Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Qupperneq 9
DV. FÖSTUDAGUR 7. JÚNI1985.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Shultz tómhentur í Estoril:
Geir hótaði aðgerðum
„Það var alltof lítið sem Shultz gat
sagt okkur, því miður,” sagði Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra i gær-
kvöldi. Hann ræddi við George Shultz
utanríkisráðherra á NATO—fimdi í
Estoril um Rainbow Navigation —
málið. Vonast hafði verið til að Shultz
gæti borið Islendingum þau tíðindi að
. málið væri að leysast.
„Við urðum fyrir vonbrigðum. Hann
sagðist ætla að hafa samband við okk-
ur áður en mánuðurinn er liðinn. Þeir
telja sig verða að leggja þetta fyrir
þingið. Það þarf lagabreytingu,” sagði
Geir.
„Við tjáðum honum að þetta væru
okkur vonbrigði. Við gætum ekki beðið
öllu lengur aðgerðalausir. Ég ræði
þetta nánar í ríkisstjóminni þegar ég
kemheim.”
Geir vildi ekki segja hvaða aðgerð-
um Islendingar hefðu hótað. En hann
vildi ekki kannast við að Islendingar
hefðu sagt að málið myndi varða stöðu
herstöðvar Bandarikjamanna í Kefla-
vík.
Sjávarmálaritið Seatrade hefur hins
vegar eftir embættismönnum hjá
bandaríska utanrikisráðuneytinu að
vandamálið geti haft áhrif á stöðu
Keflavíkurstöðvarinnar. Embættis-
mennirnir eiga að hafa sagt þetta í
svari til bandarískra þingmanna sem
mótmæltu því að „utanríkisráðuneyt-
ið, vamarmálaráðuneytið og yfir-
stjóm skipamála hafi beygt sig fyrir
þrýstingi frá ríkisstjóm Islands varð-
andi flutning bandariskra hergagna til
stöðvar okkar í Keflavík, Islandi.”
Það voru 15 meðlimir þingnefndar
sem fjallar um málið sem skrifuðu
undir bréfið. Þvi má telja víst að sér-
staklega erfitt verði fyrir utanríkis-
ráðuneytiö að þrýsta í gegn lagabreyt-
ingu fyrir Islendinga.
Haft er eftir Hans G. Andersen,
sendiherra Islands í Washington, að til
sé hugsanleg lausn: aö fá Rainbow
Navigation aöra gróðavænlega flutn-
inga, svo sem flutninga á kaffi frá
Hondúras.
s 1
Shultz haföi fátt að bjóða tslendingum vegna herflutninga varnarliðsins ó' fundinum með Geir i Estoril í gœr.
Von Bulow-
málið komið
á lokastig
Þótt Klaus von Bulow hafi „haldið
framhjá eiginkonu sinni og dregið ást-
konu sína á asnaey runum, reyndi hann
aldrei að myröa konu sína. Þaö er af
sjálfrar hennar völdum að hún er án
ráös eða rænu í dag,” sagði verjandi
von Bulows fyrir rétti í gær þar sem
líður nú að lokum máls er mikla at-
hygli hefur vakið.
Verjandinn hélt þvi fram aö von Bul-
ow hefði þrivegis reynt að bjarga lifi
eiginkonu sinnar og hefði aldrei
sprautað í hana insúlín-skömmtum
eins og honum er gefið að sök.
Lögmaöur von Bulows sagði i varn-
arræöunni og það væri ekki fögur mynd
sem dregin væri upp af honum, m.a. í
vitnisburði ástkonu hans, en mann-
eskjumar væru breyskar. Bað hann
kviðdóminn að láta ekki breyskleika
von Bulows binda sig til aö dæma hann
saklausan fyrir morð.
Þetta er í annað sinn sem Bulow-
málið er fyrir rétti. Böm eiginkonu
hans kærðu hann fyrir tilraun til að
myrða konuna sem var sykursjúkling-
ur og veikluð af notkun vímuefna.
Klaus var dæmdur 1982 í 30 ára fang-
elsi, en við áfrýjun var dómnum
hnekkt. Klaus von Bulow var að nýju
ákæröur þegar ákæruvaldið taldi sig
geta lagt fram áður ófundnar sannanir
gegn honum.
Verjandinn byggir vörnina á vitnis-
buröum lækna, sem segja, aö ástand
Von Bulow lætur ekki ó sór sjó þó
hann kunni afl eiga langa fangelsis-
vist fyrir höndum.
eiginkonu Bulows stafi af ofnotkun
áfengis og lyf ja. Visar hann til fyrri til-
vika þess að eiginkonan missti ráð og
rænu og von Bulow kvaddi til lækna í
tæka tið til þess aö bjarga henni. Meðal
annars i desember 1980 þegar konan
hafði tekið of stóran skammt svefn-
lyfja.
