Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1985, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1985, Page 9
DV. LAUGARDAGUR 23. FEBRUAR1985. 49 Tilbrigði við flugdreka — Björg Þorsteinsdóttir sýnir „collage”-verk í París Það var heldur kuldalegt og gráleitt um aö litast á torginu fjrir framan borgarstjðrnarhúsið í París hér á dögunum. Og þótt spölurinn þaðan og út í Cité Internationale des Arts væri ekki langur náði kuldinn samt að narta talsvert í eyrun á fréttaritaranum á leiðinni. En hitastig eyrnanna komst fljótlega í eðlilegt horf eftir að komið var inn í hlýjan og litríkan sýningar- salinn þar sem stóð yfir sýning á verkum eftir Björgu Þorsteinsdóttur. Hún sýndi þar 39 collageverk (klippi- myndir), allar gerðar hér í París frá því í september í haust. „Við erum hér f jórar konur sem sýnum samtímis. Þó er þetta ekki samsýning heldur fjórar einkasýningar undir sama þaki. Hinar eru Ronit Dovrat frá Israel, Christina Santander frá Argentínu og Francoise Quardon sem er frönsk. Mjög alþjóðlegt, ekki satt? ” DV: „Hvers lags stofnun er þetta hér?” Björg Þorsteinsdóttir: „Eins og nafnið bendir til er þetta alþjóðlegt listamannahús. Það er rekið af sam- tökum sem beita sér fyrir því að gefa listamönnum viðs vegar aö úr heimin- um kost á aö koma hingað til Parísar og dveljast um nokkurra mánaöa skeið. Hér er fýrir hendi húsnæöi og góð vinnuaðstaða, enda er mjög eftirsótt að komast hingað. Eg var svo heppin að fá styrk frá franska ríkinu árin 1971—1973 og það var því að þakka að ég komst hér að upphaflega. Ymis ríki hafa lagt hönd á plóginn með starf- semina, t.d. eiga öll Norðurlöndin vinnustofu hér; öll nema Island. Það er mikil synd að viö skulum ekki eiga vísan aögang aö vinnustofu hér. Það væri ómetanlegt fyrir íslenskt listafólk ef það gæti komið hingað og starfað um tíma. Þaö virkar allavega eins og víta- mínsprauta á mig! Ég held aö við heföum gott af því að kynnast þessari latnesku menningu betur en nú er. Paris er lika miklu meira í eldlinunni en Norðurlöndin þar sem við eigum aðgang aö nokkrum vinnustofum. Þaö er auðvitað mjög jákvætt, en þau eru samt sem áður svolitið út úr. En við vorum að tala um vinnustofumar hér og mig langar að geta þess að hér á aö fara að bæta viö húsakynnum. Þannig gefst Islendingum færi á aö eignast sina eigin vinnustofu hér i heimsborg- inni.” Gróska DV: „Nú er rúmur áratugur liðinn frá því þú varst hér síðast. Hvernig finnst þér að koma hingað aftur? ” B.Þ.: „Alveg dásamlegt. Hverfið, sem ég bý í, er ákaflega fallegt, þessar gömlu, sjarmerandi byggingar á bökkum Signu, stutt í Notre Dame kirkjuna og heilmikið um áhugaverð gallerí. Mér finnst París vera í senn heimsborg og nokkur samsett þorp Björg Þorsteinsdóttir skilst að Pompidousafniö sé búiö að skáka Eiffelturninum i aðsókn. Þótt ýmsir farí þangað mestmegnis til aö virða fyrir sér útsýnið slæðist fólk inn í sýningarsalina. Eg held að það hafi já- kvæð áhrif á listasmekk fólks þegar fram líöa stundir. Og það er eins og Pompidousafnið sogi til sín fólk. Þaðer eitthvert seiðmagn í kringum það; öll þessi litriku rör og jámbútar og nátt- úrlega