Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1985, Blaðsíða 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985.
íþróttir íþróttir íþróttir_____________________i'þróttir íþróttii
Duffield til
ÍBKeðaVíðis
Knattspyrnumaðurinn Mark Duflield,
sem lék með KS frá Siglufirði í 2. deildinni
í sumar og KA í 1. deildinni árið áður, er
nú sterklega orðaður við lið Keflavikur
og Víðis frá Garði. Duffield, sem er mjög
sterkur miðvallarleikmaður, var staddur
suður með sjó um síðustu helgi og ræddi
þá við forráðamenn Viðis og ÍBK. Ekkert
var ákveðið í þeim samræðum en engu
að síður taldar miklar líkur á að hann
léki með ÍBK eða Víði næsta sumar. Mark
Duflield, sem leikið hefur landsleiki í
knattspyrnu, myndi styrkja hvort liðið
sem væri og að sama skapi yrði það mikið
áfall fyrir KS að sjá á eftir þessum snjaila
leikmanni.
-SK.
Brugge með
5 stiga forskot
— eftir sigur á Lierse í
1. deild íBelgíu
Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara DV
í Belgíu:
„Ég held að við höfum gert leikmenn
Cluþ Brugge svolitið hlægilega i dag.'Þeir
áttu ekki sigurinn skilið og vitaspyrnan,
sem þeir fengu, var gjöf,“ sagði Jan Bos-
kamp, þjálfari Lierse, eftir leik liðs hans
við Club Brugge í 1. deildinni belgísku um
síðustu helgi. Þrátt fyrir stór orð Bos-
kamp mátti Lierse þola tap, 3-2, í Brugge
en ieikurinn þótti einhver sá allra-
skemmtilegasti sem fram hefur farið í
Belgíu í ár.
Það var Ronny Martens sem náði for-
ystunni fyrir Lierse strax á fjórðu minútu
en franski sóknartengiliðurinn Papin
jafnaði fyrir Brugge. Bosch kom Lierse
yfir aftur, 1-2, en Querter náði að jafna
úr víti. Það var síðan Wellens er gaf Li-
erse rothöggið á 57. mínútu. Það sem eftir
lifði leiksins sótti Lierse stíft og skoraði
mark þremur mínútum fyrir leikslok en
öllum tU undrunar veifaði iínuvörðurinn
rangstöðu.
Anderlecht fékk sína fyrstu jólagjöf í
ár er dómari leiks þeirra við Beerschot
gaf liðinu vítaspymu. Boltinn hrökk í
hendi Enzo Scifo, leikmanns Anderlecht,
innan vítateigs Beerschot og ellefu þús-
und áhorfendur göptu af undrun þegar
dómarinn benti á vítapunktinn. Van der
Bergh skoraði úr vitapspyrnunni og jafn-
aði 1-1, því áður hafði Goosens skorað
fyrir Beerschot.
Þykkt lag af snjó var á leikvelli Water-
schei og það kom í veg fyrir að Ragnar
Margeirsson og félagar hans gætu leikið.
Club Brugge hefur nú fimm stiga for-
skot í deUdinni. Liðið hefur hlocið 24 stig,
Ghent er með nítján stig i öðru sæti ásamt
Anderlecht sem leikiö hefur einum leik
færra. fros ___________________
Kanada vann HM
bikarinn í golf i
Kanada vann sigui* i heimsbikarkeppni
sveitaliða í golfi sem lauk í Bandarikjun-
um i gær. Sveit þeirra var skipuö Vestur-
íslendingnum Dan HaUdorsson og Dave
Barr, þeir slógu 559 högg, fjórum minna
en Englendingar sem höfeuðu í öðru sæti.
Þetta er i annaö sinn sem Dan vinnur
sigur í heimsbikarkeppninni. Hann vann
einnig sigur í keppninni 1980.
Dan lék 72 holurnar á 278 höggum en
langbestum árangri náði Englendingur-
inn Howard Clarke er lék á 272.
Skiptu með
sér sigrinum
Frá Stefáni Amaldssyni, fréttamanni
DV á Akureyri:
Þór og Grindavík léku tvo leiki i l.deild-
inni í körfuboltanum hér á Akureyri um
helgina. I fyrri leiknum sigraði Þór, 67-57,
eftir 36-22 i hálfleik.í síðari leik liðanna á
sunnudag virtist einnig lengi vel stefna í
sigur Þórs. Liðið hafði lo stig yfir i hálf-
leik, 40-30, en Grindvikingar sneru dæm- j
inu viö i síðari hálfleiknum og sigruöu,
69-65.
