Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 7. JUNI1985.
5
FISKVERKUNARFÓLK VILL
26% BYRJUNARHÆKKUN
Ekki bjartsýnn á samninga, segir Magnús Gunnarsson
Sérkröfur fiskverkunarfólks um
launahækkanir fela í sér yfir 40
prósent hækkun á næsta samnings-
tímabili. Launakröfurnar eru um 17
prósent yfir tilboði VSI. Samkvæmt
sérkröfum fiskverkunarfólks ættu
launin aö hækka um 26 prósent strax
1. júní, miðað við tilboð VSI, í stað
rúmlega 7 prósenta eins og gert er
ráð fyrir í VSl-tilboðinu.
I þeim viðræðum, sem undanfarið
hafa staöið milli landssambanda
innan ASI og VSI, hefur fisk-
verkunarfólk og verkalýðsfélagiö
Dagsbrún sett fram kröfur um
umframhækkanir. Fiskverkunarfólk
vill að greiddar verði 25 kr. á hvem
unninn tima. Þessi krafa felur í sér
allt að 20 prósent hækkun umfram
tilboö VSI. Iðnverkafólk hefur einnig
lagt fram hliðstæöa kröfu og fisk-
verkunarfólk. Hjá Dagsbrún hafa
verið lagðar fram útfærðar kröfur
um leiðréttingar á töxtum einstakra
hópa innan félagsins.
„Þetta er í sumum tilfellum
verulega umfram okkar tilboö og ég
sé ekki hvemig hægt verður að verða
við þessu,” segir Magnús Gunnars-
son, framkvæmdastjóri VSI.
Aðspurður hvernig hann meti
samningslíkur eftir að hafa setið
fundi með landssamböndunum segir
hann. „Eg er ekki beint bjartsýnn á
að það náist samkomulag.”
Hann bendir á að kröfur hafi
komið um sjálfvirka vísitölu og
sérkröfur sem em töluvert umfram
tilboð VSI.
• Þá hefur einnig komið fram að
landssamböndin hafa mismunandi
afstöðu til sérstakrar hækkunar til
þeirra sem hafa lægstu taxtana.
Það eru sambönd iðnaðarmanna
sem haf a sett sig á móti þeim. Ástæð-
an er sú að nær enginn félagsmanna
þeirra fengi þessar hækkanir. Þeir
vilja að 24% hækkun komi til allra. I
verkamannasamböndunum fá allir
þessi 24 prósent. Aður hefur verið
bent á að iðnaðrmenn hafi þegar
fengið þessar hækkanir í sérsamn-
ingumívetur.
APH
Ríkið og BSRB:
ÍGÓDUAND-
RÚMSLOFTI
Viðræður ríkisins og BSRB hafa
staðið yfir í tvo daga og munu halda
áfram í dag. Enn hefur ekki verið rætt
efnislega um kaupmáttartrygginguna
sem BSRB lagöi fram í samráöi viö
ASI.
Hins vegar hefur verið unnið í starfs-
hópum þar sem önnur atriði umræðu-
grundvaliar BSRB hafa verið rædd. Þar
er fyrst og fremst um að ræða breyt-
ingar á launastiga BSRB í samræmi
við launastiga BHM og einnig aö gerðir
verði sérsamningar við félög innan
BSRB. Krafa BSRB gengur út á það
að slíkir samningar verði gerðir áður
en gengiö verður frá heildarsamning-
um.
Launamunur er á milli háskóla-
manna og aðildarfélaga í BSRB eftir
að kjaradómur dæmdi í máli þeirra
fyrmefndu. Hins vegar hefur komið í
ljós, eftir aö háskólamönnum var
raöað í launakerfi Starfsmannafélags
Reykjavíkur, að þeir eru með 8 til 9
prósent hærri laun en aðrir í f élaginu.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, segir að enn sé engin niöur-
staða í þessum viðræðum en þær hafi
fariðframí góöuandrúmnslofti. APH
Dekkjamálið íHæstarétti
Alltaðfjórtán
mánaðafangelsi
Dómur var kveðinn upp í dekkja-
málinu svokallaða í Hæstarétti í gær.
Var umboðsmaðurinn dæmdur í 14
mánaða fangelsi en starfsmenn í 14
mánaöa og 10 mánaða fangelsi, sá
þriðji í sex mánaöa fangelsi, þar af 3
mánaða skilorðsbundið, og sá fjórði í 5
mánaða fangelsi, þar af 3 mánaða skil-
orðsbundið. Þá var mönnunum gert að
greiða dómsmálaráðuneytinu í Banda-
ríkjunum skaðabætur i islenskum
krónum með vöxtum. I undirrétti voru
mennimir dæmdir til skaðabóta i doll-
urum.
Fjórir mannanna sem hlutu dóm
voru á sínum tíma starf smenn varnar-
liðsins, hinn fimmti var dekkjaum-
boðsmaður. Á árunum 1976—78 seldi
umboðsmaðurinn tæplega sjö þúsund
hjólbarða til varnarliðsins en athenti
aðeins hluta af þeim. Fölsuðu starfs-
mennirnir birgðabókhaldið og héldu
eftir hagnaðinum. -EHÞ
Landsþing:
Nútímakonur
á ísafirði
Landssamband sjálfstæðiskvenna
heldur 15. landsþing sitt á Isafirði nú
umhelgina.
Munu tæplega eitt hundrað sjálf-
stæðiskonur sitja þingið. Sjálfstæðis-
kvennafélag Isafjarðar hefur annast
undirbúning.
Aðalmál þingsins verða fjórir fyrir-
lestrar um nútímakonuna, heima og
heiman. Fyrirlesarar verða Esther
Guömundsdóttir, Geirþrúður Charles-
dóttir, Oddrún Kristjánsdóttir og
Ragnheiður Olafsdóttir. Formaður LS
er Halldóra J. Rafnar blaðamaöur. Að
loknum þingstörfum verða sýningar
skoöaðarogbærinn. -ÞG.
Landssamtök hjartasjúklinga:
Safna fé til tækjakaupa
„Það eru um þrjár og hálf milljón
sem viö þurfum að safna,” sagði
Ingólfur Viktorsson, formaður Lands-
samtaka hjartasjúklinga. Nú um
helgina standa samtökin fyrir
merkjasölu til fjáröflunar til tækja-
kaupa fyrir hjartaskurðdeild sem opna
á viö Landsspítalann á næsta ári.
„Tæki sambærileg þeim sem við ætl-
um að kaupa eru til í flestum löndum
Evrópu, en hingaö til hafa Islendingar
þurft að fara til útlanda í hjartaskurð-
aðgerðir. Það er mikið álag fyrir veikt
fólk að fara í slík ferðalög auk þess
sem þau eru mjög kostnaðarsöm,”
sagöi Ingólfur.
I samtökum hjartasjúklinga eru nú
um 500 f élagar sem f lestir hafa gengist
undir hjartaskurðaðgerðiur. Á sl. ári
fóru um 180 manns í hjarta og lungna-
aðgeröir, flestir til Englands.
SJ
Tökum á...
tælun vantar!
FIAIJOFLUN 7. OC, S. fONt
tíf fyrír
vtcmanfega
hj<t rlaskurtídeíki J x i ndvp ita bns
James
Bond í
Bíóhöllina
Fulltrúi UIP dreifingarfyrirtækis-
ins, sem staddur er hér á landi, ákvað í
fyrradag að Bíóhöllin fengi ,,A View
to a Kill”, nýju James Bond myndina,
til sýningar. Verður myndin sýnd hér á
landi í lok þessa mánaöar.
Fulltrúinn, Mike Macclesfield, kom
hingað til Iands um síðustu helgi og
hefur skoðað kvikmyndahúsin í höfuð-
borginni, m.a. til að ákveða hvaða hús
fengi myndina til sýningar. Fyrirtækið
sér um dreifingu fyrir Paramount,
MGM—UA og Universal. Hafa Há-
skólabíó, Laugarásbíó og Bíóhöllin orð-
iö fyrir vaUnu tU að sýna myndir frá
þessum f yrirtækjum.
-EH.
17 Tökumflesia
1 atóð á Sobaru
,atr\ð\.
,bCsemverðu
LUdV!feVr'örV99lsi
Fætri fá en vilja.
Subaru fer sigurför um heiminn
INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.