Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 14
14
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER1985.
Spurningin
Hvernig líst þór á nýja ís-
lenska gamanleikritið sem
byrjað er að sýna á laugar-
dögum?
Sigrún Sigurðardóttir: Mér finnst þaö
alveg frábært, þaö er greinilegt aö þaö
má gera miklu meira af íslenskum
þáttum.
Margrét tvarsdóttir: Þetta var virki-
lega skemmtilegur þáttur. Það er
vonandi aö þaö veröi haldiö áfram aö
gera íslenska þætti því þá vantar i dag-
skrána.
Oddur Guömundsson: Alveg frábært.
Þaö er einmitt svona leikrit sem þarf
að gera en ekki eins og leikritin sem
vorugerðáður.
Valka Jónsdóttir: Mér fannst þaö
reglulega gott, þaö var virkilega fynd-
iö aö sjá karlmenn i þessu hlutverki.
Svanberg Svansson: Þetta var ágætt
þótt þaö væri ofleikið á köflum.
Asgeir Áraason: Þetta var bara
nokkuö gott og það er greinilegt að það
veröur aö halda áfram meö islenska
þáttagerö.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Óréttlæti og svik eni
lögboðin á íslandi
5818-9588 skrifar:
Þaö eru stór orö í fyrirsögninni en
eru þau sönn? Þaö er gott og blessað
aö undirskrift hvers manns skuli
tekin sem gulls igildi.
Hvað skeður ef einhver vill gerast
drengur góður, á t.d. konu sem var
gift öðrum, giftist henni og tekur um
leiö að sér tvö börn hennar sem sín
eigin? Hann eignast síðan önnur tvö
böm þannig aö bömin eru orðin
fjögur í f jölskyldunni. Nú kemur þaö
dæmi upp að konan spyr blíðlega
hvort ekki sé í lagi aö gera erföaskrá
þess efnis aö öll bömin veröi jafn-
rétthá. Hverju svara flestir meö ein-
hverja drenglund? Jú, alveg sjálf-
sagt, elskan.
Hvaö skeður nú? Konan labbar sig
til lögmanns, lætur gera erföaskrá.
Maöurinn kemur nokkrum dögum
síðar meö konunni til lögmannsins og
ritar undir sinn dauöadóm. Þvi þá
dauðadóm? Jú, ég gerði það sama og
margir aörir, skrifaði undir þegjandi
og hljóöalaust, las ekki... Þetta
skeöur á hverjum degi. Eg ætti aö
þekkja þaö, afgreiöslumaður í
verslunum í mörg ár.
Nú kemur betur aö skjalinu. Jú,
þaö kom í ljós ári síðar að í skjalinu
fólst dauöadómur. .. Var skjaliö
ekki erföaskrá? Nei, kaupmáli var
þaö, heillin. Nú getur maöur hugsaö
sér aö við búum í lýðræðisríki, á Is-
landi hinu góöa, ekkert mál sé að
biöja konuna um aö leiörétta þetta.
Ég vil það ekki, segir hún. Hvaö geri
ég þá, hóta skilnaöi og aö fara meö
málið í réttlátan dóm? En hvaö segja
þeir hjá fógeta? Jú, undirskriftin er
gull sem glóir. „Það er áreiðanlegt
að þú gafst viljandi konu þinni hús
þitt og allt þitt. Þú geröir viljandi
sjálfan þig gjaldþrota af því aö þig
langaöi ekki lengur aö standa á eigin
fótum.”
Hvers vegna er ég þá að óska eftir
leiöréttingu? Getur fólk á Islandi
gengið um stelandi eigum annarra?
Já, ef þú getur ekki sannaö aö viö-
komandi haf i stoliö þá er þaö hægt.
Þá er þaö Hæstiréttur, hann er þó
arfleifö frá hinu forna Alþingi á
Þingvöllum. Þar fæ ég áreiðanlega
rétt minn, eöa hvaö? Margra ára
barátta og biö fyrir Hæstarétti og
svariö? Jú, þaö er undirskriftin sem
gildir.
Eg ætti ailavega að geta fengiö
umráð yfir börnum minum tveim,
það eru þó jafnréttislög í gildi á Is-
landi. Svariö: Konan á aö hafa böm-
in af tveim ástæðum. I fyrsta lagi er
betra fyrir börnin aö vera hjá eldri
systkinum og í öðru lagi býr hún í
betra húsnæði en þú. Ha, ha, þessi
var góöur, i húsinu minu sem ég
byggöi.