rúllustiginn frægi i glergöngun- um sem minnir mig alltaf á risastóran, gegnsæjan ryksugubarka! ” sem eru ólík innbyrðis. Eg er þannig mjög heppin með þorp! Að mínum dómi hefur tilkoma Pompidousafnsins verið gifurleg lyfti- stöng fyrir listalífið hér í borginni. Þar sér maður hverja snilldarsýninguna á fætur annarri, bæði yfirlitssýningar á verkum eldri meistaranna og þeirra sem nú eru að skapa. Safnið virkar mjög örvandi á listafólk hér og það á örugglega sinn þátt í því að almenning- ur er farínn að líta mun jákvæðari augum á samtímalistina. Og mér Klipp DV: ,,Nú hefur þú lengst af fengist við gerð grafíkmynda. Hvers vegna skiptir þú yfir í collage eða klippmyndir?” B.Þ.: (hlátur) ,Já, margir hafa spurt mig að þessu í hálfgeröum ásökunartón! En ég get fullvissaö þig um að ég er ekki búin að snúa end- anlega bakinu við grafikinni. Aður en ég fór út í graffklistina málaði ég tölu- vert. Eg notaði oft collagetæknina til að gera drög að málverkunum. En núna langaði mig tíl að skipta um efni. Grafíkmyndimar eru seinlegar í vinnslu, maður er lengi að sjá hug- myndimar verða að raunveruleika. Þess vegna fannst mér gott að skipta yfir í pappírinn. Maður er mjög frjáls með hann og tempóiö er allt annað. Það er nauðsynlegt að breyta svona til. Maður sækir endurnýjun í nýtt efni. Og hér er þetta frekar regla en und- antekning. Menn hoppa úr skúlptúr í grafik, þaðan í að mála og svo fram- vegis. Þetta er bara spurning um efni og mér finnst það sem ég er að gera núna vera í beinu framhaldi af mínum fyrriverkum.” DV: „Liggur einhver grunnhug- mynd að baki verkanna?” B.Þ.: „Já, það má segja að þemað í flestum þeirra sé flugdrekinn. Svo vinn ég náttúrlega út frá því á ýmsa vegu. Eg nota sérstakan japanskan pappir í myndirnar, pappír sem hefur þá eigin- leika að vera í senn mjög léttur og sterkur. Ég kaupi hann hvítan og lita hann sjálf til að fá fram þá áferö sem ég sækist eftir. Síðan ríf ég hann niður á myndflötinn, brýt hann saman eða geri bara það sem mér flýgur í hug hverju sinni. Kosturinn við pappirinn er að maður er fljótur að vinna með honum og því fæðast myndirnar nokk- uð fljótt. Eg hef mjög gaman af því að vinna með pappírinn, enda finnst mér ég hafa afkastað þónokkru síðan ég kom hingaö út í september.” DV: „Hvaðverðurþúlengienn?” B.Þ.: „Eg reikna meðað verða út febrúar.” DV: „Hvað tekur þá við? ” B .Þ.: „Þá fer ég heim til aö undirbúa sýningu sem haldin verður í kjallara Norræna hússins í aprílmánuði.” Friðrlk Rafnsson iParís. Hverfafundir borgarstjóra 1985 Hvað hefur áunnist? Hvert stefnum við? Davíð Oddsson borgarstjóri flytur rœðu og svarar fyrirspurnum fundargesta. Á fundinum verða til sýnis líkön og skipulagsuppdrcettir. Árbæjar- og Seláshverfi. Sunnudagur 24. febrúar kl. 15.00 í Félagsheimilinu Árseli við Rofabæ. Fundarstjóri: Vilhjálmur B. Vilhjálmsson deildarstjóri. Fundarritari: Jóhannes Óli Gardarsson framkvœmdastjóri. D/j -m m lf/yw ¥ TW fifi f Fjölmennid á hverfafundi horgarstjóra. Komið sjónarmið- X /V C/ C/#V i/i i/\J \A/i • um ykkar á framfœri og kgnnist umhverfi gkkar hetur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.