Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1985, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1985, Page 8
48 DV. LAUGARDAGUR 23. FEBROAR1985. ***** Skáldsaga Einars Más Guömundssonar, Riddarar hringstigans, hefur fengið fádæma góðar viðtökur í Danmörku, en hún var géfin út í danskri þýðingu rétt fyrir jól og heitir á dönsku Riddeme af den runde trappe. Oll stóru blöðin hafa fjallað um bókina auk f jölmargra landsblaða og var tekið stórt viðtal við Einar í Politiken. Það er ekki oft sem fyrsta skáldsaga höfundar vekur svona mikla athygli, sérstaklega ekki þegar um þýðingu er að ræða og þegar haft er í huga að bókin kemur út rétt fyrir jól þegar samkeppnin er hvað hörðust. 1 ritdómum er notast við há- stemmd lýsingarorð; „opinberun”, „bókin er hrein unun aflestrar”, „spennandi og frumleg frásögn”, „snilldarverk” og „lofar góðu um framtíð norrænna bókmennta”. Það eru þó ekki lýsingarorðin sem eru athyglisverðust í umsögnum gagn- rýnenda heldur hvernig þeir taka bókinni sem merki um nýja og ferska tíma í skáldsagnagerð. Ekkert vinalegt klapp á öxlina Blaðadómarnir eru ekki skrifaðir í þeim föðurlega tón sem algengastur er þegar íslensk list er tekin til um- fjöUunar í Danmörku. Ritdómar- arnir nota ekki dýrmætt dálkarými til að kjamsa á gömlu tuggunni um sögueyjuna eða nýjasta nýtt frá heimalandi Laxness. Skáldsögu Einars er tekið sem hverri annarri skáldsögu ungs höfundar og hún rædd i samhengi við þróun skáld- sögunnar á alþjóðavettvangi. Sem sagt, ekkert vinalegt klapp á öxlina eins og oft þegar gagnrýnendur skrifa sig frá misframbærilegum sjónvarpsleikritum Ríkisútvarpsins. Flestir gagnrýnenda leggja áherslu á hvað sjálfur frásagnar- mátinn er nýstárlegur og hve læsileg bókin er þó að flestar reglur hefðbundnar frásagnarhefðir séu brotnar. 1 Jyllands-Posten skrifar Preben Meulemgracht m.a.: „Þegar fullorðnir skrifa um böm reyna þeir venjulega aö lifa sig inn í hugarheim bamsins og skynja þannig gamal- kunnan veruleika á ný. IMý og athyglisverð aðferð Einar Már Guðmundsson, þrítugur WiS/A. íslenskur rithöfundur, fer öfugt að. Hann lætur átta ára drenghnokka segja sögu frá afmörkuöum heimi sinum á máli íullorðinna og frá sjónarhóli þeírra. Það er ekki oft sem strákar á hans aldri nota bók- menntalegt myndmál, velti kulda- lega fyrir sér eðli fulloröna fólksins, gleðjist yfir því að vera ekki orðnir kynþroska og ávarpi lesandann beint; „lesandi góður”. .. .Þetta er fyrst og fremst ný og athyglisverð aðferð við að skrifa skáldsögu. Hún er raunsæ bæði hvað varðar smáatriðin og umhverfi, en um leið túlkun og frásagnaraöferö sem gengur þvert á allar venjur og hefðir. . . frá upphafi til enda er frá- sögnin öll á flugferð á vængjum hug- ans, hún er sérstæð, truflar lesand- ann og er ósjaldan ögrandi. Les- andinn kemst þó ekki hjá því að hrif- ast með eftir þvi sem á lesturinn líður, hverfa inn í furðuheim þar sem strákaveröldin hefur fengið mál þeirra fullorðnu.” Laus við tilfinningavellu I Berlingske Tidende kallar Johan de Mylius sögu Einars norrænan bókmenntaviðburð og segir m.a.: „Skáldsagan er