Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Blaðsíða 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 7. JUNl 1985. Útlönd Útlönd Utlönd Útlönd ff Alvörukosningar” í Ungverjalandi Ungverjar ganga til kosninga a laugardag og þær kosningar eru ein- stakar í sögu sósíalistaríkja Austur- Evrópu. Kjósendur fá ekki bara að kjósa, heldur líka aö velja. I fyrsta sinn er kosið á milli tvegg ja eða fleiri manna í öllum kjördæmum. Bæði eru þingkosningar og bæjar- stjómarkosningar. Ný lög kveða svo á að hvergi megi bara vera einn maður i framboði, eins og hefur tíðk- ast í Ungverjalandi eins og öðrum Austur-Evrópurík jum hingað til. Ungverskir embættismenn leggja strax áherslu á að hin nýju lög þýði ekki að lýðræði verði komið á á vest- ræna vísu. Þingið kemur saman að- eins i nokkra daga á ári og þá bara til að staðfesta lög sem þegar er búið að ákveöa og jafnvel setja í gildi. Allir frambjóðendur verða að vera sammála stefnumálum Þjóðarfylk- ingarinnar sem er fjöldahreyfing sem sér um kosningamar og kommúnistar stjóma. En þrátt fyrir það er það örlítið hænufet í átt til lýðræðis að gefa kjós- endum möguleika á því að velja á milli frambjóðenda. Embættismenn segja að þaö muni sérstaklega færa kjósendum svolítið vald hvað varðar ákvarðanatöku í málefnum bæjarfé- laga. Meiri staðbundin völd Hinir 7,8 milljónir kjósenda munu kjósa 352 þingmenn og um 45.000 bæjarráðsmenn. Samkvæmt endur- bótum á stjómsýslu munu bæja.ráð- in nú fá meiri völd en þau höfðu áður. Að auki hefur Þjóðarfylkingin til- nefnt 35 menn sem munu taka sætí á þingi án þess aö mótframboö komi fram gegn þeim. Hins vegar getur fólk ákveðið aö merk ja ekki við þá og komið þeim út af þingi þannig. Þess- ir menn eru háttsettir flokksmenn eins og Janos Kadar formaður, kirkjuleiðtogar og fulltrúar minni- hiutahópa og þjóöarbrota. Samkvæmt nýju lögunum tilnefndi Þjóðarfylkingin tvo frambjóðendur til að keppa um hvert sæti. Tilnefn- ingin fór fram á fundum milli 15. apríl og 15. maí. Fólk gat á fundun- um einnig tilnefnt aðra menn og ef þriðjungur fundarmanna samþykkti tilnefninguna þá komst aukamaður- inníframboö. Um ein og hálf milljón manna mætti á þessa fundi og 150.000 manns tóku til máis, aö sögn emb- ættismanna. Samt voru aukafram- bjóðendur samþykktir í einungis ein- um sjötta hluta þingkjördæmanna. Enn minni hluti bæjarstjórnarkosn- inganna verur haidinn með þriðja frambjóðanda. Pólverjar í sömu átt önnur sósíalistaríki leyfa fleiri en einum frambjóðanda að bjóða sig fram í einu kjördæmi. Það sem er nýtt í Ungver jalandi er að nú er hægt að velja á milli frambjóðenda í öllum kjördæmum. Pólska stjórnin hefur kynnt sams konar kerfi. Einn með- limur stjórnmálanefndarinnar, Gyorgy Aczel, sagði nýlega að eng- inn grundvallarmunur yrði á stefnu- málum frambjóðendanna. Hann var- aði við því að litið væri á þessar endurbætur sem skref í áttina til vestræns lýðræöisskipulags. Ung- verjaland vildi ekki láta menn halda að það væri að herma eftir Vestur- löndum. Þing Kommúnistaflokksins í mars ályktaöi að áfram yrði þeirri stefnu haldið að flokkurinn myndaði banda- lag með hópum og einstaklingum á meðan ljóst væri aö flokkurinn héldi leiöandi hlutverki sínu í mótun stefnumála. Janos Berecz, yfirmaö- ur áróðursmáia innan flokksins, sagði að flokkurinn vildi fá fleiri þjóðfélagshópa og samtök inn i ákvarðanatökuna. „Flokkurinn skilur það að í þjóðfé- laginu, sem hann leiðir, kunna mis- munandi hagsmunaaðilar að láta mismunandi samtök fara með mál sín. Astæðan fyrir þessu „bandalags- kerfi” er að samræma sjónarmið þessara samtaka og þátttöku þeirra i stjórnmálum,” sagði Berecz á kosn- ingafundi í síðasta mánuði. Efnahagsendurbætur Það er ekki bara