Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1985, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1985, Síða 5
DV. LAUGARDAGUR 23. FEBRUAR1985. Sfðar var ég fluttur á Landakots- spítala og lá þar 9 vikur. Hjúkrunar- konan var þýzk, hét Febrúnla. Ég náði mér seint og gat ekkert unnið um sum- arið. Þú veiktist siðasta vetur þinn i Flens- borg, svo að þú hefur ekki getað lokið prófi frá skólanum — eða hvað? Jú, ég fór á fætur og tók próf, fár- veikur. Það var aðeins eitt próf á dag, svo að þetta tók alilangan tima. En það hafðist. Það var ekki algengt, að fátækir piltar gengju f skóia á þessum tima. Var ekki erfitt að kljúfa þetta fjárhagslega? Jú, en ég hafði aurað saman, meðan ég var lausamaður. Svo lánaði faðir minn mér dálitla upphæð. Ég fékk líka þrjú hundruð krónur fyrir að hjúkra sjúklingunum, sem veiktust af tauga- veikinni i Flensborg. Það þótti drjúgur skildingur þá. Var páfítí í HafnarfírOi Tókstu einhvern þátt i félagslifi i Hafnarfirði? Já, ég lék þarna, það voru leiknir þættir úr Njáls sögu. Ég var t.d. í hópnum með Skarphéðni, þegar hann gekk í búð Þorkels háks. Þetta var mjög gaman. Vannstu eitthvað f Hafnarfirði? Já, ég vann eyrarvinnu til dæmis. Mér er sagt, að þú hafir verið póliti þar. Er það rétt? Jú, en það var stuttan tíma, þrjár vikur. Ég leysti Jón S. Bergmann af. Hann skrapp til Reykjavfkur. Það kom stundum fyrir, en hann var lengur en venjulega i þessari ferð. Hann útvegaði mér húsnæði, undirbjó reisuna. Ég þurfti að hafa afskipti af einum manni sérstaklega, meðan ég var póliti. Hann var kallaður Jón súrsaft, af þvi hvað ég gerði. Hérna á spítalanum á ég oftast leka, sem ég dreypi á mér til hressingar. Heyiaust helvrti Það er stutt sfðan ég heyrði, að þú værir hagmæltur. Ortir þú eitthvað á yngri árum? Nei, ég orti lítið, það var enginn timi til sliks. Það er fyrst núna síðustu árin, | sem ég hef ort eitthvað að ráði. Þó varð ein vísa, sem ég orti ungur, héraðs- fleyg. Visan er svona: Er það margra ósk og von, einkum þó i spaugi, að einhverntímann eignist son oddvitinn á Haugi. Hvenær festir þú ráð þitt? Ég trúlofaðist fyrst, en giftist kær- ustunni, Ingibjörgu Jónsdóttur frá Huppahlfð, þann 16da ágúst 1916. Við hófum búskap á Kollafossi og vorum þar þrjú ár. Þar var tvibýli. Þar byggði ég upp. Síðan fluttumst við að Lækja- bæ, þar sem ég byggði líka yfir okkur. Þar var lika tvíbýli. Það var eitt helvíti þar. Ég varð heylaus þennan harða vetur, um miðjan vetur. Ég fór með féð út i sveit, þar sem beit var skárri. Svaðfíför til Hvammstanga Ég man eftir því, að á öskudaginn 1920 fór ég í kaupstaðarferð til Hvammstanga. Það gerði öskubyl, og ég var fímm daga í ferðinni. Fyrsta daginn komst ég út að Staðarbakka og gisti þar. Annan daginn komst ég út á Tanga og gisti þar. Þá var norðan blindhrið og þriðja daginn komst ég ekki nema fram að Staðarbakka aftur. Næstu nótt gisti ég í Huppahlíð. Sfðasta daginn komst ég heim, en hesturinn gafst upp miðja vega miili Já, en mér var alveg sama. Magnús á Torfustöðum hafði lúmskt gaman af, þótt hann væri mágur Björns. En þeim i Tungu þótti við mig út af þessu. Bfíndbylur í hangikjö tsleiðangri Það var tvibýli á Neðra-Núpi. Jóhannes bróðir minn bjó á syðra bú- inu. Það var eftirminnileg ferð, sem við fórum saman til Borðeyrar á jóla- föstu 1923. Við vorum með hvor sinn hestinn og fluttum hangikjöt, sem átti að fara í skip á Borðeyri. Bliðskapar- veður var, þegar við lögðum af stað. Við gistum á Gilsstöðum i Hrútafirði. Um klukkan sjö um morguninn vakti húsbóndinn, sem Magnús hét Jörgens- son, okkur og sagði, að við yrðum að hafa hraðan á, ef við ætluðum að ná til Borðeyrar þann daginn; hann væri að I skella á með