Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Síða 20
20 DV. MÁNUDAGUR14. JANÚAR1985. LAUSAR STÖEXJR HJÁ REYKJAVÍKURBORG FÓSTRA óskast við Skóladagheimilið Skála. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Upplýsingar veitir forstöðumaður viðkomandi heimilis eða umsjónarfóstrur á skrjfstofu dagvistar í síma 27277. Sól Saloon Sólbaðstofan Laugavegi 99 Sími 22580 Barnavideo og ekta gufubad. Laugavegi 52 Sími 24610 Slendertone grcnningar- og vöðvaþjáljunarlieki. Frábærl vid staðbundinni fitu og vöðvabólgu. BÁÐAR BJÓÐA BREIÐA, NÝJA BEKKI Ma professionel og UWE studio-line Dömurog herrar, verið velkomin. Aður A NÁMSFLOKKAR KÓPAVOGS Námskeið á vorönn: enska, danska, þýska, franska, sænska, norska, spænska, ítalska, skrautskrift, myndlist, myndvefnaður, leirmótun, Ijósmyndun, tölvuritvinnsla, vélritun, hnýtingar, trésmíði kvenna, saumar, táknmál, framsögn og skrúðgarðyrkja. Innritun og upplýsingar í síma 44391 kl. 16—18.30. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiöenda skal vakin á því aö gjalddagi söluskatts fyrir desembermánuð er 15. janúar. Ber þá aö skila skattinum til innheimtu- manna ríkissjóös ásamt söluskattsskýrslu i þririti. Fjármálaráöuneytið, 4. janúar 1985. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Skrifstofustjóri borgarverkfræðings Auglýst er laust til umsóknar starf skrifstofustjóra borgarverkfræðings. Starfiö veröur veitt frá 1. febrúar í eitt ár. Umsóknir sendist skrifstofu minni fyrir 20. janúar nk. Rorgarstjórinn í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 40., 42. og 44. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1984 á eigninni Hverfisgötu 6A, Hafnarfirði, þingl. eign Katrinar Óskarsdóttur og Kolbeins Andréssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbaejar á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. janúar 1985 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 21., 23. og 24. tölublaði Lögbirtingablaösins 1984 á eigninni Blómvangi 9, Hafnarfiröi, þingl. eign Guörúnar Benediktsdótt- ur, fer fram eftir kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Útvegsbanka islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. janúar 1985 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annaö og síðasta á eigninni Lækjargötu 18, neðri hæö, Hafnarfiröi, tal. eign Ægis Þorsteinssonar og fl., fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. janúar 1985 kl. 14. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. islenska þjóflin þjáist af gjaldeyrishungri. Hver myndi ekki vilja nota þá þessa? D0LLARAR EÐA KRÓNUR? DOLLARAR AÐ SJALFSÖGÐU Samkvæmt oröanna hljóðan, í fyrirsögn þessa kjallara, þyrfti svo sem ekki frekari vitnanna við. Flest- ir munu geta rennt grun í hvað á eftir kemur. Kjallarinn þyrfti þess vegna ekki að vera lengri en sem fyrirsögninni nemur, og plássið nýttist einhverjum öðrum, t.d. þeim sem vildi andmæla slíkri „fásinnu”, að hans dómi, að tengja dollara íslenskri efnahags- pólitík yfirleitt. Hvað hefur krónan gert? Þaö þarf nú varla aö velta lengi vöngum yfir því. Islenska krónan hefur veriö vandræðagripur frá upp- hafi. Hún hefur staðið í- vegi fyrir framþróun hér á landi, hvernig sem á hana er litið og ekki síst eftir að hún komst úr tengslum við þá dönsku. Sannleikurinn er nefnilega sá að það var misráðið að skilja ekki við krónuna um leið og við skildum við dönsku krúnuna. Það er raunar óskiljanlegt hvers vegna við tókum ekki upp sjálfstæöa mynteiningu ásamt sjálfstæðistök- unniáriö 1944. Ef við hefðum gert það stæðum við mun betur efnahagslega og hefðum allt annað viðhorf til fjármála, ekki síst í fjárfestingarmálum og spamaði en nú er. Á meðan við höfum krónu og aura sem gjaldmiöil getum við engan veg- inn taliö okkur hafa fullt sjálfstæði og erum í raun bundin við þann hugsunarhátt og þá þróun, sem enn er viö lýöi í hinum skandinavisku löndum, einkum þó Danmörku. Nú munu kannski margir reka upp stór augu og spyrja hvemig það geti verið og hvað krónan íslenska hafi að gera meö krónumar á hinum Noröurlöndunum. Því er til að svara að peningar eru ekki síður hugtak en veruleiki. Og oftar en ekki er verið að fást við tölur á blaöi í f jármálaheiminum en beina peninga, í seðlum eða hnullungum. Þaö er því ljóst að gjaldmiðill hverrar þjóðar er það sem oftast er verið að fjalla um í einu eöa öðru formi. Það er með peninga eins og hvað annað i lífinu að menn verða helst aö trúa því sem þeir eru aö fjalla um — eða kannski réttara orðaö: vera ekki aö fást við hluti eða verkefni