Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1985, Qupperneq 15
DV. FCSTUDAGUR10. MAl 1985,
15
Nýja Shellstöðin við Vesturlandsveg er engin venjuleg bensínstöð.
Nýja Shellstöðin er þjónustumiðstöð sem á engan sinn líka.
#
Allar eldsneytisdælur eru undir þaki. Það er
jafnt til þæginda fyrir viðskiptavini og starfsfólk
og opnar möguleika til.þess að veita bensín- og
olíukaupendum ýmsa þjónustu, sem hvergi fæst
annars staðar.
Sjoppan er tvímælalaust ein sú besta í bænum.
Starfsfólk Bæjarnestanna er nefnilega búið að
læra fyrir löngu, að til þess að standa sig í
samkeppninni þarf bæði gott vöruúrval og lipra
þjónustu.
í veitingasölunni eru fulikomnustu grilleldunar-
tæki á Islandi. Þannig er tafarlaust hægt að
afgreiða nýsteiktar kræsingar, svo sem
hamborgara og kjúklinga, í gegnum lúgu beint
í bflinn. Alvöru akið - takið.
Fullkomin þvotta- og þurrkaðstaða, með
háþrýstidælu, ryksugu og fleiru, er fyrir fjölda
bifreiöa í senn. Auk þess eru fjölmörg bflastæði
þar sem hægt er að taka lífinu með ró, njóta
veitinga, gera ferðaáætlun, líta í blað eða bara
leggja sig.
Smávöruverslunin er með ótrúlegt vöruúrval -
þar sem jafnt er hugsað um þarfir bíls, bílstjóra
og farþega. Öryggisbúnaður, grill- og
ferðavörur, verkfæri, varahlutir, hreinlætisvörur
og ýmislegt sem kemur þér á óvart.
Það má reikna með ýmsu óvenjulegu við
Vesturlandsveginn um helgina. Þeir sem eru í
strangri megrun, þola ekki blóm eða vilja alls
ekki láta krakkana taka við gjöfum frá
ókunnugum ættu endilega að hugsa sig um
tvisvar áður en þeir koma við!