norðan byl. Hann var ferjumaður og flutti okkur yfir fjörðinn. Við drifum okkur af stað, og stórviðrið lét ekki á sér standa. Við flýttum okkur að verzla á Borðeyri og héldum strax af stað heimleiðis. Við komum við á Gilsstöðum. Þá kom okk- ur ekki saman um, hvora leiðina við skyldum fara; ég vildi fara beint austur yfir hálsa, en Jóhannes vildi, að við færum þjóðveginn, norður Hrútafjörð og síðan austur og fram Miðfjörð. Hann réð ferðinni, og hefur það sennilega orðið okkur til lffs. Með storminn í fangið Þetta var auðvitað geysimikill krókur fyrir okkur. Veðrið fór siversn- andi, en við brutumst áfram með storminn í fangið. Það var óhemju snjókoma. Við beygðum af þjóðvegin- um norðvestan við Reynhóla, en að bænum; svo mikiil var hriðarsort- inn. Fólkið i Reynhóium var yfir sig for- viða að sjá okkur. Þetta var mann- skaðaveður. Tveir menn, sem ég man eftir, urðu úti. Annar varð úti við tún- garðinn á Hömrum í Laxárdal, en hinn, Ólafur Hjaltesteð, á Holtavörðu- heiði. Hann var á ferð suöur með póst- inum og varð viðskila við hann. Fleiri urðu úti, sem ég er búinn að gleyma. Þetta sýnir, að við Jóhannes vorum i lifsháska i þessu veðri. Þröngt um mig 6 Þverá Við fluttumst að Þverá 1928. Þar var einnig tvibýli. Ég man eftir einu atviki, sem gerðist, meðan ég var á Þverá. Það var i göngum á Núpsheiði i seinni leit, og var ég gangnastjóri. Við fengum afar vont veður, sunnanrok og rign- ingu. Þú manst eftir Útsuðurskvislinni, sem rennur i Núpsdalinn fremst. Kvísl- in hefur grafíð djúpt gil. Þegar við komum ofan, eins og það er kallað, sagði einn gangnamannanna, að hann hefði eitt sinn lent i ennþá verra veðri i seinni göngum; lækirnir hefðu oltið fram kolmórauðir. Þá sagði ég: Það hefur verið þá, sem Útsuðurskvislar- gilið varð til. Nú, það var þröngt um mig á Þverá. Ég keypti Reynhóla 1933. Ég þurfti að fá lánaðar 800 krónur, og það var ekki fyrirhafnarlaust að kria þær út. En það gekk nú samt. Ég varð fyrir miklu áfalli árið, sem ég fluttist að Reynhólum. Ég missti 40 kindur úr ormaveiki. Ég lagði aðeins þrettán dilka inn um haustið. Sigurður Pálmason, kaupmaður á Hvamms- tanga, sagði mér, að ég mætti ekki farga neinni gimbur; hann skyldi lána mér úttektina svo sem með þyrfti. Byggdi upp á sjö jöröum viðtal við BJörn Guðmnndsson I Reynhólum sem er hnndrað dra í dag að hann drakk alltaf súrsaft, sem var mjög áfeng. Hann drakk sig alltaf útúr. En ég hafði gaman af honum, hann var mjög skemmtilegur að tala við hann. Svo þurfti ég að hafa afskipti af ung- um mönnum, sem sóttu samkomur Hjálpræðishersins. Þeir vildu ekki fara út, eftir að samkomum lauk. Ef mér tókst ekki að fá þá út með góðu, varð ég að neyta aflsmunar og koma þeim út einum i einu. Þeir vildu hefna sin á mér, þegar þeir voru fullir, en þá snið- gekk ég þá. Drukkiti stíft á Bortieyri En ég hafði mjög gaman af því að hlusta á karla, sem komu saman undir húsvegg þarna í Hafnarfirði og röbb- uðu þar um daginn og veginn. Þetta hefur verið venja karla víða í þorpum úti á landi. Svo feröu norður. Já, ég fór norður. Ég man eftir einu skemmtilegu atviki. Við pabbi fórum að morgni til Borðeyrar og keyptum þar brennivín. Það var nefnilega tom- bóla á Staðarbakka seinna um daginn. Þar var mikið fjör og drukkið allfast. Ég var orðinn svo kátur, að ég steig upp á borð og söng Nú blikar við sólar- iag. Um kvöldið varð ég samferða Jó- hannesi Jónssyni frá Huppahlið, hann varð síðar mágur minn. Við fórum fram að Huppahlíð, þar sem ég gisti. Um kvöldið fengum við skyr að borða og fleira góðgæti. En við ældum öllum matnum, — svo vorum við fullir. Ég hef aldrei heyrt, aö þú neyttin áfengis. Áttir þú kannski oft vin? já, ég átti oftast vin. En ég drakk