Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1985, Síða 15
DV. LAUGARDAGUR 23. FEBRUAR1985.
55'
BÍLAR
Umsjón:
Jóhannes Reykdal.
Bjartari dagar framundan hjá bíleigendum:
HÆGT AÐ FÁ GERT VID SPRUNGUR
OG STEINGÖT Á FRAMRÚDUNNI
Hve margir bileigendur hafa ekki
orðið fyrir því að þurfa að skipta
um framrúðu í bílnum sínum eftir
skemmdir sem orðið hafa af völdum
steinkasts. Jafnvel eitt lítið gat á
óheppilegum stað, eins og í sjónlínu
ökumanns, veröur til þess að annars
heilli rúðu þarf að kasta á haugana.
E>ví að skipta um rúðu fylgja auk
kostnaðarins, ýmis óþægindi auk þess
sem hætta er á aö leki geti myndast.
Nú á að vera hægt að ýta þessum
raunum á brott með fljótlegri og ódýrri
lausn.
Nýlega var staddur hérlendis fulltrúi
frá hollenska fyrirtækinu NOVO
BOND og kynnti hann nýja aðferð við
aö fást við skemmdir á framrúðum
bila.
Aðferð þessi, sem upprunnin er í
„Augað" sem myndaðist eftir
steinkast og truflaði sjónlínu öku-
mannsins.
Hreinsað úr skemmdinni með oddhvössu bitjórni svo að fyllingarefnið
komist betur að skemmdinni.
Lofttœma þarf holuna og nó út raka sem leitað hefur inn. Því er rúðan hituð
litillega innan fró.
Fyllingarefninu er þrýst inn i gatið með sórstöku óhaldi.
Bandaríkjunum, hefur verið i þróun í
Hoilandi frá árinu 1979 og er nú að
ryðja sér til rúms víða um heim.
Viðgerð á rúðunni fer fram á þann
veg að eftir að skemmda svæðið á rúð-
unni hefur verið hreinsað vandlega er
glæru kemisku efni þrýst inn í sprung-
una með sérstökum tækjum. Sama efni
er einnig notað til að fylla upp í holur
sem myndast hafa eftir steinkast og
kvarnast hefur úr rúöunni.
Þegar efnið harðnar verður það hart
eins og gler og rúöan sem ný.
Kosturinn við þessa aðferð er sá að
ekki þarf aö taka rúðuna úr bilnum og
viðgerðin tekur það skamma stund að
eigandinn getur beðið á meðan
viðgerðin fer fram.
Það er Bílaborg hf. sem er umboðs-
aöili fyrir NOVO BOND á Islandi og
innan skamms verður þessi þjónusta
fáanleg víða um land.
Gefur viðgerðaraðferð þessi vonir
um bjartari daga hjá mörgum bíl-
eigandanum því nú er hægt að gera við
sprungu á framrúöu nær samstundis
svo ekki ætti að tapast heill dagur á
verkstæði eins og raunin hefur orðið
hjá mörgum í upphafi sumarleyfis-
Sórstakur holspegill er settur innan ó rúfluna og þó sóst skemmdin vel.
Skemmdin sóst ofarlega til vinstri i speglinum, en speglast betur til hœgri.
þar sparast miklir peningar því
viðgerð á einu gati kostar 1530 krónur
með söluskatti og 400 krónur hvert gat
á rúðunni í viðbót. Á stærri bílum
kostar viðgerðin þriðjungi meira.
Sé sú tala, sem heyrst hefur að ís-
lensk tryggingafélög hafi eytt í fram-
rúðubrot á liðnu ári, rétt, eða á annan
tug milljóna eða meira, þá er ljóst að
slíkar viðgerðir hljóta að vera hags-
munamál allra. -JR.
Einn dropi er siflan lótinn drjúpa utan ó glerifl og þunn plastfilma lótin yfir.
ferðar og hjá tryggingafélögunum
sparast miklar fjárhæðir sem fariö
hafa í nýjar framrúður vegna stein-
kasts en nú ætti aö vera hægt aö gera
við.
Rúðan verður
sem nær ný
Til að sannreyna gæði slíkrar rúðu-
viðgerðar fékk ég Brynjólf Wíum hjá
Bílaborg til að sýna hvemig sÚk
viðgerð fer fram. Nýleg skemmd í
framrúöu í sjónlínu ökumanns lá vel
við höggi og raunar hefði átt að skipta
um rúðu strax með slíkri skemmd.
Myndasagan hér á síðunni sýnir vel
hvemig viðgerðin fer fram.
Brynjólfur sagði að fulltrúum
tryggingaf élaga og annarra hefði verið
kynnt viðgerðaraðferðin og hún fengið
góðar viðtökur. Munu tryggingafélögin
bjóða viðskiptamönnum sínum að láta
gera við rúður í stað þess að skipta um
þær. Hafa nú þegar verið framkvæmd-
ar slíkar viðgerðir. Hafa bileigendur
lýst ánægju sinni með viðgerðina og
valið hana frekar en aö láta skipta um
rúðu því það hefur ávallt nokkurt rask
í för með sér og ávallt hætta á aö
skrautlistar skemmist, rúöur leki með
köntum eða limingum og kítti smiti út
eftir slíka aðgerð.
Aðferð þessi hefur verið þrautreynd
af þýska bifreiöaeftirlitinu og fengið
viðurkenningu hjá því sem fullnægj-
andi. Tilraunir þeirra leiddu í ljós að
viðgerði bletturinn er sterkari en
rúðan í kring svo ekki er hætta á að
viögerðin leiði til hættulegra skemmda
síðar meir svo sem vegna höggs.
Þjóðverjamir mæla þó frekar með að
skemmdir sem eru í sjónlinu öku-
Loks er bónað yfir rúfluna eftir afl utanóliggjandi fyllingarefni hefur verifl
skafifl brott. Skemmdin er horfin og hún sóst afleins sem örlitill blettur ó
rúflunni ef vel er að gófl. Viflgerflin tók afleins um hólfa klukkustund og
tókst þafl vel afl ekki er hœgt afl sýna hana ó mynd, því rúflan varfl sem ný.
DV-myndir GVA.
manns séu ekki meðhöndlaðar með
þessari aðferð, en þá frekar skipt um
rúðu.
Viðgerð þessi sparar mikla peninga
og tima og sem dæmi má nefna að gert
var við framrúðu í áætlunarbíl nýlega.
Gert var við fjórar skemmdir og
kostaði viðgerðin 4000 krónur en ný
rúða kostar 40 þúsund óísett. Auk þess
sparaðist mikill tími, billinn var aðeins
stutta stund á verkstæði i staö þess að -
vera úr akstri í sólarhring.
Svipuðu máli gegnir um fólksbíla,
Eftir fyllinguna er lampi með út-
fjólublóu Ijósi settur yfir og efnifl
harðnar vegna eiginleika Ijóssins.