Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Qupperneq 22
22
DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Barcelona
eykur muninn
Barcelona hefur nú náð átta stiga
forustu í 1. deildinni á Spáni og allt
bendir nú til þess að lið Terry Venables
verði Spánarmeistari. í gær slgraði
Barcelona Elche 4—0 á heimaveili en
Real Madrid náði ekki nema jafntefli
gegn Valladolid á útivelli. Atletico
Madrid sigraði Betis 2—0 í Madrid.
Mest kom á óvart að Sporting Gijon
tapaði á heimavelli, 0—2, fyrir
Zaragoza. Staða efstu liða eftir leikina
ígær.
Barcelona
Real Madrid
Atl. Madrid
Valencia
Sociedad
Sevilla
20 14 5 1 43—16 33
20 9 7 4 24—17 25
20 8 7 4 24—17 23
20 6 10 4 23-12 22
20 7 8 5 25-16 22
20 7 8 5 16-15 22
-hsím.
Trausti skor-
aði í Portúgal
— Campense hefur gengið miklu betur Í2. deild
eftir að íslendingarnir byrjuðu að leika með því
Portúgalska liðinu Campense hefur
gengið miklu betur í 2. deild í knatt-
spymunni í Portúgal eftir að þeir
Sigurjón Kristjánsson og Trausti
Ómarsson byrjuðu að leika með því. Á
laugardag sigraði það 2—0 á heima-
velli sínum í Faro í Suður-Portúgal.
Trausti skoraði annað mark liðsins.
Eftir að Sigurjón haföi lent í skallaein-
vígi við varnarmann hrðkk knötturinn
til Trausta sem skoraði fallegt mark.
Þetta var þriðji leikur þeirra Sigur-
jóns og Trausta með portúgalska liðinu
í 2. deild. Það tapaði fyrsta leiknum
naumt, 3—2, í Lissabon en gerði jafn-
tefli, 1—1, í þeim næsta. Það var rétt
fyrir jól en síðan var frí í deildinni þar
tilálaugardag.
Þjálfari Farense, sem leikur í 1.
deild, hefur fylgst vel meö íslensku
strákunum í leikjum þeirra í 2. deild
enda er Farense einnig frá Faro. Þeir
Sigurjón og Trausti fóru upphaflega út
til æfinga hjá Farense en komust þar
ekki að í vetur þar sem of margir
útlendingar voru þar fyrir. Farense er
um miöja deild og hefur hug á að fá
Islendingana til sín eftir leiktímabilið.
hsím.
Þá kom að því
að Verona féll
— Tapaði sínum fyrsta leik í 1. deild á Ítalíu í gær
Þá kom að því að Verona tapaði í 1.'
deildinni á ítalíu. Það var Avellino, lið
sem er neöarlega á töflunni, sem varð
fyrst til að sigra Verona, 2—1, í Avell-
ino í gær. Verona heldur þó enn forustu
í deildinni — er þó aðeins einu stigi á
undan Inter Milanó.
Talsvert vetrarríki er enn á Italíu og
það varð aö hætta leik Juventus og
Lazio í Torinó eftir 21 mínútu. Mikil
snjókoma þar. Vafasamt að leikur
Juventus og Liverpool í stórbikar
Evrópu verði leikinn þar á miðviku-
dag.
Avellino, sem er í 11. sæti 18 liða í 1.
deild, náði forustu gegn Verona á 32.
mín. Tveir Suður-Ameríkumenn unnu
saman að markinu. Geronimo Barba-
dillo frá Perú gaf á Ramon Diaz,
Argentínu, sem skoraði. Luciano
Marangon jafnaöi fyrir Verona á 38.
mín. en sex mín. fyrir leikslok tókst
Angelo Colombo að skora sigurmark
Avellino við gífurlegan fögnuð 28
þúsund áhorfenda.
fastri spymu rétt innan vitateigs. Það
var á 48. mín. og Napolí var nær því aö
auka við muninn en Fierontina aö
jafna. Luigi Caffarelli átti skalla í
stöng eftir undirbúning Maradona.
Gianfranco Matteoli hjá Como
skoraði fyrsta mark umferðarinnar í
gær eftir sendingu frá Hansa Miiller,
vestur-þýska landsliðsmanninum
kunna. Og Como skoraði annaö mark í
leiknum þegar liðið vann óvæntasta
sigurinn í umferðinni. Sigraði AC
Milano 0—2 og þaö í Milano. Enski
landsliðsmaðurinn Mark Hateley lék
með AC Milano á ný eftir slæm meiðsli.
Meistarar Roma halda áfram að
fikra sig upp töfluna. Sigruðu Torino,
1—0, í Rómaborg og skoraði Roberto
Pruzzo eina mark leiksins á 38. mín.
Við sigurinn komst Roma upp fyrir
Sampdoria á töflunni en Sampdoria,
sem Graeme Souness og Trevor
Francis leika með, gerði jafntefli, 0—0,
í Atlanta. Staða efstu liöa er nú
þannig:
Maradona skoraði
Argentínumaðurinn frægi, Diego
Maradona, virðist nú loks kominn á
skotskóna á Italíu. Hann skoraði eina
markiö í leik Fiorentina og Napoli,
sem færði Napolí-liðinu tvö þýðingar-
mikil stig á útiveili. Helgina á undan
skoraði Maradona tvívegis. Napolí er
þó enn fyrir neðan miðju í 1. deildinni.
Maradona fékk sendingu frá landa
sínum Daniel Bertoni og skoraði með
Verona 15 8 6 1 18-7 22
Inter 15 7 7 1 20-10 21
Torino 15 8 4 3 23-13 20
Roma 15 5 9 1 15-10 19
Sampdoria 15 6 7 2 14—10 19
ACMilano 15 5 7 3 13-13 17
Juventus 14 4 7 3 19-15 15
Inter Milano gerði jafntefli 1—1 á úti-
velli gegn Ascoli.
hsím.
íslandsmótið íknattspyrnu:
Skagamenn hefja
titilvörnina gegn
Þór á Akureyri
I fyrstu umferð leika því Siglu- I ur-KA, Fylkir-Isafjörður, Völsungur-
fjörður-Vestmannaeyjar, Skallagrím- | LeifturogNjarövík-Breiöablik. hsím.
Girardelli í brautinni i Kitzbúhl.
Enn sigrar
Girardelli
— Algert einvígi milli Pirmin Zurbriggen og
Marc Girardelli í heimsbikarkeppninni á skíðum
Mótanefnd Knattspyrnusambands
íslands kom saman í gær og var dregið
um töfluröð í 1. deild og 2. deild. Leik-
dagar hafa enn ekki verið ákveðnir en
fyrirhugaö að hefja keppni í 1. deild
um miðjan maí.
Töfluröðin í 1. deild er þannig: 1.
Víkingur 2. Fram 3. Þór, Akureyri, 4.
Víðir Garði 5. KR 6. Þróttur 7. FH 8.
Akranes 9. Keflavík og 10. Valur.
I fyrstu umferð leika því Víkingur-
Valur, Fram-Keflavík, Þór-Akranes,
Víðir-FH og KR-Þróttur. Islands-
meistarar Akraness hefja því titilvörn-
ina á Akureyri.
I 2. deild var töfluröðin þessi. 1.
Siglufjörður, 2. Skallagrímur, 3. Fylk-
ir, Reykjavík, 4. Völsungur, 5.
Njarðvík, 6. Breiðablik, 7. Leiftur,
Olafsfirði, 8. Isafjörður, 9. KA og 10.
Vestmannaeyjar.
Kínverjinn
vann Frost
Yang Yang frá Kína vann öruggan
sigur á Morten Frost í gær í úrslitum á
miklu badmintonmóti í Hong Kong.
Sigraði í tveimur lotum, 15—10 og 15—
11, og tókst Dananum aldrei að ógna
sigri þess kínverska.
Þessi úrslit komu talsvert á óvart
því Morten Frost hafði sýnt mikla
hæfni fyrr í keppninni. Vann Steve
Baddeley, Englandi, í undanúrslitum,
15—9 og 15—7, en Yang Yang hafði lent
í hinum mestu erfiðleikum með Lius
Pongoh, Indónesíu. Sigraði í þremur
lotum, 9—15,15—9 og 15—12.
