Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Side 18
18 DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985. Frá skrúðgöngu nemenda og kennara til nýja skólahússins ó Eski- firði. Eskifjörður: Skrúðganga í nýja skólann I síöustu viku var brotið blaö í sögu eskfirskra skólamála en þá var öll grunnskólakennsla flutt í nýtt hús- næði. Þarna rættist loks langþráöur draumur því það var upp úr 1960 sem fariö var aö tala um byggingu nýs skólahúsnæðis. Byrjaö var á byggingu skólans fyr- ir rúmum 10 árum enda gamli skól- inn, sem byggður var árið 1910, orð- inn alltof lítill og kennsla fór í f jölda ára iðulega fram á fjórum til fimm stöðum í kaupstaðnum, til mikils óhagræðis fyrir nemendur og kenn- ara. Nýi grunnskólinn, sem er hinn glæsilegasti bæði utan dyra sem inn- an, er á þrem hæðum og er gólfflötur hverrar hæðar um 500 fermetrar. Fyrsti áf angi var tekinn í notkun árið 1982 en nú var flutt í annan áfanga. Um 200 nemendur og kennarar ásamt skólastjóra grunnskólans kvöddu gamla skólann sinn og fögn- uöu nýja húsnæðinu með mikilli skrúðgöngu um bæinn sl. þriðjudag en kennsla hófst daginn eftir. Þrátt fyrir aö gamla skólahúsið hafi nú lokið hlutverki sínu í eiginleg- um skólamálum Eskfirðinga mun það áfram koma í góðar þarfir fyrir aðila sem verið hafa á hrakhólum með starfsemi sína hingað til. Tón- listarkennsla mun flytjast þangað ásamt félagsmálaráöi, byggöasögu- nefnd og jafnvel fleiri aöilum. Emil Thorarensen/Eskifirði. Kennarar skólans ósamt skólastjóranum, Jóni Inga Einarssyni, fyrir miflju. DV-myndir Emil. Rúður brotnar á Akureyri Rúður í opinberum byggingum á Akureyri voru brotnar um helgina. I Gagnfræöaskóla Akureyrar, Verk- menntaskólanum, sundlauginni og gamla iþróttahúsinu við Laugargötu voru alls fimmtán rúður, flestar litl- ar, brotnar aðfaranótt laugardags. Ymist virðist hafa verið sparkað í þær eða grjóti kastaö. Byggingarnar fjórar eru allar á sama svæði. Það er því talið að sami aöilinn hafi veriö að verki í öllum tilvikunum. Grunur hefur beinst aö ungum piltum sem sáust þarna á ferliumnóttina. Nóttina eftir var brotin stór rúða í verslun KEA við Hafnarstræti, herradeild. Ungur herramaður ját- aði á sig verknaðinn. Við yfirheyrslu bar hann við að þetta hefði veriö óhapp. -KMU Hnífsdalur: Þak fauk af hesthúsi Þak fauk af hesthúsi í Hnífsdal síö- heyi. Vindurinn fletti einnig asfalt- degis á laugardag er suöaustanrok klæðningu af þaki íbúðarhúss í Hnífs- gekk yfir þorpið. Skepnumar inni dal. meiddust ekki. Þakplötumar fuku á Oveðriö olli ekki tjóni I öðrum tvo bíla og skemmdu þá nokkuð. byggöum. Um tíma var þó óttast um Hrossaeigandinn tapaði þó nokkm af flotbryggju á Isafiröi. -KMU Menning Menning Menning Utla hryllingsbúðin Litla hryllingsbúflin, sýning Hins leikhússins í Gamla blói 13. janúar. Laust og bundifl mál: Howard Ashman/ Tón- list: Atan Menken. Yfirumsjón: Sigurjón Sighvatsson og Póll Bald- vin Baldvinsson. Dansar: Edie Cowan/ Dansþjólfun Sóloy Jóhannsdóttir. Lýsing: David Hersey. Leikmynd: Guðbjörn Gunnarsson/ Brúður: Martin P. Robinson/ Búningar: Guflmunda Þórisdóttir. Hljómsveitarstjórn: Pótur Hjaltested/ Hljóm- stjórn og upptaka: Gunnar Smóri Helgason. Þýfling: Bundifl mól: Magnús Þór Jónsson/ Laust mól: Einar Kórason. í hlutverkum: Lerfur Hauksson, Edda Heiflrún Bachmann, Glsli Rúnar Jónsson, Þórhallur Sigurflsson, Ragnheiflur Etfa Amardóttir, Sig- rfður Eyþórsdóttir, Harpa Helgadóttir, Björgvin Halldórsson og Ariel Pridan. Engar gamlar lummur Hversu oft gerist það ekki að úr ágætum hugmyndum er unnið meö hraði og í flaustri í öllum listgrein- um, en ekki hvað síst í kvikmynda- heiminum? Gott dæmi um það var nauðaómerkileg kvikmynd sem gerð var fyrir tæpum aldarfjórðungi og hét The little Shop of Horrors. Samt náði þessi mynd, sem gerð var af Roger Corman, að kveikja í leikstjóranum Howard Ashman og tónskáldinu Alan Menken og í sam- vinnu við Edie Cowan, danshöfund og prúöubrúðumeistara, sömdu þeir samnefnt „músíkal”. Orðið söng- leikur á nefnilega ekki alltaf við um stykki af þessu tagi og því finnst mér ekki saka að sletta þessu slangur- yrði. Ekki eru nema tvö ár síðan verkið fór fyrst á fjalimar svo aö ekki verða þeir fyrirsvarsmenn Hins leikhússins sakaðir um að hefja starfsemina meö bakstri gamalla lumma. Kjarngóður kokteill Stykkið er bráðsmellið og gengur í stuttu máli út á viögang og samskipti plöntu, sem niðursetningur hjá blómasala á bísanum keypti af Kín- verja meðan almyrkvi var á sólu, við eiganda sinn og aðra í hans nánasta umhverfi. Músikin er samkvæmt for- múlu hinna nýrri músíkala eða söng- leikja sem slegið hafa í gegn hin siðari ár. Blanda, soðin upp úr rokki og klassískum minnum úr ýmsum áttum. Vel gerð getur slík blanda reynst hin áhrifamesta, skemmtileg kjamgóð músík til hressingar og er svo hér. Þegar svo í blönduna bætast haganlega gerð umgjörð, táknræn og einföld, (án þess þó að sleppa einu sinni hinu ómissandi tákni amerísks borgarumhverfis, brunastiganum eða fire escape) dæmigerðir búning- ar og smellnir dansar, þá hlýtur hún að teljast til þess fallin aö svala, hressa og skemmta fólki þegar þaö vill lyfta sér upp úr hversdagsleikan- um. Já þessi litla hryllingsblanda er vissulega kjarngóður kokkteill. Þá verður blöndunnar notið til fulls En til þess að hans verði notið til fulls veröur svona kokkteill að vera lagaður upp á íslensku. Um það sjá tveir kunnir pennans menn, þeir Einar Kárason, sem þýðir og staðfærir laust mál, og Magnús Þór Jónsson, sem sér um bundið mál. Nú skal játaö að ég hef ekki kynnt mér frumtextann nema rétt á yfirborðinu og veit því ekki hvemig sjálf þýðing- Leiklist Eyjólfur Melsted in hefur tekist en ég ætla að hún sé af sama toga og staöfærslan og þá telst hún glettilega góö. Þar er morandi í hressilegum slanguryrðum og orða- tiltækjum og er þeim sem beyg hafa af þess háttar hryllingi bent á að ómaka sig ekki á sýningu þessa. Staðfærslan gengur annars býsna langt og spuming hvort hún gengur ekki á að minnsta kosti einum stað nærriþvíof langt. Stjörnur tvær Hlutverk eru ekki mörg — fjórir einleikarar, kórinn bara tríó og svo plantan, höfðupersóna leiksins, sem útheimtir tvo. öllum hlutverkunum er það sammerkt aö í þau verður að veljast fólk sem getur sungið dansaö og leikið og það allt þrennt í