Eg fór aö kanna jafnrétti á Islandi.
Viö skilnað fær konan börnin í 90%
tilfella þrátt fyrir jafnréttislög.
Þessi 10%, hvernig fara karlmenn
þar að? Jú, þeir fá sitt barn ef konan
er samþykk eöa ef þeir geta sannaö
að konan sé óhæf.
Á Islandi eru ekki i gildi jafnréttis-
lög heldur þaö sem mætti kalla
Maríulög. Því á Islandi eru böm aö
því er virðist eingetin sem foröum
var sagt frá í fomri bók.
Því fullyrði ég sem áöur aö á
Islandi eru svik og óréttlæti lögboðin
í flestöllum stofnunum landsins. Við
þessar aöstæöur gerist annaö
tveggja, menn gefast upp eöa menn
halda áfram aö berjast fyrir rétti
sínum. Því svo elska ég land mitt og
þjóö, böm mín og arfleifð.
„REISUM TÓN-
USTARHÚS
FYRIR ALLA”
Á Árbœjarsafni er merkilegum menningarverflmœtum viflhaldið. Brófrit-
ara finnst ekki nóg gert til afl aðstofla þafl fólk, sem þarna starfar, við afl
gegna hlutverki sinu.
Árbæjarsafn:
Vantar nauðsynlega
Ijósrítunarvél
Árni Jónasson skrifar:
Eg ætti nú kannski frekar aö skrifa
til Daviðs en DV, en mér finnst bara aö
fleiri en mér komi þetta við og þurfi að
vitaþetta.
Nú þegar Skuggahverfi á að fara aö
umbreytast (Skúlagötusvæöiö marg-
umtalaða) og ekki viröist hlustað á eöa
talaö við íbúa svæöisins kemur dálitiö
skrítiö í ljós.
Eg er ekki á móti breytingum
(breytinganna vegna) en mig langar
að vita hvar rætur mínar liggja.
Ég er barnfæddur í Skuggahverfinu
og hef átt þar heima alla mína tið.
Langar mig nú að vita hvaö allir þessir
gömlu bæir hétu, allflestir eru horfnir
enda ekki margir sem voru meira en
moldarkofar, en allir hétu einhverju
nafni. Enginn var svo fátækur að hann
gæti ekki gefið bænum sínum nafn,
jafnvel eftir sjálfum sér ef annað var
ekki fyrir hendi.
Árbæjarsafn er með einhverjar heil-
legustu heimildir, sem ég hef rekist á,
um bæjamöfnin í gömlu Reykjavík og
starfsfólkið þar er eins elskulegt og
hjálplegt og hægt er aö hugsa sér. En
svo illa er aö þessu fólki búiö að þaö
sem búiö er aö vinna — og ef maður
vildi bæta einhverju viö eða nota
upplýsingar þess — er ekki aðgengi-
legt vegna þess aö ekki er til ljósritun-
arvél á þessum bæ. Maöur getur ekki
fengið keypt eða gefið afrit af vinnu
þessa fólks.
Þetta er svo mikili nánasarháttur aö
það liggur viö aö ég skammist min
fyrir aö hafa greitt skatt í borgarsjóö
(þessa botnlausu hít) í um 45—50 ár.
Nú er Arbæjarsafn og slíkar stofnan-
ir aö bjarga arfleifö okkar frá
gleymsku. Hvar er til dæmis til heilleg
bæjarnafnaskrá frá því um aldamótin,
sem segir til um hvað hefur verið
byggt þar síðan? Nú er spurningin
hvort Reykjavíkurborg er þess ekki
umkomin að sjá af verkfærum fyrir
slíkar stofnanir. Sé hún það ekki á hún
ekki aö setja þær upp. Þaö er til
skammar fyrir borgarstjóra og
borgarstjóm, sem kalla sig Reykvík-
inga, aö standa svona að verki.
Davíð borgarstjóri, hristu af þér
sleniö og faröu aö gera eitthvað. Þú
hefur meirihluta aö baki þér í borgar-
stjóm, þú hefur valdið. Gerðu nú eitt-
hvaö fyrir litla manninn í Reykjavík en
ekki eingöngu fjármálamennina sem
er alláberandi. Þú heldur ekki at-
kvæðum meðþví.