Morten Frost sigraði tvo Kínverja
fyrr í keppninni, Luan Jin í 8-manna
úrslitum. 15—12,11—15 og 15—3, en Jin
hefur oft reynst Frost erfiður. Sigraði
hann t.d. í úrslitum All-England
meistaramótsins 1983. Þá vann Frost
Jin Chen í 2. umferð, 15—2 og 15—1, og
lék hreint stórkostlega.
I úrslitum í einliöaleik kvenna sigr-
aði Han Aiping, Kína, löndu sína,
Zheng Yuli, 11—6 og 11—2.1 úrslitum í
tvíliðaleik karla sigruðu Jesper
Helledie og Steen Fladberg, Dan-
mörku, landa sína Mark Christiansen
og Michael Kjeldsen, 15—8, 7—15 og
15-12.
hsim.
Marc Girardelli frá Lúxemborg
sigraði enn einu sinni í svigkeppni
heimsbika rsins þegar keppt var í
Kitzbiihel í Austurriki í gær.
Girardelll var með þriðja besta
tímann eftir fyrri ferðina en náöi sér
vel á strik í þeirri síðari og sigraði á
tímanum 1:40,68 min. Annar varð
ítalinn ungi, Oswald Tötsch á 1:40,86
mín. og þriðji Bojan Krizaj frá
Júgóslavíu á 1:41,05 mín.
Andreas Wenzel frá Lichtenstein
varð sjötti á 1:42,65 mín. og Ingemar
Stenmark Svíþjóð varð að gera sér
áttunda sætið að góðu á 1:43,03 mín.
Hörkukeppni er nú á milli þeirra
Girardelli og Pirmin Zurbriggen frá
Sviss um heimsbikarinn. Staða efstu
manna er þessi eftir helgina:
stig
1. Pirmin Zurbriggen, Sviss 179
2. Marc Girardelli, Lúx 165
3. Andreas Wenzel, Lichtst 152
4. Thomas Buergler, Sviss 93
5. Franz Heinzer, Sviss 78
Þegar er ljóst að Svisslendingar sigra í landakeppninni með miklum
yfirburðum. Staðan milli þessi: landa er
stig
1. Sviss 676
2. Austurríki 398
3. Italía 378
4. Liechtenstein 167
5. Lúxemborg 165
-SK.
DV var á staðnum
DV hefur borist eftirfarandi grein
frá Stefáni Ingólfssyni verkfræðingi
vegna greinar sem hann skrifaði í
NT sl. laugardag.
„Síðastliðinn laugardag birtist í
NT grein eftir undirritaðan þar sem
fjallað var um kjör íþróttamanns
ársins á tslandi 1984. Tilgangurinn
með ritun áðurnefndar greinar var
að koma fram með hugleiðingar um
stöðu hinna afskiptari íþróttagreina
og þaö gildismat, sem kemur í efnis-
tökum íþróttafréttaritara. Meðal
annars var nefnt að fréttaritarar
fylgdust lítið með hinum „óæðri”
íþróttagreinum en sinntu því betur
sínum „uppáhaldsgreinum”.
Til dæmis um það var nefnt i
greininni að enginn islenskur íþrótta-
fréttaritari hefði verið á staönum,
þegar Bjarni Friðriksson vann til
bronsverðlauna í júdó á ólympíu-
leikunum í Los Angeles síðastiiðið
sumar.
Hér varð undirrituðum á í
messunni. Fréttaritari DV var á
staðnum einn islenskra fréttamanna
og blaðið flutti mjög greinargóða frá-
sögn og myndir frá atburðinum. Auk
þess að greina sig á þennan hátt frá
hinum íslensku fjölmiðlunum kaus
ritstjórn DV Bjarna mann ársins
1984 eftir tilnefningu frá lesendum
sinum.
Undirritaður vill hér meö biðja
starfsmenn DV velvirðingar á áður-
nefndum pennaglöpum og lýsir
jafnframt ánægju sinni með þá
viðsýni sem kjör manns ársins hjá
DV sýnlr, að minnsta kosti hvað
íþróttir varðar.
Stefán Ingólfsson,
verkfræðingur.”
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Iþróttir