Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1986, Page 27
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986.
27
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36%
nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá-
dráttar.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og
42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%,
4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði
37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á
óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja
og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn-
ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
Öndvegisreikningur er bundinn til 18
mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxt-
um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu
vextir og á,3ja mánaða reikning í bankanum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársQórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur oróinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en
innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir
7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast
með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið-
um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg
eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð-
stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og
greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð-
bætur greiðast með höfuðstól við innlausn.
Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta-
auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru
meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum
reikningum bankanna og með 50% álagi.
Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur
greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis-
skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau
eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9%
vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn-
lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu
SDR.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12-18% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til
einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna
íjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa,
annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund.
Lánstími er21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11 % vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
0,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í janúar 1986 er 1364
stig en var 1337 stig í des. 1985. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986
er 250 stig á grunninum 100 frá janúar 1983
en 3699 stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20.01. 1986
INNLÁN MEÐ SERKJÖRUM s I * B É S
SJASÉRUSTA ll i! !i II 11 II íi U II Ú
INNLÁN ÚVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR ðbundin innstæða 22,0 22,0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22,0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25.0 26,6 25.0 25.0 23.0 23.0 25,0 23,0 25.0 25.0
E mán.uppsögn 31,0 33,4 30.0 28.0 26.5 30.0 29,0 31.0 28.0
IZmán.uppsögn 32.0 34.6 32.0 31.0 33.3
SPARNAÐUR-LANSRÉTTURSp»r»ð3 5mán. 25,0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25,0
29.0 26.0 23.0 29.0 28.0
INNLÁNSSKÍPTEINI Til 6 mánaða 28.0 30.0 28.0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Hlauparcikningar 10.0 10,0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10,0 10.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mán. uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGD
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0
Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5
Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5
Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGD
ALMENNIR VÍXLAR (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIÐSKIPTAVÍXLAR (forvextir) 34.0 2) kge 34.0 kge 32.5 kge kge kge 34.0
ALMENN SKULDABRÉF 32.0 3) 32.0 32,0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0
VIOSKIPTASKULUABRÉF 35.0 2) kge 35,0 kge 33.5 kge kge kge 35.0
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 31,5 31.5 31,5 31,5 31.5 31,5 31.5 31.5 31,5
ÚTLÁN VERÐTRYGGD
SKULOABREF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN T1L FRAIVILEIÐSLU
SJANEÐANMAISI)
1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,75%,
í Bandaríkjadollurum 9,5%, í sterlingspundum 13%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafharfírði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og
óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
Sandkom Sandkorn
Öll laun í Búnaðarbankann,
segja bæjaryfirvöld í Kópavogi.
Allt í Búnað-
arbankann
Einn þeirra banka er þykja
standa traustum fótum er
Búnaðarbanki Islands.
Þetta kemur raunar fram í
auglýsingum bankans þar
sem sytrandi lindir og
sveitasæla eru í öndvegi.
Það verður enginn var við
taugaveiklunarupphlaup á
þeim bænum.
En auðvitað stendur
bankinn í blóma af því að
hann á marga velvildar-
menn sem sumir hveijir
geta ekki hugsað sér að
skipta við annan banka.
Sem dæmi um þetta má
nefna forráðamenn Kópa-
vogsbæjar. Þannig er nefni-
lega mál með vexti að laun
starfsmanna bæjarins eru
eingöngu lögð inn á reikn-
inga í Búnaðarbankanum.
Neita forráðamenn að
leggja inn á reikninga í
öðrum bönkum.
Þetta hafa forráðamenn
Alþýðubankans ekki viljað
sætta sig við. Þess vegna
sendu þeir yfirvöldum
Kópavogsbæjar bréf þar
sem kvartað var yfir þess-
um viðskiptamáta bæjar-
ins.
Bréfið var svo tekið fyrir
á bæjarráðsfundi. Þar reis
þá upp fulltrúi sjálfstæðis-
manna, Richard Björgvins-
son. Mótmælti hann þvi að
laun starfsmanna yrðu í
framtíðinni lögð inn í Bún-
aðarbankann eingöngu og
krafðist þess að fyrri höml-
um yrði aflétt í máli þessu.
Ekki er vitað um endalok
þessa máls.
Helgi E. skipar sér í hóp
harðlínufréttamanna.
Helgi E. með
Við gátum þess litillega hér
i Sandkorni á dögunum að
fréttaflutningur sjónvarps
hefði tekið nokkrum
stakkaskiptum að undan-
förnu. Þykir tekið harðar á
ýmsum málum nú en áður.
Má þar nefna Hafskipsmál-
ið og síðar meint sukk
Þýsk-islenska. Sagði í sama
korni að fréttamenn hefðu
skipst í tvo hópa vegna
afstöðu sinnar til slíks
fréttaflutnings. Hefðu þau
Páll Magnússon og Edda
Andrésdóttir, með Ingva
Hrafn fréttastjóra í farar-
broddi, stutt hörðu frétta-
mennskuna.
En fleiri munu vera í þeim
hópi, þar á meðal Helgi E.
Helgason fréttamaður.
Hann hefur sagst vera |
hlynntur harðri frétta- !
mennsku þegar slikt ætti
við og allar upplýsingar
lægju fyrir. Varðandi frétt
um Þýsk-islenska, sem olli
fjaðrafoki á fréttastofu
sjónvarps, sagði Helgi að sú
frétt hefði verið rétt í öllum
atriðum, enda ekki birt fyrr
en allar upplýsingar höfðu
fengist staðfestar.
