Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 31. ÁGUST1985. 9 TVÖFALT LÍFERNI Fyrir nokkrum árum var þaö upp- lýst af sagnfræöingum, sem grúskuöu í gömlum skjölum, aö Is- lendingar hefðu sett sig upp á móti því á sinum tíma að blökkumenn gegndu herþjónustu í Bandaríkjaher sem dveldist hér á landi. Ut af þessu varö nokkurt fjaðrafok og einhverjir uröu til að hneykslast á þessum kyn- þáttafordómum. Máliö komst þó aldrei hámæli og varö sennilega aldrei sannaö eöa afsannaö. Sjálfsagt hefur þaö veriö þegjandi samkomulag að gera sem minnst úr þessu svertingjabanni enda vilja Islendingar telja sig í hópi frjáls- lyndra manna og fordómalausra gagnvart kynþáttum og litarhætti. Staöreyndin er þó sú aö í viðhorf- um okkar og afstööu til kynþátta og útlendinga almennt gætir tvískinn- ungs. Sama gildir um samskipti okk- ar viö samborgarana. Við teljum okkur jafna og stéttlausa þjóð en þaö er grunnt á hleypidómunum og saga úr Teigahverfinu í Reykjavík er dapurleg sönnun þess. Fangahjálpin er að reisa þar heim- ili fyrir fyrrverandi fanga og menn sem eiga hvergi höföi sínu að aö halla vegna fyrri afbrota og út- skúfunar. Borgarafundur er haldinn til að mótmæla þessu óvelkomna nábýli og borgarráö kórónar hleypidómana meö því að fallast á aö kaupa hús fangahjálparinnar og koma henni fyrir annars staðar. Þetta er ekki gott til afspurnar og leiöir hugann aö því hvers konar ástand ríkti hér á landi ef hér byggju umtalsveröir minnihlutahópar af öörum kynstofnum eins og títt er í flestum borgum. Drottinn minn dýri! Þegar við getum ekki einu sinni umborið okkar eigiö fólk, sem lent hefur á glapstigum og er að reyna að samlagast mannlífinu á nýjan leik, er ekki við því að búast aö Islending- ar séu hótinu betri en hvíti kynstofn- inn í Suður Afríku sem fólk á Vestur- löndum keppist nú viö að fordæma. Ekki heilagur samningur Þessa tvískinnungs gætir í afstööu okkar til varnarliðsins. Aö undan- förnu hafa ráðherrar rifist um túlk- un varnarsamningsins. Má segja að í þeim ágreiningi endurspeglist hiö tvöfalda siðgæði, þverstæðurnar í sambýli okkar við varnarliðið. Þetta eru ekki deilur um her eöa ekki her. Þær heyrast vart leng- ur. Islendingar hafa að langmestu leyti sætt sig viö nauðsyn þess að hér sé erlent varnarlið. Við megum þó vara okkur á þeim hugsunarhætti því vonandi kemur einhvern tímann að því að við veröum sjálfum okkur nógir í varnar- og öryggismálum og þurfum ekki að sætta okkur við er- lendan her í landi okkar. Sjálfstæðið hefur ekki fulla reisn fyrr en að því kemur. Deilurnar að undanförnu hafa snú- ist um innflutning á kjöti til varnar- liðsins og hvort launagreiðslur til starfsmanna á Vellinum eigi að reiða fram í dollurum eða krónum. Raun- ar er þetta harla ómerkilegt rifrildi og ráðherrar ættu að vera menn til að leysa svona framkvæmdaratriði átakalaust. Það er rétt sem Morgunblaöið seg- ir, að í þrjátíu ár hefur ríkt sæmilegt samkomulag um túlkun á varnar- samningnum. Gildir einu hvort í ríkisstjórn hafa setið vinstri menn eða hægri menn. Það breytir ekki því að Albert Guðmundsson, sem og aðr- ir, hefur sinn rétt til að leggja út af varnarsamningnum og hafa skoöun á innihaldi hans án þess að himinn og jörð farist. Varnarsamningurinn er ekki heilagur. Afsprengi hermangsins Hér er ekki meiningin að kveða upp dóm um hvað sé rétt eða rangt í deilunni um kjötið og dollarana held- ur benda á tvískinnunginn sem enn einu sinni gægist út um hina íslensku dyragætt. Hann kemur nefnilega víðar og oft- ar fram heldur en bara þegar verið er að laumupokast með bann við svertingjum í varnarliðinu. Ein af röksemdunum fyrir því að kjötinnflutningur skuli leyfður óheft- ur inn á Keflavíkurflugvöll, beint frá Bandaríkjunum, er sú að Islendingar megi ekki vera of efnahagslega háðir varnarliðinu. Þetta eru sömu rökin og beitt var gegn því að herinn kost- aði vegi og mannvirkjagerð sem flokkast undir almannavarnir og bætt öryggi. Þessi rök má fallast á í „principinu” enda illa komið fyrir ís- lensku þjóðarbúi og efnahagslegu Ellert B. Schram skrifar: sjálfstæði ef afkoma okkar stæði og félli með viðskiptum við herinn. Við eigum ekki að gera öryggi okkar að verslunarvöru. Þetta