Telja sig hafa fund-
ið gröf Mengeles
Brasiliska lögreglan telur sig hafa
fundið líkið af „Engli dauðans”, Josef
Mengele, dysjað í fjallshlíð við bæinn
Embu. — Segist hún 90% viss um, að
þetta séu líkamsleifar Mengele, sem
eftirlýstur hefur verið fyrir stríðs-
glæpi vegna hryllilegra tilrauna og
drápa á 400 þúsund gyðingum i Ausch-
witz-fangabúðunum.
A leiöinu, þar sem Mengele er sagð-
ur hafa veriö grafinn, stóö áletrað aö
þar hvíldi Wolfgang Gerhard, sem
drukknað hefði 1979. — Lögreglan von-
ast til þess aö geta gengið endanlega úr
skugga um hvort þar hafi i staöinn
hvílt Mengele, með því að bera saman
tennur liksins við skýrslur um tennur
Mengele.
Nasistaveiðaramir Simon Wishen-
thal og Serge Klarsfeld segjast vissir
um að Mengele sé enn á lífi og að kvitt-
inum um dauöa hans hafi verið komiö
á kreik til þess að villa um fyrir eftir-
leitarmönnum. — „Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem á kreik hafa komist
sögur um að Mengele sé dauöur,”
sagöi Wisenthal við blaöamenn vegna
fréttarinnar frá Brasilíu.
Vestur-þýskir, ísraelskir og banda-
rískir rannsóknaraðilar eru lagöir af
stað til Brasiliu til þess að skoða lik-
amsleifamar, sem grafnar vom upp
vegna ábendingar frá v-þýsku lögregl-
unni. Leiddi hún brasilisku lögregluna
á spor austurriskra hjóna sem sögðu
|að maðurinn i gröf Gerhards hefði sagt
j— en nasistaveiðarar
halda að það sé
blekking til að leiða
þáaf slóðstríðs-
glæpamannsins
þeim 1972 aö hann væri Mengele. Hjón-
in, sem hafa búiö i Brasilíu i meir en 30
ár, segja að hinn raunverulegi Ger-
hard hafi kynnt þau fyrir manni er
kallaðist Pedro. — Brasilíska lögregl-
an telur að hinn sanni Gerhard hafi lát-
ist í Austurríki hálfu ári áöur en gröfin
í Embu var tekin.
Hugsanlegt þykir að Mengele hafi
búið i Brasiliu siöustu tíu árin. — Wies-
enthal heldur því fram aö Mengele hafi
sést í Paraguay í fyrra en þar hélt
'Mengele sig á sjöunda áratugnum.
Naut þjálfunar Búlgara og Tekka
Tyrkinn Agca, sem skaut á páfann
1981, sagði réttinum í gær, að austan-
tjaldsmenn hefðu kostað til þjálfunar
hans í Sýrlandi til hryðjuverka.
Agca er á sakabeldc með f jórum öðr-
um Tyrkjum og þrem Búlgörum sem
öllum er gefið aö sök að hafa tekið þátt
í samsærijim tilræði við páfann.
Hann sagði i gær að hann hefði notið
hryðjuverkaþjálfunar í hafnarbænum
Latakia í Sýrlandi 1977 ásamt fleiri fé-
lögum í „Gráúlfunum” (hægri öfga-
samtökum í Tyrklandi). — „Þaö voru
búlgarskir og tékkneskir sérfræðingar
semþjálfuðu okkur,” sagði Agca.
,,Eg veit þaö meö vissu að Sovétríkin
eru pólitfsk og f járhagsleg þungamiðja
alþjóðlegrar hryðjuverkastarfsemi,”
sagði Agca í vitnastúkunni.
Sagði hann að Italir, Frakkar, Spán-
verjar og Þjóðverjar hefðu verið á
meöal þeirra sem nutu þjálfunar i æf-
ingabúðunum i Sýrlandi.
Rétturinn leitar sannana fyrir því
hvort leyniþjónusta Búlgariu hafi leigt
Agca og fleiri Tyrki til þess að ráða af
dögum hinn pólskættaða páfa. En að
baki leyniþjónustu Búlgaríu stendur
leyniþjónusta Sovétríkjanna.
Sækjandinn i málinu hélt því fram i
skýrslu i fyrra að tilræðið við páfann
hefði veriö liður i samsæri til aö veikja
hin óháöu verkalýössamtök Póllands,
en páfinn studdi þau. — I júli 1983 sagði
Agca fréttamönnum að KGB-lögreglan
sovéska hefði þjálfað hann, en samtím-
is sagði hann aö Sovétríkin stæðu ekki i
neinu beinu sambandi við hryðju-
verkaöfl á Vesturlöndum.
Sovétrikin og Búlgaría hafa bæöi
boríö á móti þvi að hafa átt nokkurn
hlut að tilræðinu við páfann og halda
þvi fram að ekki sé unnt að reiða sig á
vitnisburðAgca.
f ÍÍ'XÍP
að taka að sér hlutverk Hafréttarráö-
stefnu Sameinuöu þjóðanna.