mig aldrei svo fullan, að ég vissi ekki. Dalgeirsstaða og Lækjabæjar. Ég hélt á þvi, sem ég gat fram eftir, — ég held að ég hafi tekið eitthvað af kolum með mér. Kuldinn var svo mikill oft, að það hlélaði innan þekjuna hjá okkur. Svo þegar sólbráð var á daginn lak niður i rúmin. Börnin urðu að sofa dúðuð á nóttinni. Þau voru þá orðin þrjú. Ég átti um 100 fjár, þegar ég var í Lækjabænum, en missti 50 kindur. Ég var sæmilega efnaður, þegar ég hóf búskap í Lækjabænum, en var mjög illa staddur, þegar ég fór þaðan. Þá fluttist ég um vorið að Neðra- Núpi. Þar bjó ég í sjö ár. Þar byggði ég upp i þriðja sinnið. Hvar eru hrossin? Ég man sérstaklega eftir einu skemmtilegu, sem kom fyrir, m'eðan ég bjó þar. Ég átti góðar slægjur handan árinnar, þ.e. austan megin. En hrossin i Núpsdalstungu sóttu mjög i þær. Eitt sinn tók ég hrossin og setti þau inn í hús. í annað sinn rak ég þau vestur fyrir Seljafjall, það er vestur fyrir miðj- an háls. Það átti að binda i Núpsdals- tungu daginn eftir. Björn Levý, sem siðar varð landskunnur maður, hag- fræðingur Reykjavfkurborgar, leitaði hestanna, en fann ekki að vonum. Hann kom til min og spurði mig, hvort ég hefði orðið var við hrossin. Ég neitaði því. Þá fór hann til Magnúsar á Torfustöðum og spurði hann. Hann vissi ekkert, en hafði sagt, að það væri von, að mér væri sárt um slægjurnar. Það var ekki bundið i Núpsdalstungu þann daginn. Komst þetta upp? þangað ætluðum við að komast. Ég fór fyrir. Þegar við komum á Stekkjarhól, var ég ekki alveg viss um, að þetta væri sá hóll, en ég vissi af steini á hólnum, sem ég þekkti. Er ég hafði skoðað steininn, vissi ég, að við vorum á réttri leið. Við þorðum ekki beint suður af hólnum vegna hengjunnar, sem mynd- azt hafði, en beygðum í vestur. Við vorum lika hræddir við dýin milli hól- anna vegna hestanna. Við komum á hól, sem Náttmálahóll heitir. Þar var svo hvasst, að við réðum okkur ekki og urðum að fara suður af hólnum. Þar var mikil hengja, og varð það að ráði, að Jóhannes fór á undan fram af hengjunni. Hann kom til baka og sótti mig. En þegar við komum suður af, sá- um við ekki Blesa, hest Jóhannesar; það hafði skeflt yfir hann á svipstundu. Við leituðum að honum í skaflinum og fundum. Margir urtiu úti í þessu veðri Við komum að girðingunni i Reyn- hólum að norð-vestan og héldum suður með henni að vestan. Við fórum yfir hólranann fyrir vestan túnið, en þar tekur við mýrarsund. Er við komum yfir sundið, segir Jóhannes mér að fara á undan. Ég gerði það, en beygi vestur í staðinn fyrir austur. Þá kallaði Jóhannes á mig og leiðrétti mig. Ég áttaði mig og er ég ætlaði yfir traðirn- ar, sem liggja heim að bænum, kallaði hann enn til min og sagði mér að fara ekki lengra i austur, þvi að hér lægju traðirnar heim. Við gengum heim trað- imar, en sáum ekki ljósið í baðstof- unni, fyrr en við vorum komnir alveg Hann bjargaði mér algerlega frá þvi að verða gjaldþrota. En ég komst smám saman úr skuldunum. Brá búi 81 árs Hvernig i ósköpunum fórstu aö þvi aö kljúfa þetta? Ég vann allt, sem til féll, ef það bitnaði ekki á heimilinu. Ég var vega- vinnuverkstjóri i Miðfirði um tíma. Ég var oft þreyttur á þessum árum. En ég byggði upp á Reynhólum 1950. Það tók tvö ár og var erfitt. Það þurfti að sækja mölina fram að Brekkulæk og sandinn út á Sand. Bílar komust ekki nema að Álfhóli, svo að aka varð efninu einn og hálfan kilómetra á hest- vagni. Þetta var fimmta jörðin, þar sem ég byggði yfir fjölskylduna. Eftir þetta fór mér að liða vel. Ég bjó i Reyn- hólum, unz ég brá búi 1966, þá áttatiu og eins árs. Þá tók sonur minn við bú- inu. Hvað komuð þiö hjónin mörgum börn- um á legg? Þau eru sjö börnin. Hólmfrfður, gift jí Sandgerði, er