Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Qupperneq 23
DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985. 23 íþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Skellur hjá Dönum — íEvrópukeppninni í handknattleik Spánarmeistarar Atletico Madrid í handknattleiknum unnu stórsigur á' Danmerkurmeisturum Gladsaxe i fyrri leik liðanna í Evrópukeppni meistara- liða á laugardag. Leikið var í Dan- mörku en samt sem áður vann spánska liðið með 16 marka mun, 27—11. Mesti skellur sem danskir handknattleiks- menn hafa f engið um langt árabil. hsím. Snjallt afrek hjá Bjarna Varðíöðrusæti ájúdómótiíJapan Bjarni Friðriksson var í öðru sæti í 95 kg flokki á miklu alþjóðlegu júdó- móti í Tokyo í Japan á laugardag. Keppti til úr- Bjarni Friðriksson stóð sig vel í Japan. slita við Japanann Sukai og tapaði. í fyrstu umferð sat Bjarni yfir. Sigraði Vestur-Þjóðverja í 2. umferð og Japana í þeirri þriðju. Var þar með kom- inn í úrsiit. Mótið 1 Tokyo mim vera öflugasta júdómót sem háð er í heiminum í ár. Boðið til þess öilum bestu júdómönnum heims svo afrek Bjarna er mikið að ná silfurverðlaunum. Einstakt afrek hjá Zurbriggen — Pirmin Zurbriggen, Sviss, sigraði í bruni á föstudag og laugardag þrátt fyrir meiðsli — Zurbriggen fyrstur skíðamanna til að vinna greinarnar þr jár á sama keppnistímabili í 17 ár „Eg fann svo mikið til í hnénu að um tima var ég að hugsa um að hætta. Þegar ég var að taka af mér vinstra skíðið eftir keppnina fann ég að ég gat ekki beygt vinstra hnéð og heldur ekki gengið eðlilega,” sagði svissneski skíðagarpurinn Pirmin Zurbriggen eft- ir að hann hafði sigrað i brunkeppninnl í Kitzbuehl á laugardag í heimsbikar- keppninni. Sigur Zurbriggen var athyglisverður fyrir þær sakir að þetta er i fyrsta skipti i 17 ár sem sami kepp- andinn i heimsbikarkeppninni vinnur sigur í öllum greinunum þremur, svigi, stórsvigi og bruni á sama keppnistíma- Einar Magnússon. Einar ráðinn til HSÍ Einar Magnússon hefur verið ráðinn til starfa hjá HSt. Einar er vel kunnur sem handknattlciksmaður góður hér á árum áður og þá sérstaklega fyrir mikil þrumuskot sin. Mun varla ofsagt að enginn hand- knattleiksmaður islenskur hefur haft yfir að ráða meiri skothörku nema ef vera kynni Jón Hjaltalín Magnússon, núverandi formaður HSI. Einari mun ætlað það verkefni að sjá aö mestu um fjármál sambandsins og mun hann verða nokkurs konar fjór- málastjóri. -SK. bili. Frakkinn Jean-Claude Killy vann þetta afrek fyrir sautján árum. Zurbriggen meiddist í brunkeppn- inni á laugardag en harkaöi af sér og kom í mark á langbesta tímanum. Zur- briggen virðist vera að ná sér vel á strik í bruninu því hann gerði sér lítið fyrir og sigraði lika í brunkeppni sem fram fór á föstudaginn. Skaut aftur fyrir sig öllum snjöllustu brunmönnum heimsins, þar á meðal bandaríska ólympíumeistaranum Biil Johnson en hann varð í 20. sæti á föstudaginn og féil síðan úr keppni á laugardag. Tími Zurbriggen á föstudag var 2:08,65 mín. en annar varð landi hans Franz Heinzer á 2:08,98 mín. og þriðji Austurríkismaðurinn Peter Wimsberger á 2x09,33 mín. Pirmin Zurbriggen sýndi síðan ótrú- lega keppnishörku á laugardaginn og |Ti i f 'ini i ID INPAD - töpuðu stórt fyrir N jarðvík im | llf-mUAK í úrvalsdeildinni íkörfu, (k ! 