Valdir hafa verið átta keppendur á NM í sundi unglinga sem háð verður í Osló um næstu helgi. Á myndinni að ofan eru í aftari röð frá
vinstri Hrafnhildur Guðmundsdóttir, þjálfari sundfólksins, Helga Sigurðardóttir, Bryndís Ólafsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir og Símon
Þór Jónsson. Fremri röð Hugrún Ólafsdóttir, Þuriður Pétursdóttir, Tómas Þráinsson, Arnþór Ragnarsson og Guðmundur Harðarson lands-
liðsþjálfari. Fararstjórar verða Ellen Yngvadóttir og Guðfinnur Ólafsson. Þau munu sitja sundþing Norðurlanda ásamt Guðmundi. DV-mynd S.
20 vítaskot í súginn
— hjá ÍR sem mátti þola tap gegn Val 71:73 í úrvalsdeildinni í körf u í gærkvöldi
Það var öðru fremur mjög slakur
leikur i fyrri hálfleik og hræðileg
nýting úr vítaskotum sem gerði
út um möguleika ÍR í leik liðsins
við Val. f kringum tuttugu víta-
skot liðsins fóru forgörðum í
gærkvöldi er liðin mættust í
Iþróttahúsi Seljaskólans í gær-
kvöldi. Við því mátti ÍR ekki og
mátti þola tap, 71-73. Liðið situr
því sem fyrr eitt og yfirgefið á
botni deildarinnar með aðeins tvö
stig.
Sem fyrr segir hafði Valur mikla
yfirburði í fyrri hálfeiknum og mun-
urinn á liðunum í hléi var fjórtón
stig, 40-26. ÍR-ingar komu grimmir
til leiks í seinni hálfleiknum og stiga-
munur liðanna hvarf sem dögg fyrir
sólu. ÍR minnkaði muninn í 42-38 og
jafnaði síðan, 63-63. Liðið lék á þess-
um tíma mjög sterka vöm sem virtist
koma Valsmönnum í opna skjöldu.
Karate-mót
í Ásgarði
UMSK mótið í karate fer fram
miðvikudaginn 27. nóvember í
íþróttahúsinu Ásgarði, Garðabæ, og
hefst mótið kl. 20.00. Keppendur eru
frá Gerplu, Stjömunni og Breiða-
bliki. Keppt verður í kata unglinga,
kvenna og karla. Einnig er keppt í
opnum flokki kumite um titilinn
UMSK meistari í karate. Að lokum
er keppt í sveitakeppni kumite í 3ja
manna sveitum. Það félag sem fær
flest stig í keppninni fær farandbikar
í verðlaun og er sigurvegari mótsins.
í fyrra sigraði Stjaman og hlaut 22
stig, Gerpla fékk 14 stig og Breiða-
blik rak lestina meððstig.
Valur náði þó að halda haus á síð-
ustu mínútunum og sigurinn varð
þeirra, 73-71.
Leifur Gústafsson var besti leik-
maður Vals. Mjög grimmur í fráköst-
unum auk þess sem hann varð stiga-
hæstur leikmanna. Einar Ólafsson
átti einnig þokkalega kafla.
Ragnar Torfason var í nokkrum
sérflokki ÍR-inga í seinni hálfleikn-
um en var á sama plani og meðspilar-
ar hans í þeim fyrri.
Stig Vals: Leifur 14, Tómas Holton
13, Jón Steingrímsson 11, Jóhannes
Magnússon 10, Torfi Magnússon,
Sturla Örlygsson og Björn Zoega 4.
Stig ÍR: Ragnar 21, Karl Guðlaugs-
son 11, Hjörtur Oddsson og Jóhannes
Sveinsson 10, Bjöm Steffensen 8,
Vignir Hilmisson 7, Jón Öm Guð-
mundsson4. - fros
Fjórði sigur Islands-
meistara FH í röð
— og KR sigraði í botnslagnum við Þrótt
FH hélt áfram sigurgöngu sinni
í l.deild handboltans á sunnu-
dagskvöldið er Iiðið vann Fram,
28-25, í Laugardalshöll. Sigurinn
var sá fjórði í röð hjá Hafnarfjarð-
arliðinu og möguleikar liðsins á
IHF sæti hljóta að vera nokkrir.
Það voru FH-ingarnir sem voru
öllu sprækari í byrjun. Þeir höfðu
undirtökin framan af fyrri hálfleikn-
um er leikurinn jafnaðist. í hálfleik
hafði Fram náð eins marks forystu,
14-13. Seinni hálfleikur var í jafn-
vægi allt þar til í stöðunni 21-21. Þá
kvöddu íslands- meistaramir Fram-
ara, skoruðu fimm mörk í röð en
Fram náði að rétta sinn hlut örlítið
í lokin.
Þorgils óttar Mathiesen spilaði að
venju stórt hlutverk hjá FH en einn-
ig voru þeir Guðjón Ámason og
Óskar Ármannsson atkvæðamiklir.
