Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR 24. MAl 1985. 3 TilboðVSÍ: Samningar til ársloka 1986 — kauphækkanir altt að 24% — lægstu laun hækki um 7,5% frá 1. júní Tilboð VSI felur í sér tæplega 24 prósent launahækkun fyiir megin- þorra launafólks innan ASI. Þessi hækkun kemur í þrepum á 18 mánuöum eða til ársloka 1986. A samningstimabilinu er gert ráð fyrir að allir, sem þiggja laun eftir 24. launaþrepi i kjarasamningum og þar undir, fái aukalega um 5 prósent hækkun. Þeir sem fá ekki þessa hsAkun eru m.a. byggingarmenn, sem nú þegar hafa fengið tilsvarandi hækkun. I tilboði VSI er gert ráð fyrir að kauphækkanir verði nú þegar 1. júní. Verkalýðshreyfingin: Afstaða tekin á næstu dögum — Dagsbrúnarmenn neikvæðir Búast má við þvi aö á næstu dögum muni landssambönd og verkalýðsfélög taka afstöðu til samningstilboös VSI. Formenn landssambanda virðast enn vera að átta sig á þessu tilboði og vilja ekki taka afstöðu fyrr en málið hefur verið kannað niður i kjölinn. Oánægju raddir með þetta tilboö hafa þó þegar heyrst frá forystumönnum í Dagsbrún og Verkamannasambandinu. „Eg er við fyrstu skoðun heldur neikvæður, reyndar með fyrirvara,” segir Þröstur Olafsson, framkvæmdastjóri Dags- brúnar. „Eg tel það ganga í skakka átt og það þurfi aö vinna miklu meira aftur af því sem hefur glatast af kaupmættinum undanfarið.” Guðmundur Þ. Jónsson, formaöur Landssambands iönverkafólks, er varkár. „Þetta er reyndar meira en ég hafði búist viö, að minnsta kosti i kauptölum. Við þurfum að líta á þetta betur áður en við komum með fullmót- aða skoðun áþessu tilboði,” segir hann. Hans landssamband vildi að gengiö yrði til bráðabirgðasamninga nú þegar sem næðu til áramóta. „Þama er reyndar verið að tala um aðra hluti en ég er ekki að segja það að þetta verði útilokað,” segir Guðmundur. Bjöm Þórhallsson, formaður Lands- sambands verslunarmanna, segir að margir muni hugsa sig um og skoða þetta tilboð. „En það tekur enginn þessu tilboði nákvæmlega það yrði reynt að lagfæra þetta,” segir Bjöm. Asmundur Stefánsson vill ekki lýsa yfir skoöun sinnl á þessu tilboði. Hann bendir til samþykktar formanna- ráðstefnu ASI þar sem lands- samböndin ákváðu aö ræða frekar af- stöðu sína til samningamála. „Það verður fjallað um tilboö Vinnuveit- endasambandsins í lands- samböndunum og f élögunum. Eg á von á þvi að haldinn verði fundur formanna landssambandanna eftir helgi þar sem þessi mál verða rædd frekar,” segir Asmundur. I gær var tilboð VSI rætt á fundi i Dagsbrún og í dag er búist við að af- staða verði tekin til þess á stjómar- fundi. Þröstur Olafsson hjá Dagsbrún segir að þetta tilboð hafi komið á óvart. „Þeir hafa fram að þessu ekki verið svo áhyggjufullir út af kjörum manna og umhugað aö koma peningum á framfæri. Það kemur mér því á óvart að þeir skuli rjúka upp til handa og fóta núna. Þeir hljóta að vera hræddir um að eitthvað annað verra gerist ef þeir gera þetta ekki.” Hann bendir á að félögin séu útilokuð frá því Afli smábáta í Rsykjavfk hefur verið þokkalegur undanfarna daga. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá hafnarvigtarmönnum við Reykjavíkurhöfn hefur meðalaflinn verið 2—3 tonn eftir daginn, sem þykir viðunanlegt. Á meðfylgjandi mynd má sjá einn bátanna kominn að, með spegilgljáandi fiskinn innanborðs. DV-mynd: S. að gera sérsamninga og að í þessum samningum sé engin kauptrygging. Þá séu uppsagnarákvæðin þannig aö samningum sé sagt upp þremur dögum fyrir kauphækkanir og með því afsali launþegar sér þeim kauphækkunum. -APH. Þá hækka öll laun innan ASI um 5 prósent. Þeir sem þiggja laun í 24. launaflokki og neðar fá að auki 2,4 prósent. Þeir fá því 7,5 prósent 1. júní. Næsta hækkun launa verður síðan 1. september. Þá hækka laun almennt um 3 prósent og sami hópur og áður fær aukalega 2,4 prósent. Þá hækka laun l.janúar um 5 prósent og fá allir þá hækkun. Að lokum er svo gert ráð fyrir að laun hækki um 4 prósent 1. júlí. Þetta tilboö VSI er byggt á spá um ákveðna þróun vísitölu fram- færslukostnaðar á þessu tímabili. Ef fer sem horfir þá mun kaupmáttur aukast á þessu tímabili. A næsta ári mun hann hækka, verða orðinn 1,6 prósent hærri en hann var á fjórða árs- fjórðungi 1984 eða þegar síðast var samið. Tveir uppsagnarmöguleikar eru á þessum samningum. Miðaö er við að ef vísitalan fer yfir ákveöið mark sé hægt að segja samningum lausum. Gert er ráð fyrir að 1. des. verði visitalan undir eða um 150 stig og aö 1. júni verði hún 157 stig eöa lægri. Ef vísitalan fer tveimur stigum fram úr þessum tölum, á þessum dagsetningum, er mögulegt að seg ja upp samningum. Að lokum er gert ráð fyrir að tekið verði tillit til hugsanlegrar skatt- lagningar rikisins vegna húsnæöis- mála eða félagslegrar þjónustu. Ef gripið verður til einhverra skatta- hsÁkana vegna húsnæðismála mun það hafa áhrif á visitöluútreikninga. -APH. TUMBLEMOSS er sannkallaö undraefni. Það . . . . . . . eyðir mosa á örfáum mínútum, án þess að skaða annan gróður. . . . heldur frekari mosamyndun í skefjum svo mánuðum skiptir. . . . örvar grasvöxtinn og grasið verður grænna. Látið nú til skarar skríða með TUMBLEMOSS. TUMBLEMOSS mosaeyðirinn fæst á öllum bensín- stöðvum ESSO. íslenskar leiðbeiningar. £sso) Olíufélagið hf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.