Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER1985. 13 Kvennafrí 24. október Ja, héma! Hugsaði ég með mér þegar ég las greinina hennar Ingi- bjargar Sólrúnar í blöðunum um 24. október. Sú er aldeilis bjartsýn. A síðustu stundu að fara að hvetja til kvennaverkfalls þann 24. október. Það er útí hött. En mikið væri það nú gaman. Mikiö væri þaö nú nauðsyn- legt. Stelpur, muniö þið eftir því fyrir u.þ.b. tveimur árum, hvað bullaði og sauð í okkur reiöin yfir launamisrétti kynjanna? I gangi var mikil umræða um þá staðreynd að laun karla voru 50% hærri en laun kvenna. I f jölmiðl- um birtust niðurstöður fjölda kann- ana, sem aliar sýndu aö Launamis- réttið var gífurlegt. Ýmis kvenna- samtök Létu sig máliö varða og þann vetur voru haldnir margir fundir og margar ráöstefnur um þessi mál. Samtök kvenna á vinnumarkaði voru stofnuö. Konur vissu nú um óréttið og margar voru sannfærðar um að Kjallarinn GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR BORGARFULLTRÚI KVENNAFRAMBOÐSINS Mk „Væri þaö ekki bara stórkostlegt w að sýna nú einu sinni að við konur erum ekki þær aukapersónur sem laun okkar segjatilum.” þessi mál yrðu leiðrétt á örskömm- um tíma. Greinilega alltof sann- færðar. Umræða um launamál kvenna hefur verið lítil í langan tima, þrátt fyrir að ákaflega lítið hafiáunnist. Samkvæmt síðasta fréttabréfi kjararannsóknarnefndar hefur launaskrið karla verið mun meira en kvenna og þeir sem hæst laun höfðu fyrir hafa fengiö mesta hækkun á einu ári. Þannig hafa skrifstofumenn fengið 47,8% hækkun á meðan kven- kyns skrifstofufólk hefur fengið 41,3% hækkun. Verkakonur, sem fyrir bjuggu við lökust kjör, hafa á sama tíma aðeins fengið 31,9% hækkun, eöa minnst allra. Er það annars nokkuð útí hött að taka sér frí þann 24. október? Væri það ekki bara stórkostlegt að sýna nú einu sinni að við konur erum ekki þær aukapersónur sem laun okkar segja til um. Sýna það með því að leggja niður vinnu hvort sem er inni á heimilunum eða úti á vinnu- markaðinum. Hittast og láta hugmyndirnar fljúga, koma okkur saman um vænlegar leiðir til þess aö fá störf okkar endurmetin. En hvernig förum við að á svona stuttum tíma, ætli nokkrar verði með? Við Kvennalistakonur erum með keöju i gangi, sem er þannig að hver kona hefur samband við a.m.k. tvær konur, sem eru tilbúnar til þess að ræða við a.m.k. aðrar tvær og þannig koll af kolli. Slík keöja ætti aö ná til allra íslenskra kvenna á mjög skömmum tíma, sé hún ekki slitin. I Kvennahúsinu við Vallarstræti verður opið hús frá kl. 9 um morgun- „Umraafla um launamál kvonna hafur varifl lítil í langan tima þrátt fyrir afl ákaflaga litifl hafi áunnist." inn og klukkan 14 skundum við allar á útifundinn á Lækjartorgi, síðan er tilvalið aö fara á sýninguna í Seðla- bankahúsinu. Stelpur! Látum nú undrið gerast, slitum ekki keöjuna, gerum 24. október að kvennaf rídegi. Bestu kveðjur Guðrún Jónsdóttlr starfskona Kvennalistans Vandamál Bandalags jafnaðarmanna: Stjómmál eða einkamál Bandalag jafnaðarmanna var stofnað til að gera kerfisbreytingar á stjómkerfi okkar sem þegar er búið að sanna veikleika sinn eins og eftir- farandi dæmi sanna. Efnahagslif okkar er sifellt á niðurleið eins og fjárlög, gengi og erlendar skuldir bera með sér. Landbúnaður og sjávarútvegur eru komnir í opinbert kvótakerfi og eiga ekki afturkvæmt þaðan. Iðnaöur á sífellt í vök að verjast og nýsköpun þar er nær engin þótt almennt sé talið aö þetta sé sú at- vinnugrein, sem taka verður við mannafla næstu árin. Opinber leiðsögn i menntamálum og heilbrigöiskerfinu er að bresta og einkareksturinn þar mun koma illa við hina efnaminni. Kosningarétturinn er settur inn í byggöastefnuna þó hann sé ótvirætt siúlgreindur sem lýðræðislegur réttur í stjómarskránni. Erlendir samningar, eins og varnarsáttmálinn, taka ekki mið af íslenzkum lagasetmngum. Bandalagsmenn Bandalag jafnaöarmanna er opin samtök og höfuðbaráttustefnan er jafnrétti og bylting á stjómkerfi. Hér eru margir flokkar sem kjós- endur geta valið úr til að koma aimennum málefnum í höfn á Alþingi. Þeir sem til að mynda eru á móti bjór og með lambakjöti geta kosið Framsókn. Þeir sem vilja fleiri dagvistar- heimili og minni stóriðju geta kosið Kvennalistann. Þeir sem vilja auka félagslega þjónustu i opinbera geiranum og reka herinn á brott geta snúiö sér til Alþýðubandalagsins. Þeir sem vilja sinna jafnaðar- stefnu Norðurlanda velja auðvitað Alþýðuflokkinn. Þeir sem vilja herinn og hrátt kjöt, virkjanir umfram getu og fjár- hag, einkarekstur fyrir litla manninn og zetuna geta eölilega snúið sér til sjálfstæöismanna. Landsnefnd BJ Landsnefnd er skipuð 30 mönnum og þingmönnum frá Bandalagi jafn- aðarmanna. Samkvæmt fréttum hafa tveir þingmanna sagt sig úr nefndinni og „Það er ástæðulaust að móðgast þótt maður lendi í minnihluta í at- kvæðagreiðslu því að það hljóta að vera málefnin, sem borin eru fram, sem skipta höfuðmáli en ekki hver flyturþau.” Kjallarinn KOLBRÚNS. INGÓLFSDÓTTIR HÚSMÓÐIR, annar lét svo um mælt aö nefndin hefði brugðizt hlutverki sinu. A jafnréttisgrundvelli hljóta að vera 34 atkvæði til reiöu þegar kjósa á um málefni og stefnur innan lands- nefndar. Það eru líka 34 manns sem geta tekið til máls innan iandsnefndar og barizt fyrir stefnumálum sínum. Það er ástæðulaust aö móðgast þótt maður lendi í minnihluta í at- kvæðagreiðslu því að það hljóta að vera málefnin, sem borin-eru fram, sem skipta höfuðmáli, en ekki hver flytur þau. Barátta til sigurs kostar bæði svita og tár og þeir sem ekki þola að tapa né geta barizt til sigurs verða að taka slíku af karlmennsku. Frjálsræöi til að velja og hafna flokkum i kosningum er allra. Stefnumál flokka hljóta alltaf að skipa fyrsta sætið þegar kjósendum erboðiðtilkosninga. Alkunnugt er að mörg stefnumálin fara forgörðum þegar farið er að semja um rikisstjómir. Þeir þingmenn Bandalags jafnaðarmanna sem vilja fylgja hinni gamalgrónu, úreltu stefnu í íslenzkum stjómmálum eiga auösjá- anlega mikið erindi til annarra fiokka og vonandi verða þeir metnir þar að verðleikum. KolbrúnS. Ingólfsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.