Agnar Sigurðsson lék sinn besta
leik fyrir Fram í vetur og var óum-
deilanlega besti maður liðs síns. Þá
var Hermann Björnsson drjúgur
lokakaflann.
Mörk FH: Þorgils óttar 9, Óskar
6/4, Guðjón 4, Héðinn Gilsson og
Stefán Kristjánsson 3, Jón Erling 2,
ValgarðurValgarðsson 1.
Mörk Fram: Agnar 8, Hermann 7,
Egill Jóhannesson 6/2, Ingólfur
Steingrímsson 2, Jón Árni og Dagur
Jónasson 1.
öruggur sigur KR
Seinni leikur kvöldsins var leikur
botnliðanna KR og Þróttar. Þar varð
aldrei nein spuming um úrslit. KR
náði strax á fyrstu mínútunum 7-1
forystu og síðar 14-3. Staðan var 15-6
í hálfleik og vesturbæjarliðið gat
leyft sér að keyra á "bekkjaliðinu"
lokakaflann. Úrslitin 32-23.
Jóhannes Stefánsson og Haukur
Geirmundsson voru ásamt Áma
markverði bestu menn KR. Gunnar
Gíslason var drjúgur í hraðaupp-
hlaupunum og þá átti Láms Lárus-
son góðan leik gegn sínum gömlu
félögum. Leikur liðsins var sann-
færandi megnið af fyrri hálfleiknum
en eftir það var fátt sem gladdi aúg-
að.
Brynjar Einarsson og Guðmundur
Óskarsson vöktu athygli í Þróttara-
liðinu með frammistöðu sem ekki
hefur sést hjá þeim áður í vetur. Gísli
Óskarsson átti ágætan leik en liðið
saknaði Birgis Sigurðssonar sem
ekki lék með liðinu að þessu sinni,-
Eins og Þróttaraliðið hefur leikið í
vetur þá ætti það ekki mikla mögu-
leika í 2. deildinni.
Mörk KR: Haukur 10/5, Stefán
Arnarsson og Gunnar Gíslason 6,
Lárus 4, Jóhannes Stefánsson 3,
Friðrik Þorbjömsson 2, Páll Ólafs-
son 1.
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson 6/1,
Brynjar, Gísli og Guðmundur 5,
Helgi Helgason 2.
Já, nú er svo sannarlega allra
veðra von. Þá er ekki verra að
koma við á næstu smurstöð
Skeljungs og láta yfirfara bílinn
fyrir vetraraksturinn.
Um leið og við skiptum um
smurolíu og smyrjum undir-
vagninn athugum við smurolíu-
síuna, loftsíuna og eldsneytis-
síuna og skiptum um þær ef
með þarf, yfirförum rafgeym
inn, mælum frostþol kælikerf-
isins og rúðuvökvans og
rakaverjum kveíkjukerfið.
Við sjáum líka um að setja
keðjur undir bílinn fyrir þig í
ófærðinni.
bílinn, vetrarþjónustan okkar er
bæði ódýr og örugg.
Smurstöðvar Skeljungs
Þú verður ekki í neinum
vandræðum með að komast
heim aftur.
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 26. NÓVEMBER1985.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Ellert Schram formaður
öryggisnef ndar UEFA
— ný nefnd sem á að rannsaka aðstöðu á knattspyrnuvöllum. Mikil ábyrgðarstaða formanns KSÍ
,Það verður gífurlega mikill
vinna i þessu fyrir nefndarmenn.
UEFA, knattspyrnusamband
Evrópu, er búið að semja nýjar
reglur um öryggi og aðbúnað á
knattspyrnuvöllum almennt og
fyrir nokkru var skipuð sérstök
nefnd innan UEFA sem hefur það
verkefni að gera úttekt á þeim
völlum sem koma til greina i
sambandi við úrslitaleiki í Evr-
ópumótunum. Þetta er gert
vegna harmleiksins, sem átti sér
stað í Brussel í vor, þegar Juvent-
us og Liverpool léku til úrslita i
Evrópubikarnum, keppni meist-
araliða,“ sagði Ellert Schram,-
formaður KSÍ, en hann hefur
verið skipaður formaður hinnar
nýju nefndar UEFA, öryggis-
nefndar UEFA, eins og hún hefur
verið nefnd.
Það er mikil ábyrgðarstaða sem
Ellert hefur verið kjörinn til og sýnir
vel það álit sem hann nýtur meðal
forustumanna í knattspymumálum
Evrópu. Sem kunnugt er þá er Ellert
varaforseti UEFA. í nýju öryggis-
nefndina voru kjömir fjórir menn
auk Ellerts. Þeir eru Ernie Walker,-
framkvæmdastjóri skoska knatt-
spymusambandsins, Rolf Bakker,-
fyrrverandi lögreglufulltrúi í Hol-
landi, sem ráðinn hefur verið sér-
stakur öryggisfulltrúi hollenska
knattspymusambandsins, og auk
þess eru tveir starfsmenn UEFA í
nefndinni.
