Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Síða 12
12 DV. FÖSTUDAGUR 7. JUNI1985. Frjálst.óhád dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvaemdastióriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASONog ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍOUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SfMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SfMI 27022, Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍOUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf. Áskriftarverð á mánuði 360 kr. Verö í lausasölu 35 kr. Helgarblað40kr. Kúguö sjávarsíða Stundum er hagsmunum svokallaös dreifbýlis teflt fram gegn hagsmunum Reykjavíkursvæöisins. Eru þá kaupstaðir og kauptún sjávarsíðunnar stundum talin til dreifbýlis, þótt þar sé í rauninni þéttbýli. Hagsmunir sveita og sjávarsíöu eru aö flestu leyti ólíkir. Þjóðfélag okkar skiptist landfræðilega og hagsmuna- lega í þrennt. 1 einum hluta eru sveitirnar og í öörum Reykjavíkursvæðið. 1 þriðja hlutanum er svo sjávarsíð- an, að Suðurnesjum meðtöldum. Sveitirnar hafa landbún- aðinn, Reykjavíkursvæðið þjónustuna og sjávarsíðan út- gerðina. Ekki er hægt að hugsa sér meiri andstæður en sjávarút- veg og hinn hefðbundna landbúnað. Sjávarútvegurinn er burðardýr velsældarinnar í þjóðfélagi okkar, en landbún- aðurinn er langsamlega þyngsti ómaginn á þjóðfélaginu. Vegna þess eru hagsmunirnir gagnstæðir. Þjóðfélagið hefur um langan aldur mergsogið sjávar- síðuna til að afla peninga í velsældina og landbúnaðinn. Þetta hafa stjórnvöld gert með því að reikna afkomu sjávarútvegsins út á núlli og haga skráningu gengis krón- unnar á þann hátt, að atvinnuvegurinn skrimti. Þetta er afar auðvelt í framkvæmd á verðbólgutímum. Þá aukast gjöld sjávarútvegsins, en genginu er haldið föstu, unz undirstöðuatvinnuvegurinn er um það bil að sigla í strand. Þá er gengið lagfært nógu mikið til að núll- rekstur náist í sjávarútvegi. Og ný hringrás hefst. I leiðurum þessa blaös hefur lengi og oft verið lagt til, að þeir, sem afla gjaldeyrisins, megi sjálfir ráðstafa hon- um og þá á því verði, sem markaðurinn vill borga fyrir hann. Á þann hátt megi stöðva hina umfangsmiklu blóð- mjólkun sjávarsíðunnar. Lausnin felst í að taka af stjórnvöldum misnotkunar- valdið til skráningar á gengi krónunnar. Það má gera með því að leyfa genginu að valsa án skráningar. Eða með því að heimila notkun erlendra gjaldmiðla í viðskipt- um hér á landi. Eða leggja krónuna hreinlega niður. Ef einhver þessara leiða væri notuð, mundi koma í ljós, aö gengið er yfirleitt skráð hróplega of hátt. Einnig mundi koma í ljós, að sjávarútvegurinn er ekkert vand- ræðabarn, heldur meginuppspretta auðsöfnunar þjóðar- innar. Hann hefur bara ekki fengið að njóta þess. Auðvitað mundi minna verða til dreifingar velsældar í þjónustugreinunum á Reykjavíkursvæðinu. Þar yrði fólk að laga sig að þeim raunveruleika, sem felst í lækkuðu mati á verðgildi krónunnar. Þetta eru stjórnvöld að reyna að forðast, þegar þau núllreikna sjávarútveginn. Ef sjávarútvegurinn fengi aö njóta sín, mundi þó fyrst og fremst koma í ljós, að þjóðfélagið hefur ekki efni á að kasta nokkrum milljörðum króna á ári í hinn hefðbundna landbúnað, stóra æxlið á þjóðarlíkamanum. Hingað til hefur sá reikningur verið sendur sjávarsíðunni. Meðan sjávarútvegurinn er úti í kulda alþjóðlegrar samkeppni ornar hinn hefðbundni landbúnaður sér í skjóli innflutningsbanns, útflutningsuppbóta, niður- greiðslna, beinna styrkja og lánaforgangs. Hann eyðir því, sem sjávarútvegurinn aflar, og það á stórvirkan hátt. Landsbyggðin utan Reykjavíkursvæðisins er ekki einn heimur, heldur tveir. Annars vegar er sjúklingur, sem búinn er að vera áratugum saman á gjörgæzludeild, og hins vegar er kúgaður vinnuþræll, sem gefst bráðum upp, ef hann á áfram að borga sjúkrahúsvist hins. Jónas Kristjánsson. „Nýleg könnun vikublafls ö höfuðborgarsvœflinu