Láttu eina ljósritunarvél fara til
Árbæjarsafns sem fyrst. Sú stofnun á
þaö skiliö.
Konráö Friðf innsson skrifar:
Nú reisum við tónlistarhús. Eitt-
hvaö í þá veruna stóð á happdrættis-
miða er ég fékk heimsendan um dag-
inn. Og það hafa væntanlega fleiri
fengið. Mér leist vel á máliö og ákvaö
að styrkja þaö. Eg kaupi miöa þann til
að koma þaki yfir popptónlistina því
henni vil ég fyrst og fremst lyfta á
hærra plan og þar meö menningu
okkar. En þá vöknuðu spurningar. Fá
allir tónlistarmenn þar aögang? Eöa
verður þetta hús eingöngu fyrir sinfón-
íur og þeirra snobbhlustendur? Popp-
tónlistin sem listgrein hefur veriö hálf-
gerð homreka á Islandi og gjarnan
flokkuö sem eitthvaö óæðra. Þetta
finnst mér ekki vera sanngjarnt því i
popptónlistinni eigum viö heilmikiö af
öra Jónsson, Bolungarvík, hringdi:
„Mig langar aö gera athugasemd viö
þjónustu verslunarinnar Utilíf í Glæsi-
bæ. Eg hef lengi haft áhuga á því að
kaupa þar Millet dúnúlpur. Og af þvi
að ég bý úti á landi vildi ég reyna aö fá
aö panta úlpurnar og fá þær sendar en
ég ætlaöi aö kaupa tvö stykki. En þaö
reyndist ávallt ómögulegt að fá aö
panta úlpur áöur en þær kæmu í
verslunina, ég yröi aö bíöa þangað til
þær kæmu. Síðan eru úlpurnar
auglýstar mánudagskvöldiö 14. okt. og
á aö selja þær daginn eftir. En þegar
ég ætla aö hringja á þriðjudaginn er
gjörsamlega ómögulegt aö ná sam-
bandi við verslunina, jafnvel ekki þó
ég bæði landssímann aö ná sambandi.
Virtist síminn í versluninni vera
lokaður.
Verö ég aö segja aö mér finnst léleg
þjónusta aö ekki skuli vera hægt aö
panta út á land. Er verslunin kannski
mjög færu fólki sem fætt hefur af sér
margar gullfallegar melódiur sem lifa
okkur — og þaö þó það hafi ekki styrki
eins og Sinfóniuhljómsveit Islands og
njóti ekki sömu aöstööu og hún.Eg vil
afnema styrki sem hljómsveitin fær og
reyndar alla aöra styrki varðandi
listamenn þó þaö sé göfugt aö geta
starfaö viö áhugamál sín. En fyrir alla
muni, reisum húsiö og spilum þar alla
mögulega og ómögulega tónlist því
engin er óæöri annarri svo framarlega
sem einhver vill hlusta.
Eg hef reyndar aldrei fyllilega skiliö
hugtakið menning. Er það t.d. menn-
ing aö hafa list í landinu sem enginn
skilur og fáir kæra sig um? Teljast
menn til listamanna þegar skrifað er á
þann hátt aö enginn botnar í því? Eg er
þá kannski listamaður?
bara fyrir Reykvíkinga? Mig langar að
fá að koma fyrirspum á framfæri til
verslunarinnar um hvaöa möguleika
fólk úti á landi hefur til að eignast
þessar úlpur?
I Útilifi fengust þau svör aö ekki væri
hægt aö taka við pöntunum fyrr en
vörurnar væru komnar. Þaö væri
einfaldlega ekki hægt að taka frá fyrir
fólk því þetta væru svo vinsælar úlpur.
Þann morgun höföu veriö teknar upp
600 úlpur sem höfðu veriö búnar strai
um kl. 10 um morguninn.
I ágúst voru þessar úlpur til og þá
var reynt aö taka frá pantanir fyrir
fólk utan af landi en fram kom megn
óánægja hjá fólki á höfuöborgarsvæö-
inu. Utilifsmenn segja þvi erfitt aö
gera öllum til hæfis í þessu máli,
vandamáliö sé aö verslunin fái ekki
nóg af úlpum frá framleiðanda til að
geta fullnægt eftirspurn, þó væri von á
sendingu aftur í vetur.
Saga aif úlpum