Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Side 16
16
DV. FÖSTUDAGUR 7. JONI1985.
Spurningin
Drekkur þú mikiö af
bjórlíki?
Ingl Jóhann Guðmundsson netageröar-
melstarl: Nel, ekki mikið. Maltið is-
lenska er miklu betra.
Gott að fá sér eina kollu áöur en maður
fer út í eitthvaö sterkara.
Elfar Geirdal verkamaður: Varla
nokkuð. Eg held ég hafi fengið mér
einakrús.
BJörn Elnarsson verkamaður: Eg hef
einu sinni smakkaö bjórliki og fannst
þaö vont miðað við alvörubjðr.
Grétar Marteinsson nemi: Nei, ekki
mikiö. Bjórinn er miklu betri.
Heimir Guðjðnsson netageröarmaður:
Alveg rosalega miklð. Bjórlfkið er
ótrúlegagott.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Hvar eru boltastrákarnir?
Smári skrifar:
Knattspyrnan hefur farið vél af
stað í ár. Leikirnir eru flestir mun
betri en i fyrra og er vafalaust gervi-
graslnu svo fyrir að þakka. Hitt er
annað mál aö ýmislegt má enn bæta,
utan vallar sem lnnan. Þaðfer
mikiö i taugamar á mér þegar lefkiö
er t.d. á Valbjamarvöllum að
krökkum skuli vera leyft aö ieika sér
á leikveliinum i leikhléi. Ekki er til
staöar nelnn vöröur sem rekur
krakkana burt, heldur er í mesta lagi
kallað á þá í hátalarakerfiö og þeim
sagt að hypja sig. Þetta finnst mér
vera alveg til háborinnar skammar
og ekki bætir þessi aukna umgengni
gæði vallarins.
Svo er annað sem mlg langar að
mlnnast á. Hvar em bolta-
strákarnir? Eg brá mér á vöUinn á
dögunum og þannig hittist á að
leikurinn fór fram á Laugardals-
vellinum. Þetta er stór völlur og
svæðið umhverfis hann er nokkuð
stórt. Oft kom það fyrir að boltinn fór
út af og leikmaður þurfti þá að
hlaupa á eftir honum. Hægði þetta
töluvert á leiknum og ég er ekki frá
þvi að þetta hafi átt stóran þátt i því
hversu litt spennandl hann var. Er
mikið mál að hleypa 5—6 peyjum
ókeypis inn og láta þá raða sér
umhverfis leikvölUnn? Eg er viss um
að það er ttt fulit af strákum sem
væm tll i að gera þetta fyrir
ánægjuna eina. Þaö þarf ekki aUt að
kosta peninga.
Lika verður að nefna það sem vel
er gert. Mig langar að þakka fyrir
þaö aö sjoppan á aðalieikvanginum
var stækkuð. Það f lýtir m jög f yrir af-
greiðslu. Eg vona svo bara að
uppsveiflan i knattspyrnunni haldi
áfram. Landsleikurinn gefur góð
fyrirheit um það.
Frá leik i fyrstu deildinni i knattspyrnu.
Tvær stúlkur á Akureyri eru óhressar með fyrirkomulagið á vinsældavali
rásar 2.
Vinsældalisti rásar2:
iafnrétti milli lands-
byggðar og borgar!
Tvær f jórtán ára á Akureyri skrifa:
Við vttjum koma á framfæri óánægju
yfir kosningu vinsældalista rásar 2.
Þar sem við búum úti á landi er mjög
dýrt fyrir okkur að hringja suður á
hverjum flmmtudegi til aö koma
uppáhaldslögunum á framfæri og hafa
áhrif á Ustann. Þaö yrði miklu hag-
kvæmara ef hver 2000 manna bær eöa
fjölmennarl hefði sina kosningu og
þegar kosningu lyki yrðu atkvæðin
simsend suöur. Þátttaka krakka úti á
landi og fuUorðinna yldst margfalt. Uti
á landi er þetta ekki eins elnhæft og á
Stór-Reykjavikursvæðinu. Það halda
semsagt ekld allir upp á Duran Duran.
Gefið öðrum hljómsveitum tækifærL
Frá sumardeginum fyrsta. Guðrún leggur til að viunutíma verði breytt á sumrin svo sólskinsdagar nýtistfólki
betur.
Breyttur
vinnutími
Guðrún skrifar:
Undanfama daga hef ég setið inni á
skrifstofu í vinnunni og mátt horfa út i
sólskinið. Það er ákaflega svekkjandi
að fá dcki að njóta þess. Eg vinn hjá
hinu opinbera frá klukkan 9 til 17. Aður
en maður fer til vlnnu á morgnana er
naumast nógu heitt tU aö baða sig i sól-
skininu og á kvöldin er aftur farið að
kólna. Það væri mikiU munur ef
vinnutímanum yröi breytt á sumrin
þannlg að maður byrjaöi fyrr, t.d.
klukkan 8 og hætti þá klukkan 16. Ég
veit mörg dæmi þess að þetta sé gert
erlendis, þ.e. aö vinnutfmanum sé
breytt yflr sumartimann svo aö
dagurinn nýtist fóUd betur. Það væri
gaman aö heyra álit fleiri á þessari
hugmynd.
Sumir karlmenn
eru ökufantar
Af svipnum að dœma er þessi maður ekki mikill ökufantur og væntanlega
ekki sótbölvandi í umferðinni.
Gott sund
Maðurhrlngdi: j Vesturbæjarlauginni fyrir einstak-
Mig langar tll að þakka starfsfóiklnu lega góða þjónustu. Eghrffariðílaug-
ina undanfarna daga og notið þar veð-
urbUðu og notalegs baðvatns. Maður
er ekki samur ef maður sleppir degi
úr.
Konaskrifar:
Mig langar mikið til aö svara
þessum blessuöum ökugikk sem skrif-
aði i lesendadálk DV 31. maí si.
Hann skrifar aö konur ættu ekki að
vera i umferðinni vegna þess hvernig
þærkeyra.
Vli ég bara láta hann vita það að
konur eru ekkert verri ökumenn en
karlmenn, ef þær eru ekki bara að
mörgu leyti betri, því þær eru ekki
svona mikUr ökufantar eins og sumir
karlmenn eru.
En eitt er víst að þessi maður ætti
ekki að vera meö bUpróf eins og hann
lætur i umferöinnl, steytandi hnefa á
hverju horni, sótbölvandi og hálfsnökt-
andiafbræðl.
Nei, kæri ökugikkur, leggðu bílnum
til hliðar og taktu strætó eöa lelgubil
eða einfaldlega fáöu þér bara
göngutúr, þaðróar taugarnar.