Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1985, Síða 36
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þó i
sima 68-78-58. Fyrir'
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
-5T
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ1985.
Akureyri:
Iðnskólinn
að háskóla?
Lögð hefur verið fyrir bæjarráð
Akureyrar tillaga um að gefa
Háskóla Islands Iðnskólahúsið við
Þingvaliastræti sem Verkmermta-
skólinn notar núna.
Tillaga þessi kemur frá þriggja
manna nefnd bæjarins. Hún heldur á
næstunni til fundar við nefnd, sem
menntamálaráðherra skipaði til að
fjalla um skipan og rekstur Háskóla
Islands. Mikill vilji er hjá norðan-
mönnum til að koma upp háskóla-
kennslu ó Akureyri og er hugmyndin
með g jöfinni að auðvelda slíkt.
Á fundi bæjarráðs í gær var ekki
tekin ákvörðun í mólinu. Rætt var
hvort ekki væri hægt að bjóða hús-
næði ón þess að gefa það. Iðnskóla-
húsið er nýlegt og þykir henta vel til
háskólakennslu. Það er 8.500 rúm-
metrar með ellefu stofum og hægt að
kenna þar 300—400 manns.
-JBH, Akureyrl
Kennarar úr BSRB?
Nær 70% kennara í Kennarasam-
bandi Islands vilja ganga úr BSRB.
Þessi niðurstaða er ljós þegar um 2/3
hlutar atkvæða haf a veriö taldir.
Undanfariö hafa kennarar í Kenn-
arasambandinu greitt atkvæði um
hvort rétt sé að segja skilið viö
BSRB. Endanleg niðurstaða kosn-
ingarinnar verður ekki kunn fyrr en
14. maí.
Ef fer sem horfir gengur úrsögnin
í gildi um næstu áramót.
APH
Almenn vaxtalækkun
Samkvæmt ákvörðun Seðla-
bankans lækka vextir á sparisjóðs-
bókum um 2% á morgun. Flestir
bankamir hafa tilkynnt vaxtalækkun
á öðrum reikningum í framhaldi af
því, á bilinu 0,5—1,5%. Þeir geta hins
vegar tilkynnt vaxtabreytingar fram
tilklukkan 171 dag.
Um síöustu mánaðamót tilkynntu
allir viðskiptabankar, nema Alþýðu-
banki og Samvinnubanki, vaxta-
lækkun frá 1. maL Næsti breytingadag-
ur er á morgun og þar næsti 21. mai
Seðlabankinn veröur að samþykkja
breytingar. Hann hefur þegar fallist á
allt að 1,5% vaxtalækkun i takt við eigin
ókvöröun um 2% lækkun sparisjóðs-
vaxtanna. HERB
Þetta ætti að vera
sæmilegur stofnsjóð-
ur fyrir löggupöbbinn!
Malagafanginn ekki af baki dottinn:
Læðir ávfsunum út
á milli rimlanna
AUar likur benda til þess að
Malagafanginn stundi ávísanafals í
klefa sínum í spænska fangelsinu í
Malaga. Þar hefur hann sem
kunnugt er setið á tíunda mónuð án
þess að koma fy rir dómara.
„Eg keypti ávísun að upphæð 5000
krónur í janúar síðastliðnum en fékk
hana i hausinn frá bankanum
nokkrum dögum síðar,” sagði
kaupmaður í Mosfellssveit í samtali
við DV. „Við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að ávísunin var undirrituö
af Malagafanganum í bak og fyrir og
dagsett30.12.’84.”
Ávísun þessi er nú í vörslu
Rannsóknarlögreglu rikisins auk
annarra er Malagafanginn gaf út án
þess að innstæða væri fyrir hendi.
Alls eru þær 8 talsins að upphæð
95.000 krónur, skrifaðar á Spáni en
aöeins ein eftir að pilturinn var
settur á bak við lás og slá.
„Megnið af ávísununum lenti i
höndum okkar fyrir hreina tilviljun.
Viö vorum að gera fíkniefnaleit ó
pilti er var að koma frá Spáni og
fundum þá í fórum hans fjölda
ávísana undirritaðar af Malaga-
fanganum,” sagði rannsóknarlög-
reglumaður aðspuröur. „Það átti að
koma þessu i pening hérlendis, alls
80.000 krónur.”
-EIR.
Schlutor slappar af. I Kaupmannahöfn stendur yfir þessa daga húsgagnasýning, mikil og
stór. Eru Islendingar meðal 14 þátttökuþjóða. Það var Poul Schlúter, forsœtisráðherra Dan-
merkur, sem opnaöi sýninguna með pompi og pragt ó miövikudag. Af þvi tilefni færðu þðtt-
tökuþjóðirnar forsætísrððherranum þennan forlóta stól. -KÞ/DV-mynd Ól. Guöm.