einu. Þetta hefur vissulega tekist. Kór- píumar þrjár eru leiknar af Ragn- heiði Elfu Arnardóttur, Sigríði Ey- þórsdóttur og Hörpu Helgadóttur. Sumpart em þær sögumenn, sum- part tengiiiöir við umhverfiö, bísann eða Skild Row sem nánar tiltekið þýðir rennibraut og er þessi tiltekna rennibraut sögð liggja beint til helvítis. Annars er ekkert veriö að klifa á því í stykkinu heldur gert ráð fyrir því að áhorfandinn eða heyrandinn viti vel í hvaða skugga- hverfi hann er kominn. En þær dansa prýðilega, stelpumar, og söngurinn hjá þeim er pottþéttur. Þórhallur Sigurðsson fer með mörg hlutverk og viröist hann í ess- inu sinu við að fá að bregða sér í svo mörg gervi. Þeirra mest er hlutverk tannlæknisins og í því stendur hann sig allvel, en best þótti mér honum takast í hlutverki nýríka bjálfans sem fyrstur féll fyrir sjarma plöntunnar Auðar annarrar. Gyðinginn Músnikk, eigandi blómabúöarinnar, leikur Gísli Rúnar Jónsson. Mikið rækalli passar Gísli Rúnar inn í þetta hlutverk og nógu óraunverulegur til að maöur fari nú ekki að líta framan í ljúfmenni þau sem reka blómabúðir uppi á Islandi angistaraugum. I hlutverki Baldurs krilbura, niðursetnings sem eignast mannætu- plöntu og verður mikill karl um stund, er Leifur Hauksson. Baldur krílburi er svipuö týpa og Jerry Lewis skóp í Cinderfella, umkomu- leysið uppmálað en þó á sinn hátt með glansmyndaryfirbragði. Leifur gerir virkilega gott úr Baldri þótt söngur hans sé varla til að hrópa húrra fyrir — þá best þegar hann á samleik með Auði, sem Edda Heið- rún Bachmann leikur. Auöur, gellan úr ræsinu sem leynt og ljóst virðist dreyma um aö vera eins og Marilyn Monroe, verður í höndum Eddu Heiðrúnar stjama leiksins. Þó er önnur stjarna sem skín skærar en Auður/Edda Heiðrún. Plantan sjálf, Auður önnur, Ariel Pridan vinnur þrekvirki í plöntustjóm sinni. Ekki aöeins likamlegt þrekvirki við stjóm hreyfinga, heldur bærir hann varir plöntunnar kórrétt eftir hinum íslenska texta og það er hreinasta snilld. Ekki hefði ég heldur trúað því að óreyndu að Björgvin Halldórsson gæti gert jafn ágæta hluti og hann gerir í raddfærslu plöntuhlutverks- ins. Ekki verður hlustunum misboðið Hljómsveitin stendur sig með af- brigðum vel. Þar er valinn maður í hverju rúmi og síöast en ekki síst stýrir tökkum og tólum maöur sem veit upp á hár hvað hann er að gera. Allur er leikurinn fluttur um hátalarakerfi — vel uppmagnaður og í góðu innbyrðis samræmi, en aldrei þó svo sterkt uppmagnaður að mis- bjóðihlustum sýningargesta. Sýningin gengur eins og vel stillt og smurö vél. Ljósainnsetning fylgir tempói músikurinnar og er henni algjöriega samhæfð. Verður hin vel útfærða lýsing þannig enn frekar til að skerpa áhrifin. Yfirumsjónar- mönnum hefur tekist að setja á fjalimar ekta fína músikalupp- færslu. Paródían fer hvergi úr bönd- unum og hryllingurinn eiginlega gerður einkar ljúfur. Hitt leikhúsið hittir beint í mark með sínu fyrsta verkefni. Það er að sinu leyti eins og Aþena sem stökk alsköpuð út úr höfði Seifs. Þeim sem fara að sjá og heyra blómið vaxa á sviðinu er hægt aö lofa ljúfum hrolli. EM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.