sýndi afl allnokkur hluti þjóflarinnar vill komast úr landi, sumir fyrir fullt og fast." AMADEUS Bíómyndln Amadeus fer nú sigur- fdr um heiminn líkt og leikritið fáum érumfyrr. Verkið fjallar, eins og allir vita, um snillinginn Amadeus Mozart og hirðtónskáldið Salíeri og hvemig sá síðamefndi kom þelm fyrmefnda fyrir kattamef. Hvort Salieri var sá djöfull sem höfundur Istur í veðri vaka má einu gilda. Hugmyndln um séniið og kerflskarllnn er klassisk. Allir kann- astvið hliðstcður. Þvi miður bendlr ýmlslegt til að i islenska forsjárhyggjusamfélaginu sé óvanalega hátt hlutfall Saliera sem stunda hugmyndadrápið grimmt á kostnað samborgaranna. „Palli á horninu” Skýringin kann að vera s& að Is- lendingar fengu sjálfsteðið á upp- gangstimum marxismans og hafa þvi lögfest kerfishugsun i meira nueli en flestar aðrar þjéðlr. JÓN ÓTTAR RAGNARSSON DÓSENT Frjálslyndi í framkvæmd a „Því miöur bendir ýmislegt til aö í íslenska forsjárhyggjusamfélag- inu sé óvanalega hátt hlutfall Salíera sem stunda hugmyndadrápið grimmt á kostnað samborgaranna.” Auk þess hefur þjóð sem eyddi 1000 árum i að koma sér upp ætum mat og vatnsheldum vistarverum aldrei verið mlkið um þá gefið sem reyndu ætið að fara ótroðna slóð. Og hvenær hefur smáþjóð, hvað þá sú sem er enn i fersku minni einangr- un og eymd fortíðar, trúað þvi fyrr en i fulla hnefana að hann „PalU á hominu” geti verið séní. Að „fá hugmyndir” merkti á ts- landi efaifaldlega að fá flugu i höfuð- ið. Má þá einu varða hvort uppátækið gat flokkast undlr visindi, listir eða eltthvað annað. Andleg f átækt Kver sem skýringin er á þessu virðlngarleysl fyrlr hugmyndum og hugbúnaðl er það staðreynd að hvort tveggja er melra og minna hunsað hjá riici og i atvinnulifl Milljónum er varlö i auglýsinga- herferðir i fjölmlðlum. En að elnung- is brotabrotl af þessu fé sé varið tll að tryggja að innihaldið standist. Þaðeraf ogfrá. Hundruðum milljóna er varið i opinberar fjárfestingar i atvinnu- lifinu árlega. En að aöeins örlitlum hluta sé variö i undanfarandi rannsóknir er ekld til umræöu. Ævintýralegum fjárfúlgum er eytt i glæstar heilsugæslustöðvar og skólahús. En aö einungis ögn af þess- um fjármunum sé veitt i innri búnað og bókakost væri óráösía. Vilji einhverjir góðir menn reyna að gera kerfisbreytingar í frjáls- ræðisátt ris samstundis upp harðsnú- in sveit Salíera og lætur öllum iilum látum. Dýrt spaug Orlögin hljóta að vera aö grinast aö okkur Islendingum þvi sú iðja sem hér hefur aldrei verið metln til fjár er orðin skjótasta leiöin til varanlegrar velmegunar. A meöan allar þjóðlr sem byggja á hugvitl og þekkingu eru að slgra helminn ætla Islendingar einir aö treysta á rikisforsjá og óstöðugar auölindir. Á meöan þeim þjóðum einum gengur allt i haginn sem fjárfesta i þekkingu og menntun eru Is- lendingar að flæma frá sér alla sína hæfustu visinda- og listamenn. AQelðingar þessarar óstjórnar þekkja allir i lækkandi launum, vax- andi ringulreið og fréttum um si- aukna skuldasöfnun islensku þjóðar- lnnar i erlendum bönkum. Lokaorð Nýleg könnun vikublaðs á höfuð- borgarsvæðlnu sýndl að allnokkur hlutl þjéðarinnar vDl komast úr landl, sumlr fyrlr fullt og fast. Þelr sem telja sig með þessu hafa fengið staðfestingu á vöntun á þjóð- hollustu hjá yngri kynslóðinnl ættu að gera sér ljóst að enn er timl til að breyta um stefnu. Staðreyndin er auðvitað sú að það var aldrel nægUeg afsökun að kaupa íslenskt bara af þvi að það var is- lenskt. Það verður lika að standast samkeppnL Takist okkur ekki til frambúðar að halda útl samfélagi sem stenst samanburð við önnur hér í grennd- innl gerum við engum greiða með þvi að heimta að hann hokri hér. Þelr sem vflja sýna þjóðhollustu sina i verki verða einfaldlega að gera það áður en ástandið kemst á svo alvarlegt stig: Með þvi að breyta þjóðfélaginu... áður en það er orðið umseinan. Jón Óttar Ragnarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.