Og þar höfum við það.
Hitastillingin reddaði kaup-
félaginu.
Hitabreytingar
á kaupfélags-
skrifstofunni
Allir hljóta að vita að það
er hreinn unaður að kom-
ast í vinnu hjá kaupfélag-
inu. Og ef eitthvað er að þá
er því kippt í lag á svip-
stundu, eins og eftirfarandi
saga ber með sér:
Það gerðist á skrifstofu
kaupfélags eins í blómlegri
sveit að nýr hitastillir var
settur á alla ofna. Þetta var
svona sjálfvirk stilling. En
starfsfólkinu likaði alls
ekki við hana því hitinn á
skrifstofunni rokkaði til og
frá eftir veðrinu úti.
Því var það að skrifstofu-
stjórinn hringdi myndug-
lega í rafvirkjameistarann
sem hafði séð um uppsetn-
inguna á hitastillunum
handhægu. Spurði stjóri
hvort ekki væri hægt að fá
einn stilli fyrir alla ofnana
sem mætti svo skrúfa upp
eða niður eftir því sem fólk
vildi í hvert skipti. Meistar-
inn taldi þetta minnsta mál
i heimi. Hann sendi siðan
rafvirkjastrák á kaupfé-
lagsskrifstofuna til að
kippa málunum í lag.
Nokkru síðar hitti skrif-
stofustjórinn rafvirkja-
meistarann svo að máli.
Þakkaði hann honum mik-
ið fyrir aðstoðina á skrif-
stofunni. Kvaðst stjóri nú
alltaf stilla hitann sjálfur
og væru nú allir ósköp
ánægðir með hitastigið og
tilveruna.
Það var svo ekki fyrr en
nokkru seinna að það slapp
upp úr rafvirkjastráknum
að hann hefði bara skrúfað
hitastillinn á skrifstofu-
vegginn en aldrei tengt
hann við ofnana!
Lífsstarfiö
Þeir sátu við sama borð á
Fógetanum og tóku tal
saman. Eftir smástund
barst talið að íjölskyldum
þeirra og var ekki legið á
upplýsingunum.
„Hvað áttu mörg systk-
ini?“ spurði annar.
„Hvorki meira né minna
ersautján,“svaraði hinn.
„Og hvað gerir pabbi þinn
eiginlega?"
„Eg var að segja þér
það.“
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Menning
Menning
Menning
kennarar þess) að virtustu mennta-
sto&unum erlendis. Til baka snýr það
flest og reynist íslenskri músíkanta-
stétt liðsauki, yfirleitt góður.
Nú eru Zukofsky námskeiðin aflögð
Tónlist
EYJÓLFUR MELSTED
Sinfóníuhljómsveit
æskunnar
Sinfóniuhljómsveit æskunnar leikur í
Menntaskólanum við Hamrahlið 6. janúar.
Stjómendur/leiðbeinendur Oddur Bjöms-
son, Bemharöur Wilkinson, Joseph Ogni-
bene.
Á allra síðustu árum hafa áhrif
Zukofsky námskeiðanna verið að
koma glöggt í ljós. Ungt tónlistarfólk,
sem þangað sótti músíkölsk vítamín,
hefúr átt enn greiðari aðgang en fyrir-
rennarar þess (í mörgum tilvikum
Joseph Ognibene, leiðbeinandi hljómsveitarinnar.
Á efnisvali blásaranna á tónleikun-
um í Hamrahlíð sást að viða var við
komið og þess gætt að nemamir
fengju nasasjón af blásaramúsfk frá
ýmsum tímum. Allt frá lúðramúsík
endurreisnartímans gegnum klassik
og rómantík til músíkur þessarar
aldar og nýjasta stykkið ekki nema
átta ára gamalt. Nú er alls ekki ætlun-
in að segja hér kost og löst á einstök-
um verkum eða flutningi þeirra. Slíkt
væri alls ekki réttlátt þar sem nem-
endur áttu í hlut og yrði þá í hæsta
lagi sleggjudómur um frammistöðu
leiðbeinendanna. Þeir gætu að sjálf-
sögðu varið sig með þeim gullvægu
sannindum að enginn skóli sé betri
en nemendumir sem nám við hann
stunda. Þó get ég ekki látið hjá líða
að minnast á þann góða blásarakúltúr
sem i flutningi Oktetts Ketils Sæ-
verads fyrir átta flautur birtist. En
höfúðmáh skiptir í þessu öllu saman
að til skuli vera fyrirtæki (sleppum
því að nefha það stofnun) sem af alúð
og vandvirkni sinnir þörfúm sem
tónhstarskólamir geta ekki nema að
htlu leyti mætt, en skipta sköpum í
uppeldi verðandi hljómsveitarmanna.
EM
sem slík en starfinu þó haldið áfram
í þeirra anda undir merkjum Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar. bessi æsk-
unnar sveit er þjóðþrifafyrirtæki, ekki
síst þar sem tónlistarskólar okkar, svo
margir að tölu, era í flestum tilvikum
of smáir til að geta boðið nemendum
sínum upp á þátttöku í hljómsveit al
fullri stærð og alls ekki á þann hátt
að viðkomandi nemar séu á svipuðu
getustigi. Með námskeiðum af því
tagi, sem haldin eru á vegum Sin-
fóníuhljómsveitar æskunnar, er þó
komið til móts við þarfir nemanna í
hinum dreifðu tónlistarskólum.
: