Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Page 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 7. JUNl 1985.
/MI^
-///mm
BIIALEIGA
REYKJAVÍK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUDÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPNAFJÖRDUR:
SEYÐISFJÖRDUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR.
HÖFN HORNAFIRDI
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
Vélastillingar
HjólastUlingar
Ljósastillingar
Smurþjónusta
Almennar viðgeröir.
Hemlaviðgerðir.
Borðinn hf
SMIÐJUVEGI 24 SÍMI 72540
Takkasími m/skífuvali
og 10-númera minni.
Vegghulstur og kló
innifalið í verði.
1.700,- kr.
RRFEInu SF
Síðumúla 4,
s. 91-687870
5 metra framlengingar-
dós á 590.- kr.
Höfum einnig síma -
tengla og -klær fyrir-
liggjandi á lager.
Útsölustaðir um allt
land.
Sendum í póstkröfu.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
TÆMIÐ R0TÞRÓNA
Mengunarvarnir Hollustu-
vemdar ríkisins hafa gefið út bsekl-
ing með leiðbeiningum og upp-
lýsingum um rotþrær. Þar kemur
meðal annars fram aö algengur mis-
skilningur er hér á landi varðandi
losun þrónna. Margir telji aö rotþró
þurfi aldrei að tæma en ef svo er ekki
gert safnast fyrir úrgangur sem ekki
rotnar, truflar virkni hennar og gerir
þróna að lokum óvirka. Miðaö viö
venjulegar stærðir á rotþróm ætti að
tæma þær minnst á tveggja ára
fresti, reynslan á hverjum stað getur
þó leitt í ljós þörf á örari tæmingu.
Hentugustu tækin við slíka tæmingu
eru svonefndar haugsugur og rétt aö
hafa samband við heilbrigðisfulltrúa
á hverjum stað um förgunina.
Rotþró er eitt af þvi nauðsyn-
legasta og fyrsta sem athuga þarf
við byggingu sumarbústaðar. Stað-
setningin er mikilvægt atriöi og mjög
háð staöháttum á hverjum stað.
Engin takmörk eru fyrir því hversu
langt frá íbúðarhúsi rotþró má vera
en ekki ætti að setja hana nær húsinu
en 5—10 metra. Um fjariægð frá
vatnsbólum skal hafa samráð við
heilbrígöisfulltrúa staöarins. Rotþró
má aldrei vera minni en 1500 1 en að
ööru leyti fer stærðin eftir f jölda ibúa
að meðaltali yfir dvalartímann.
Fyrir sumarbústaöi meö til dæmis
fjóra ibúa er minnsta stærö nægjan-
leg og taliö er nauðsynlegt að byggja
ekki minni rotþró en 3000 1 við
íbúöarhús.
Rotþrær er hægt að kaupa til-
búnar til notkunar en fyrir þá sem
vilja byggja eða hanna þannig
hreinsivirki er rétt að benda á aö
þriggja hólfa rotþrær starfa mun
betur en þrær meö færri hólfum.
Erlendis hafa verið gerðar miklar
athuganir á virkni rotþróa og styöja
niöurstöður þeirra yfirburði þriggja
hólfa kerfisins.
Allar frekari leiöbeiningar, upp-
lýsingar og bæklinginn sjálfan er
hægt að fá hjá Hollustuvemd ríkisins
og heilbrigðisfuUtrúum víða um
land.
baj
Raddir neytenda
„í lagi að borga eitthvað, en... ”
DÝR BARNA-
GÆSLA A NESINU
Kona af Nestnu hrlngdl:
„Við erum hérna saman komnar
nokkrar af Nesinu og finnst orðið
heldur dýrt að senda börnin á gæslu-
völl í sinni heimabyggð. Það er miklu
dýrara héma á Nesinu heldur en í
nágrannabyggðunum. Núna kostar
55 krónur héma að setja bam á
gæsluvöll, þannig að ef barnið viU
fara bæði fyrir og eftir hádegi eru
það 110 krónur. Þaö geta alUr séð að
þetta er mikUl peningur fyrir fólk
sem er tU dæmis með fleiri en eitt
barn á þessum aldri. Og á Nesinu er
enginn annar vöUur sem ekki þarf að
borga jafnmikið inn á, því veriö er að
breyta VallarbrautarveiU í sama
horf. Ef þetta er helmingi hærra en í
nágrannasveitum finnst okkur þeir
vera farnir aö færa sig heldur upp á
skaftiö hérna. Okkur finnst í lagi að
borga eitthvað en þetta er of mikiö.
Þarna em engar menntaöar fóstmr
heldur nokkrar konur og stelpur úr
ungUngavinnu. I bæjarfélögunum i
kring er þessi þjónusta annaðhvort
ókeypis eða gjaldið er i mesta lagi tíu
krónur. Svo er okkur sagt að þetta
séu skattfríar tekjur — ekki gefnar
kvittanir við greiðslu heldur borgað
yfir girðinguna.
Haft var samband við Jón Tynes
hjá Seltjamarneskaupstaö og sagöi
hann þetta nokkuð aöra þjónustu en
á venjulegum gæsluvöllum. Inni-
aðstaða væri fyrir hendi og ábyrgð
tekin á bömunum þannig að for-
eldrar þyrftu ekki að dvelja heima
við meðan barniö væri i gæslu heldur
gætu fariö að sinna öðru.
Þegar Neytendasíðan grennslaðist
fyrir um sambærUega þjónustu í
öðrum bæjarfélögum í kring kom í
ljós að ókeypis er inn á þá veUi sem
ekki geta veitt aðstöðu til innivem en
á þeim sem þá þjónustu veita er
gjaldiðtíu krónur. baj
Upplýsingaseðill
til samanbuiðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyIdu af sömu stærð og vðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda .
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
Kostnaður í maí 1985.
i Matur og hreinlætisvörur kr.-
i Annað kr.
j Alls kr.
! irra
Nauðsynlegt er að gœta ýtrasta hreinlsstis i meðferð matvara.
Meðferð kjöt-
vöru í verslun
I flestum tilfellum er matvöru-
verslunin síðasti áfangastaður kjöt-
vörunnar áöur en hún er fengin neyt-
andanum í hendur. Neytandinn sér
hvernig umgengnin er í búðinni
sjálfri, en í flestum tilfeUum sér
hann ekki hvernig aöstaðan er baka
til þar sem oft á sér stað hökkun, sög-
un, pökkun og geymsla kjöts.
AUt sem viökemur meðferð kjöts-
ins i matvöruversluninni, hvort
sem um vinnslu (sögun, hökkun),
geymslu (kæU, frysti) eöa pökkun
(yfirleitt plastumbúðir) er að ræða,
hefur áhrif á endanleg gæði og
endanlegt geymsluþol vörunnar.
Þess vegna er nauðsynlegt fyrir
þann sem sér um þessa þætti að vera
sér meðvitaður um hversu lítið má út
af bera til þess að bæði gæði og
geymsluþol vörunnar verði ekki í
samræmi við það sem neytandinn
heldur að hann sé að kaupa.
Hreinlæti
Við meðferð á kjöti er hreinlæti
númer eitt, tvö og þrjú. Þessi þáttur
virðist oft vera ansi takmarkaður
vegna þess að fólk sem vinnur við
hreinsun áhalda hefur oft á tíðum
ekki fengiö neina fræðslu frá sinum
yfirmönnum um nauðsyn þess
að hreinsa vélar, hnífa, bretti og ann-
að sem snertir þessa hlið mála mjög
vandlega.
Geymsluþol og gæði kjötsins byggj-
ast að mestum hluta á því hversu vel
ÖU áhöld eru hreinsuð. Mjög slæmt er
að sprauta heitu vatni á vélarnar
vegna þess að það fer aðeins það
lausasta af en en hitt situr eftir. Auk
þess hitar gufan upp loftiö sem hrað-
ar vexti gerla í hráefni eða unninni
vöru.
Nauðsynlegt er að hreinsa áhöld og
vélar eftir hverja notkun í vöskunum
í stað þess, eins og oft sést, að
hreinsa ekki fyrr en eftir marga
klukkutíma. Kjötið situr því á
áhöldunum mjög lengi, hitastigið,
sem er vel yfir 10—15°C, gerir það að
verkum að vaxtarskilyrði fyrir ör-
verur eru mjög góð. A þennan hátt
smitast kjötvörur auðveldlega. Per-
sónulegt hreinlæti þarf einnig að
vera mjög gott og mikUvægt er að að-
staða fyrir starfsfólk sé eins góð og
hægter.
Pökkun
Yfirleitt er vörunni pakkað í plast-
umbúöir til geymslu í kæU eða frysti
sem neytandinn getur tekið með
sjálfsafgreiðslu úr kælinum eða
frystinum.
Nauðsynlegt er fyrir þá sem sjá
um pökkun á kjötvörum aö vita að
alls ekki er sama í hvemig plastum-
búðir varan er sett. Plastfilman
fræga gefur enga vöm til þess að
halda við geymslu- og gæðaþoU
vegna þess aö raki úr kjötvörunum
tapast auðveldlega úr þeim, þannig
að kjötvaran þornar. Plastfilma er
mjög stökk og viökvæm þegar hún er
höfð utan um vöru sem geyma á í
-MATUR0G
H0LLUSTA-
Gunnar Kristinsson
matvælafræðingur
skrifar
frysti, hún ver ekki gegn rakatapi
auk þess sem mengun frá höndum
sem eru að leita að vörum í frysti-
kistunni berst í gegnum þessi göt.
Best er að nota tvöfalt plast sem
ekki hleypir raka burt og þolir tölu-
vert hnjask. Bestar em þó lofttæmd-
ar pakkningar. Hins vegar skal gæta
vel að því að vöru, sem pakkað hefur
verið í lofttæmdar umbúðir, á eftir
sem áður aö geyma í kulda (kæU,
frysti eftir því sem við á).
Kæli- og frystiaöstaða
KæUr, hvort sem um er að ræða
kjötborð eða kæli sem geymir unnar
kjötvörur, á að vera með hitastig frá
0 — 4°C og hafa hitamæla sem bæði
verslunarfólk og neytendur geta séð.
Frystar eiga ekki aö vera undir —20°
C og mælar eiga að vera til staðar.
Kjöt á ekki að geyma á brettum yfir
frysti á kistunum vegna þess aö þar
er hitastigið um það bil það sama og í
versluninni s jálfri.
Mikilvægt er að kjötfars og kjöt-
hakk sé ekki selt úr kjötborði nema
þann dag sem það er framleitt. Þetta
er mjög viðkvæm vara, geymsluþol-
ið er mjög lítið og gagnvart neytand-
anum er það vanvirðing að selja hon-
um eldra kjötfars. Á sama hátt er
hakk mjög viðkvæm vara. Hana á
heldur ekki að selja nema sama dag
og hún er f ramleidd.
Neytandinn
Þvi miöur er neytandinn oft á tíð-
um varnarlaus gagnvart versluninni
og verður að treysta því að þeir sem
sjá um kjötið geri það á sem bestan
hátt. Þess vegna er mjög mikilvægt
að fóUc sé sér sem best meðvitað um
hreinlæti þaö sem þarf aö viðhafa i
sambandi við kjöt og raunar alla
matvöru.
IU meöferð kjötsins i versluninni
sem felst í lélegri geymslu, bæði í
kæli- og frystigeymslum, sölu á
gömlu hakki og farsi og lélegum um-
búðum, bendir aöeins tU þess að virö-
ingin fyrir neytandanum sé engin.
Peningasjónarmið sé orðið ofar því
hlutverki sem verslunin á að gegna
sem þjónusta viö neytendur.