elzt. Þá kemur Jóhanna, bóndi á Skarfhóli i Miðfirði; hún missti mann sinn fyrir nokkrum árum. Guðmundur bóndi í Tjarnarkoti er þriðji i röðinni. Björgvin er næstur, verzlunarmaður í Reykjavfk. Ólöf er húsfreyja á Kollsá í Strandasýslu. Svo er Jóhannes, hreppsstjóri á Laugar- bakka. Yngstur er Elís, vélamaður hjá Sandgerðiskaupstað. Ingibjörg kona minlést 1974. „Má ég stötiugt standa / stormi örlaganna" Nú vil ég, Björn, að viö bregðum á léttara hjal. Þú segist ekki hafa haft tima til aö yrkja fyrr á árum. En nú nærri hundrað ára hefur þú tekið til viö þaö. Já, ég hef ekkert annað að gera hér á sjúkrahúsinu. Ég er búinn að vera hér sex siðustu árin. Fólki þykir ég bölsýnn i kveðskap mínum. Þessi visa er gott dæmi um það: Af þvi lifsins amaský oft mér gleði banna, má ég stöðugt standa i stormi örlaganna. Ég heyrði, aö þú hefðir tekiö út for- skot á sæluna i haust og haldið upp á væntanlegt hundrað ára abnæliö, boðið öilum á sjúkrahúsinu til veizlu. Er það ekki satt? Jú, það er satt. Ég var ekki viss um, að ég næði hundrað árunum, svo að ég tók þetta ráð. Þar var mikil gleði, og fimm bokkur voru tæmdar. Ég orti kvæði eöa brag af þessu tilefni, og var það flutt fyrir mig i veizlunni, — ég er farinn að tapa rödd, svo að ég gat ekki flutt þetta sjálfur. „Haiminum sendi óg kvetiju." Ég skal láta þig heyra braginn. Hjarta mitt er bilað, og heilsa min er ring, og hugurinn er dapur, sorgir allt um kring. En stundum skin þó sólin i gegnum trega og tár, og tíðum hún mig vermir og þerrar minar brár. | Og þó að muni verða á vegi minum böl, og vindur standi á móti og velti báta kjöl, ! þá reyni ég að lifa af hið langa kalda stríð,| þó leiðinn á mig sæki um ævilanga tíð. Veröldin mér þakkar hreint ei nokkurn hlut, hún hefur mér varpað svo oft aftur i skut. | í huga mér ég byggði oft hallir fyrr á tið, sem hrunið hafa i rústir, bæði fyrr og síð. | Bráðum kemur dauðinn og brýnir sína raust og boðar mér, að komið sé ævi minnar haust. Ég hef hvorki slegið af né slakað til um neitt, en slarkað svona áfram gegnum kalt og heitt. | Ég býst við því, að heimurinn mig heiðri ei betra en því að hann mér bregði um leti og kalli mesta þý-1 Hjarta mitt það bærist til hinztu hvíldar ótt, og heiminum ég sendi kveðju og býð honum góða nótt. | Hefarðu ekki ort einhverjar tækifæris- vfsur núna siðasta ár þitt hér? Jú. í sumar sem leið var margt kven- fólk hér, sem kom sunnan úr Reykjavík. Svo var læknirinn kona. Ég kvað þetta til einnar stúlkunnar: „Vertu hjá mér, halla tekur degi”, og höfug tárin falla mér um kinn, þvi ekkert sefar sorg á mínum vegi, en sofna vært við mjúkan vanga þinn. Ég orti vísu um daginn, hún er svona: Mér þó enginn mæli hrós og meðan lengjast kunni, fínir strengir, leiðarljós, lýsa í þrengingunni. Björn á Reynhólum man ekki aðeins tímana tvenna, heldur þrenna, eins og hann hefur orðað það'við mig. í þessu viðtali kemur fram aðeins örlitið brot af öllu þvi, sem Björn man og hefur að segja. En mig undrar stálminni hans, — að hann, sem getur ekki lengur skrifað neitt hjá sér, skuli yrkja vfsur og heilu bragina og munað. Og „húmornum” heldur hann óskertum. Hann bregður á glens við og við, þegar við ræðum saman. Miðfirðingur, sem ekki vill láta nafns getið, kveður svo um Björn á þessum timamótum i lifi hans: Æskuhugur öllum vörn er í brauðstritinu. Hundrað árin hefur Björn haldið andlitinu. Ég segi ekki, að vísa þessi sé neitt snilldarverk, en það gefur henni gildi, hve sönn hún er. Ég veit, að ég mæli fyrir munn Mið- firðinga og annarra vina hans, er ég óska honum þess, að Guðinn gefi hon- um góða heilsu þau árin, sem hann á eftir ólifuð. Sk.B.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.