Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Qupperneq 21
DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985.
21
Verkfræðing-
ar byggja
Fyrsta skóflustungan aö húsi, sem
Verkfræðingafélag Islands og lífeyris-
sjóður félagsins reisa í sameiningu,
var tekin um áramótin. DavíðOddsson
borgarstjóri framkvæmdi verkið.
Húsiö mun rísa norðan Suöurlands-
brautar, — skáhallt á móts viö Hótel
Esju. Fyrsti áfangi þess verður þrjár
hæðir og ris, alls 1.246 fermetrar. Áætl-
að er að honum veröi lokið fyrir næstu
áramót. Gert er ráð fyrir að kostnaður
við áfangann verði um 25 milljónir
króna.
Húsið teiknuðu arkitektarnir Þór-
arinn Þórarinsson og Egill Guðmunds-
son. Þeirra hugmynd varð hlutskörp-
ust í samkeppni sem efnt var til um
hönnun hússins.
Nokkur styr hefur staöiö um hús
verkfræðinga. Aðstandendur Heilsu-
ræktarinnar í Glæsibæ hafa mótmælt
byggingunni harðlega. Heilsuræktinni
hefur einnig veriö úthlutaö lóð í
reitnum, sem afmarkast af Sigtúni,
Kringlumýrarbraut og Suðurlands-
braut. -KMU.
Alþýðubandalagið:
Formaður Verkfræðingafélagsins, Ágúst Valfells, þakkar
borgarstjóra fyrir fyrstu skóflustunguna.
Skipar nefnd um
vinstra samstarf
Framkvæmdastjórn Alþýðubanda-
lagsins hefur valið 10 manna nefnd til
að leita eftir samstarfi við stjómar-
andstöðuflokkana.
I nefndinni eru Adda Bára Sigfús-
dóttir, Guðrún Ágústsdóttir, Margrét
Bjömsdóttir, Margrét Frímannsdóttir,
Vilborg Harðardóttir, Guðjón Jónsson,
Olafur Ragnar Grímsson, Svavar
Gestsson, Ragnar Amalds og Olafur
Olafsson.
Nefndin hefur enn ekki komið
saman. Búist er við að fyrsti fundur
hennar verði nú um helgina. Fyrsta
skrefið í starfi hennar verður væntan-
lega aö senda bréf til forystumanna
Bandalags jafnaðarmanna, Kvenna-
listans og Alþýðuflokksins, með beiðni
umviðræður.
Að sögn munu nefndinni ekki settar
miklar forsendur fyrir á hvaða sviðum
eða meö hvaða hætti samstarf
stjórnarandstööuflokkanna ætti aö
vera. I því sambandi mun koma til
Harðfiskverð
óákveðið
„Það er mjög bagalegt fyrir okkur
að það skuli ekki vera búið að ákveöa
útsöluverð á fiski, en verð á haröfiski
ákvarðast af útsöluverði á fiski,” sagði
Jón Haraldsson, harðfiskframleiðandi
á Stokkseyri, í samtali við DV.
Jón sagði að sífelldar frestanir væru
á fundum Verðlagsráðs varðandi út-
söluverðið en verð upp úr bát var
ákveöið 31.12. sl.
Verð á harðfiski er nú 480 kr., kg., en
Jón taldi ekki ólíklegt að það gæti farið
upp í 650 kr., sem væri 40% hækkun.
Þess má geta að verö á ýsu hækkaði
um46%
Mikil rýrnun á sér stað þegar fram-1
leiddur er harðfiskur. Pakkaður harð-
fiskur er ekki nema 8% af ferskum
fiski. A.Bj.
Skemmtun
til styrktar
Eþíópíu-
söfnuninni
Stór hópur listamanna hef ur nú tekið
sig saman og hyggst efna til skemmt-
unar fimmtudagskvöldið 17. jan. kl. 22.
Meöal þeirra sem fram munu koma
eru Karlakór Reykjavíkur, Sigurður
Bjömsson og Sieglinde Kahmann,
Omar Ragnarsson og Sinfóníuhljóm-
sveit Islands. Allir þeir sem fram
koma gefa vinnu sína og Háskólabíó
leggur til húsnæðið endurgjaldslaust.
Verð aðgöngumiða er 500 kr. og rennur
það óskert til söfnunarinnar.
greina lauslegt samstarf i stjórnar-
andstööu eða sameiginlegt framboð í
næstu kosningum og allt þar á milli.
ÖEF
Braust inn í „Ríkið”
Stúlka um tvítugt braust inn í
„Ríkið” á Akureyri í fyrri viku með
því að brjóta þar rúðu, en var ekki
búin að dvelja þar lengi þegar lög-
reglan kom á vettvang og handtók
hana. Viövörunarkerfi Afengis-
verslunarinnar fór af stað á lög-
reglustöðinni og var þar brugðið
skjótt viö. Fólk i næstu húsum við
„Ríkið” varð einnig vart við mikinn
hamagang þar og lét lögregluna vita.
Þegar hún kom á staðinn var stúlkan
búin að stinga inn á sig þrem
viskípelum en varð að láta þá af
hendi.
JBH-Akureyri
Þú fœrð miðana hjá umboðsmanninum og svör við spurningum:
Liggur draumanúmerið á lausu? Hve mikið get ég unnið? Hve marga
miða get ég fengið með sama númeri? Hvernig get ég spilað langsum
og þversum? Hœkkar miðaverð aðeins um 20 kr.? Hvenœr fœ ég
vinninginn greiddan?
Umboðsmenn Happdrættis Háskóla íslands 1985:
Reykjavík:
Aðalumboð, Tjarnargötu 4, sími 25666
Búsport, verslun, Arnarbakka 2—6, sími 76670
Bókabúðin Álfheimum 6, sími 37318
Bókabúð Fossvogs, Grímsbæ, sími 686145
Bókabúð Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7, sími 83355
Stokkur, bókaverslun, Kleppsvegi 150, sími 38350
Griffill s.f., Síðumúla 35, c/o Teitur Gústafsson,
sími 3681 I
Frímann Frímannsson, Hafnarhúsinu, sími I 3557
Neskjör, Ægissíðu 123, sími 19832
Rafvörur, Laugarnesvegi 52, sími 68641 I
Verslunin Straumnes, Vesturbergi 76, simi 72800
Þórey Bjarnadóttir, Kjörgarði, sími 13108
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Skólavörðustíg
I I, sími 27766
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Hátúni 2b,
sími 12400
Úlfarsfell, Hagamel 67, sími 24960
Seltjarnarnes:
Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis, Austurströnd 3,
sími 625966
Kópavogur:
Anna Sigurðardóttir, Hrauntungu 34, sími 40436
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180
Blómaskálinn v/Nýbýlaveg, sími 40980
Garðabær:
Bókaverslunin Gríma, Garðaflöt 16—18, sími 42720
Hafnarfjörður:
Tréborg, Reykjavíkurvegi 68, sími 54343
Reynir Eyjólfsson, Strandgötu 25, sími 50326
Mosfellssveit:
Bókaverslunin Snerra s.f., Þverholti, sími 666620
HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS
milljón í hverjum mánuöi