Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Blaðsíða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 7. JUNI1985. Laus staða Staða ritara hjá Vita- og hafnamálaskrifstofunni er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfs- manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 14. júní. Vita- og hafnamálaskrifstofan Seljavegi 32, sími 27733. RÍKISSKIPsimi 28822 Auglýsing M/s Baldur lestar vörur nk. þriðjudag 11.6. á Breiða- fjarðarhafnir. Vörumóttaka á mánudag til kl. 16.50. Afgr. Ríkisskipa. BIFREIÐASKOÐUN Á ÍSAFIRÐI OG í ÍSAFJARÐARSÝSLU 1985 Aðalskoðun bifreiða á ísafirði fór fram 1. mars til 19. apríl 1985. Aðalskoðun og endurskoðun bifreiða í ísafjarðarsýslu og endurskoðun á Ísafirði fer fram sem hér segir. Aðalskoðun í Súðavík 11. og 12. júní. Skoðað verður að Nesvegi 5 frá kl. 9.00—12.00 og kl. 13.00-16.00. Aðalskoðun á Þingeyri 18., 19. og 20. júní. Skoðað verður við Stefánsbúð frá kl. 10.00—12.00 og kl. 13.00-17.00. Aðalskoðun að Núpi, Dýrafirði, fyrir Mýrahrepp 21. júní. Skoðað verður að Núpi frá kl. 10.00—12.00 og kl. 13.00-16.00. Aðalskoðun að Hrafnseyri fyrir Auðkúluhrepp 22. júní. Skoðað verður að Hrafnseyri frá kl. 13.00 — 16.00. Aðalskoðun á Flateyri fyrir Flateyrar- og Mosvalla- hrepp 24., 25. og 26. júní. Skoðað verður við hafnarvogina á Flateyri frá kl. 9.00 — 12.00 og kl. 13.00-16.00. Aðalskoðun á Suðureyri 1., 2. og 3. júlí. Skoðað verður við hafnarkantinn við Freyju h/f frá kl. 9.00-12.00 og kl. 13.00-16.00. Aðalskoðun í ísafjarðardjúpi: 16. júlí. í Ögri fyrir ögurhrepp frá kl. 10.00-12.00. Við Djúpmannabúð frá kl. 14.00—16.00 fyrir Mjóafjörð og Reykjafjarðarhrepp. 17. júlí. í Reykjanesi fyrir Reykjafjarðarhrepp frá kl. 9.00—12.00. Arngerðareyri fyrir Nauteyrarhrepp frá kl. 15.00. 18. júlí. Að Bæjum fyrir Snæfjallahrepp frá kl. 11.00—14.00. Að Melgraseyri fyrir Nauteyrarhrepp frá kl. 15.00. Aðalskoðun lýkur 18. júlí 1985. Endurskoðun á ísafirði 27. og 28. júní, 4., 5., 10., 11., 12., 19. og 26. júlí á venjulegum skrifstofutíma. Endurskoðun í Súðavík 15. júlí kl. 10.00—16.00. Éndurskoðun á Þingeyri 22. júlí kl. 10.00—16.00. Éndurskoðun að Núpi 23. júlí kl. 13.00—16.00. Endurskoðun á Flateyri 24. júlí kl. 10.00—16.00. Endurskoðun á Suðureyri 25. júlí kl. 10.00—16.00. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild öku- skírteini og skilríki fyrir greiðslu bifreiðaskatts og þunga- skatts skv. mæli auk lögþoðinnar vátryggingar og skoðunargjalds. Í skráningarskírteini skal vera áritun um það að aðal- Ijós bifreiðar hafi verið stillt eftir 31. október 1984. Vanræki einhver að koma með bifreið sína til skoðunar á auglýstum tíma verður hann látinn sæta sektum skv. umferðarlögum og bifreið hans tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. 4. júní 1985 Bæjarfógetinn á ísafirði. Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu. Pétur Kr. Hafstein. Voru sendir kennarasambandinu til ráðstöfunar —segir í f rétt f rá KÍ um peningagjöf Norræna kennarasambandsins Vegna rangrar og villandi fréttar í DV 4. júní sL. um fjármál Kennara- sambands Islands í verkfalli BSRB í haust óska ég eftir aö eftirfarandi verði birt á áberandi stað í blaöinu. Um það leyti sem verkfall BSRB hófst í haust hafði Kennarasamband Islands samband við samtök kennara á Norðurlöndum og óskaði eftir stuðn- ingi þeirra. Eins og við var að búast brugöust félagar okkar vel við og sam- tals sendu félög innan NLS (Nord- iske Lærerorganisationers samrad) Kennarasambandi Islands 2.093.793 isl. kr. I þessari fjárhæð er talin með gjöf frá færeyskum kennurum, um 108.000 ísl. kr., sem var sérstaklega skilyrt að ætti að renna beint í sam- bandssjóð Kennarasambandsins. Allir þessir peningar voru sendir Kennarasambandi Islands til ráð- stöfunar í verkfallinu og vegna þess. Stjóm og fulltrúaráð KI fjallaöi um það hvernig fjármunum þessum skyldi varið. Samþykkt var að um helmingur fjárins, 981.380 kr., yrði látinn renna í verkfallssjóð BSRB. Greiddur var beinn, sannanlegur kostnaður Kennara- sambandsins vegna verkfallsins sam- kvæmt reikningum sem fyrir liggja að upphæð kr. 748.620. Á fundi stjórnar og fulltrúaráös Kl 15. og 16. mars sl. var samþykkt samhljóöa að afganginum, u.þ.b. 250.000 kr., skyldi varið til styrktar framhaldsskólakennurum vegna kjaradeilu sem þeir stóðu þá í og var féð afhent kjaradeilusjóðiHÖÍ. Af framansögðu ætti að vera ljóst hvernig þeim fjármunum sem Kennarasamband Islands fékk frá kennurum á öðrum Norðuriöndum vegna verkf allsins var varið. öll þessi mál voru afgreidd í stjóm og fulltrúaráði Kl í febrúar og mars sl. Þaö er því í hæsta máta óeölilegt að nú, í júnímánuöi, skuli ónafngreindur „háttsettur maöur innan BSRB” koma f ram með athugasemdir i blöðum. I frétt DV kemur einnig fram að kennarar hafi fengiö 4,3 milljónir króna úr vekfallssjóði BSRB. Þær upp- lýsingar hefðu þá sannarlega mátt fylgja aö úr þeim sjóði voru veittar skv. upplýsingum sem fram komu á bandalagsráðstefnu BSRB nú í vetur alls 13,5 milljónir króna. Hins vegar voru kennarar rúmlega 40% þeirra sem voru í verkfalli í óktóber sl. Kenn- arar fengu því síst meira úr þeim sjóði en þeim bar. Eg harma að óprúttnir aðilar skuli gera sér að leik að reyna að koma af staö óhróðri og dylgjum um forystu Kennarasambandsins og þykir leitt til þess að vita að DV skuli taka þátt í þeim leik. Svanhildur Kaaber, stjórnarmaður i Kt. „Ætlað að styrkja einstaka félaga” —segir ritari Norræna kennarasambandsins um verkfallspeningana „Auðvitað var þessum peningum ætlað aö styrkja einstaka félaga Kennarasambandsins í verkfallinu í haust. Hins vegar fylgdu engar sér- stakar kvaöir þessum peningum,” sagði Kjeld Kirkegaard, ritari NLS, Nordiske Lærerorganisationers sam- rád, sem er samband grunnskólakenn- ara á Norðurlöndum. Eins og DV hefur sagt frá fékk Kennarasamband Islands á þriðju milljón frá þessum samtökum í verk- fallinu í haust. Um 980 þúsund settu þeir í verkfallssjóð BSRB, af gangurinn fór i eigin rekstur. Þess utan fengu kennarar um 4,3 milljónir greiddar úr verkfallssjóði BSRB. „Við sendum þessa peninga beint til Kennarasambandsins þar sem þeir hafa engan sérstakan verkfallssjóð sjálfir og við vildum og ætluðumst til að þeir yrðu notaðir til að styrkja kenn- arana sjálfa á þessum erfiðu tímum. Eg veit ekki annaö en aö það hafi verið gert, ” sagði Kj eld Kirkegaard. -KÞ. „Hefðum viljað meira í sjóðinn” — segir Haraldur Steinþórsson, varaf ormaður BSRB „Við hefðum auðvitaö viljað fá sem mest í sjóðinn. Hins vegar er það ekki okkar að dæma um það hvað átti að koma þangað og hvað ekki,” sagði Haraldur Steinþórsson, varaformaöur BSRB, í samtali við DV, aðspurður um álit sitt á ákvörðun Kennarasam- bandsins að setja aöeins hluta af þeim peningum sem fengust frá Norræna kennarasambandinu í verkfallssjóð BSRB. „I haust kom hingað framkvæmda- stjóri Norræna verkalýðssambands- ins. Þegar hann hafði kynnt sér málin sendi hann bréf til fjölmargra félaga á Norðurlöndum og óskaði eftir aöstoð fyrir okkar hönd. Við fengum heilmikið fé þannig frá mörgum samtökum og það fé var sent beint inn á gíróreikning BSRB. Þess utan fengu einhver sam- bönd hér heima f járstuðning beint. Við vissum ekkert meira um þær sending- ar, nema það sem kom til okkar,” sagðiHaraldurSteinþórsson. -KÞ AFV0PNUN í MEXÍKÓ — Haraldur og Sigríður Dúna á ráðstef nu sextfu þjóða Tveir þingmenn fóru nýlega á ráðstefnu suður í Mexíkó City. Þessi mynd var tekin er annar þingmaöur- inn Sigriður Dúna Kristmundsdóttir (K) flutti ræðu. Hinn þingmaðurinn Haraldur Olafsson (F) hlýðir hérá. Að sögn þeirra Haraldar og Sigríðar Dúnu var þetta stórmerkilegur fundur. Um- ræðuefnið var afvopnun. Töluverö spenna ríkti á ráðstefnunni en þarna voru fulltrúar sextíu þjóða saman- komnir eða heimurinn í hnotskum. Islensku þingmennirnir kynntu nýsamþykkta afvopnunartillögu allra ísl. þingflokkanna. Hún vakti athygli ráðstefnufulltrúa. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.