Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
NORÐUR-
LÖND
STÖKK-
PALLUR
— til kjarnorkuárásar,
segir TASS fréttastofan
Tass, hin opinbera fréttastofa
Sovétríkjanna, sakar í gær Bandaríkin
um að hafa ráðgert að nota Skandina-
víu fyrir stökkbretti til kjarnorku-
árásar á Sovétríkin og bandamenn
þeirraí Varsjárbandalaginu.
Fréttastofan segir að Moskvustjóm-
in styðji hugmyndina um kjarnorku-
vopnalaus Norðurlönd og segir mjög
brýnt orðið að koma þeirri hugmynd í
framkvæmd í ljósi uppsetningar
kjarnaflauga NATO í Vestur-Evrópu.
Segir Tass að Bandaríkjastjóm sé
andvíg þessari hugmynd þar sem hún
líti á Norðurlönd sem sitt hagsmuna-
svæði. „Bandaríkin vilja verja Norður-
lönd án þess að leita einu sinni sam-
þykkis Norðurlandabúa fyrir því,”
sagöi í skeyti fréttastofunnar. „Wash-
ingtonstjóminni þykir Noröurlönd
liggja þægilega vel við landamærum
Sovétríkjanna og fleiri Varsjárbanda-
lagsríkja.”
Krasnya Zvezda, málgagn Rauða
hersins, birti í síðustu viku óvenjulega
árás á Danmörku. Sagöi blaðiö aö
breyta ætti Danmörku í herstöð mikil-
væga árásaráætlunum NATO. Þá daga
var bandarískt herskip í heimsókn í
Kaupmannahöfn.
Crax/ reynir að
bræða saman nýja
stjóm 5 flokka
Battino Craxi raynir enn að mynda stjórn ó Ítalíu.
ríkismálum. Greinir þar nokkuö á við Francesco Cossiga forseti fól honum
sósíalista Craxis. aö mynda nýja stjóm, að stjórnar-
Craxi sagði sjálfur, eftir að kreppan gæti reynst torleyst.
Bettino Craxi, leiðtogi ítalskra
sósíalista, sýndi enn í gær hve furöu líf-
seigur hann er í ítölskum stjómmálum
þótt stjóm hans hafi splundrast í síð-
ustu viku út af deilum um sjóræningj-
ana sem rændu Achille Lauro. Hann
hefur nú hafið viðræður við aðra flokka
um myndun nýrrar ríkisstjómar.
Mun Craxi hitta flokksformennina
að máli í dag og þar á meðal forystu-
menn lýðveldisflokksins sem sleit
stjómarsamstarfinu í síðustu viku.
Allir flokkarnir fimm, sem aðild
áttu að síðustu ríkisstjóm, hafa lýst
því yfir að þeir vilji gjaman taka upp
stjómarsamstarf aftur og mynda 45.
ríkisstjóm Italíu frá því í stríðslok.
En lýðveldisflokkurinn vill fá í
stjómarsáttmála tryggingar fyrir
ákveðnum stefnubreytingum í utan-
Tass segir að Bandarikjamenn
muni nota Norðurlönd sem skot-
pall fyrir eldflaugar sem þessa
Pershing-2 til órósa gegn Sovót-
rikjunum...
Palme á SÞ-þinginu:
„ Viröum alþjóðalög”
Olof Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, talaði á þingi Sameinuöu þjóð-
anna í gær um „alvarleg brot” á
sænskri landhelgi. Hann sagði ekki
hverjir hefðu framið þessi brot en var
augljóslega að tala um sovéska kaf-
báta sem Svíar hafa grunaða um að
flækjast um firði sína.
Palme sagði að alþjóöalög bæri að
virða því þau væru forsenda friðsam-
legra samskipta þjóða.
„Þegar landhelgi og sjálfstæði
lítils lands er ekki virt verða íbúar ann-
arra smálanda reiðir og óttaslegnir,”
sagði Palme.
Palme sagöi að ríki hefðu notað hug-
takið um sjálfsvörn til að réttlæta alls
Palme gagnrýndi stórþjóflir ó
bófla bóga.
. . . þar aru hins vegar til gagn-
órósarflaugar svo sem þessi SS-23
og aflrar henni líkar. Sovótmenn
segjast styflja hugmyndina um
kjarnavopnalaus Norflurlönd.
kyns hernaðaraðgerðir gegn öðrum
ríkjum. „En staðreyndin er sú að þess-
ar aðgeröir brjóta alþjóðalög og frið-
helgi annarra ríkja,” sagði Palme.
„I þeim tilvikum verðum við að
bregðast við og mótmæla í þágu heims-
friðar og alþjóðalaga. En einnig í þágu
okkar. Það er einfaldlega spurning um
að viðhalda vissum reglum sem eru til
okkur öllum til hagsbóta.”
Palme útskýrði ekki nánar hvort
hann væri að tala um ástandið í Afgan-
istan, Mið-Ameríku, við Persaflóa eða
annars staöar
KARL OG DIANA
í SJÓNVARPI
Karl Bretaprins og Diana kona hans
töluðu opinskátt um einkalif sitt i
breska sjónvarpinu um daginn. Diana
sagðist vera orðinn þreytt á því að lesa
sífellt fréttir um að hún væri orðin eitt-
hvert harðstjómarkvendi á heimilinu.
„Auðvitað verður maður sár,” sagði
hún. „Maöur hugsar: Ö gvöð, ég vil
ekki fara út til að vera við einhverja
athöfn, enginn vill sjá mig, hjálp,
skelfing!”
Karl þurfti líka að verja sjálfan sig.
Blöðin segja að hann sé allur kominn í
svartagaldur. Hann neitaði því ekki en
sagði bara að fólk þyrfti að hafa opið
hugarfar gagnvart dulspeki.
Flestum fannst þetta ágæt ný-
breytni að sjá tilvonandi kóng og
drottningu í sjónvarpi en öðrum var
ekki skemmt. Einn þeirra spurði:
„Hvar endar þetta?” og gaf til kynna
að honum þætti liklegast að næst
myndu áhorfendur fá að sjá Elísabetu
drottningu sjálfa boröa komfleks í
fréttatíma morgunsjónvarpsins.
Peres og Hussein
funduðu í París
um Palestínumál
Nokkmm dögum eftir að Israelar
sprengdu upp höfuöstöðvar PLO í Tún-
is hittust Shimon Peres og Hussein
Jórdaníukonungur leynilega í París,
að sögn tímaritsins Newsweek.
Mennimir tveir ræddu um þær tvær
kröfur Husseins að samningaviöræður
verði í tengslum við alþjóðlegar stofn-
anir einhvers konar og að Sovétmenn
taki þátt í þeim. Tímaritið segir
heimildarmenn sína mjög áreiðanlega.
Genscher vill
evrópskt svar
Hans-Dietrich Genscher, utanríkis-
ráðherra Vestur-Þýskalands, er ósam-
mála Helmut Kohl kanslara um ágæti
geimvarnaáætlana Bandaríkjamanna.
Flokksmenn Kohls, kristilegir
demókratar, eru eindregið fylgjandi
því aö Þjóðverjar skrifi undir sáttmála
viö Bandaríkin um að Þjóðverjar taki
þátt í hönnun geimvarnakerfisins. En
Genscher varaði við því að Þjóðverjar
fæm einir Evrópuþjóða út í slíkt.
„Hingað til hefur ekkert ríki valið
að gera slíkan sáttmála en nokkur hafa
ákveðið að gera hann ekki,” segir
Genscher. „Við megum ekki einangra
okkur frá öðrum Evrópuríkjum. Hér
þarf evrópskt svar.”
Umsjón:
Þórir Guðmundsson og
Guðmundur Pétursson