Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Side 2
2
DV. LAUGARDAGUR31. ÁGUST1985.
Greiðslujöfnun lána:
Umsóknum hefur fjölgað mikið
Umsóknum um greiðslujöfnun hús-
næðismálalána hjá Húsnæðisstofnun
hefur fjölgað mikiö undanfama daga.
Þær eru nú orðnar 150 til 180. Fyrir
nokkrum dögum höfðu aðeins 54 sótt
um greiöslujöfnun. Ekki hefur verið
ákveðið hvort umsóknarfresturinn
verður framlengdur en honum átti að
ljúka 1. september.
Að sögn Katrínar Atladóttur, for-
stöðumanns byggingasjóðanna, er
einnig búist við nokkru magni
umsókna með pósti sem eigi eftir að
berast stofnuninni.
APH
Höfuðrýmí í aftursæti
MAZDA 323 Sedan 4 dyra Volkswagen Golf 3 dyra Datsun Cherry 5 dyra Toyota Corolla 5 dyra Volvo 340 5 dyra Mitsubishi Lancer 4 dyra Mitsubíshi Colt 5 dyra 94 cm 93 — 89 — 93 — 87 — 89 — 88 —
Ertu harðhaus?
cm
Volvo 340 87
__Colt 88
Cherry 89
Lancer 89
_ Golf 93
Corolla 93
í sumum bílum getur þú
þurft á því að halda!
Rými er mjög mísjafnt í bílum, jafnvel þó þeir eigi að heíta af svipaðri stærð.
Míkilsvert atriðí er að nóg höfuðrými sé í aftursaeti fyrír fullvaxta fólk,en á það
vill skorta í sumum gerðum bíla. Berum saman tölur um höfuðrýmí í
nokkrum tegundum áþekkra bíla=
MEST FYRIR PENINGANA
Þarna sést svart á hvítu að hinn nýi
MAZDA 323 er rúmbestur allra þessara bíla,
þannig að vel fer líka um þá hávöxnu.
Forðastu því hausverk, berðu ekki bara saman
bæklíngana þegar þú velur bíl, komdu, mátaðu J
og reynsluaktu MAZDA 323. Verðíð mun 011/1 / f|~
koma þér þægílega á óvart, það setur þíg svo D/l/(DUmU #ff7
sannarlega ekki á hausinn. Smiðshöfða 23 sími 812 99
MAZDA 323
Hatchback 1300
LX 3 dyra.Verð 369.000
'
Fluga og eld-
spýtustokkur
Ovenjustór randafluga skaut starfs- tókst að handsama fluguna og stilla
mönnum Isafoldarprentsmiöju skelk í henni upp við hliöina á eldspýtustokki
bringu nú í vikunni. Hún sveimaði um og mælistiku, eins og venjan er í
vélasalinn hjá þeim og þóttust sumir slikum tilvikum. Enginn var bitinn.
aldrei hafa augum litið þvílíkt ferlíki í
flugulíki. Eftir töluverðan eltingarleik -EIR.
Ófremdarástand á Borgarspítala:
Fresta verður
opnun skurðlækn-
ingadeildar
— vantar allt að 30 hjukrunarfræðinga
Vegna manneklu er ljóst að ekki
verður unnt að opna A-5, skurðlækn-
ingadeild Borgarspítalans, nk.
mánudag eins og ráðgert var. Vonir
standa til að hægt verði að opna
deildina um næstu mánaðamót. Þessi
deild, ásamt lyflækningadeild, hefur
verið lokuð í sumar.
Hjá Borgarspítalanum fengust þær
upplýsingar að lauslega áætlaö
vantaði 20 til 30 hjúkrunarfræðinga og
annaö eins af sjúkraliðum.
„Ástandið hérna er slæmt og þá er
vægt til orða tekið. Það hefur í raun
aldrei verið svona slæmt og fer bara
versnandi,” sagði Jóhannes
Pálmason, framkvæmdastjóri Borgar-
spítalans, í samtali við DV.
— Og hvaö er þá til ráða?
„Það er ljóst að það verður að gera
átak í þessum efnum. Ástæður fyrir
manneklunni eru ýmsar. Ein þeirra er
án efa lág laun. Þá er einnig ljóst að
það útskrifast ekki nógu margir
hjúkrunarfræðingar. Að mínu mati var
það röng ákvörðun að loka Hjúkrunar-
skólanum því það var ljóst að svona
myndi fara.
Þá er ein ástæöan fyrir þessu sú að
þessi störf eru kref jandi og oft erfitt að
samræma þau heimilisstörfum,” sagði
Jóhannes. APH
Samningur um hvalveiðar:
Gildistöku
frestað f ram
til áramóta
Ákveðið hefur verið að framlengja
uppsagnarákvæöi samnings þess sem
Hafrannsóknastofnun og Hvalur hf.
hafa gert um hvalveiðar í vísindaskyni
á næsta ári. Upphaflega var gert ráð
fyrir því að samningurinn gengi
endanlega í gildi 1. september og fram
að þeim tíma gætu báðir aðilar sagt
honum upp. Nú hefur verið ákveðið að
þessi tímamörk verði um næstu ára-
mót.
„Astæðan fyrir þessu er sú að ætlun-
in er að kanna ýmis atriði í sambandi
viö vísindaáætlunina betur. Eftir fund-
inn í vísindaráði Hvalveiðiráösins þyk-
ir rétt að endurskoða þessa áætlun og
kanna meðal annars hvort aðrir
erlendir aðilar vilji taka þátt í þessum
rannsóknum,” sagöi Arni Kolbeinsson,
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu, í samtali við DV.
Hann ítrekaði aö þessi ákvöröun
væri ekki tekin vegna þrýstings frá
hvalfriðunarmönnum.
„Menn vilja bara fá lengri um-
þóttunartima til að ganga endanlega
frá þessari áætlun,” sagði Ámi.
APH.