Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Page 17
DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985.
17
Lesendur
Ósæmileg
skrif um
unglinga
Þrjár 15 ára skrifa:
Okkur langar til aö svara grein G.H
sem birtist í DV 2. jan. og bar nafnii
Yfirgangur unglinga. Þessi G.H. virö
ist ekki vita mikiö um unglinga þessí
lands. Það sem þú skrifar um reyking-
ar og drykkju er alveg fjarstæða. Auð
vitaö reykir ekki hver einasti ungling-
ur og drekkur. 1 okkar bekk t.d. eru 4
af 30 sem reykja og álíka margir sem
drekka. Hvað er líka að því að
skemmta sér áður en fullorðinsárin
taka við? Þú skrifar eins og versti öld-
ungur. Tímamir breytast og mennirn-
ir með.
Hefur ekki alltaf verið látið svona út
af æskunni? Meira að segja Sókrates,
sem var uppi 5 öldum fyrir Krist, lét
svona út af æskunni eins og þú gerir
nú. Er það ekki æskan sem á að halda
uppi mannkyninu? G.H. skrifar: ,,Það
á að gefa þeim vinnu og halda þeim að
verki.” Nei, væni minn. Það eru ekki
miklar líkur á þvi að unglingar fái
vinnu. G.H. segir ennfremur að það
hljóti að vera til nóg af sálfræðingum
og slíku til að tala um fyrir unglingun-
um. Við tökum ekki mark á svona
rugli.
Að lokum viljum við þakka sjónvarp-
inu fyrir frábæran þátt með Duran
Duran og gott skaup. Vonandi er að
G.H. lesi þes'sa grein og að hún verði til
þess að viðhorf hans til unglinga breyt-
ist.
Tapaðar
myndir úr
Mela- og
Hagaskóla
Eigandi hringdl:
1 nóvember sl. hittumst við nokkur
skólasystkini úr Mela- og Hagaskóla í
sal Alþýðubandalagsins v/Hverfis-
götu. Eg hafði meðferðis myndaalbúm
með myndum frá skólaárum okkar en
gleymdi því þarna. Ekki hef ég fengið
albúmið aftur. Mig langar til að biðja
DV að vekja athygli á þessu fyrir mig
vegna þess að þetta myndaalbúm er
mér mjög kært. Sá sem hefur albúmið
undir höndum getur náð í mig i símum
32540,23173 og 39527.
Húrra, Berti!
Anægð skrifar:
Ég tek undir það að hætt verði að
selja sigarettur og annað tóbak hér á
landi. Eg er 12 ára og báðir foreldrar
mínir reykja. Stundum er bara ekki lift
inni svo maður verður að flýja út. En
það er ekki oft sem betur fer. Þetta er í
eina skiptiö sem ég hef litiö upp til
Berta og hann hefur vaxið í áliti hjá
mérviöþetta.
ISIMA
68-66-11
kl. 13 til 15
eða
SKRIFIÐ
HRINGIÐ
OMRON
AFGREIÐSLUKASSAR
Minni fyrirhöfn-meiri yfirsyn
Við höfum að staðaldri yfir 10 mismunandi gerðir af Omron
afgreiðslukössum á lager. Allt frá einföldum kössum upp í stórar
kassasamstæður. Omron afgreiðslukassarnir stuðla að aukinni hag-
kvæmni og öryggi í viðskiptum. Þeir búa yfir stækkunarmöguleikum
og sjálfvirkri tölvuútskrift sem skapar meiri yfirsýn og stuðlar að
markvissari og betri rekstri.
Nú er upplagt að slá til og fásér afgreiðslukassa.
Kynnið ykkur verðin - við veitum allar nánari upplýsingar f söludeildinni.
Hverfisgötu 33 - Sfmi 20560
Pósthólf 377
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
LANDSFRÆG
HÖRKUTÓL
a._________________
íslandi. Mikil útbreiðsla þeirra, styrkleiki og ending bera grafskóflur. Auk þess er hægt að fá við hana ótal
því glöggt vitni. aukahluti, svo sem lyftaragaffla, kranakróka, götusópa,
snjóplóga o.fl. o.fl.
En sérfræðingar JCB halda stöðugt áfram að þróa og
endurbæta vélarnar, eins og JCB Dx4 grafan sannar. Og vegna hagstæðra samninga við JCB-verksmiðjurnar
Hún er frábærlega vel hljóðeinangruð, með opnanlega getum við nú boðið JCB-gröfurnar á ótrúlega láguverði.
Hringið í síma 81555 eða lítið við og leitið nánari upplýsinga.
TlMABÆR