Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 6
6 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÖBER1985. Frá menntamálaráðuneytinu: Menntaskólann á Egilsstöðum vantar kennara í stærð- fræði frá næstu áramótum. Hann þarf helst að geta tekið að sér deildarstjórn í stærðfræði. Húsnæði er á staðnum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 15. nóvember. Menntamálaráðuneytið. Styrkir til náms í Sambands- lýðveldinu Þýskalandi Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa islendingum til náms og rannsóknarstarfa í Sambands- lýðveldinu Þýskalandiá námsárinu 1986—87: 1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa lokiða.m.k. tveggja ára háskólanámi. 2. Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 1986. Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs háskóla- námi og hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu. 3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknarstarfa um allt að fjögurra mánaða skeið. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 22. nóvember nk. Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 17. október 1985. Nauðungaruppboð annaö og síðasta á eigninni Melási 7, efri hæð, Garðakaupstað, þingl. eign Kristínar Benediktsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 25. október 1985 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaösins 1985 á eigninni Espilundi 1, Garðakaupstað, þingl. eign Ingibjarts Þorsteins- sonar o.fl., fer fram eftir kröfu Útvegsbanka Islands á eigninni sjálfri föstudaginn 25. október 1985 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Reykjavegi 60, Mosfellshreppi, þingl. eign Gunnars Lúövíks Björnssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 25. október 1985 kl. 16.30. Sýslumaöurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 36., 39. og 43. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1985 á eigninni Hraunholtsvegi 1, Garðakaupstaö, þingl. eign Guömundar H. Péturssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Hafnarfirði og Gjald- heimtunnar I Garöakaupstað á eigninni sjálfri föstudaginn 25. október 1985 kl. 15.45. Bæjarfógetinn I Garðakaupstaö. Neytendur Neytendur Neytendur Hitaveita Mosfellshrepps: BYLTING HJÁ HITAVEITUNNI Frá og með næstu áramótum er ráðgert að taka upp nýtt sölufyrir- komulag á heitu vatni hjá Hitaveitu Mosfellshrepps. Núverandi sölufyrirkomulag er þannig að inn á hvert húshitunar- kerfi er stillt ákveðið vatnsmagn, mælt í lítrum á mínútu. Þetta vatns- magn miöast við að notandinn geti haldið nægilegum hita í húsi sínu yfir köldustu daga ársins. Á öðrum árs- tímum er svo reiknað með að einungis hluti þessa vatns sé nýttur. Annað neysluvatn er siðan óhemlað. Notandinn greiðir fast gjald fyrir þetta magn á tveggja mánaða fresti allt árið um kring, án tillits til breyt- inga á notkun eftir árstímum. Sölufyrirkomulagið Með nýja sölufyrirkomulaginu er gert ráð fyrir að allt heitt vatn, þá er átt við bæði til upphitunar húsa og annarra nota, verði selt eftir rennslismælum sem mæla í rúm- metrum (tonnum) það magn sem notað er. Af hverju nýtt f yrirkomulag? Samkvæmt núverandi sölufyrir- komulagi er hlutfallslega lítill munur á greiðslubyrði notenda þó notkun þeirra sé afar mismunandi. Nýja sölufyrirkomulagið breytir þessu þannig aö nú munu notendur greiða fyrir vatnið í beinu hlutfalli við notkun. Aðrir kostir nýja fyrirkomulagsins a. Notendur geta stjómað notkun sinni og þar með útgjöldum vegna heita vatnsins. b. Notendur fylgjast náið meö eigin notkun. c. Hitaveitan getur hlíft dýrmæt- um orkuforöa að sumarlagi, sem fram að þessu hefur farið í súginn svo hundruðum tonna skiptir, en nýt- ist framvegis til aö standast álag á köldum dögum. d. Eykur frjálsræði notenda, til dæmis til sundlauga, heitra potta, gróðurhúsa, snjóbræðslu og fleira. e. Hitastig vatnsins hækkar á köldustu dögunum vegna aukins rennslis. IMeytendum að kostnaðarlausu Að sögn Bjarna Guðmundssonar, skrifstofustjóra Mosfellshrepps, eru allar framkvæmdir vegna kerfis- breytingarinnar neytendum alger- lega að kostnaðarlausu. „Hitaveitu- gjöldin koma ekkert til með að hækka, gjaldskráin verður áfram sú sama og í Reykjavík,” sagði Bjarni. Hann sagði ennfremur aö Mosfells- hreppur hefði látið bjóða allar fram- kvæmdir vegna breytingarinnar út og vinnuflokkar á vegum þess verk- taka er átti lægsta tilboðiö væru um þetta leyti að byrja á breytingum í húseignum í hreppnum. „Breytingin felst í því að skrúfaður er í burtu hluti af hemlagrind í heitavatnskerf- inu og nýtt mælitæki sett í staöinn. Hinn nýi mælir er þýskur að uppruna og er hann keyptur í gegnum um- boðsaðila hérlendis. ” «c Með nýja kerfinu er vonast til afl notendur geti stjórnafl notkun sinni og þar mefl útgjöldum vegna hitaveitunnar. Breytingar á Borgarspítala: Færri sjúklingar á hvem deildarstjóra Breytingarnar hjé Borgarspítalanum hafa mælst vel fyrir hjá starfsfólkinu. Þarna má sjá hjúkrunarf ræðingana bera saman bækur sinar i vaktherbergi. Undanfarna mánuði hafa staöið yfir miklar breytingar á skurð- og lyflíeknmgadeildum Borg-, arspítalans. Miða breyt- ingarnar að bættri vinnu- aðstöðu fyrir hjúkrunar- fólk en á því hefur verið gífurlegur skortur eins og kunnugt er. Fram að þessu hafa sjúkradeildimar verið mjög stórar og einn deild- arstjóri séð um hverja deild með 32 sjúklingum. Nú eru ekki nema 15 sjúklingar í umsjá hvers deildarstjóra. I Borgarspítalanum er rúm fyrir 469 sjúklinga. Þar af eru 69 á lyflækn- ingadeild, 97 á skurðlækn- ingadeild. 20 á gjörgæslu og gæsludeild, 103 á öldrunardeild, 91 á geð- deild og 89 á hjúkrunar- og endurhæfingardeild. A.Bj. Nú endurskapa vísindamenn andlit löngu dáinna manna aðeins eftir hauskúpunum. Urval 10. HEPTI OKTOBER

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.