feröalag til heims bemskunnar þar sem allt getur gerst og landamæri eru ekki til. Þessi heimur er þó laus við þá tilfinninga- vellu sem er svo algeng og hann reynir ekki að sjá heiminn frá heimi bamsins eingöngu. Bemskan er glötuð og það er aöeins hægt að nálgast hana í gegnum skáldskapinn. Einar beygir sig undir þessa staðreynd og skrifar á máli sem hvorki er mál bama né fullorðinna, heldur er notast við hvort tveggja. Frásagnarmátinn kemur á óvart og er skemmtilegur en á köflum alvörugefinn. Hér rennur hugarheimur bamsins, ungl- ingsins og þess sem skrifar saman í eitt og verður að sjálfstæðum heimi; uppskálduð bemska... ótrúlegt hugarflug sprettur úr veruleikanum og breytir honum í ljóðræna sögu. Þetta er skáldsaga sem lofar góðu fyrir norrænar bókmenntir.” Fersk tilbreyting Það er þó ekki aðeins sérstæður frásagnarmáti Einars sem hrífur danska gagnrýnendur. Riddarar hringstigans er þeim fersk til- breyting frá bæði gamla „nýja” raunsæinu og nýrómantík ungskáld- anna. Raunsæisstefnan, sem bókmennta- gagnrýnendur hafa veriö að deila um heima á Islandi undanfarið, er mun rótgrónari hér í Danmörku. Sögur umhversdagsleikann „meðöllu” em nánast framleiddar á færibandi. Þessi stfll, sem á sínum tíma var ferskt andsvar við fílabeinstuma- skrifum margra módemista, hefur að mestu endað í lágkúru. Hver skáldsagan á eftir annarri útmálar grámyglu borgarlifsins þar sem fólk, venjulega verkamenn eða oftar verkakonur, hendast á milli blokkar- íbúðar og verksmiðju á stimpil- klukkuhraða og finna ekki tilgang lifsins fyrr en í lokakaflanum þegar þau gerast virk í flokki eða baráttu- hreyfingu. Borginni og sérstaklega úthverfunum er lýst sem auðnu- lausum firringarbælum og samnefn- ari ömurleikans verður stein- steypan. Steinsteypuofnœmi Yngri skáld sem hafa snúið baki við grámyglustílnum og hvorki flokkar né baráttusamtök veita neina von. Hjá flestum þeirra er það atvinnuleysi plús steinsteypa sem er uppistaðan í verkum þeirra og auðvitað sveimar kjamorku- sprengjan yfir höfðum þeirra. Utan borgarmarkanna er allt að sökkva í mengun og drullu. \ Það er í ljósi þessa einstaka stein- steypuofnæmis sem frábærar viðtökur Riddara hringstigans verða aö skoðast. Hér er komin skáldsaga sem gerist í svipuðu umhverfi og allar draugasögur úthverfanna eiga sér staö en er bæði skemmtileg og nýstárlega skrifuö. Bæði hjá raunsæisskáldunum og nýrómantík- urunum er lif í steinsteypu nánast óhugsandi, hvað þá að það sé ævin- týri líkast! Það er líka þess vegna sem ritdómararnir dæma ekki sögu Einars sem nýjasta nýtt frá sögueyj- unni, heldur kærkomna nýbreytni og jafnvel opinberun. Hér sameinast reynsla módernismans og frá- sagnargleði og það er sjaldgæft að slíkar bækur liggi til umsagnar á skrifborðum þeirra. Eg ætla að enda meö umsögn Poul Borum, gagnrýnanda Ekstra Bladets, en þessi fimmtugi pönkari og afkastatröll er oft hnitmiðaður í umsögnum sínum: „Einar fram- reiðir íslenska stikkilsberjafinn sinn tilgerðarlaust og með miklum glæsibrag svo að lestur hennar er hrein unun.” örn Jónsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.