Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Blaðsíða 27
DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985.
27
fþróttir. íþróttir Iþróttir fþróttir
Tottenham féll af toppnum í 1. deild:
iafntefli við QPR
í góða veðrinu
á gervigrasinu
Frá Sigurbirni Aöalsteinssyni, frctta-
manni DV í Englandi.
Lundúnaliöin QPR og Tottenham
geröu jafntefli í stórskemmtilegum
leik á gervigrasinu á Loftus Road, 2—
2, á laugardag og Tottenham missti við
það forustuna í 1. deild til Everton,
sem á sama tíma vann stórsigur á
Newcastle á Goodison Park. Ég var
meðal 27.404 áhorfenda — metaðsókn
hjá QPR á leiktímabilinu — og
skemmti mér vel í góða veðrinu. Stillt
og fagurt veður, 2—3 stiga hiti, og
furðulegt að fresta þurfti 32 leikjum á
laugardag. Það var þó mest vegna
slæmra vallarskilyrða og kom einna
harðast niður á liöunum í Suður-
Englandi. Þar var hvað lakast veður
fyrr í vikunni þó það væri gott á laug-
ardaginn.
Tottenham var betra liðið framan af
og náði forustu strax á þriöju mínútu,
mjög fallegt mark hjá
blökkumanninum Garth Crooks. Hann
gamla snilldartakta en á þó langt i
land hvað úthald og snerpu snertir.
Gífurleg spenna
QPR náði forustu á 53. mín. þegar
Bannister — sem skoraði þrennu í
UEFA-leiknum við KR-inga — skoraði
á ný. Gary Chivers lék upp og gaf lang-
sendingu á Bannister af um 50 metra
færi. Ray Clemence hikaði í marki
Tottenham og Bannister skallaði í
mark.
„Þetta ereitt af fáum skiptum sem
Clemence hafa orðiö á mistök á leik-
tímabilinu. Hann hefur verið frábær,”
sagði stjóri Tottenham, Peter
Shreeves, eftir leikinn.
En Tottenham tókst fljótt að jafna.
Fékk homspyrnu á 63. mín. Roberts
fékk knöttinn og gaf á Mark Falco sem
skallaði í mark. 19. mark hans á leik-
tímabilinu en Bannister hefur skorað
21 fyrir QPR — aðeins tveimur minna
en allt leiktímabilið með Sheff. Wed.
þaráundan.
Gífurleg spenna var lokakafla
leiksins. Tottenham betra liðiö en
Hucker varði tvívegis mjög vel hjá
QPR og kom í veg fyrir að Tottenham
yrði áfram á toppnum. Leikurinn í
heild var mjög skemmtilegur og
völlurinn góður. Þó voru nokkur
vonbrigði með Glen Hoddle hjá Tott-
enham. Hann náöi sér raunverulega
aldrei á strik. Liðin vom þannig
skipuö.
QPR. Hucker, Chivers, McDonald,
Daws, Gregory, Waddock, Fillery,
Fenwick, James, Bannister, Byrne,
Mike Robinson varamaður en kom
ekki inn á. Tottenham. Clemence,
Perryman, Mabbutt, Roberts, Miller,
Stevens, Galvin, Crooks, Falco, Hoddle
ogChiedozie (Ardiles).
-SA/hsím.
Bryan Robson, fyrirliði enska landsliðsins og Man. Utd, fór úr axlarliði í
leiknum við Coventry. Verður fró leik nokkrar vikur.
fékk knöttinn og átti skot á mark sem
Hucker, markvörður QPR, varði. Hélt
þó ekki knettinum og Crooks náði hon-
um aftur alveg viö endamörkin. Tókst
að skora úr ótrúlega þröngu færi.
Síðan fór QPR að koma meira inn í
leikinn og tókst að jafna á 17. mín.
Gary Bannister jafnaði eftir undir-
búning John Byme sem QPR keypti
frá York. Hann átti ágætan leik og
margir líkja honum við enska lands-
liðsmanninn hér á árum áður; Rodney
Marsh, sem lék með QPR. Ákaflega
leikinn, hinn ungi Byrne.
Á 32. mín. kom Osvaldo Ardiles inn
á hjá Tottenham í stað Chiedozie, sem
varla hafði sést í leiknum. Ossie fagn-
að gífurlega en hann hefur ekki leikið
deildaleik siðan í maí. Sýndi á köflum
Osvaldo Ardilas lók með Totten-
ham ó ný eftir ótta mónaða fjarveru
vegna meiðsla.
ROBSON ÚR AXLARUÐI
— og Man. Utd tapaði á heimavelli fyrir Coventry á laugardag
Frá Sigurbirni Aðalstelnssyni, frétta-
manni DV í Englandi.
„Guð mlnn almáttugur,” sagði enski
iandsliðseinvaldurinn Bobby Robson,
þegar hann fékk þær fréttir að fyririiði
Man. Utd og enska landsliðsins, Bryan
Robson, heföi slasast illa í leik Man.
Utd og Coventry á laugardag. Robson
fór úr axlarliði og var fluttur á spítala.
Reiknað með að hann verði frá leik 4—
6 vikur og enska landsliðið á ieik í
heimsmeistarakeppninni í næsta
mánuði.
Bryan Robson slasaðist á 60. mín.