73:102 i tfrna i ISvissneska skiðakouan, I Micheia Figini, sigraði í gær íj | risastórsvigi kvenna í heims-l ■ bikarkeppninni en keppt var i| I Vestur-Þýskalandi. J I Figini fékk tímann 1:23,131 ! mín. en önnur varð vestur-i | þýska stúlkan Marína Kiehl ál ■ 1:23,48 og þriðja Maria Wallis-| ■ er,Sviss,á 1:24,01 mín. -Sk! mmm mmm a ■■ ■■■ ■■■ mm ■! Röðin í getraunum Eius og fram kemur annars staðar á íþróttasiðum í dag varð að fresta mörgum knattspyrnulcikjum á Eng- landi og voru þeir því í færra lagi, leikirnir sem leiknlr voru og voru á getraunaseðli vikunnar. Þykir því rétt að birta röðina í getraununum eins og hún var eftir að hlutkestl hafðl verið varpað.2x1, xix, lxl, 1x2. -SK píndi sig í mark þrátt fyrir mikinn sársauka i hnénu. Hann fékk tímann 2:06,95 mín. Annar varð Helmut .Höflehner, Austurriki, á 2:07,21 mín. og jþriðji Todd Brooker, Kanada, á 2:08,10 :mín. Þess má geta að brunmaðurinn frægi, Franx Hammer frá Austurríki, varð 11. á laugardaginn á tímanum 2:10,05 mín. Svisslendingar virðast eiga fjöldann allan af góöum brun- mönnum. Sex Svisslendingar voru meöal tiu efstu manna á laugardag. -SK Ámi Lárusson (mefl knöttinn) átti góðan leik mefl Njarðvik gegn ÍR og skoraði 16 stig. DV-mynd Brynjar Gauti ÞUNGIR OG STIRDIR Njarðvikingar þurftu ekki að taka á honum stóra sínum til að sigra óvenju slappt lið ÍR-inga syðra á föstudags- kvöldið. Þeir gerðu út um leikinn strax á fyrstu minútunum. Staðan í leikhléi var 58:32, en endaði 102:73. UMFN hef- ur því örugga forustu í deildinni enda með jafnbesta liðið. Framan af var leikurinn hraður, þ.e.a.s. af hálfu Njarðvíkinga, — nokk- uð sem þungir og stirðir iR-ingar, — hvað sem því veldur, — réðu ekki við, enda tókst þeim ekki að skora nema aðeins eitt stig fyrstu fimm mínúturn- ar á meðan heimamenn skoruðu 14 stig, — dreifðu þeim á liðsmenn, þá Árna, Jónas, Isak, Val og Hreiðar. Ragnar Torfason og bræðurnir Gylfi og Hreinn Þorkelssynir voru þeir einu í IR-Iiðinu sem gátu klóraö í bakkann ásamt Karli Guölaugssyni sem átti sæmilegan leik ef hægt er að taka svo til orða um iR-ingana. Þegar Njarðvíkingar höfðu náð 32 stiga forskoti, 73:41, slökuðu þeir á og gófu öllum liösmönnum sínum tæki- færi til að reyna sig, enda ekki hundrað í hættunni. iR-ingum tókst þá um stund að rétta dálítið sinn hlut en brátt sótti i sama horfið aftur og munurinn í lokin var 29 stig samkvæmt ljósatöflunni en 31 í skráningu okkar. Þótt leikurinn hafi ekki verið til að skapa spennu á meðal áhorfenda sem voru með færra móti í Njarðvíkunum, þá sýndu heimamenn oft sínar bestu hliðar og leyfðu sér að „troða” nokkr- um sinnum við mikinn fögnuð stuðn- ingsliðs síns. Varla er hægt að netná einn fremur öðrum, í UMFN-liðinu, en Valur Ingimundarson skoraði flest stigin og Jónas Jóhannesson var traustur ívörninni. Maður leiksins, Valur Ingimundar- son. Stig: UMFN: Valur Ingimundarson 21, tsak Tómasson 17, Arni Lárusson 16, Gunnar Þor- varðarsoa 15, Teitur Orlygsson 9, Jónas Jó- hannesson 8, Hreiðar Hreiðarsson 6, Ellert Magnússon 6, Hafþór Óskarsson 4, Helgi Rafnsson 2. ÍR: Gylfi Þorkelsson 24, Hreinn Þorkelsson 13, Karl Guðlaugsson 9, Ragnar Torfason 8, Björn Steffensen 8, Hjörtur Oddsson 3, Vignir Hilmarsson 3. Dómarar voru þeir Jón Otti Ólafsson og Eng- lendingurinn Rob Diffe. Leystu þeir Iéttan ieik vel af hendi. ! MikiöskoraöíNBA ! ■ Úrslit í NBA-atvinnumannadeOd- Iinni í körfuknattlcik um helgina urðu þessi. ■ Boston Celtic-Wash. Bullets 103—101 ■ 76ers-Houston Rockets 115—108 | Detroit Pistons-lndiana 120—109 INewJerseyNets- Atlanta Hawks ■ Chicago Bulls-New York K. ■ Los Angeles Lakers-DaUas 121—102 B Portland-San Antonio Spurs 123—103 ^VUlwaukee Bucks-Cleveland 130—117 123-103 113-97 L.A. Clippers-Phönix Suns 99—84 Denver-KansasCityKings 143—121 Það sem mesta athygli vekur er að góðkunningjar okkar úr sjónvarpinu i liöum 76ers, Boston og Los Angeles Lakers vinna aUir sina leiki. Þá vekur það einnig athygli hvað mikið |er skorað. I leikjunum tiu voru skoruð 2234 stig eða 223,4 stig að meðaltali í leik. -SK. Iþróttir íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.