Tass sakaði Bandaríkjamenn um
þaö sama þegar þeir undirrituðu
samning við sjö vestrænar þjóðir um
nýtingu hafsins án tillits til hafréttar-
sáttmálans sem flestar aðrar þjóðir
hafa samþykkt.
„Areyoua
stickertoo?”
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Breta, sýndi á sér nýja hllð þeg-
ar út kom bók með ljóðl eftir hana. I
bókinnl eru ljóð eftlr ýmsa aðila, sem
ekkl var endllega vitað að væru mlkil
skáld.
Ljóð Thatchers er svona á ensku:
„It’s easy enough to be a starter, but
are you a sticker too? It’s easy enough
to begin a job, it’s harder to see it
through.”
Þetta þarf ekki að þýða.
Ribbaláalæti
Ungverskir knattqjyrauaðdáendur
fóru með miklum óspektum og látum
eftir leik knattspymuliða um síðustu
helgi í Búdapest. Ribbaldarnir eyði-
lögðu tvo sporvagna í borginni eftir að
liðið Tatabanya hafði tapað fyrir
Ferencvaros.
Ungversk blöð tóku mjög harða af-
stöðu gegn óeirðunum í Brussel þar
sem 38 manns dóu á leik Liverpool og
Juventus. Blöðin hafa nú lagt að yfir-
voldum að herða öiyggisgæsiu á ung-
verskum leikvöngum.
Ræða hátækni
Iönaöarráðherrar Evrópu-
bandalagsins rsða nú i Lúxemborg
um hvernlg Evrópulönd banda-
lagsins geta aukiö tækniaöstoð sfn
á milli. Taliö er vist aö ráöherr-
arnir muni ræöa um hina frönsku
.JEureka” áætlun. Sú áætlun miðar
aö því aö þróa hátócniiðnaö í
Evrópu, aDt frá raförtækni til há-
þróaðra sjónglerja og róbota.
Heidemannmeð
milljónir?
Fréttamaðurinn sem útvegaði
þýska blaðinu Stern falsaöar
Hitlerdagbækur kann að hafa tekið
sjálfur peningana sem Stern borg-
aði fyrir dagbækumar, að sögn
saksóknara í málinu. Gerd Heide-
mann, fyrrum yfirfréttamaður
Stem, og Konrad Kujau, sem safn-
ar hlutum tengdum nasistum, eru
ákæröir fyrir aö hafa falsaö dag-
bækumar og selt þær fyrir sem
svarar 120 milijónum fslenskra
króna.
Saksóknari heldur nú lokaræður
sínar. Líklega verður kveðinn upp
dómur í málinu fyrir mánaðarlok-
in.
Hægtfer
Cousteau
Sjókönnuðnum franska Jacques
Cousteau gengur nú háifiiia að
koma sér yfir Atlantshafið á bát
sem gengur fyrir nýrri tegund
vélarorku: vindi. Bátur þessa 74
ára gamla sæfara er með tveimur
„strompum” sem eru þannig gerö-
ir að þeir sjúga inn vind, sem síðan
knýr skrúfur bátsins.
En undanfarið hefur verið svo
mflrið logn að Cousteau hefur orðið
að notast við ósköp venjulega
innanborðsvél til að fleyta sér
áfram. Hann lagöi af staö frá
Frakklandi, og vonast til að kom-
ast til Bermúda rétt eftir helgina.
Þaðan ætlar hann til New Yoric.
Hann fór í svipaða ferö árið 1983, en
hún mistókst.
Milljónirfyrir
Kiribati?
Sovétríkin hafa boðið hinu örlitla
eyríki Kiribati 60 milljónir króna í
reiðufé fyrir réttindi til fiskveiða i
iandhelgi Kiribati. Yflrvöld á
eyjunni hafa enn ekki ákveðið
hvort þau eigi að taka tilboðinu.
Samkvæmt tillögum Sovétmanna
myndu 16 sovésk skip fá að veiða i
fimm milljón ferkílómetra land-
heigi Kiribati, upp að 12 milna lög-
sögu rflcisins.
Ástralir og Nýsjálendingar
fylgjast vel með viðskiptunum.
Þeir haf lítinn áhuga á að fá
sovéskan Ðota svo nálægt sinum
farvötnum.
Morðingigiftist
móðurinni
Morðingi tveggja ára gamaliar
telpu gifttst í gær móður telpunnar
sem hann myrti. Giftingin fór fram
í dómssainum nokkrum mínútum
áöur en hann var dæmdur i 15 ára
fangelsi fyrir morðið.
Aður haf ði komið f ram viö réttar-
höldin að maðurinn hefði kýlt og
sparkað í stúflcuna i ibúð sem hann
bjó i með móður hennar.