Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1985, Blaðsíða 40
40 DV. MÁNUDAGUR14. JANUAR1985. Um helgina Um helgina Harður maður Hakkmann Bíómyndir helgarínnar fóru aö mestu fram hjá mér. Eg gaf þeirri frönsku á föstudagskvöldið ekkert tækifæri til aö sanna ágæti sitt. Heyröi líka, eins og mig haföi reynd- ar grunaö, aö hún heföi verið frekar ruglingsleg. Geta Frakkar ekki gert einfaldar bíómyndir? Franska sam- bandið á laugardagskvöldiö var ég búinn aö sjá. Og þó aö ég nennti ekki að horfa á hana alla gat ég ekki stillt mig um aö sjá aftur atriðið í byrjun myndarinnar þegar Gín Hakkmann ryöst inn á barinn og sýnir hyskinu þar hver raunverulega sé hús- bóndinn á heimilinu. Lemtir meira aö segja upplýsingaþefarann sinn töluvert illa til að allt líti eðlilega út. Haröur maður Hakkmann. Meiriháttar fríkaöur flutningur Kukisins á laginu Sálmur 232 (eöa 323) kom skemmtilega á óvart í Glugganum. Sérstaklega vakti gítar- leikarinn stælti með sviönu tæmar athygli mina. Gervilegasti maöur. Dýrasta djásniö hef ég horft óreglulega á og var því ekkert inni í söguþræðinum. Gaman var þó aö fylgjast með stórgóöum leik Peggý Ascroft. Eg tók afsökunarbros þulunnar þegar hún kynnti síöasta dagskrárliöinn, Spekingar spjalla, ekki til greina. Stóö upp og ætlaöi aö slökkva en flaug þá í hug aö sýndar yröu lokamínúturnar frá Evrópu- leik FH-inga í dagskrárlok. Sú varö ekki raunin mér til mikillar gremju. Aö nota næstum allan laugardagsí- þróttaþáttinn undir rennslisíþróttir á borð viö skíöi og skauta og sýna ekki frá helsta íþróttaviðburði helg- arinnar fyrr en daginn eftir. Slæleg frammistaöa atarna. Eg sel skíðin mín á útsölumarkaöi í mótmæla- skyni. Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Jónína Jónsdóttir lést 3. janúar sl. Hún var dóttir Jóns Símonarsonar og Guð- rúnar Símonardóttur. Jónína var gift Gunnari Einarssyni en hann lést áriö 1975. Þau hjónin eignuöust tvær dætur. Utför Jónínu verður gerö frá Fossvogs- kirkju í dag kl. 15. Sigurður Þórðarson, Dvalarheimili aldraöra, Stykkishólmi, andaöist í St. Fransiskusspítalanum, Stykkishólmi, fimmtudaginn 10. janúar. Helgi Kristinn Þorbjörnsson, Stórholti 20, lést aö heimili sínu þann 11. janúar. Hannes Friöriksson, Arnkötlustööum, Holtum Rang., andaöist aðheimili sínu föstudaginn 11. janúar. Friðrikka Siguröardóttir, Barmahliö 20, veröur jarösungin frá Fossvogs- kapellu þriöjudaginn 15. janúar kl. 13.30. Ágúst Elíasson, Njálsgötu 49, verður jarösunginn frá Hallgrímskirkju þriöjudaginn 15. janúar kl. 13.30. Steinn Skarphéðinsson, Hrafnistu, Hafnarfirði, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, mánudaginn 14. janúar, kl. 13.30. Minningarathöfn um Hóseas Björns- son húsasmíðameistara frá Höskulds- staöarseli, Breiödal, Skipasundi 48, verður í Dómkirkjunni þriöjudaginn 15. janúar kl. 10.30. Jarösett verður að Heydölum, Breiödal, laugardaginn 19. janúarkl. 14. Einar Bcnedlktsson lyfsali, Heiðar- brún 12, Hveragerði, verður jarösung- inn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudagmn 15. janúar kl. 13.30. Sigurbjarni Tómasson, Hólmgaröi 14, sem lést þann 9. þ.m., verður jarösung- inn frá Bústaðakirkju þriöjudaginn 15. þ.m. kl. 15. Bflvelta í Svínahrauni Bíll valt í Svínahrauni síödegis í gær skammt fyrir ofan Litlu kaffistofuna. Tveir voru fluttir á slysadeild. Bíllinn, sem er af Citroen gerö, skemmdist töluvert. -EH. ÁBYRGÐ ÚKUMANNA Mikil- vægt er aö menn geri sér grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem akstri fylgir. Bílar eru sterk- byggöir i samanburöi við fólk. Athyglisgáfan veröur því aö vera virk hvort sem ekið er á þjóðvegum eða í þéttbýli. UMFERÐAR RAÐ 70 ára afmæli á í dag, mánudaginn 14. janúar, Sigurborg Hjartardóttir frá Gröf Gufudalssveit, Vífilsgötu 12, Reykjavík. Hún verður að heiman. Tilkynningar Fundur Kvennalistans í Vog- um á Vatnsleysuströnd verður haldinn í samkomuhúsinu í dag, mánudaginn 14. janúar, kl. 20.30. Allir vel- komnir og konur sérstaklega hvattar til að koma á fundinn. Sjómannablaðið Vikingur Ut cr komið sjómaunablaðið Víkingur, 11.