er og hefur verið hin ráðandi stefna íslenskra stjórnvalda og bæði Morgunblaðið og forysta Sjálfstæðis- flokksins fyrr og síðar hafa varið hana í orði kveðnu. En hvernig er hún framkvæmd í reynd? Eitt stærsta fyrirtæki landsins, Is- lenskir aðalverktakar, situr að mestu eitt að öllum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli. Afraksturinn sjáum við upp í Ártúnshöfða í glæsi- legum stórbyggingum þess fyrirtæk- is. Bankainnistæður og velta Is- lenskra aðalverktaka er eitt best varðveitta leyndarmáUð í landinu. Allir vita að Islenskir aðalverktakar eru pólitiskt afkvæmi helminga- skiptareglunnar hjá Sjálfstæðis- flokki og Framsókn og afsprengi her- mangsins. Ást á varnariiðinu Sömu sögu er að segja af ohu- versluninni. Islensku oUufélögin, einkum Esso, eiga efnahagslega af- komu sína undir viðskiptum við Völl- inn. Islensku skipafélögin hafa kvartað sáran undan tjóni sem þau urðu fyrir þegar farmflutningar varnarliðsms voru af þeim teknir. Ekki hefur verið annað að heyra en að málsmetandi aðUar og talsmenn hins efnahags- lega sjálfstæðis hafi lagt sig fram um að koma þeim flutningum aftur í hendur íslensku skipafélaganna. Nú er verið að reisa nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Sú flugstöð er að langstærstum hluta byggð fyrir bandarískt fé. Jafnvel þótt við getum talið okkur trú um að mannvirkja- gerðin sé liður í aðskilnaði herflugs og almenns flugs þá vita allir að kostnaðarhluti Bandaríkjanna er langt umfram eðlilegt hlutfall. I næstu nágrannabyggðum við Völlinn búa hundruð og þúsundir fólks sem hafa beina og óbeina hags- muni af störfum á vegum varnarliðs- ins. Og mér er til efs að Bolvíkingar, eða þeir á Langanesi, beri slíka um- hyggju fyrir vörnum landsins að það eitt hafi ráðið úrslitum um samþykki íbúa og sveitarfélaga þessara byggðarlaga um byggingu ratsjár- stöðvar á þeim slóðum. Nei, aftur og aftur rekumst við á dæmi þess aö Islendingar eiga afkomu sína undir hermangi og viðskiptum við herinn. Nú síðast hefur Stéttar- samband bænda tekið upp baráttu gegn ótollskoðuöum innflutningi kjöts til varnarliðsins. Bændastéttin verður ekki sökuö um yfirmáta hrifningu á bandarísku varnarliði og aldrei hefur henni verið borið á brýn að vilja ganga því liði á hönd. En samt, samt er Stéttarsambandið allt í einu með skoðun á því hvort vamar- liðið fái kjötmeti sent heiman frá sér. Hvort skyldi það vera af umhyggju fyrir varnarliðinu eða gróðavoninni um aö selja þeim lambakjöt í stað- inn? Frjálslyndi og fordómar Þau eru því miður of mörg dæmin sem sanna að Islendingar hafa efna- hagslegan ábata af viðskiptum við varnarliðið. Og það undir vemdar- væng opinberra stjómvalda og fyrir tilstilli stjórnmálalegra ákvarðana: ákvarðana þeirra stjómmálaafla sem prédika í síbylju að Island megi ekki vera efnahagslega háð varnar- liðinu. Þessi tvískinnungur er hræsnis- fullur og ber þess vott að við berum kápuna á báðum öxlum. Við þykj- umst búa í frjálsu landi en bönnum bandarískum varnarliðsmönnum frjálsan aðgang að landi okkar og samfélagi. Við þykjumst vera lausir við kynþáttamismun, en biðjum um það bak við tjöldin að hingað séu ekki sendir blökkumenn í herþjónustu. Við þykjumst vera umburðarlyndir gagnvart lítilmagnanum en höldum borgarafundi þegar fangahjálpin ætlar að hýsa þá í hverfinu okkar. Við þykjumst vilja vera efnahags- lega óháðir Bandaríkjaher en þiggjum af þeim velgjöming þegar okkur sýnist. Við fordæmum aðskilnaðarstefnu meðal annarra þjóða en erum ekki hótinu betri sjálfir. Það þarf ekki svertingja til. I raun og veru er hugsunarháttur- inn undarleg blanda af frjálslyndi og fordómum þar sem heimssýnin mót- ast af hagsmunum þegar hún varðar okkur sjálf en hugsjónum þegar aðr- ir eiga í hlut. Hvort sem það eru her- mennimir á Vellinum eða fangarnir í Teigahverfinu þá má ekki hleypa þeim of nærri meðan þeir geta skað- að mannorð okkar. Við verðum að þykjast vera góð við þá, þeir mega búa á Vellinum eða í næsta hverfi og við megum jafnvel græða á þeim í laumi. I hátíðarræðunum eru allir jafnir og frjálsir. En í hverdags- leikanum eru sumir jafnari og frjálsari en aðrir. EUert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.