Ætlaöi að reyna að skalla knöttinn við
endamörk í heldur vonlausri stöðu —
rann til á hálum vellinum og féll. Lenti
á auglýsingaspjöldum fyrir aftan enda-
mörkin og síðan á rafmagnsútbúnaði
fyrir töflu vallarins. Slæmt högg og
Robson fór úr axlarliði.
Hann var borinn á börum af vellin-
um en þurfti að bíða nokkuð eftir
sjúkrabíl til að komast á spítala. Sá
bíll, sem átti að ná í hann, fékk skyndi-
lega fyrirskipun um að sækja konu
sem var alveg komin að því aö fæða.
,,Ég bíö eftir nánari fréttum frá
spítalanum. Það væri mikið áfall fyrir
leikmanninn, félag hans og enska
landsliðið ef Bryan verður frá leik á
annan mánuð,” sagði Bobby Robson
ennfremur. I gær var ekki vitað fylli-
lega hvað Bryan verður lengi frá leik
en greinilegt að Man. Utd má illa við
því að missa hann.
Coventry vann
Leikur Man. Utd og Coventry var
heldur lítið augnayndi fyrir 36 þúsund
áhorfendur á Old Trafford. Völlurinn
erfiður og Coventry lék stífan
vamarleik, oftast með níu menn í
vöm. Leikmönnum Man. Utd gekk illa
að opna vörnina en stundum var hætta
hinum megin í skyndisóknum
Coventry. Tíu mín. eftir að Bryan Rob-
son slasaðist tókst svo Terry Gibson að
skora eina mark leiksins. Lék Gordon
McQueen grátt áður en hann skoraði
hjá Steve Pears. Hinn ungi Pears Jék
sinn fyrsta deildaleik með Man. Utd
vegna veikinda Gary Bailey.
Þetta var annar tapleikur Man. Utd
á Old Trafford — annar tapleikurinn i
röð eftir að liðið haföi ekki tapað leik
þar áður á leiktímabilinu. Fyrst fýrir
Sheff. Wed. — og á það bætist svo tapið
á útivelli fyrir botnliöi Stoke. Greini-
legt að möguleikar Man. Utd í 1. deild
eru að verða að engu. I 4. umferð
bikarkeppninnar á liðið heimaleik
gegn Coventry og áreiðanlegt að sigur-
inn á laugardaginn gefur leikmönnum
Coventry byr undir báða vængi þegar
aö bikarleiknum kemur.
Veruleg gagnrýni hefur komið fram
á stjóra Man. Utd, Ron Atkinson, að
undanfömu, einnig frá stjórnarmönn-
um United, sem finnst litið gaman aö
því að stjóri þessa fræga félags er nú
orðinn ein aöaipersónan í grínþáttum
enskrafjölmiðla.
Knattspyrnusamband Möltu hefur
frestað öllum deildaleikjum á eynni
vegna vcrkfalls knattspyrnumanna
sem leika í úrvalsdeildinni þar. Þetta
getur haft slæmar afleiðingar í för með
sér vegna landsleikja Möltu — meðal
annars leiks Möltu við Portúgal i 2.
riðli Evrópu í heimsmeistarakeppn-
inni, sem á að fara fram 10. febrúar.
Leikmenn f jögurra af átta liðum í úr-
valsdeildinni á Möltu neituöu aö leika
um síðustu helgi til að styðja þá kröfu
sína að leikirnir yrðu háðir á sunnu-
dögum. Hin fjögur liðin, sem leika
áttu, tilkynntu svo að þau myndu held-
ur ekki leika til að styðja kröfu hinna.
Knattspyrnusamband Möltu hótaði, ef
ekki yrði leikið, að iandsmótið í knatt-
spyrnu yrði lagt niður „með öllum
þeim afieiðingum sem það getur haft,”
eins og sagði i tilkynningu þess.
Aðeins tveir leikir í úrvalsdeildinni
eru háðir um helgar á Möltu, báðir á
„Ta ’Gali” leikvellinum, eina boðlega
grasvellinum á eynni.
hsim.
Bordeaux
vann Japan
Frakkiandsmeistarar Bordeaux í
knattspyrnunni sigruðu landsiið
Japans, 2—1, í vináttuleik í Tokyo á
sunnudag. Dieter Miilier skoraði bæði
mörk Bordeaux á 32. og 43. min. eftir
að Kazushi Mimura hafði náð forustu
fyrir Japan á 23. min. Áhorfendur 25
þúsimd.
-hsim.
BRAUNSCHWEIG
RAK ÞJÁLFARANN
— og réð júdómeistara í staðinn
Eintracht Braunschweig, vestur-
þýska félagið sem Magnús Bergs er
hjá, rak í síðustu viku þjálfara sbm,
Alexander Ristic, og réð í staðinn,
júdómanninn Kalus Glahn. Hann er
42 ára og hlaut silfurverðlaun í 93 kg
flokki á ólympíuleikunum i Miinchen
1972. Mlldli áhugamaður um knatt-
spyrnu. Elntracht er í neðsta sætl i
Bundesligunni, 1. deild, og nú er
spurning hvort júdómeistaranum,
sem var snjall að verjast falli i iþrótt
sbmi, tekst að koma í veg fyrir fall
Eintracht niður í 2. deild.
-hsim.
SA/hsbn.
Hætt við lands-
mótið á Möltu?
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir