. Frá Glasgow er sídan haldid í beinu tengiflugi med risaþotu, Jumbo, tveggja hæda Iioeing 747 (430 farþega) sem flýgur beint til Tenerife þar sem fararstjóri tekur á móti farþegunum. Þetta er hradferd beint i sólina, engin gisting og töskubasl á leidinni. Siðan er haldid heimleiöis úr sólinni med hradflugi risa- þotunnar sem fer frá Tenerife kt. 11.15 og farþegar komnir heim til íslands samdœgurs kl. sjö ad kvöldi. Hœgt er ad fá gegn vægu auka- gjaldi fgrsta farrými í risa- þotunni. og ódýrt í vetrarsól f=»nr.F=EROIR = SULRRFLUG Ycsturgötu 17. R>k. simar 10661, 22100 ng 15331 Zia ul-Haq, forseti Pakistan, hefur ákveðið að halda kosningar í næsta mánuði. Hann hefur bannað flokkum aö taka þátt í þeim. Einungis einstaklingar mega bjóða sig fram. Stjómarandstaðan hefur þegar for- dæmt þessar tilvonandi kosningar til landsþings og sýsluþinga og kallar þær svindl. Zia hershöfðingi sagði að kosningar til landsþings myndi hann halda 25. febrúar og til héraðsþinganna 28. febrúar. Stjómarandstaðan vill að kosningar verði haldnar samkvæmt stjórnar- skránni sem samþykkt var 1973 en var síðan rift. Sú stjómarskrá kvað á um lýðræði á vestrænan máta. Hreyfingin til endurvakningar lýð- ræðisins, MRD, hefur lagt til að fólk sniðgangi kosningarnar. MRD er sam- tök 11 stjómarandstöðuflokka. Pundið síg- ur niður Þegar alþjóða gjaldeyrismarkaðir opnuðu aftur í morgun eftir helgina kom i ljós að sterlingspundið hafði enn sigið gagnvart dollara, og var komið niður í 1,1050 Bandaríkjadali hvert pund. Þegar markaðir lokuðu á föstudag stóð pundið i 1,12 dollurum og altalað að breska stjómin ætlaði ekkert að aðhafast til þess að hindra frekara gengissig pundsins. Um helgina birtust yfirlýsingar frá fjármálaráðuneytinu breska, þar sem borið var á móti því að stjórnin léti sig engu varða afdrif pundsins og var gefið í skyn aö bankavextir kynnu að verða hækkaðir til þess að verja pundið. Háttsettur talsmaður í fjármála- ráðuneytinu sagði, að vandræði sterlingspundsins stöfuöu að hluta til af efnahagsvandamálum innanlands. Fram að því hafði verið haldið fram að gengissigið stafaði af styrkri stöðu Bandaríkjadals og óvissunni á olíu- markaðnum. Gjaldmiöill Breta er háður olíuverðinu vegna olíufram- leiðslu Breta í Norðursjónum. Leitið nánarí upplýsinga í sýningarsa/ okkar að Skemmuvegi 4 eða í síma 91-73100. fíjót og góð þjónusta. A. GUÐMUNDSS0N Húsgagnaverksmiðja, Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100 HÚSGÖGN Sérverslun með SKRIFSTOFU HÚSGÖGN Skrifstofuskrifborð i 3 stærðum. Vélritunarborð. Hillur fyrir möppurnar og fí. okkur fáið þið góða vöru á góðu verði Fundarborð, fundarstóla. Biðstofuhúsgögn. Skermveggi og margt fíeira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.