Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 15
DV. MÁNUDAGUR14. JANÚAR1985.
15
Menning Menning Menning Menning
Níutíu manna hljómsveitin
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í Hó-
skólabíói 10. janúar.
Stjórnandi: Joan-Piorro Jacquillat.
Efnisskró: Szymon Kuran: Elegie fyrir strengja-
sveit; Wolfgang Amadeus Mozart: Sinfónía nr.
41 í C-dúr (Júpfter); Igor Stravinsky: Vorblót.
Nýtt ár hófst hjá Sinfóníuhljóm-
sveitinni meö viðamiklum og
mannfrekum tónleikum. Fjölmennið
kom af sjálfu sér, eöa réttara sagt
réðst af eðli verkefna. I upphafi tón-
leikanna fengu strengirnir einir, vel
skipaöir, aö leika listir sínar í verki
annars konsertmeistara hljómsveit-
arinnar, Szymon Kuran. Þessi
, nýrómantíska „miniatúra” býr yfir.
ótrúlega mikilli spennu undir sínu
friðsæla yfirboröi. En einmitt þegar
spennan er að skjóta upp kollinum og
breiðast út í forgrunni er skyndilega
klippt á — lagið búið og áheyrandinn
skúinn eftir í lausu lofti, þyrstandi í
meira. Hann kann virkilega að
skálda fallegar hendingar fyrir
strengi, okkar nýfengni konsert-
meistari, Szymon Kuran.
' Misjafn Júpiter
1 Júpitersinfóníunni var spilaö
með næstum því
fullum strengjum, sem út af fýrir sig
er ágætt ef nógu létt er spilað. Ég
verð að játa aö stílfærslan var ekki
af minni uppáhaldstegund en það
breytir því ekki að liðinu tókst aö
spila töluvert létt og fimlega (þóttist
ég þar kenna áhrif frá Einari Grét-
ari, sem í þetta sinnið sat á stóli kon-
Tónlist
Eyjólfur Melsted
sertmeistara) að fjórða þættinum
undanteknum. Þá fór eins og sagt er
um ökumenn, að bensínfóturinn varð
of þungur. Svo má nú vel vera að
glimuskjálfti fyrir átökin miklu við
Vorblót hafi sett sitt mark á þetta
allt saman.
Vantaði aðeins eitt
Að afloknu hléi streymdi liðs-
safnaðurinn inn á sviðið, nærri
hundrað manns. Vorblót hófst með
listilega spilaöri fagottsólónni, en
hún og fáein önnur andartök — allt of
fá og stutt — náðu að kæta hlust-
imar. Um afganginn væri manni
skapi næst aö hafa yfir hin frægu um-
mæli Comtesse de Pourtalés um
frumuppfærslu Vorblóts. Það voru
svo sannarlega níutíu manns í hljóm-
sveitinni — níutíu einstaklingar rétt-
ara sagt. Þeir voru dugiegir að spila
og léku með góðum styrk. Rangar
innkomur voru vart teljandi og allir
komust vel í gegnum stykkið. Það
vantaði í rauninni aðeins eitt — að
þessir niutíu einstaklinbgar spiluðu
saman. Ætli hljómsveitin okkar ein-
hvem tíma að spila þessa mögnuöu
músík aftur, sem ég vona sannarlega
að hún geri, legg ég til að hún fái sér
eitilharöan þrælapisk til að stýra
verkinu og gefi honum nægan tima
til að hamra það inn í spilendur svo
rækilega aö þaö síist bæði inn í
líkama þeirra og sál og flytji ekki á
tónleikum fyrr en fullreynt er að svo
sé. Því eins og einn konunglegur
kúskur sagöi: , A& fá átta hesta eyki
til að ganga rétt byggist á því aö
ekillinn kunni með keyrið að fara”.
-EM.
HELGAR
Helgarreisur veita einstaklingum, fjölskyldum og hóp-
um tækifæri til að njóta lífsins á nýstáriegan og skemmti-
legan hátt, fjarri sinni heimabyggð. Fararstjórnin er í þín-
um höndum: Þú getur heimsótt vini og kunningja, farið
í leikhús, á óperusýningu, hljómleika og listsýningar.
Síðan ferðu út að borða á einhverjum góðum veitinga-
stað og dansar fram á nótt.
Stígðu ný spor í Helgarreisu Flugleiða!
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flug-
leiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
FLUGLEIÐIR