sem þeir ekki treysta. En þannig er einmitt krónan okkar. Henni treystir enginn hér á landi. Fáir vilja eiga hana nema til brýnustu nauösynja í daglegu lífi og reyna aö koma henni í lóg meö einhver jum hætti. Vinsælasti mátinn er og einmitt sá að skipta á henni og einhverjum öðrum gjaldmiðli þegar og ef möguleikar eru á. Það er því staðreynd að krónan íslenska gerir lítiö gagn annað en að vera skráöur gjaldmiðill sem fáir vilja eiga. Eilrf barátta Sú áratuga langa barátta fyrir bættum kjörum hér á landi, sem þó GEIR R. ANDERSEN AUGLÝSINGASTJÓRI fjármála hafa ekki fyrir löngu tekiö þá ákvörðun að breyta um gjaldmiðil í stað þess að skipta um peninga- seðla og smámynt á nokkurra ára fresti þegar um þverbak keyrir í þjóölíf inu sakir verðlausrar myntar? Varla getur þaö verið virðing fyrir íslenskum gjaldmiðli. Kannski er or- sökin sú bábilja sem stundum er borin á borð fyrir landsmenn að sjálfstæði þjóðarinnar standi og falli meðkrónunni! Auðvitað er allt slíkt tal út í hött og sannast það þegar litið er til þeirra landa, sem hvað traustastan efna- hag hafa einmitt með því að tengja gjaldmiðil sinn við dollara. Sem dæmi um þetta eru lönd eins og Kanada, Astralía, Nýja-Sjáland, Hong Kong og Singapore. öll þessi lönd hafa dollara sem gjaldmiðil og keppast við aö halda • „Þau verðmæti sem skapast hér og eru seld úr landi, þeim er jafnharðan breytt í gagnslausan, verðlausan gjaldmiðil sem enginn hefur trú á." skilar engum árangri, hversu oft og mjög sem laun eru hækkuð, er nú svo úr sér gengin að henni trúir enginn lifandi Islendingur í dag. En það eru ekki margir, sem vilja trúa því að fánýti þessarar baráttu sé afleiðing þess gjaldmiðils sem við notum. Og enn kunna margir að spyrja: hvað kemur launabaráttan gjaldmiðlinum við? — Svarið er fólgið í því aö baráttan stendur um ónýtan og úreltan g jaldmiðil. Islendingar eiga verðmæti og þau svo mikil að þau nægja margfaldlega fyrir mjög góðum kjörum allra landsmanna sem ekki eru nema rúmlega 230 þúsund. Það er því ekki skortur á verðmæt- 'um sem veldur því að nú hrópar hver um annan þveran á hærri laun, meiri kaupmátt og styttri vinnutíma. — Þau verðmæti sem skapast hér og eru seld úr landi, þeim er jafnharðan breytt í gagnslausan, verðlausan gjaldmiðil sem enginn hefur trú á. Ef hinum erlenda gjaldeyri, sem inn kemur fyrir afurðir okkar, væri breytt í sterkan gjaldmiðil sem væri sambærilegur við þá erlendu gjald- miðla sem viö sækjumst svo mjög eftir þá myndi viðhorfið breytast. Fólk myndi sækjast eftir gjaldmiðlinum til eignar og ávöxtun- ar, annaðhvort í peningastofnunum eöa í atvinnulífinu, með því aö festa þá í fyrirtækjum sem aftur skapa verðmæti og veita atvinnu. Á meðan við höfum krónuna að gjaldmiðli verður engin breyting hér á. — Þetta vita allir en það ætlar að taka talsverðan tíma að kyngja staðreyndum. Lausn til langframa En hver skyldi ástæðan nú vera fyrir því, að forsvarsmenn íslenskra gjaldmiðli sínum skráðum sem næst bandaríska dollamum. Já, vel á minnst, Singapore. — Nú er einmitt að leggja upp héðan frá Islandi hópur manna úr atvinnu- og stofnanaveldinu, nánar til tekið Iðntæknistofnun. — En skyldi tilgangurinn vera aö kynna sér efnahagsundur og fjármál Singa- pore? — Nei, ekki aldeilis. Það á að kynna sér „aðbúnað og launakjör” þariendra! Fyrir um það bil ári var farin sams konar ferð þangaö og þótti það hin „fróðlegasta ferð og spunnust nokkr- ar umræður út frá henni um kjör og aðstöðu iðnverkafólks”! — eins og segir í frétt um ferðina — í Alþýðublaöinu. Það á sennilega ekki fyrir Islendingum að liggja að geta byggt hér upp velferðarþjóðfélag á traustum grunni. Það eru hins vegar „láns- og leigu- kjörin” sem gilda, — í erlendum og innlendum viðskiptum. Þau dæmi sem hér hafa veriö tekin um lönd sem nota dollara sem gjaldmiðil ættu að nægja til að sanna að okkur Islendingum er nauðsyn á að framkvæma gjaldmiðilsbreytingu sem allra fyrst. Það kemur aö því hvort eð er, fyrr en menn ætla, að þetta verður síðasta úrræðið til þess að halda s jálf stæðinu. Eða hvaða aðilar, ef einhverjir, ættu að verða fyrir skakkaföllum við að taka upp notkun á dollurum? — Kæmi þaö kannski illa við sjávarút- veginn, LIU, SIF, Stéttarsamband bænda, Góðtemplararegluna, Flug- leiðir, ferðaskrifstofumar, iðnaöinn? — svo dæmi séu tekin af handahóf i. Islenska þjóðin þjáist aöeins af einni tegund hungurs, gjaldeyris- hungri. Það er hægt að seðja með því að tengja íslenskan gjaldmiðil við dollara. Geir R. Andersen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.