Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Page 11
DV. FÖSTUDAGUR 7. JUNI1985.
11
Fóstrur óánægðar með laun og aðbúnað:
Rúmlega 1600 böm
bíða eftir dagvistun
— borgarst jóra af hent mótmæli
Vegna lágra launa og mikils vinnu- Þessar upplýsingar komu fram á þess að loka þyrfti einhverjum deild-
álags er mikil hreyfing á starfsfólki í fundi sem Fóstrufélag Islands og um vegna fólkseklu. Segja fóstrur að
dagvistarkerfinu. Frá áramótum Samtök foreldra á dagvistarheimil- ástandið bitni fyrst og fremst á böm-
hafa um 20% forstöðumanna sagt umefndutilmeðfréttamönnum. unum. Því hafa starfsfólk og foreldr-
upp störfum. Þá vantar 50 fóstrur til A fundinum kom enn fremur fram ar ákveðið að afhenda borgarstjóra
starfa, ef á að ná því lágmarki að að á biðlista eftir dagvistun eru nú hátt á þriðja þúsund undirskriftir
hafa eina fóstru á deild. Ef fram- 1.616 börn. Á mörgum heimilanna næstkomandi fimmtudag. Með
fylgja á lagaákvæði um að allir sem ríkir nú óvissa um hvort takist að fá undirskriftunum fylgja kröfur um
sinna fóstunstörfum séu fóstur- fóstrur og ófaglært fólk til starfa í úrbætur í launamálum og starfsað-
menntaðir vantar 250 fóstrur. haust. Fari sem horfir gæti komið til stöðu, svo hæft fólk fáist til starfa.
Vandamál dagvistunarheimilanna rædd á fundi með fréttamönnum.
Lykill að
Noiðurlandi
Lykill heitir lítið kynningarrit sem
Fjórðungssamband Norðlendinga hef-
ur gefið út um framboð á norðlenskri
framleiðslu og þjónustu.
Rit þetta er 64 síður að stærð og í því
eru 286 kynningar á framleiðslu og
þjónustu norðlenskra aöilja. Birt eru
götukort af öllum þéttbýliskjömum á
Norðurlandi þar sem helstu þjónustu-
staðir eru merktir með táknum.
Hönnuður Lykils er Guðmundur Ar-
mann hjá Teiknistofunni Stíl á Akur-
eyri. Undirbúning og skipulag útgáf-
unnar sáu Friðfinnur K. Daníelsson og
Ámi K. Bjarnason um. Ritinu verður
dreift ókeypis inn á öll heimili á Norð-
urlandi. JBH/Akureyri.
Þeir Bjarni Vilhjálmsson, Hlöðver Ólafsson og Ragnar Björnsson fyrir fram
an Western Fried í Mosfellssveit.
DV-mynd GVA.
Westem Fríed opnar
í Mosf ellssveit
Söf nun vegna
flóðanna í
Bangladesh
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur
borist beiðni um aðstoö vegna hinna
gífurlegu flóða sem urðu í Bangladesh
fyrirskömmu.
Mannt jón í f lóðunum var gífurlegt og
skortur er á margvíslegum nauðsynj-
um, en læknar óttast hvers konar far-
sóttir í kjölfar flóðanna. Hjálparstofn-
unin hefur verið beðin um að leggja
fram fjármuni til kaupa á hjálpar-
gögnum. Stofnunin mun gera það sem í
hennar valdi stendur, en verður sem
fyrr að reiða sig á stuöning almenn-
ings. Þeim sem vildu ljá þessu n;áli lið
er bent á gíróreikning Hjálparstofnun-
ar númer 20005-0.
Mosfellingar munu eignast sinn
fyrsta og eina kjúklingastað nk. laug-
ardag. Þá verður opnaður nýr Westem
Fried kjúklingastaður í Þverholti við
Vesturlandsveg. „Það hefur verið sagt
að kjúklingastaðir geti verið mismun-
andi en hér verður öll áhersla lögð á
gíeði,” sagði Bjami Vilhjálmsson, sem
er annar eigandi Westem Fried, í sam-
tali við DV. „Okkur finnst vera kominn
tími til að allir þeir íbúar sem eru í
Mosfellssveit og nágrenni þurfi ekki að
keyra alla leið til Reykjavíkur eftir
einu kjúklingalæri.”
A Western Fried verður fullkomið
veislueldhús og boðið upp á veislumat í
heimahús og fyrir einkasamkvæmi. A
morgnana verður boðið upp á morgun-
kaffi, þá sérstakan matseðil dagsins í
hádeginu, eftirmiðdagskaffi og svo
auðvitað Westem-Fried kjúklinga,
hamborgara og samlokur. Opið er alla
daga frá 9.30—23.30. Eigendur em
Ragnar Björnsson og Bjami Vil-
hjálmsson og matreiðslumaður Hlöð-
verOlafsson.
Hópf erð á
aldarafmæli
bílsins
Laugardaginn 8. júní nk. geta þeir
sem vilja haldið hátíðlegt 100 ára af-
mæli bílsins. Fombílaklúbbur Islands
heldur upp á daginn með hópferð aust-
ur yfir fjall. Verður lagt af stað frá
HótelEsjukl. 13.30.
Farkostir félagsins verða væntan-
lega eitthvað nýtískulegri en sá sem
sést á meðfylgjandi mynd. Sá er af
gerðinni GMC, árgerð 1930. Það var
byggt yfir hann á verkstæði Stefáns
Einarssonar við Lindargötu. Eigandi
bílsins er Geir Pálsson.
17. JÚNÍ
Kaupmenn, kaupfélög, félagasamtök.
Vorum að taka upp íslenska pappírsfána fyrir 17. júní.
ERL. Blandon & co hf.,
sími 81155.
Hin nýja matarlína Nausts
vekur athygli
BJÓÐUM UPP A NÝJAN SÉRRÉTTASEÐIL
SEM INNIHELDUR M.A.:
Krabbasúpa
— O —
Eftirlæti skipstjórans: skötuselur,
hörpuskelfiskur og rækjur á ver-
mouth-sósu.
— O —
Nautaportvinssteik.
— O —
Léttsteikt lambafille á mildri piparsósu.
— O —
Ostatríó Menage A Trois innbakaö i
deigi.
í kvöld skemmtir hin frábæra
söngkona
Carol Nielsson
I Borðapantanir í síma 17759.
Haukur Morthens
og félagar
leika (kvöld.
Þetta er
BLÁKÖLD
STAÐREYND