Verkfall 17. maí?
I fyrrinótt slitnaði upp úr samn-
ingarviðræðum fimm verkalýðs-
félaga og Skógræktarfélags rikisins.
Eitt þessara félaga hefur aflað sér
verkfallsheimildar og búist er við að
hin félögin geri það einnig.
Skógræktarfélag rikisins er með
vinnuhópa víðsvegar um landið, á
svæðum þar sem ræktun skógar fer
fram. I þessu sambandi eru gerðir
sérsamningar við verkalýðsfélögin.
Undanfarið hafa verið haldnir tveir
fundir milli aðila. Samkomulag
hefur ekki náðst um kaup og kjör á
þessum fundum. Málinu var því vis-
að til sáttasemjara rikisins og það
var þar sem slitnaði upp úr viðræð-
unum í fyrrinótt. Búist er við því að
sáttasemjari reyni að boða aðila á
sinn fund bráölega.
Ef ekki nóst sættir í þessu máli
skellur á verkfall 17. mai. Það er
verkalýðsfélagið Þór á Selfossi sem
hefur boðað verkfall. Verkalýös-
félagið Rangæingur, verkalýðsfélög-
in í Borganesi, á Húsavík og í Fljóts-
dalshéraði munu öll ætla aö afla sér
heimildartilverkfalls. APH
Vörubíll eyðilagðist
Mikill eldur kom upp í vörubifreið
frá Selfossi í gær og endaði með því
aö billinn brann til kaldra kola.
Ohappið ótti sér staö um
fimmleytið í gær við vikumámurnar
skammt frá Miöengi. Bíllinn varö
skyndilega eitt eldhaf og tókst
bílstjóranum ekki aö nálgast slökkvi-
tækiö i bálnum. -EH.
Lögf ræðikostnaður á innheimtu útvarps- og sjónvarpsgjalda ólöglegur?
Þúsundir manna hlunnfarnar
i skjóli ríkisútvarpsins?
Notandi útvarps og sjónvarps
hefur neitað lögmæti þess aö afnota-
gjalds var krafist af honum með
ólögöum innheimtukostnaði sam-
kvæmt gjaldskrá Lögmanna-
félags Islands. Lögmaður hans og
lögmaður Rikisútvarpsins kljást nú
um mólið fyrir stjóm Lögmanna-
félagsins. Neitun mannsins styðst
við lögfestan lögveðsrétt Rikisút-
varpsins sem gerir lögfræöi-
innheimtu alveg óþarfa.
Afnotagjald mannsins lenti í
vanskilum. Það hafði þegar tekið á
sig 10% álag sem er viðtekin venja
um þau afnotagjöld Rikisútvarpsins
sem falla i eindaga. Með lögveðsrétt
I sjónvarpstæki mannsins nægði
Rikisútvarpinu að senda honum
skriflega viðvörun um aö tækið yrði
tekið og sett á uppboð nema greiðsla
bærist, þá væntanlega með eðli-
legum dróttarvöxtum. Siöan gat
komið til uppboðs með tilheyrandi
kostnaöi.
Innheimta gjaldsins var hins
vegar falin lögmannastofu sem
krafði hánn um innheimtukostnað
samkvæmt gjaldskrá Lögmanna-
félagsins. Gróflega reiknað nemur
sá kostnaður um 35% af afnota-
gjaldinu. Viðvörun með lögveðið að
vopni hefði aftur á móti ekki kostað
manninn krónu, því Rikisútvarpið
hefur 10% innheimtuálag sjálfvirkt i
sínu innheimtukerfi.
Mál mannsins er eitt af þúsundum,
jafnvel tugþúsundum, því Ríkisút-
varpið hefur um árabil afhent lög-
mannastofum vanskilaskuldir
notenda til innheimtu. Samkvæmt
heimildum DV hafa minnst fimm
lögmannastofur mikinn starfa við
þetta. Mólsvarar Ríkisútvarpsins
munu halda þvi fram að það eigi að
sleppa skaölaust fró innheimtunni.
Því mun ekki mótmælt. en visaö er
til lögvarins lögveösréttar Ríkisút-
varpsins, sem sé fullnægjandi
trygging.
Vinni maðurinn móliö fyrir stjórn
Lögmannafélagsins eða dómstólum
geta aðrir i hans sporum krafist
endurgreiöslu ó greiddum
innheimtukostnaöi til lögmanna-
stofanna. Endurkröfur gætu náð
fjögur, jafnvel tíu ár aftur í tímann,
eftir atvikum.
HERB
I
i
i
i
i
i
i
i
i
i
t
t
t
t
t
Í
í
i
i
: