Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 16
16 DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985. Spurningin Ert þú flughrædd(ur)? Arthúr Anais eftirlaunamaður: Nei, ekki aldeilis. t þau skipti sem ég hef feröast meö flugvélum hef ég aldrei fundiö fyrir flughræðslu. Elín Ásgrimsdóttir húsmóðir: Nei, ég er ekki flughrædd. Eg hef flogið nokkuð, aðallega innanlands, og sem betur fer aldrei fundið fyrir neinni hræðslu. Sigrún Pálsdóttir húsmóðir: Nei, ég hef ekki veriö flughrædd í þessi fáu skipti sem ég hef ferðast með flugvél- um. Haraidur Þórðarson eftirlaunamaður: Nei, ég hef ferðast 70—80 sinnum með flugvélum og aldrei fundið fyrir neinni hræðslu. Ásdís Þormar húsmóðir: Flughrædd er ég ekki. Ég flýg talsvert milU landa og hef aldrei verið hrædd. Mayte Guðmundsson húsmóðir: Nei, ég er ekki flughrædd. Eg flýg alitaf einu sinni á ári út og er aldrei neitt hrædd. Lesendur Lesendur Lesendur Innstæðulausar ávísanir: Saklausir sitja í súpunni Verslunareigandi hringdi: Ávísanamál hérlendis eru í mikl- um ólestri. Samkvæmt lögum er sá semframselur ávisanirábyrgurfyr- ir þeim. Þannig getur sá sem hefur ávísanahefti gefið út eins margar innstæöulausar ávísanir og viðkom- andi kærir sig um. Framseljanda, eins og t.d. verslunareigendum, er gert að borga. Þess eru jafnvel dæmi að banki hafi fært upphæö innstæðu- lausra tékka af bankareikningi framseljandans án þess að láta hann vita. Innstæöulausar ávísanir eru orðn- ar mikiö vandamál hér. Manni er líka óskiljanlegt hvernig bankinn getur losað sig undan allri ábyrgð í þessum málum. Þaö virðist hver sem er geta fengiö ávisanahefti. Jafnvel dæmdir sakamenn geta labbað inn í banka og fengið ávísana- hefti eins og ekkert sé. Hvers vegna eru bankarnir ekki ábyrgir í þessum málum? Ef maöur tekur t.d. lán þá þarf maður að tryggja sig í bak og fyrir en til að fá ávísanahefti þarf aðeins að borga stofngjald og síðan ekki söguna meir. Ef framseljendur innstæðulausra ávísana vilja fá leiðréttingu sinna mála þá veröa þeir í flestum tilfell- um að fara sjálfir á stúfana og leita sökudólgana uppi. Þaö er nauðsyn aö fara að gera eitthvað í þessum málum. Það er ekki hægt aö láta saklaust fólk greiöa fyrir misgjörðir annarra. Verslunareigandi gerir évisana- mál afl umræAuefni og vill að þessi mél verfli tekin til gagn- gerflrar endurskoflunar. Gestur Laugardalshallar kvartar undan því afl þurfa afl sitja é hörflum tré- bekkjum þegar hann horfir é íslenskan handknattleik. Harðir Hallarbekkir Ö.R.P. skrifar: Mig langar aö kvarta yfir því viö for- ráðamenn Laugardaishaliar að ekki skuli vera boðið upp á sæti á efri pöll- um Hallarinnar. Það er varla til að laða að áhorfendur að bjóða upp á grjótharða bekki í tvo og hálfan tíma þó að hægt sé vegna fámennis að setj- ast á bekki þessa. Ahugi okkar, dyggra stuðningsmanna, á handknattleik minnkar til muna vegna þessa. Von- andi er ekki verið að fæla frá þá fáu áhorfendur sem eftir eru með þessu. Það á að vera sjálfsagt að leyfa fólki að nota þessi sæti ef þaö kærir sig um. Handboltinn á marga og dygga áhorfendur sem fylltu Höllina hvert leikkvöld fyrir nokkrum árum. Það voru og eru ógleymanlegar ánægju- stundir sem ég vona að endurtaki sig með væntanlegum breytingum á leik- fyrirkomulagi. En þangað til er engin ástæða til að spara sætin né kústana. Starfsfólk er jú á staönum. „HVAR ER HÚMOR- INN í FÓLKINU?” Kona hringdi: Mig langar að þakka þeim sem sáu um áramótaskaup sjónvarpsins í ár. Við á mínu heimili, sem eru börn, ungling- ar og miðaldra fólk, skemmtum okkur mjög vel og hef ég heyrt fleiri tala um hversu skemmtilegt skaupið var. Ég skil ekki i þeirri slæmu gagnrýni sem skaupiö hefur fengið. Hvar er húmor- innífólkinu? Það er eins með allt það sem maður horfir á. Það er hægt að láta sér leiðast ef maður horfir á það með neikvæðu hugarfari. Popptónlist á rétt ásér Tvær 14 ára skrifa: Okkur langar til aö gera athuga- semd við greinina Tónlist undir tákn- máli sem var í DV 8. jan. sl. varðandi það sem þar er sagt um Duran Dur- an. Sagt er að það sé of langt aö hafa svona langan þátt á dagskrá og aö það sé vafasamt að flokka þetta und- ir tónlist. Okkur finnst að unglingarnir eigi rétt á að hlusta á það sem þeim líkar. Þessi tónlist hefur engin áhrif á okk- ur „ómótaða unglinga”. Við getum ekki séð að þessi tónlist geti skaöað okkur á neinn hátt frekar en að sin- fóníur geti skaðað hina f ullorðnu. Popptónlist á alveg eins mikinn rétt á sér og önnur tónlist. SABA er í Sv-Arabíu Nafnlaus skrifar: Vegna fréttar í DV 4/1 ’85, Mikil loftbrú með svarta gyðinga frá Eþíó- píu, langar mig að benda á eftirfar- andi: Borgin Saba er í Sv-Arabíu (ekki Afríku) skammt frá landíunærum S- og N-Jemen. Um leið og ofanskráð er leiðrétt mætti vekja betur athygli á því aö Falash þýðir útlendingur. Því nafni kallast gyðingar enn eftir um 2900 ára dvöl í óþökk Eþiópíubúa. Sam- búðarvandamál gyðinga eru ekki ný- tilkomin. Til gamans má að lokum geta þess að ónefnið „gyðingur” er íslensk uppfinning. Sjálfir kalla þeir sig Juda, Jews, Juden o.s.frv. Ekki eru menn é eitt séttir um ágæti áramótaskaupsins. Hér eru þeir Laddi og Gfsli Rúnar I hlutverkum sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.