Þegar við ræddum við Ellert í gær
var hann að undirbúa för til Lyon í
Frakklandi og fór utan til Frakk-
lands í morgun. Hann hittir aðra
nefndarmenn í Lyon en þar verður
úrslitaleikurinn í Evrópukeppni bik-
arhafa háður næsta vor. Síðan halda
nefndarmenn til Spánar - til Barce-
lona. Úrslitaleikur Evrópubikarsins,
keppni meistaraliða, verður á Spáni
næsta vor. Lið Barcelona er hins
vegar þátttakandi í Evrópubikarnum
sem Spánarmeistari. Ef Barcelona
kemst í úrslit keppninnar verður
úrslitaleikurinn háður í Madrid.
Þá hefur Ellert verið boðið til
Tokyo í Japan sem fulltrúi UEFA á
leik Evrópumeistara Juventus og
Suður-Ameríkumeistara Argentinos
Juniors. Sá leikur verður í Tokyo 8.
desember og það liðið sem sigrar
hlýtur heimsmeistaratitil félagsliða.
hsím
Anderlecht vildi fá
45 milljonir fyrir Amór
— og það var of mikið fyrir Mechelen sem keypti sex aðra leikmenn í staðinn.
Frá Kristjáni Bernburg, fréttarit-
ara DV i Belgíu:
„Ég reyndi að festa kaup á Arnóri
Guðjohnsen frá Anderlecht en verðið
sem sett var upp var alltof hátt. Ég
hefði þó getað keypt hann en ákvað
í staðinn að kaupa sex aðra leik-
menn,“ sagði forseti belgíska félags-
ins Mechelen, Johan Cordier, í sam-
tali við knattspymublaðið Foot.
Verðið sem Anderlecht setti upp fyrir
íslendinginn var hvorki meira né
minna en 45 milljónir og það þó að
leikmaðurinn hefði átt við meiðsli
að stríða.
Mechelen festi þess í stað kaup á
markahæsta leikmanni belgísku
deildarinnar í fyrra, Ronny Martens
írá AA Ghent, er kostaði félagið
fimmtán milljónir, hollenska lands-
liðsmanninn Erwin Koeman fyrir
tólf milljónir auk fjögurra annarra
leikmanna. Greinilegt er að And-
erlecht'vill ekki missa Arnór og setur
því þetta háa verð upp.
Arnesen fær ekki að fara.
„Ég má ekki fara til Ajax því
Anderlecht vill aðeins selja mig en
Ajax vill leigja mig í sex mánuði.
Ég kemst ekki í aðalliðið vegna þess
að ég er kominn upp á kant við
þjálfar- ann og með því að leika
aðeins í varaliðinu þá kem ég trúlega
til með að missa sæti mitt í danska
landsliðinu,“ sagði Frank Arnesen
sem á ekki sjö dagana sæla hjá
Anderlecht. Forseti Anderlecht var
ekki sáttur við ummæli Arnesen um
að félagið vildi selja hann: „Það
kemur ekki til greina að selja Arnes-
en fyrr en við höfum fundið annan
framherja í hans stað.“ Það bendir
því flest til þess að leikmaðurinn
dveljist hjá Anderlecht enn umhríð.
-fros
Ellert Schram
Ellefu mörk
Brynjars H.
Frá Gunnlaugi A.Jónssyni,
fréttamanni DV í Svíþjóð:
Brynjar Harðarson var yfirburða-
maður sem áður hjá Olympía þegar
liðið sigraði Kavlinge, 36-26, á úti-
velli á sunnudag. Brynjar skoraði 11
mörk í leiknum. Eftir sex umferðir í
2. deild,suð-vestur riðli, hefur
Olympia sigrað í öllum leikjum sín-
um og er auðvitað í efsta sæti. I
þessum sex leikjum hefur Brynjar
skorað 53 mörk eða um níu mörk í
leik að meðaltali.
Sænski landsliðsmaðurinn kunni í
knattspymunni, Robert Prytz, hefur
gerst atvinnumaður í Sviss. Byrjar
að æfa og leika með Young Boys,
Bem,eftir áramótin. Hann lék með
IFK Gautaborg síðasta keppnistíma-
bil en var áður atvinnumaður hjá
Glasgow Rangers á Skotland i. hsím
FERMAKEPPNI
Hin árlega firmakeppni í knattspyrnu veröur haldin í
íþróttahúsi Breiðholtsskóla dagana 30. nóv., 7. og 8. des.
Þátttaka tilkynnist til Begga og Hansa í síma 82855
milli kl. 9 og 17 fyrir 27. nóv.
Þátttökugjald kr. 3.500.
SVONA GERUM VIÐ