í stjórnmálunum sem Ungverjar eru iðnir við endur- bætur. Það sama má segja um efna- hagsmál, enda eru lífskjör í Ung- verjalandi ólíkt skárri en í öðrum sósíalistarikjum. Þessar endurbætur í efnahagsmálum hafa leitt til þess að ákvaröanataka í verksmiðjum og í landbúnaði er í mjög auknum mæli í héraði en ekki í Búdapest. Frá og með þessu ári eru sérstök ráö fyrirtækja farin að kjósa sér stjómendur sem þýðir að þeir eru ekki lengur valdir af stjórninni I höf- uðborginni við Dóná. Takmörk Fyrir flesta kjósendur þýða endur- bætumar á stjómmálasviðinu það aö þeir geta nú valið meira hver fer með mál þeirra og hagsmuni þeirra i Búdapest. Fyrir flokkinn er það mikilvægast að geta með þessu móti veitt nýju blóði inn i flokkinn og fullvissað sig um það að þingmenn njóti i raun ein- hvers stuðnings heimamannanna, kjósenda sinna. Embættismenn segja að sumir staðbundnir virðingarmenn hafi hik- að viö að bjóða sig fram af ótta við að tapa kosningu. En takmörk breytinganna em greinileg. Þaö sást i apríl þegar tveimur andófsmönnum mistókst að fá sig kjöma i framboð. Þeir fengu að visu að tala og koma með tillögur sínar, en þeir segja aö stjómvöld hafi smalað stuðningsliði sínu á stað- inn og þannig komið í veg fyrir að þeir fengju framboð sín samþykkt. Nú geta hjónin Istvan og Katalin grænmatiskaupmenn akki bara varð- lagt kálið sitt að vild heldur lika kosið á milli frambjóðenda til þings og bæjarstjórnarinnar sinnar. DV-mynd ÞóG. Búist við kókaínf lóði f rá Ameríku til Vestur-Evrópu Fíkniefnasmygl, fikniefnaneysla og dauðsföll af ofneyslu færast í vöxt víða í Evrópu, og lönd, þar sem heróinneysla er oröin landlæg plága, búa sig undir holskeflu kókaínflóðs frá Bandarikjununum. „I Vestur-Evrópu hefur fjöldi eiturlyf jasjúklinga aukist hrikalega, jafnvel meðal mjög ungra, og um leið eykst dánartíðni vegna ofneyslu,” segir í skýrslu Alþjóða fikniefnaráðsins í Vínarborg (INCB). „Ástandiö vegna fíkniefna- smygls og neyslu í V-Evrópu er orðið ofboðslegt." INCB, sem starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna, segir að árlega látist af fflcniefnaneyslu um 1.500 manns í Vestur-Evrópu. Utanrfkisráðherra Italiu, Giulio Andreotti, lagði til í síðasta mánuöi, að baráttan gegn fíkniefnunum og skipulagöri glæpastarfsemi yrði formlega tekin inn á verkefnaskrá Efnahagsbandalags Evrópu. Fram hefur komið í skýrslum að í sumum Evrópulöndum haf i mönnum tekist aö halda eituriyf janotkuninni i skefjum og jafnvel snúa við þróun- inni í heróínneyslu sem fór að verða áberandi á sjöunda áratugnum. En þegar til allrar álfunnar er litiö sem heildar, þá hefur heróínneyslan aukist. Þjóðum, sem hafa fjárfest í menntun, löggæslu og fyrir- byggjandi aðgeröum, hefur helst orðið ágengt við að stemma stigu við aukningunni. Þessar smáu vonir þykja þó dauf- legar þegar horft er fram á hrikalegt kókaínflóö frá Bandaríkjunum þar sem markaðurinn, þótt stór sé, er orðinnyfirfullur. Ur) úr 1970 varð kókaín mikið tiskufíkniefni (sogið upp í nefið í gegnum strá eða rör). Hvíta duftið, sem gert er úr kókablööum i Suöur- Ameríku, var i upphafi taliö minna ávanabindandi en heróíniö og ekki eins hættulegt. Það var mjög dýrt í innkaupum og var um tíma orðið eins og hvert annað „stöðutákn” meðal fólks í skemmtiiðnaði og há- tekjumanna. En það hefur falliö i verði og notkun þess breiðst út niður eftir öllum tekjustigum. Enginn talar lengur um að það sé hættu- minna en heróín. Langtimanotkun leiðir til geðveiki, sjálfseyöilegging- arogsjálfsmorða. Breskur þingmaður, sir Edward Gardner, formaöur þingnefndar er fjallar um fikniefnamisnotkun, segir að sálfræðilegar afleiðingar af neyslu kókaíns séu erfiðari til lækningar en afleiöingar annarrar fíkniefnaneyslu. — David Mellor lög- reglumálaráðherra hefur lýst heróini og kókaíni sem „tvibura- systrum tortímingarinnar”. Nú þykir Ijóst að eiturlyfja- markaðurinn i Bandaríkjunum sé aö mettast, svo mjög hefur framboðið aukist, og blasir við aö fíkniefna- salamir leiti nýrra markaða í Vestur-Evrópu. Fikniefnayfirvöld kvíða því, ef ekki er skörulega brugöiö við hiö fyrsta, að Evrópa Þýskur kókaínnaytandi kemur sér i dýrðina. muni erfa eiturlyfjavandamál Ameriku á innan viö fimm árum. Skýrslur gefa til kynna að um tólf milljónir Bandaríkjamanna noti kókaín reglulega, og daglega gerist 5.000 manns i Bandaríkjunum háö kókaíni. Komið hafa fram kröfur um að beita fikniefnasala harðari viður- lögum og beita hemum til þess að hafa eftirlit með helstu smygl- gáttum. Jafnframt hefur vaknaö umræða um að í fésýslu verði gerðar ráðstafanir til þess að torvelda eitur- efnakóngum að koma illa fengnum gróða sínum inn í almenna peninga- veltu. Síðast en ekki síst þykir brýnt að efla fræðslu og áróður gegn neysl- unni. Bretar eiga þegar við ærinn vanda aö stríða vegna heróínneyslunnar. Fjöldi heróínsjúklinga jókst um 25% á árinu 1984, eða upp í 12.250, á opin- berum skrám. Þó telja menn aö raunverulegur f jöldi þeirra sé á milli fimm til tíu sinnum meiri en þessar tölurgefatilkynna. Yfirmenn lögreglunnar i Bretlandi vil ja aö sett veröi á laggimar sérstök allsherjar ffkniefnadeild með sér- þjálfuðum úrvalsmönnum til að berjast við heróín- og kókain- smyglið. Væntanleg er með haustinu ný lagasetning, sem felur í sér strangari viðurlög, eins og t.d. lífs- tíðarfangelsi fyrir „stórkaupmenn” á eiturlyf jamarkaðnum. I Vestur-Þýskalandi virðist strang- ari refsilöggjöf, sem kom 1980, hafa dregið eitthvað úr heróínvandanum. Dauðsföllum af ofneyslu, sem flest vom orðin 823 árið 1979, fækkaði niður í 361 í fyrra úr 472 árið 1983. Lögreglan hefur oröið vör viö aö kókaíninnflutningur hefur aukist á síöustu tveim árum. Frakkland, sem hefur þrefaldað mannafla i fíkniefnadeild lög- reglunnar síðan 1981, viröist hafa komiö í veg fyrir almenna aukningu fíknie&ianeyslu. Yfirmaður sam- ræmingamefndar hinna ýmsu lög- regludeilda, er fikniefni láta til sin taka, telur að fjöldi eiturlyfja- sjúklinga hafi staðið i staö i fyrra, eða eitthvað milli 40 þúsund og 70 þúsund. Þó hefur kókaínneytendum f jölgað. — Eitt þykir Frökkum gleöi- efni varðandi fíkniefnaneysluna, og þaö er að meðalaldur eiturlyfja- sjúklinga hefur hækkað upp í 24 ár, sem þýðir aö færri skólaböm láta ánetjast. A Italiu þykir bera á þvi aö æ meira af heróíninu, sem sikileyska mafían framleiðir fyrir Bandaríkja- markað, kemst i umferð á strætum stórborga Italíu. Dauösföllum af ofneyslu fjölgaði um 50% eöa upp í 390 á síðasta ári. Tuttugu Italir voru handteknir í febrúar I vetur fyrir smygl á kókaíni frá Kólombíu, en annars hefur Italía, eins og Spánn, að mestu sloppið viö kókainið ennþá. I Madrid kostar kókaínið ekki nema 40 dollara grammið, en það er samt of dýrt fyrir flesta, svo að kannabisefnin eru í fyrsta sæti fíkniefna á Spáni. Fíkniefnalögregla Spánar einbeitir sér að þvi aö halda heróinneyslunni i skef jum. Þar eru taldir vera um 100 þúsund vanabundnir neytendur og eru heróínsjúklingar mjög bendlaöir viö glæpi götunnar, sem hefur fjölg- að á siöari árum. I Amsterdam, sem lengi var kölluð höfuðborg fíkniefna Evrópu, á meðan umburöarlyndið rikti þar í af- stöðu yfirvalda, þykir vandinn heldur hafa minnkaö síðan hert var á eftirliti. Einkanlega fækkar hinum yngstusemánetjast. I Svíþjóð þykja kannanir gefa til kynna aö fjöldi eiturlyfjaneytenda hafi staðið i stað síðan 1979. Umsjón: GuðmundurPétursson ogÞórirGuðmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.