— 12. tbl. 1984. Meðal efnis í blaöinu er: Ragnar G.D. Her- mannsson, fonnaður Oldunnar, fjallar opin- skátt um laun og afkomu sjómanna, Siðustu jól skipverja á mótorskonnortunni Rigmor, smásaga, Sigurbjörn Guömundsson segir fréttir frá útlöndum, Nýjungar Boga Amars eru á sínum staö, fundasyrpa og margt fleira. KRISTJÁN GUÐJÓNSSON Stærðfræði Handbók fyrir foreldra, kennara og nemend- ur eftir Kristján Guðjónsson námsstjóra. Ot er komin hjá Emi og örlygi handbók í stærðfræöi ætluð foreldrum, kennurum og nemendum. Höfundur er Kristján Guðjónsson námsstjóri í stærðfræði. Hinni nýju handbók er ætlað að leysa úr vandamálum og svara spurningum sem upp koma t.d. á heimilum þegar foreldrar vilja hjálpa börnum sinum við heimadæmin en muna ekki reikningsaðferðir og þær finnast ekki i viðkomandi reikningsbók sem barniö notarþá stundina. A undanförnum árum hafa töluverðar breytingar átt sér stað á stærðfræðinámsefni grunnskólans, bæði hvað varðar innihald efn- is og framsetningu. Ýmsir nýir efnisþiettir hafa bæst við meö nýjum hugmyndum og hug- tökum og mjög víða hafa aðferðir við kennslu breyst verulega. Allt hefur þetta orðið til þess að foreldrar vcigra sér við að setjast niður með börnum sínum og aðstoöa þau við námið, telja sig ekki hafa næga kunnáttu til þess að geta oröið að liði. Hinni nýju handbók er ætlað að leysa þennan vanda. Efni bókarinnar skiptist í þrjá meginþætti: 1) Breylingatímabil — orsakir og afleiðing. 2) Stærðfræðinám — fyrstu bekkir grunnskól- ans 3) Stærðfræðihugtök. Hin nýja handbók er unnin að öllu leyti i prentsmiðjunni Odda hf. Sigurþór Jakobsson sá um kápugerð en Halldór Þorsteinsson tcíknaöi myndir í texta. Út er komið tímaritið Heilsuvernd, 39. árg., 2. hefti 1984. Meðal efnis í blaðinu eru greinamar Heilsugæsla — hvað borðar þú? Matstofan — vetrardagskrá, Vítamín — seinni hluti, Reykingar og skaðsemi þeirra, Matur og megin, Sterk bein — eða stökk bein, Um svefnleysi og Heilsujurtir. Ut er komiö tímaritiö Verktækni, fréttablaö Arkitektafélags íslands, Tæknifræöingafélags Islands og Verk- fræöingafélags Islands. I blaðinu eru greinar um Tímarit og bækur í verk- efnastjórnun, starf arkitekta, bókina „No limits to learning” og fleira. Samvinnan 5.—6. hefti 1984 er komiö út. I tímaritinu er mikiö af ljóöum. Eft- ir Olaf Jóhann Sigurösson, Helga Sæ- mundsson, Þorstein Valdimarsson og fjögur norsk ljóö í þýöingu Baldurs Pálmasonar. Einnig eru í blaöinu greinar, smásaga og krossgáta. Ein grein um André Courmont og ein eftir hann. Blaðið prýöir fjöldi litmynda. Samband íslenskra samvinnufélaga gef ur út. Ritstjóri er Gylfi Gröndal. Nýlega kom út tímaritiö Slökkviliös- maöurinn, blað Landssambands slökkviliösmanna. Meöal efnis í blað- inu eru greinar um eiturefni, efni sem notað er til kælingar viö slökkvistörf, sýninguna Fire ’84, hugleiðing eftir Birminghamferö L.S.S., minningar- greinar, skemmtiefni og efni er lýtur aö félagsmálum L.S.S. Tímaritið Sveitarstjórnarmál 6. tbl. 1984 er komið út. Meðal efnis í blaöinu eru greinar um vemdaða vinnustaðinn örva í Kópavogi, kjarabaráttu hrepps- stjóra á 18. öld, Orkubú Vestfjaröa, nokkur atriöi um geymsluskilyröi á skjala- og bókasöfnum og fleiri greinar um fjármál, tæknimál og kjaramál. Samband íslenskra sveitarfélaga gef- ur blaðið út. Ritstjóri er Unnar Stef- ánsson. Syngjandi skóli Dagana 14,—19. janúar 1985 efnir Náms- gagnastofnun, i samvinnu við námsstjóra og Kennaraháskóla Islands, til dagskrár í Kennslumiðstöðinni að Laugavegi 166 undir yfirskriftinni Syngjandi skóli. Markmið þessarar dagskrár, sem ætluð er kennurum, kennaranemum, fóstrum og þroskaþjálfum, er að efla almennan söng og tónmenntir hvers konar 1 skólum og á öðrum uppeldisstofnunum. Haldnir verða fyrirlestrar, námskeið, fræðslufundir og kynningar þar sem leiðbeint verður um þessi mál, og að sjálfsögðu verður sú kynning bæði í tali og tónum. Mánudaginu 14. janúar kl. 16.00 ræðir Jón Ásgeirsson tónskáld um gildi söngs og ann- arra tónmennta í skólastarfi. Þriðjudaginn 15. janúar kl. 14.00—18.00 leiðbeinir Bergljót Jónsdóttir tónmenntakennari um tónmenntir í byrjendakennslu og um kvöldið kl. 20.30 ræð- ir Njáll Sigurðsson námstjóri hvaða erindi íslensk alþýðutónlist eigi við böm nú á tímum. Miðvikudaginn 16. janúar kl. 18.00— 22.00 leiðbeinir Sigríður Pálmadóttir tón- listarkennari um notkun ásláttarhljóðfæra og kennir leiki þar sem hljóðfæri koma við sögu. Fimmtudaginn 17. janúar kl. 15.30 kynnir Jacqueline Friðriksdóttir námstjóri ýmis námsgögn sem snerta söngva og leiki í tungu- málakennslu og kvöldinu frá kl. 20.30 geta kennarar varið með Gyðu Ragnarsdóttur sem kennir söng og hreyfileiki fyI'ir ung börn. Föstudaginn 18. janúar frá kl. 10.00—17.00 leiðbeina Þórir Sigurðsson námstjóri, Júlíus Sigurbjörnsson kennari og Njáll Sigurðsson námstjóri um hljóðfærasmíöi. Síöasti dag- skrárliðurinn er helgaöur söng og ljóða- kennslu og verður hann laugardaginn 19. janúar ki. 14.00—17.00: Þorvaidur örn Árna- son, Gunnar Guttormsson, Helga Gunnars- dóttir og Sverrir Guðjónsson. Guðmundur mun einkum sjá um hið talaða orð en hin um sönginn að sjálfsögðu meö þátttöku allra við- staddra. Gjaldþrot Með úrskuröi skiptaréttar Reykjavík- ur, uppkveðnum 14. nóvember 1984, var bú Steinars Benjamínssonar, Kleppsvegi 68, Reykjavík, tekið til gjaldþrotaskipta. Meö úrskuröi skiptaréttar Reykjavík- ur, uppkveðnum 14. nóvember 1984, var bú Hreiðars Jónssonar, Hamra- bergi 4, Reykjavík, tekiö til gjaldþrota- skipta. Meö úrskuröi skiptaréttar Reykjavík- ur, uppkveðnum 14. nóvember 1984, var bú Grímólfs Valdimarssonar, Asparfelli 2, Reykjavík, tekiö tii gjald- þrotaskipta. Með úrskuröi skiptaréttar Reykjavík- ur, uppkveönum 14. nóvember 1984, var bú Þrastar Bergmann, Álftamýri 8, Reykjavík, tekiö til gjaldþrota- skipta. Meö úrskuröi skiptaréttar Reykjavík- ur, uppkveðnum 14. nóvember 1984, var bú Olafíu Sveinsdóttur, Tunguvegi 78, Reykjavík, tekiö til gjaldþrota- skipta. Meö úrskurði skiptaréttar Suöur-Múla- sýslu, uppkveðnum 27. nóvember 1984, var bú Hrólfs Jónssonar, Haugum, Skriödalshreppi, Suður-Múlasýslu, tekiö til gjaldþrotaskipta. Meö úrskuröi skiptaréttar Isafjaröar, uppkveönum 8. nóvember 1984, var bú hlutafélagsins Emir hf. (útgeröarfé- lag), Isafirði tekiö til gjaldþrotaskipta. Meö úrskurði skiptaréttar Reykja- víkur, uppkveönum 29. nóvember 1984, var bú G.T. húsgagna hf. Reykjavík, með starfsstöð að Smiðjuvegi 6, Kópa- vogi, tekiö til gjaldþrotaskipta. Bella Ef allar vinkonur mínar segja aö hann sé fallegur, get ég þá fengið aö skila honum. Börnin eiga auövitaö að vera í belt- um eöa barnabílstólum í aftursæt- inu og barnaöryggislæsingar á hurðum. BORIMIIM ||}JWFERÐAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.